Tíminn - 22.05.1962, Blaðsíða 9

Tíminn - 22.05.1962, Blaðsíða 9
Frá 25. aðalfundi KRON Er þörf verð- lagsákvæða? Grein úr félagsriti KRON Á undangengnum árum hefur ( verð allrar vöru og þjónustu hækk: að mjög mikið. Allan þann tíma: hafa verið uppi s-kiptar skoðanir um hverjar væru orsakir hækkan- anna og hvernig hamla mætti gegn! þeim. Helzta ráðið hefur verið að' hið' opinbera setti reglur um há-| marksverð eða hámarks sölulaun, j og höfum við búið við slíkar regl-l ur og tilskipanir í 2 til 3 áratugi og margan vanda þjóðarbúsins átt að leysa með því að breyta þeim einu sinni eða tvisvar á ári eða með hverjum bjargráðum, viðnámi eða viðreisn. Afskipti ríkisvaldsins af þessum málum hafa nú staðið það lengi að margir eru farnir að líta á þau sem ómissandi „invent- ar“ í þjóðlífinu og að þau leysi allan vandann, sé þeim breytt af og til. Sannlcikurinn er sá, að verðlags ákvæði þau sem við búum við, tryggja ekki lægsta verð. Það eina, sem þau tryggja er, að seljandi má taka ákveöinn hundraðshl. í sölu- laun, hvort sem hann Iiefur keypt vöruna á háu eða lágu verði og j tryggja á þann hátt mestan hagn- að þeim, sem gera óhagstæðust innkaup. Það er því tímabært að hugleiða hvort þessara afskipta sé þörf, | hvaða hrif það hefði að afnema; verðlagsákvæðin og hvort annað gæti komið í þeirra stað. Með óhindruð'um innflutningi og framleiðslu vara innanlands er fal- in ein aðalástæðan ,fyrir verðlags- ákvæðum, sú að vegna takmarkaðs framboðs verði varan hækkuð óeðlilega. Ef ákvæðin væru af- numin gengi fólk þess ekki dulið! að verg gæti verið mismunandi’ hátt á sömu vöru og mundi þá1 bera saman verð fleiri aðila og kaupa þar sem verð og vörugæði væru bezt. Einn aðalgallinn á langvarandi verðlagsákvæðum er sá að þau sljófga tilfinningu al- mennings fyrir verði hinna ýmsu vörutegunda. Margar . vörur eru seldar á sama verði í öllum búð- um og allt of margir draga þá; ályktun af því að verð allra vara sé á sama tíma í öllum búðum það sama. Það er mjög hættuleg þróun ef menn hætta að gera samanburð á verði og þeirri þjónustu sem þeim er veitt. Árvekni og aðgæzla alls almennings í innkaupum verður bezta og heilbrigðasta verðlags- eftirlitið. Kaupfélögin eru stofnuð og starf rækt fyrst og fremst til að selja góðar vörur og þjónustu á sann- virði. Þau eru opin öllum og innan þeirra hafa allir sama rétt. Með því Nokkrir fulltrúar á aðalfundi KRONs.l. sunnudag. að gerast félagsmenn í kaupfélagi og verzla við það, tryggja menn sér sannvirði vöiu og þjónustu á hverj- um tíma, og gagnvart þeim er ekki þörf neinna verðlagsákvæða. Fé- lagsmenn kjósa sér stjórn, ráða starfsmenn og ráðstafa þeim tekju- afgangi sem kann að myndast, ann- aðhvort til uppbyggingar félaginu eða sem endurgreiðslu til félags- manna í hlutfalli við kaup þeirra hjá félaginu. Kaupfélag Reykjavíkur og ná- grennis er samvinnufélag 5500 Reykvíkinga, sem stefnir markvisst að því að selja góðar og ódýrar vörur, veita góða og örugga þjón- ustu í fyrsta flokks búðum. Verðsamanburður undanfarin ár hefur sýnt að KRON selur jafnan margar vörur undir almennu búð- arverði í bænum. Það eru vinsamlega tilmæli til allra Reykvíkinga að þeir gerí sem tíðastan samanburð á verði og vörugæðum í KRON búðum og öðrum verzlunum, og ef þeir vilja gerast þátttakendur i eina varan- lega verðlagseftirlitinu, þá gangi þeir í KRON, gerist félagsmenn og taki virkan þátt i félagsstarfinu. Morgunblaðsf réttir Isafoldar og Varðar Fréttir blaða er meðal þess les- efnis sem fyrst er lesið og mest, af öllum almenningi. Það er því alltaf mjög mikils virði, að fréttir berist fljótt og séu sannar og réttar. 