Tíminn - 22.05.1962, Qupperneq 12
ÍÞRDTTIR
RITSTJÓRI HALLUR SIMONARSON
Fyrsta frjálsíþróttamótið;
Huseby sigurveg
ari í kúluvarpi
— en þetta er tuttugasfa og fimmta keppnis-
ár hans í frjálsum íþróttum
Ármenningar sigruðu í 20. sinn á sundknattleiksmóti íslands — og er myndin af leik þeirra vi5 KR.
Reykjavík hlaut
alla meistarana
Reykvískir sundmenn unnu
mikinn sigur á Sundmeistara-
móti íslands, sem háð var í
sundlauginni í Hveragerði um
helgina. Urðu þeir íslands-
meistarar , öllum keppnis-
greinunum og varð Guðmund-
ur Gíslason, ÍR, mesti afreks-
maður mótsins, en hann varð
meistari í 6 greinum, fjórum
einstaklingssundum og tveim-
ur boðsundum. Guðmundur
hlaut einnig afreksbikar for-
seta íslands, Pálsbikarinn, fyr-
ir bezta afrekið, sem unnið
var á mótinu, en Guðmundur
Sundmeistaramót íslands var háð í
Hveragerói um helgina
synti 100 m. skriðsund á 59.4
sek„ og gaf það mest sam-
kvæmt sundtöflunni.
Sundlaugin í Hveragerði er 50
m. laug og er því árangur, sem náð
ist á mótinu ekki sambærilegur
við til dæmis afrek, sem unnin
eru hér í Sundhöllinni í Reykja-
vík, en þar er keppt í 25 metra
löngum brautum.
Keppnin um forsetabikarinn var
nokkuð hörð milli Guðmundar og
félaga hans Harðar Finnssonar, en
Hörður vann tvö næst beztu afrek-
in á mótjnu í 100 og 200 m. bringu
sundi. Á mótinu var einnig af-
hentur Kolbrúnarbikarinn svo
nefndi, sem gefinn var til minning
ar um Kolbrúnu Guðmundsdóttur
— hina frábæru sundkonu. Bik-
arinn er veittur þeirri sundkonu,
sem bezt afrek vinnur á hverju
ári. Ágústa Þoráteinsdóttir, Áf-
manni, hlaut hann að þessu sinni
fyrir íslandsmet sitt, 100 m. skrið-
sundi, 65.2 sek., en það afrek gef-
ur 912 stig.
Áhorfendur á sundmótinu voru
margir, einkum á sunnud., og komu ■
(Framhald á 13. síðu)!
Fyrsta frjálsíþróttamót sum
arsins — Vormót ÍR — var
háð á Melavellinum á sunnu-
daginn. Aðstæður voru ekki
sem beztar og nokkuð hvasst,
sem dró úr árangri keppenda
í nokkrum greinum. Gunnar
Huseby sigraði í kúluvarpinu
og varpaði 15.31 metra, en
þess má geta, að nú í vor eru
25 ár síðan hann hóf keppni
í frjálsum íþróttum, Gunnar
hefur æft vel í vetur — og
sagt er, að hann hafi varpað
kúlunni um 16 metra á æf-
ingu.
Einn athyglisverðasti árangur á
mótinu náðist í langstökki, en
þar sigraði hinn bráðefnilegi KR-
ingur Þorvaldur Jónasson og
stökk nú í fyrsta sinn yfir sjö
metrana — eða nánar tiltekið
7,01 m. — en of mikill vindur var
svo að afrekið er ekki löglegt.
En engu að síður gefur það vel
til kynna rnöguleika Þorvaldar í
greininni. f öðru sæti varð Úlfar
Teitsson, KR, sem stökk 6,80 m.,
en þriðji varð Einai^ Frimannsson,
KR með 6,72 metra — en hann
hefur áður stokkið yfir sjö metra
— og verið landsliðsmaður í
greininni.
Kristleifur Guðbjörnsson, KR,
hljóp 3000 metrana mjög vel og
er greinilega mjög vel þjálfaður.
