Tíminn - 22.05.1962, Blaðsíða 2
HUNDURíNN,
LÆKNAR BÖRNIN
Heyrzt hefur um hunda,
sem hlofið hafa sálfræðilega
umönnun, og er það að vísu
furðulegf, en engan veginn
óhugsandi. En læknir einn í
Bandaríkjunum hefur gengið
skrefi lengra, því að hann
hefur þjálfað hundinn sinn
fil þess að verða sálfræðing-
ur! —
Læknirinn heitir Boris M. Lev-
inson, prófessor í sálarfræði við
Yeshiva-háskólann í New York,
sórfræðingur í að leysa sálfræði-
legar flækjur vandræðabarna.
Neifaði að svara
Með hjálp hunds síns, Jingles,
hefur honum tekizt að hjálpa
fjölda barna, sem venjulegir tvi-
fættir sálfræðingar höfð'u gefizt
upp á .
Dr. Levinson uppgötvaði lækn-
ingamátt Jingles af einskærri til-
viljun. Fyrir u.þ.b. átta árum
komu örvæntingarfullir foreldrar
til hans með son sinn, Peter.
Drengurinn hafði valdið þeim
miklum erfiðleikum, og um
margra ára skeið höfðu þau ferð-
gzt með hann á milli áálíræðinga,
sem gáfust upp á honum, einn af
öðrum.
Þeim hafði verið sagt, að sonur
þeirra yrði að fara á geðveikra-
spítala. Hann var óraunverulegur
í gerðum, þungur og óskiljanleg-
ur í lund og neitaði algjörlega að
svara foreldrum sínum, kennur-
um eða læknunum, sem voru að
reyna að hjálpa honum.
Sleikti hönd drengsins
Sjúkdómstilfelli Peter’s virtist
svo slæmt og vonlaust til lækn-
ingar, að dr. Levinson hikaði við
að taka það að sér, en að lokum
samþykkti hann að sjá hann einu
sinni.
Það var öllum aðilum til láns,
að Peter kom ásamt foreldrum
sínum klukkustund áður en gert
hafði vetið ráð fyrir. Dr. Levin-
son sat við skriftir í skrifstofu
sinni, og hundurinn hans, Jingles,
lá á ábreiðu fyrir framan arin-
inn. Vegna hinnar óvæntu komu
gestarina, gleymdi læknirinn að
að reka hundinn út, áður en hann
tók á móti þeim. Jingles reis
þegar upp, gekk beina leið til
drengsins og sleikti hönd hans.
Lækninum til undrunar sýndi
Peter engin merki ótta, heldur
klappaði hundinum, hrifinn á
svip.
Vildi fá að koma aftur
Móðir drengsins ætlaði að
draga son sinn frá hundinum, en
dr. Levinson gaf henni merki um
að láta það vera, og Peter og
Jingles drógu sig hamingjusamir
í hlé fyrir fullorðna fólkinu og
léku sér saman fyrir framan ar-
ininn.
Að stundarkorni liðnu spurði
Peter, hvort hundurinn léki alltaf
við börnin, sem kæmu til læknis-
ins. ,Dr. Levinson svaraði því ját-
andi, og þá spurði Peter, hvort
hann mætti ekki koma aftur og
leika sér við Jingles. Það var
auðsótt mál.
Varð eðlilegur drengur
Pet'er kom nokkrum sinnum
einn og fékk að leika sér ótrufl-
aður við Jingles. Dag einn bað
hann dr7. Levinson að taka þátt í
leiknum, og þar með var ísinn
brotinn. Þetta gerði lækninum
kleift að komast í náið vináttu-
samband við Peter, og öll vanda-
mál drengsins leystust smám sam
an á eðlilegan hátt, og hann gat
snúið aftur til foreldra sinna og
skóla sem eðlilegur drengur.
Upp frá þessu hefur dr. Levin-
son látið Jingles hjálpa sér við
lausn fjölmargra erfiðra tilfelli.
Hann er svo ánægður með, hve
það að glata henni. Þau lifa í sí-
felldu öryggisleysi og ótta við að
vera gerð hlægileg. Hundurinn
fullnægir þessari þörf.
Tryggur hundur fullnægir þörf
húsbónda síns fyrir hlýðni, traust
og virðingarfulla undirgefni. Og í
rauninni hefur manninum alltaf
verið það ljóst hvers virði hund-
urinn og önnur gæludýr eru fyrir
andlega heilsu manna.
Það líður efalaust ekki á löngu,
áður en sálfræðingar og geðlækn-
ar fara almennt að taka dýrin í
þjónustu sína til hjálpar við lækn
ingar.
Næst þegar þú ferð til læknis,
af því að þér finnst þú vera svo
„langt niðri“, er hann vís til að
segja: — „Þú þarfnast hunds“, í
stað þess að segja: — „Þú getur
reynt þetta lyf“.
Volvo á 35
ára afmæli
miklu hundurinn fær áorkað, þar
sem geta hans sjálfs nær ekki
árangri, að hann hefur í hyggju
að koma upp nokkrum hópi
hunda, sem hann ætlar að þjálfa
til þess eins að leika við börn.
