Tíminn - 30.05.1962, Page 3

Tíminn - 30.05.1962, Page 3
Ljósmyndari blaSsins, Guðjón Einarsson, er mikiS í förum og fljótur að munda vélina, þegar eitthvað athyglis- vert ber fyrir. í gaer var hann á ferð um Tryggvagötu og sá mann hníga niður við Hamarshúsið. Sjúkrabíll var kvaddur til að flytja manninn á læknavarðstofuna, og myndin sýnir, þegar verið er að stinga honum inn í bílinn. Bfaðínu er tjáð, að maðurinn hafi fengið aðsvif og skrámast við faliið. Slík atvik gerast að vísu nær daglega, en festast sjaldan á mynd. Síoasta von Eichmanns NTB—Jerúsalem, 29. maí. í dag hafnaði æðsti áfrýjunar- dómstóll ísraels náðunar- beiðni Servatíusar, verjanda nazistaböðulsins Adolf Eich- manns, til handa skjólstæðingi sínum. Var náðunarbeiðni þessi aðallega byggð á rök- semdinni um vanhæfni ísra- elsks dómstóls ti lað dæma í máli Eichmanns. Nokkru síðar bárust svo þær fréttir, að Servatíus myndi senda forseta ísraels sams konar náðunarbeiðni, sem lokatilraun til þess að forða Eichmann frá gálganum. in, yrði hann að staðfesta dauða- dóminn. Hæstiréttur vísaði meðal ann- ars á bug þeirri skoðun verjanda Eichmanns að lÖgin frá 1950 um málsmeðferð á stríðsglæpamönn um, hefðu ekki afturvirk áhrif. Þá vísaði dómurinn einnig frá þeirri staðhæfingu, að ísraelska dómstóla skorti hæfi til að fjalla um málið. Blaðið Maariv í ísrael sagði í dag, að öruggt væri, að Eichmann yrði hengdur í Remleh-fangelsinu ef forseti hafnaðí náðunarbeiðn- . inni. Þá heldur blaðið því farm, a?j lík Eichmanns verði fengiS í hendur fjölskyldu hans, ef hún færi fram á slíka afhendingu. Verða Salan og Jouhaiad háðir teknlr af lífi? Eins og skýrt hefur verið frá hér í blaðinu, hefur dómurinn yfir Salan, fyrrverandi hershöfð ingja og foringja OAS-hreifingar innar, vakið bæði undrun og reiði, víða um heim, og þá að sjálf- sögðu ekki sízt í Frakklandi og Alsír en eins og menn muna | bæmdi æðsti herdómstóll Frakk- 1 lands hann í ævilangt fangelsi ' fyrir sakir, sem dauðarefsing lá við. Það, sem þó einkum vekur furðu manna er, að skömmu áð- Heiðursdoktor í Uppsölum í dag verður prófessor Einar Ólafur Sveinsson sæmdur nafnbót heiðursdoktors við háskólann í Uppsölum. Prófessorinn og kona hans eru fyrir nokkru farin utan til Svíþjóðar. Fyrir skömmu kom út á vegum Helgafells „Ein lítil samantekt um Prófessor Einar Ólafur Sveinsson EÓS“. Samantektin er eins og skammstöfunin bendir til um pró- fessor Einar Ólaf og verk hans. — Höfundur samantektarinnar nefnir sig Cadwr, en blaöið hefur fregn- að, a3 hann sé dr. Hermann Páls- son, lektor í Edinborg. Þessi sam antekt er rituð á fornmáli, og er samtal kennara og nemanda um prófessorinn. ur hafði Jouhaud, samstarfsmað ur Salans í OAS-samtökunum, ver ið dæmdur til dauða af sama dóm stól fyrir minni sakir en Salan. Flestir sem fylgzt hafa með á- standinu í Alsír og ofbeldisverk um OAS-manna þar undir stjórn Raoul Salan, höfðu búizt við, að ekkert nema dauðinn myndi bíða hans, ef frönsk yfirvöld hefðu hendur í hári hans. Fangelsisdóm urinn kom því eins og reiðarslag yfir þá, sem vilja OAS-hreyfing una feiga og hafa samúð með frelsibaráttu Serkja í Alsír. Engum mun þó dómurinn hafa komið meira á óvart en de Gaulle Frakklandsforseta, sjálfum Frétta „menn í París höfðu það eftir hon um, þegar hann frétti um dóms niðurstöðuna í glæpamáli Salans, að hér væri um samsæri að ræða af hálfu hershöfðingjanna níu, sem skipuðu