Tími hans var 8:54,7 mín., sem
telja má ágætt afrek, þar sem
erfitt var að hlaupa hringhlaup
á vellinum. Áhorfendur, sem
voru frekar fáir, urðu fyrir mikl
um vonbrigðum með stangar-
stökkskeppnina, en Valbirni Þor-
lákssyni tókst að þessu sinni ekki
að stökkva yfir 4 metra. Val-
björn hefur enn ekki fengið
trefjastöngina frá Bandaríkjun-
um, en von er á henni einhvern
næsta dag.
Helztu úrslit á mótinu
þessi:
100 metra lilaup.'
Valbjörn Þorlákssoon ÍR
Úlfar Teitsson KR
Þórhallur Sigtryggssoon KR
urðu
11,2
11,3
11,5
400 metra hlaup.
Kristján Mikaelsson ÍR 55,9
Sigurjón Kristjánsson ÍR 62,9
3000 ínetra lilaup.
Kristleifur Guðbjörnss. KR 8:54,7
Agnar Leví KR ( 9:10,1
Halldór Jóhannsson HSÞ 9:31,3
4x100 metr.a boðhlaup.
ÍRa 46,1 — R 46,6 —
100 metnahlaup drengja.
Skafti Þorgrímsson ÍR
Birgir Ásgeirsson ÍR
Ólafur Ottósson ÍR
Jón Þorgeirsson ÍR
Kúluvarp.
Gunnar Huseby KR 15,31
Guðm. Hermannsson KR 15,18
Jón Pétursson KR 14,61
(Framhald á 13. síðu)
ÍRb 47,7
11,5
11,7
11,9
12,3
Enn markalaust jafn-
tefli hjá KR og Fram
ÞaS fer a8 verða fösf venja
í ieikjum Fram og KR, að ekk-
ert mark sé skorað — og leik-
menn brugðu ekki út af venj-|
unni á sunnudagskvöldið, þeg
ar KR og Fram mættust í!
Reykjavíkurmótinu á Mela-|
vellinum. En þrátt fyrir þetta
markalausa jafntefli var leik-
urinn allskemmtilegur, hraði
oft mikill, og varnarleikurinn
sterkur. Fram átti meira í
leiknum, en góð markvarzla
Heimis Guðjónssonar í KR og
talsverð heppni, gerði það að
12
verkum, að KR-ingar fengu
ekki á sig mark í leiknum.
Framliðið er miklu betra en í
fyrra, og er það fyrst og fremst
að þakka hinum ungu leikmönn-
um, sem hafa byrjað að leika íj
meistaraflokki í vor. Ber þar mest|
á hinum ágæta framveröi Hrann
ari Haraldssyni, sem er óvenju
mikið efni. Hrannar var bezti
maður liðsins í leiknum í fyrra-
kvöld, og hann ásamt Ragnari
Jóhannssyni, náði yfirtökum á
miðjunni, sem gerði það að verk-
um, að Fram átti meira í leikn-
um. Vörn Fram var yfirleitt traust
og þótt ekki reyndi mikið áj
Geir Kristjánsson í markinu,!
sýndi hann öruggan leik — og
er betri en nokkru sinni fyrr. í
framlínunni eru skemmtilegir
einstaklingar — en góðan skot-
mann vantar til að reka enda-
hnútinn á upphlaupin. Grétari
Sigurðssyni tókst nú ekki eins
vel upp og í bæjarkeppninni við
Keflavík á dögunum, enda virðist
Hörður Felixson hafa góð tök á
honum. Og framlínumönnunum
er það að kenna, að Fram sigraði
ekki, því merkilegt má telja, að
þeir skyldu ekki skora í leiknum
úr einhverju hinna mörgu góðu
tækifæra, sem buðust.
KR-liðið átti nú talsvert lakari
(Framhald á 13. síðu) 1
Ellert Schram í einvígi við Halldór Lúðvíksson og skallar að marki, en
knötturinn fór yfir.
T 1 M I N N, þriðjudaginn 22. maí 1962.
I