Tíminn - 22.05.1962, Blaðsíða 1
Erm verð'ur þó ekkert
urii jþað fullyrt hvort þjóðarbú-
ið fái vandræðalaust staðið
undir slikum hækkunum.'
TÉKKAR REYNA NJÓSNIR HÉR, BLS. 3
A TKVÆDA TAP STJORNAR-
FLOKKANNA AFSTÝRIR
BJARNI BENEDIKTSSON
hann hefur í hótunum í Reykja
víkurbréfi á sunnudaginn!
I Tvær greinar, sem birt-
| ust í Morgunblaðinu á
| sunnudaginn, vekja ríkan
ótta viS það, að ríkis-
stjórnin kunni aó grípa
enn einu sinni til gengis-
iækkunar, nema hún fái
þá aðvörun í kosningun-
um á sunnudaginn, að
hún treysti sér ekki fii
bess
í Reykjavíkurbréfi blaðsins,
sem nú eins og endranær er
skrifað af Bjarna Benedikts-
syni, dómsmálaráðherra, er
komizt svo að orði, eftir að
rætt hefur verið um hina nýju
kjarasamninga á Akureyri og
Húsavík:
„Enn verður þó ekkert um
það fullyrt, hvort þjóðarbúið
fái vandræðalaust staðið undir
slíkum hækkunum".
Hótunin um gengislækkun
eða aðra slíka ráðstöfun, er
felst í þessum ummælum
leynir sér vissulega ekki.
í annarri grein, sem nær
yfir mestalla aðra útsíðu blaðs
ins, er reynt að færa fram af-
sökun fyrir gengislækkunina,
sem var gerð í fyrrasumar og
hún talin hafa orðið þjóðinni
til mikils góðs! Sést bezt á því,
að Sjálfstæðisflokkurinn trúir
enn á gengislækkunarstefn-
una.
í þessari sömu grein segir
enn fremur, að þjóðfélög, sem
hafi svipaða aðstöðu og ís-
lenzka þjóðfélagið, reyni „að
haga því svo til, að kaup-
03
Enginn atburður hefur um
langt skeið vakið meiri athygli
f Reykjavík en lánsatkvæðið,
sem Einar Olgeirsson fékk frá
Sjálfstæðisfiokknum, er kosið
var i Sogsstjórnina á borgar
stjórnarfundi á fimmtudaginn.
Atkvæði þetta íekk Einar efi
.r að Sjálfstæisflokkurinn hafði
gert tilraun til að Iáta hann
verða sjálfkjörinn á þann hátt
að bjóða ekki fram gegn hon-
um og ekki væri því stungið
upp á fleirum en kjósa ætti.
Þetta mistókst því að Þórður
Björnsson bar fram skriflegan
lista. Því þurfti að kjósa skrif-
lega og það var þá, sem Einar
fékk lánsatkvæðið, sem dugði
til að tryggja kosningu hans í
Sogsstjórnina.
Eftir á sáu Sjálfstæðismenn,
að þetta gæti reynzt þeim ó-
þægilegt vegna kosninganna, ---
Því var löngu síðar á fundinum
reynt að klóra yfir þetta með
hinum furðulega skrípaléik,
«em síðari kosningin var.
ÖIl þessi aðstoð við Einar 01-
geirsson — fyrst að ætla að láta
hann verða sjálfkjörinn og síð-
an að veita honum lánsatkvæð-
ið — afhjúpar glögglega leyni-
þræðina, sem . liggja á milli
Sjálfstæðisflokksins og komm
únista, eða nái ra tiltekið miil’
aðalforingja Sjálfstæðisflokks
ins og Einars Olgcirssonar.
Pessir leyniþræðir komu énr
betur í ljós á s.l. vori, þegai
Bjarni Benediktsson lét breyí
á Alþingi fyrirkomulaginu á
kjöri Norðurlandaráðs til þess
að koma í veg fyrir að Einar O)
geirsson félli úr því!
Þetta og margt fleira cýnir
og sannar, að Einar Olgeirsson
er eins konar ástmögur Sjálf-
stæðismanna. Þeir hlynna að
honum eins og aðstaða þeirra
bezt leyfir, cnda hafa íai
menn reynzt þeim gagnlegri en
hann í því að sundra liði vinstri
manna og treysta þannig völd
íhaldsins í landinu. Þótt revnt
sé að leyna þessu og skarnma
hann í orði, hefur honurn hvað
eftir annað verjð þakkað vel á
borði, eins og áðurnefndar
kosningar sýna.
Þetta sýnir og vel, hvíiík
hræsni og yfirdrepsskapur þa?
er, þegar íhaldsblöðin eru að
belgja sig út og látast vera ó-
skaplega mikið á móti komm-
únistum. Á sama tíma er j
laumi verið að hjálpa kommún
istum og hlaða undir þá, því að
íhaldið vill hafa þá hæfilega
EINAR OLGEIRSSGN
— Þeir hlynna að honuml
sterka, /mist til að geta unnið
með þeim, þegar það á við, —
sbr. verkfallið 1958 og kjör-
dæmabreytinguna 1959 — eða
til að nota þá sem Grýlu, þeg
ar þnð þykir betur henta.
Af þessum ástæðum ei Ein
ar Olgeirsson ástmögur Sjálf-
stæðisflókksins, þótt með æsi
skrifum i blöðum og ýmsum
skrípaleikjum sé reynt að leynr
hví fyrir kosningar.
Af þessum ástæðum minna
skrif íhaldsblaðanna helzt á
ruglaða menn þessa dagana. —
Þau óttast ekki aðeins, að íhald-
ið sjálft tapi, lieldur líka ást-
mögur þess, Einar Olgeirsson,
maðurinn, sem jöfnum höndum
hefur gagnað þeim jafn vel
FramhaJc a dís. 15
greiðslur hækki ekki um
meira en sem nemur 3 af
hundraði árlega."
Af þessu og mörgu öðru,
sem hefur hlerazt að tjalda-
baki, má telja það nokkuð
víst, að ríkisstjórnin hefur
nýja gengislækkun mjög til
athugunar og þess vegna er
hún jafnófús til þess og raun
ber vitni, að veita hinum hóf-
legu kauphækkunum, sem
samið hefur verið um nyrðra,
fullt samþykki sitt.
Gegn þessum fyrirætlunum
ríkisstjórnarinnar eiga kjós-
endur nú öruggt ráð. Það er
áð veita stjórnarflokkimum
slíkt aðhald og slíka áminn-
ingu í kosningunum á sunnu-
daginn,að þeir þori ekki að
grípa til nýrrar gengislækk-
unar. Það geta kjósendur gert
með því að efla þann stjórn-
arandstöðuflokkinn, sem sterk
astur er og stjórnin óttast
mest og virðir mest, Fram-
sóknarflokkinn. Hvert at-
kvæði, sem hann fær í þessum
kosningum, verður ríkisstjórn
inni góð áminning um að
forðast endurtekningu slíks
glæfrabragðs og gengislækk-
unin í fyrra vor.
Afstýrið nýrri gengislækk-
un með því að kjósa Fram-
sóknarflokkinn. —
SJA LEIÐARA
SÖLUBÖRN
Afgreiðsian í Banka-
stræti 7 opnuð kl. 7
alla virka daga
Fólk er beðið að
athuga, að kvöldsími
blaðamanna er
1 8303