Tíminn - 14.06.1962, Blaðsíða 3

Tíminn - 14.06.1962, Blaðsíða 3
.......••":: ..............-............... m Wwm helmsfréttunum. Til vinstri að kynna mennina á ÍSANfJA HÖFN A GRÆNL. Einkaskeyti frá fréttaritara Tímans í Kaupmannahöfn. Blaðið Information segir frá því í dag, að hinar miklu Kruppverksmiðjur í Þýzka- landi hafa nú mikinn áhuga á að kaupa málm í Kanada og flytja í stórum stíl til Þýzka- lands. Hyggjast þeir í þessu sambandi byggja mikla útskip r ■ mmfmmmmmm; Ný USA-geimferð NTB — New York, 13. júní: James Webb, formaður bandarísku geimvísindastofn unarinnar (NASA), sagði í dag í Washington, aS hinni svonefndu Mercury-áætlun myndi sennilega ljúka meS enn einni þriggja-hringa ferð umhverfis jörðu. Geimfarinu mun sam- kvæmt áætlun verða skotið upp með Titan-eldflaug, sem á leið sinni umhverfis jörðu á að mæta gervihnetti, með alls konar mælitækjum. Ef tilraunin með að láta þessi tvö geimskip mætast, mis- tekst, verður reynt aftur, sagði Webb. Portúgalskir komm- únisfar vígreifir NTB — Lissabon, 13. júní: Portúgalska lögreglan skýrði frá því í dag, að í fór- um fjögurra handtekinna kommúnista hefði fundizt mikilvægt plagg, sem m.a. bæri með sér, að mótmæla- aðgerðir stúdenta fyrir skemmstu hefðu staðið í nánu sambandi við stefnu- skrá og fyrirætlanir portú- galska kommúnistaflokks- ins, sem bannaður er í land- inu. Var meðal plagganna á- skorun til stúdenta um að hefja samræmdar mótmæla- aðgerðir hinn 28. maí s.l., en til slíkra aðgerða kom þó aldrei, hvað sem valdið hef- ur. Þá hefur komið fram, að kommúnistar hafa fulltrúa meðal bænda og verkamanna og er markmið þeirra að breyta stjórn landsins, ann- að hvort á löglegan hátt eða með valdi. MIG-flugvélar til Indlands NTB — Nýju Delhi, 13. júní: Bandaríkjamenn og Bretar hafa sent fyrirspurn til ind- versku stjórnarinnar þess efnis, hvort rétt sé, að Ind- verjar hyggist festa kaup á rússneskum MIG-orrustuþot- um, en landvarnir Indverja hafa hingað til byggst á her gögnum frá Bretum. Nehru, forsætisráðherra Indlands, sagði á blaða- mannafundi í dag, að enn hefði ekki verið nein ákvörð un tekin um þessi kaup. —- Sagði forsætisráðherrann, að vel gæti af kaupunum.orðið því að MIG-flugvélarnar væru einfaldar i byggingu og hentuðu því Indverjum vel. Sagði hann, að flugvéi- arnar væru ódýrar í fram- leiðslu og léttar. Vel gæti verið, að Indverjar keyptu gamlar flugvélar, sem þeir myndu svo gera upp heima fyrir. unarhöfn á Rjúpneyju, sem er skammt undan Góðvonar- höfða á suðvesturströnd Græn lands. Blaðið skýrir frá því, að það sé járninnflutningur, sem Þjóð- verjarnir hafi áhuga á og vinni þeir nú að undirbúningi hafnar- gerðar á fyrrnefndri eyju í sam- vinu við bandarískt-kanadískt námufélag, sem hefur lýst því yfir, að það geti selt Kruppfyrir- tækjunum mikið magn af jám- grýti frá Kanada. Námufélagið hefur í hyggju að flytja járnið frá Kanada til Rjúpnaeyju og umskipa því þar yfir í þýzk skip. Þjóðverjarnir haía, í samráði við námufélagið, valið Rjúpna- eyju til hafnargerðarinnafc vegna þess, að hafið umhverfis Góð- vonarhöfða, er íslaust árið um kring. Samkvæmt áætlunum, sem gerð- ar hafa verið í sambandi við málm flutning þennan, er búizt við, að hægt verði að flytja til Þýzka- lands með þessu njóti a.m.k. 5 miljónir lesta af járngrýti á ári (hverju. Þessi málmflutningshöfn er mikið fyrirtæki, sem reiknað er með að muni kosta um 250 millj- ónir danskra króna. Aðils er hin gamla, skeggjaða kempa Makaríos, erkibiskup og forsætisráðherra Kýpur, en við hlið hans situr U Thant, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðannna en hann hefur þegar getið sér gott orð í hinu ábyrgð- armikla starfi sínu. Myndin er tekln, er Makaríos heimsótti stöðvar S.