dómstólinn. Sagði forsetinn, að nú væri fáum að treysta, er æðsti herdómstóll Fflakklands brygðist. Hafði de Gaulle við orð, að héðan í frá myndi hann ekki láta hershöfð- ingja dæma í máli OAS-manns, og ef til vill myndi hann notfæra sér ákvæði 16. greinar stjórnar- skrárinnar um alræðisvald til handa forseta í neyðartilfellum, og fella dóminn yfir Salan úr gildi Lögin gera ekki ráð fyrir, að dómi herréttar sé áfrýað, en fréttamenn telja hiklaust, að de Gaulle muni leita allra þeirra ráða, sem tiltæk eru til þess að nýr dómstóll fjalli um mál Sal- ans. Þegar niðurstaðan í máli Sal- ans var kunn, var verjandi Jouh- auds fyrrverandi samstarfsmanns Salans, fljótur að grípa tækifær ið. Jouhaud hafði verið dæmdur til dauða fyrir minni sakir en Salan og sat nú í Santé-fangels- inu í París og beið þess ag aftöku dagurinn rynni upp. Verjandinn sendi þegar í stað kröfu til dómS málaráðuneytis Frákklands um, að mál slíjólsjpðings síns yrði tekið fýrír að nýju, meg tilliti til dómsins yfir Salan. Dómsmála- ráðuneytið tók kröfuna til greina og sendi hana t.il æðsta áfrýjunar dómstóls Frakklands, og þar bíð ur hún úrskurðar. Samkvæmt lög um frestast framkvæmd dauða- dóms sjálfkrafa við slíka áfrýjun þangað til úrskurður er fenginn. Jouhaud hefur því fengið nokkum gálgafrest. Hins vegar segja áreið anlegar heimildir í París, að de Gaulle, forseti, muni sjá til þess, að dómurinn yfir Jouhaud muni standa óbreyttur. Hann hefði ekki í huga ag sýna ofbeldismönn um OAS neina linkind, því aö öryggi Frakklands væri í veði. Undirtektir stjórnmálamanna og blaða víðs vegar um heim og í Frakklandi benda til, að forSetinnj liti ekki einn svona á málið. Servatius, verjandi Eichmanns, sagði á blaðamannafundi í dag, að þar sem áfrýjunardómstóllinn hefði ekki tekið náðu»arbeiðnina til greina, myndi hann senda for seta íslaels, Yitzhak Ben-Zvi, náðunarbeiðni, sem síðasta aðila, sem bjargað geti Eiehmann frá gálganum, með því að breyta dauðadóminum yfir honum í ævi langt fangelsi. Þá hefur elzti sonur Eichmanns Klaus, skýrt frá því, að mamrna sín muni einnig senda forsetan- um beiðni um náðun fyrir mann sinn. ísraelska stjórnin hélt fund í dag þar sem Gideon Hausner, ríkissak- sóknari, gaf skýrslu um sjónarmið þau, sem lágu til grundvallar höfn un hæstaréttar á náðunarbeiðni Eichmanns. Fréttamenn segja, að stjórnarmoðlimirnir hafi rætt á þessum fundi ýmis tæknileg atsiði varðandi aftöku Eichmanns og bendi þessar umræður eindregið til þess, að dauðadóminum yfir Eichmann verði ekki raskað. M.a. mun stjórnin hafa rætt um það, hvað gera skyldi við líkið, að af- töku lokinni. Frá Miinchen berast þær fregn- ir, að kona Eichmanns hafi tekið fréttinni um úrskurð áfrýjunar- dómstólsins með stillingu. Hins vegar hafi hún ekki dregið dul á, að hún hafi orðið fyrir vonbrigð- um, því hún trúir því statt og stöð ugt, að maður hennar sé saklaus. Það var forseti hæstaréttar, Ols han, sem las upp úrskurð réttar- ins, og tók sú lesning 3 klukku- stundir og 25 mínútur. Dómarinn sagði ma.. að ef dómstóllinn vildi ekki verða til þess að brjóta lög- YANDRÆÐB AF VOLDUM VERKFALLS í PARÍS NTB—París, 29. maí. Starfs menn í gas- og rafmagnsstöðv- um í París gerðu í dag 12 klukkustunda verkfall til þess að undirstrika kröfur sínar um hærri laun. Verkfall þetta hafði í för með sér mikil vand- ræði í borginni. Umferðaröng- þveiti var mikið, því að um- ferðarljós virkuðu ekki og