11. tbl. ísafoldar og Varðar 14 marz, dótturblaði Morgunblaðsins — fyrir sveitafólk, flytur okkur frétt dagsetta frá ísaf. 31. janúar s.l. um slys Jóhönnu Þórðardóttur, á Arngerðareyri — fréttin er því orðin hálfs annars mánaðar gömul. Önnur frétt í sama blaði frá Páli í Þúfum dagsett 13. febrúar um að- draganda að nýjum Djúpbátskaup- um. Sú frétt er því sýnu yngri eða mánaðargömul. Jóhanna á Arngerðareyri var flutt með Djúpbátnum til ísafjarð- ar, þriðjudaginn 30. jan. s.l. Föstu- daginn 2. febrúar kemur blaðið Tíminn í Djúpið — og fréttir af Jóhönnu á Arngerðareyri komu þá strax í því blaði — eða eftir aðeins 2 daga. Finnst ykkur, sem lesið, nokkur munur á fréttaflutningi þessara tveggja blaða — í þessu tilfelli eða finnst Morgunblaðinu svona lítið til koma — að segja frá — þótt fólk liggi ósjálfbjarga af slysförum eða öðrum orsökum úti um sveitir landsins — vegna fólks- fæðar, dreifbýlis og erfiðra sam- gangna. Arngerðareyri hefur verið gam- alt höfuðból. Nú sér enginn fram- tíð sinni borgið með því að setjast þar að til búskapar. Er áhugi Morgunblaðsmanna kannske eitthvað í samræmi við tíðan frétta flutning, fyrir þ.ví að byggð sveit- anna haldist. Þá kom frétt í Morgunblaðinu frá Páli í Þúfum — fréttamanni (Framhala a 13. siðu) ★ Aðalfundur Kaupfél. Reykja- víkur og nágrennis, var hald- inn síðast liðinn sunnudag í Breiðfirðingabúð. Formaður félagsins, Ragnar Öl- afsson, setti fundinn og flutti skýrslu félagsstjórnar. Kaupfélagsstjórinn, Kjartan Sæ mundsson, las reikningana, skýrði þá og gerði grein fyrir rekstri síð- asta árs. Forstjóri S.Í.S., Erlendur Ein- arsson, flutti fundinum kveðju og árnaðaróskir í tilefni 25 ára af- mælisins. Á fundinum líkti einhugur, sam- sta'ða og bjartsýni á framtíð fé- lagsins. Vörusala félagsins varð kr. 58.512.191.11, og óx um rösk 12% frá fyrra ári. Félagsmenn um síð- ustu áramót voru 5518. Á síðast liðnu ári var þrem eldri búðum félagsins br'eytt í kjörbúðir og félagið keypti verzl- unarhús Kaupfélags Kóp^vogs við Álfhólsveg 32 og hóf þar verzlun- arrekstur 1. október. Eftir ára- mótin var syo enn tveim eldri búð- anna bi'eytt í kjörbúðir og rekur félagið nú 12 kjörbúðir allar í fremstu röð hvað útbúnað snertir. Sölubúðir félagsins eru nú 17 í Reykjavík og 3 í Kópavogi. Úr stjórn áttu að ganga Hall- grímur Sigtryggsson, Pétur Jóns- son og Sigurvin Einarsson. Hall- grímur og Pétur voru endurkjörn- inhugur og bjartsýni um framtíð félagsins Mjög hagstætt vöruverð í 20 KRON-verzlunum, þar af eru 12 glæsilegar kjörbúðir. Ragnar Ólafsson, formaður félags. stjórnar flytur skýrslu. Erlendur Einarsson, forstjóri S í S flytur KRON afmællsávarp. ir, en í stað Sigurvins, sem nú flytur af félagssvæðinu, var kosinn Sveinn Gamalíelsson, er verið hafði í varastjórn félagsins. I i varastjóm voru kosnir Guðmund- ur Finnbogason og Hermann Þor steinsson. Fyrir voru í stjórn: Ragnar Ólafsson, Þorlákur Ottesen, Þórhallur Pálsson, Guðrún Guðjónsdóttir, Ólafur Jónsson, Guðmundur Hjartarson. 6. ágúst næst komandi, verður Kaupfélag Reykjavíkur og ná- grennis, 25 ára. Þess verður minnzt meðal annars, með útgáfu félagsríts, sem sérstaklega verður helgað afmælinu. í riti félagsins, sem út kom á fundinum er m.a. mjög eftirtekt- arverður samanburður frá 16. þ.m. á vöruverði hjá KRON og 3 kaup- mönnum í Reykjavík. Samanburð- ur þessi sýnir m.a. að meðalverð kaupmanns er nú allt að 9,8% hærra en hjá kaupfélaginu, og er þetta enn ein staðfesting þess að hin úreltu verðlagsákvæði tryggja ekki lægsta verð. Kjartan Sæmundsson, framkvæmda- stjóri, flýtur skýrslu sfna. fcff í M I N N, briðjudaginn 22. maí 1962. 9 I I i I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.