Þ. í Bandaríkjunum fyrlr skömmu, og virðist fara vel á með þessum frægu mönnum. 300 ÞINGFULLTRUAR GENGU AF FUNDI Nálega 300 fulltrúar allra stjórnmálaflokka í Frakklandi, að undan- skyldum sfuðningsmönn- um de Gaulle, forseta, gengu i dag út af fundi í franska þingínu i mót-i mælaskyni við Evrópu- pólitík forsetans. Þingmennirnir gengu út af fund inum, strax að lokinni ræðu Maur- ice Couve de Maurville, utanríkis- ráðherra, þar sem hann gerði grein fyrir utanríkismálastefnu stjórn- arinnar. Formaður utanríkismálanefndar, Maurice-Rene Simonnet, sem er kaþólikki, reis fyrstur úr sæti sínu og gekk út, en síðan fylgdu hinir þingmennirnir á eftir. Eins og kunnugt er hefur Ev- rópu-pólitík de Gaulle forseta sætt mikill gagnrýni meðal stjórnmála- manna í Frakklandi. Er þar skemmst að minnast afsögn fimm ráðherra, kaþólikka, úr stjórn Pompdous um miðjan síðastliðinn mánuð, eftir áð forsetinn hafði gert grein fyrir stefnu sinni í mál efnum Evrópulandanna á blaða- marmafundi. De Gaulle hefur haldið því fram að lokatakmarkið í samstarfi því, sem nú væri að komast á í efna- hagsmálum Evrópuríkjanna væri, samræmd pólitík allra landanna. Hefur forsetinn sagt, að flestir væru sammála um, að slík fram- þróun mála væri rétt, en menn greindi á um leiðirnar að takmark- inu. Þingmennirnir, sem gengu út af fundi í dag, byggðu mótmæli sín á því, að ekki hefði verið fallizt á atkvæðagreiðslu að loknum við- ræðum um utanríkismálin. Simonnett, sem hafði forgöngu um aðgerðir þessar, las upp yfir- lýsingu, áður en hann yfirgaf þing- salinn, þar sem m.a. var sagt, að þingmennirnir 300 hefðu gripið til þessa ráðs, þar sem þeir hefðu ekki fengið að láta skoðun sína í ijós við atkvæðagreiðsiu. Sagði hann, að þeir, sem nú gengju af fundi, væru ákveðnir í að fara þá leið, sem leiddi til sameiningar Ev rópu. Við höfum þá bjargföstu trú, að sameinuð Evrópa í samstarfi við Bandaríkin innan NATO sé eina leiðin til þess að tryggja okkur frið og frelsi í framtíðinni, sagði Simonnett að lokum. Yfirlýsingin var undirrituð af öllum þingmönnunum, sem gengu af fundi. Serkir hvika ekki frá Evian - sáttmála NTB—Algeirsborg, 13. júní. í dag birti FLN-stjórnin í Alsír yfirlýsingu þess efnis, að hún myndi ekki fallast á neina til- hliðrun á Eviansáttmálanum, en á viðræðufundum serk- nesku útlagastjórnarinnar og Evrópumanna, hafa þeir síðar- nefndu Tarið fram á endur- skoðun á sáttmálanum. Þessi yfirlýsing FLN-stjórnarinn ar er sú fyrsta, sem birt er opin- berlega, siðan ráðgjafafundur henn ar var haldinn í Túnis fyrir tveim vikum. Þrátt fyrir stöðugar viðræður Serkja og Evrópumanna síðustu daga, halda OAS-samtökin samt áfram hryðjuverkum sínum víðs vegar um í Alsír. í dag réðust OAS menn með sprengjukasti að stórri skrifstofubyggingu járnbrautarf é- laganna. Þá brenndu OAS-menn tvo skóla tU grunna, einn tækniskóla og eitt apótek. Fólksstraumur frá Alsír Upplýsingamálaráðherra Frakka, Alain Peyerfitte, skýrði frá því í París í dag, að tólf fyrstu dagana í þessum mánuði hefðu 92 þúsund flóttamenn komið frá Alsír til Frakklands. Peyerfitte sagði, að þessi fólks- straumur hefði skapað mikið vanda mál í Frakklandi og kæmi nú jafn vel til mála að senda þetta fólk aft ur til Alsír. Sagði ráðherrann, að hann hefði nú fengið erfitt vandamál til að leysa úr í þessu sambandi, en það væru kröfur þessa flóttafólks um ýmiss sérréttindi þeim til handa í Frakklandi. Heimtufrekt fólk Upplýsiimaniálaráðherrann sagð’ (Framhald á 15. síðu) TIMINN, fimmtudaginn 14. júní 1962 1

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.