Draga sig inn í skelina
Stundum verður þó Jingles að
hopa af hólmi. Það er þegar börn-
in eru hrædd við hunda. Þá finn-
ur Jingles þcgar í stað' ótta þeirra
og hörfar undan, ófær um að nálg
ast barnið. Þegar slíkt hendir,
hefur oft hjálpað að sýna barninu
minni dýr, eins og kettlinga eða
annað því líkt, sem börn hræð-
ast siður en stóra hunda. Þegar
barnið hefur vingazt við þessi
minni dýr, þá er kominn tími til
fyrir Jingles að reyna á ný.
Hvernig stendur á þessu? Öll
börn, sem þjást af sálfræðilegum
truflunum, hafa á einhvern hátt
misst — eða aldrei hlotið — hæfi
leikann til að stofna til vináttu-
sambands við aðra. E.t.v. hefur
foreldri eða annar náinn, óvilj-
andi sært tilfinningar þessa við-
kvæma barns, scm við það dreg-
ur sig inn í skel sína, ákvcðið í
því að láta ekki særa sig þannig
aftur.
Þú þarfnast hunds
Slíks börn eru haldin eru knýj-
andi þörf á umönnun og öruggri
ást, án þess að þurfa að óttast
í ár eru liðin 35 ár frá því að
fyrsta Volvo-bifreiðin var gei'ð,
en það var opin 4ra manna bif-
reið með 28 ha. vél. Volvo-
verksmiðjurnar hafa vaxið á
þessum 35 árum frá því að fram-
leiða árið 1927 297 bifreiðir í
92949 bifreiðir s.l. ár, en út-
flutningur jókst um 13%. Fyrsta
umboð Volvo, erlendis, var á ís-
landi.
Volvo er nú söluhæsta fram-
leiðslufyrirtæki Svíþjóðar og
mun vera í hópi 10 stærstu
framleiðslufyrirtækja í Evrópu.
PV 544 er helzta gerðin af
Volvo-bifreiðum, en hún hefur
verið framleidd allt frá því 1944,
þótt margar breytingar hafi ver-
ið gerðar á henni. Þessi bifreið
er nær óþekkt í Englandi, en
sýnir ljóslega hver vandi er á
ferðum fyrir framleiðendur, sem
verða að reiða sig á takmarkað-
an heimsmarkað. Gerð yfirbygg-
ingar mun eflaust fá misjafna
dóma, en verkfræðingar hafa
lengi legið yfir hinum ýmsu
tækilegu vandamálum á þessu
sviði. Hins vegar er bifreiðin
þannig gerð, að hægt er að velta
henni og ganga út óskaddaður.
Vélin hefur og marga kosti og
hefur verið mjög vandað til
hennar efni og vinna, en sama
gildir um gírkassann, stýri,
hemla, og gorma. Bifreiðin er
einnig vel varin gegn ryði af því
lítið er um bílskúra í Svíþjóð
og flestir bílar verða að standa
úti.
í upphafi var hún gerð til að
þola slæma malarvegi, en mikið
var um þá í Svíþjóð, þegar fram-
leiðsla þessarar gerðar hófst
Yfirbyggingin er þétt og vel
varin gegn kulda, en miðstöðin
er með ágætum og miðuð við
kalt loftslag.
Árið 1959 seldu Volvo-verk-
smiðjurnar 18.000 bifreiðir eða
um 25% framleiðslunnar til
Bandaríkjanna. Var nú hægt að
hefjast handa um framkvæmdir.
Hafin var framleiðsla á nýrri
gerð 4-dyra tízkubifreiðar, sem
heitir Amazon í Svíþjóð en P-121
eða 122 erlendis. Vegna þess hve
vel gekk á Bandaríkjamarkaðin-
um, urðu' Volvo-verksmiðjurnar
að breyta talsvert um stefnu.
Áður hafði fyrirtækið verið mót-
fallið kappakstri, en vegna þess
hversu vel bifreiðinni var tekið
í Bandaríkjunum, var látið eftir
umboðsmönnunum þar og fram-
leidd 85 hestafla vél. Varð það
til þess að bifreiðin reyndist ör-
ugg og endingargóð í mjög hröð-
um akstri. En tæknifræðingar
fyriitækisins benda á, að til-
raunastarfsemi þeirra reyni
mun meira á bifreiðina en hvers
kyns kappakstur á vegum úti.
Annar árangur af þessari
stefnubreytingu Volvo, sem gerð
er eingöngu í verzlunarskyni, er
framleiðsla fallegrar sportbif-
reið'ar — P 1800 — með 4 cyl-
indra 100 hestafla vél. Aætlað
er að framleiða 10.000 bifreiðir
af þessari, gerð á ári, en vegna
þess að verksmiðjurými er ónógt
heima fyrir, er bifreiðin sett
saman hjá Jensen Motors í Skot-
landi.