sporvagnar stöðvuðust vegna rafmagnsleysis. Húsmæður urðu að grípa til olíuvélanna, því að gaseldavélarnar komu nú ekki að gagni. Húsbænd- urnir urðu að raka sig um morguninn upp á gamla móð- inn, því að rafmagnsrakvél- arnar komu nú ekki að haldi. Alvarlegast var ástandið í um- ferðinni af völdum verkfallsins, eins og áður segir. Sporvagnar komust ekki leiðar sinnar og um- feiðarhnútar urð'u á mörgum stöð- um, því að bílstjórar og vegfarend ur höfðu nú ekki umferðarljós til að fara eftir. Vinna var lögð niður í mörgum verksmiðjum vegna raf magnsleysisins. Parísarbúar gátu ekki hlustað á útvöip sín, bíleig- endur, sem urðu benzínlausir urðu að ýta bílum sínum á benzínstöðv- ar, sem höfðu handdælur, og svona mætti lengi telja. Verkalýðsfélög, sem stjórnað er af kaþólikkum, jafnaðarmönnum og kommúnistum, gáfu fyrirskip- anir um að hefja verkfall þetta,»en óháðir tóku ekki þátt í því. Tíðindalaust í togaradeilu í gærkvöldi var boðaður sátta- fundur með deiluaðilum í togara- deilunni, og stóð hann enn, þegar blaðið fór í prentun. Engar nýjar tillögur höfðu þá komið fram, og virtist ekki mikiila tíðinda að vænta. „Svartur mánudagur“ (Framhald af 1. síðu). ir nafninu „svarti mánudagurinn“, og sýnir sú nafngift, hverjum aug- um fólk lítur atburð þennan. Viðskiptakreppa í vændum? Miklar bollaleggingar eru nú um það, hvað' valdið hafi þessu skyndi lega verðbréfahruni. Segja sumir, að miklir fjármálamenn í Banda- ríkjunum hafi viljandi hrint þess- um ósköpum af stað, en aðrir segja, að atburðinn megi rekja til slælegrar stjórnar Kennedys, for- seta, og ráðuneytis hans á fjár- málum landsins. Stjórnarsinnar hafa hins vegar vísað seinni skoð- uninni ákveðið á bug, sem algerum þvættingi. Almenn skoðun fjármálamanna í Wall Street er sú, að árið 1962 eigi fjármálalega séð margt sam- merkt með árinu 1929, er heims- kreppan skall yfir, Þó hafi enginn talið fjármálaástandið svo slæmt, að atburður sem þessi gæti átt sér stað. Fréttin frá kauphöllinni hafi því komið yfir menn, eins og þruma úr heiðskíru lofti. Þeir svartsýn- ustu segja, að engum blöðum sé um það að fletta, að atburður þessi sé undanfari nýrrar viðskipta- kreppu. Kennedy, Bandaríkjaforseti, hef ur Iýst því yfir, að gripið verði til allra nauðsynlegra ráðstafana til þess að koma í veg fyrir, að við- skiptakreppa skelli yfir, vegna verðfalsins í kauphöllinni í Wall Street. Þegar kunnugt varð um, að skráð verðbréf í kauphöllinni í New York hefðu fallið um 20 millj aðra dollara í verði, gaf sérlegur ráðgjafi Kennedys í fjármálum, Heller, út yfirlýsingu, þar sem lát- in er í Ijós óhagganleg tiltrú á fjármálaskipan landsins, og um leið von um, að atburðu-r þessi dragi ekki slíkan dilk á eftir sér að fjármálalegur grundvöllur lands- ins fari úr skorðum. Búizt er við, að forsetinn fyrir- skipi rækilega rannsókn á fjármál- um landsins, þótt ekki sé líklegt, að slík rannsókn leiði til neinna verulegra breytinga á framtíðar- áætlunum, svo sem áætluninni um verulegar skattalækkanir á níesta ári. Kuther Hodges, viðskiptamála ráðherra, sagði á blaðamanna- fundi í dag, að nauðsynlegt væri að gera róttækar breytingar á skattalöggjöfinni til þess að vinna aftur traust þegnanna eft- ir hinn alvarlega atburð í New York. Sagði hann, að nú dyggðu ekki orðin tóm, hér þyrfti heiðar legar efndir. TÍMINN, miðvikudaginn 30. maí 1962 3

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.