Fyrirtækið gerir strangar kröf-
ur um vörugæði, en býð'ur lágt
verð. Afgreiðslutíminn verður að
standa og oft er hlutum skilað
að prófun aflokinni, en samn-
ingum kann að vera sagt upp
með stuttum fyrirvara. Fyrirtæki
á Norðurlöndum fá jafnan að
heyra það, að ef þau geti ekki
boðið sama verð og keppinaut-
ar í Bandaríkjunum, Bretlandi
og Þýzkalandi, muni pantánir
gerðar erlendis. Enda eru 30—
40% af hlutum í Volvo-bifreið,
erlendir.
Til gamans má geta þess, að
frá því var sagt nýlega í banda-
rísku bíla-tímariti, að tilraun var
gerð með það að setja tvo bíla
í sérstaka hristivél til þess að
rannsaka styrk þeirra. Annar bíl
inn var af vinsælli vestur-þýzkri
gerð, en hinn Volvo. Þeir voru
báðir af svipaðri stærð og í lík-
um verðflokki. Arangurinn varð
sá, að vezturþýzki bíllinn hrundi
sundur á örskömmum tíma, en á
endanum gáfust þeir upp á að
hrista Volvoinn, því á honum
var engan bilbug að finna!
3C
Gömul lygasaga
Öllu heiðvirðu fólki blöskrar,
að Mbl. skuli helzt hafa til borg
arstjórnarkosninganna að leggja
lygasöguna um „þjóðfylkingu“
Framsóknarmanna og kommún
ista, en þessa lygasögu hafa
þeir notað í hverjum kosning-
um síðan 1937. — En 1937 var
byrjað á þessu með því að falsa
bréf frá alþingismanni, sem
átti að sýna þetta samsæri.
Heiðvirt fólk hefur blátt á-
fram ógeð á þessu.
Ný lygasaga
Ýmsum nýjum lygasögum er
bætt við, þegar þrengir að í
kosningabaráttunni. Nú er ein
sú, að Framsóknarmenn liafi
verið búnir að ákveða stórkost-
lega lántöku hjá Rússum, sem
stoppaðar hafi verið af öðrum.
Heldur hljómar þessi lygasaga
einkennilega í eyrum, þegar
þess er gætt, að vinstri stjórnar
árin var Eysteinn Jónsson sví-
virtur látlaust í Þjóðviljanum
fyrir að halda fast við að leita
lánsfjár hjá vestrænum þjóðum
og treysta viðskiptin við þær.
á lágu plani
Svona lygasögugerð er á
fjarskalega „lágu plani“ og er
aumlegt að sjá mæta borgara
úr Reykjavík birta innlegg sín
um borgarstjórnarkosningarnar
innan um slíkan Iygaáróður,
sem í' öðrum löndum ýmsum
myndi ekki sjást nema í örg-
nstu sorpblöðum.
Merkilegt geðleysi
Það er annars undarlegt geð-
leysi ýmissa mætra manna, sem
Sjálfstæðisflokkinn fylla, að
þeir skuli ekki setja Mbl. stól-
inn fyrir dyrnar og krefjast
þess, að blaðið hætti þeim sið-
lausa lygaáróðri, sem það tem-
ur scr um kosningarnar, clla
láti þeir engan stafkrók þar frá
sér sjást.
Lóðirnar
Reykvíkingar eru framtaks-
samir og duglegir og það stend
ur ekki á því í borginni, sem
þeir eiga að standa fyrir, en
það er biS á öllu, sem borgar-
yfirvöldin eiga að láta í té og
hömlur, sem drepa framtak
hins duglega fólks í dr.óma. Lóð
ir fást ekk! fyrr en eftir dúk
og disk og kringum lóSaúthlut
unina blómstrar alls konar spill
ing og pólitísk sérdrægni. —
Hundruðum þúsundum saman
hafa Reykvíkingar orðið að
hörfa úr borginni sinni, vegna
þess aS þeir hafa ekki fengiS
byggingarlóðir. En nú skulum
við gefa bláu bókinni orðið:
„Sjálfstæðisfiokkurinn lofar
að reynt verði í hvívetna að
auðvelda einstaklingum íbúða-
byggingar, greitt verði meS lán
veitingum og annarri opinberri
aðstoð fyrir byggingu verka-
mannabústaða. Að bærinn láti
mönnum í té lóðir til húsbygg
inga og veiti þeim hæfilegan
frest til að hefja framkvæmdir.
— Bláa bókin 1950.
„Að stóraukið fjármagn fáist
til íbúðabygginga með hag-
kvæmum kjörum. Bærinn hafi
jafnan til nægilegt af bygging-
arlóSum og kostað vcrði kapps
um að gera íbúðabyggingar ó-
dýrari en verið hefur“. Bláa
bókin 1954 (Rétt er að gcta
þess, að íbúðir, sem bærinn lief
ur byggt eru dýrustu íbúðir í
bær • vg halda uppi íbúða-
verðinu).
„Reynt verði í hvívetna að
greiða fvrir og auðvelda íbúða-
íFramhald á 15 sfðui
2
T f M I N N, þriðjudaginn 22. maí 1962.