Tíminn - 14.06.1962, Page 13
I 1 \ » 5 l
1 l I '1 V '>■)'> »
T \
EFTIR
VIKUR FÆR EINN LESANDI VIKUNNAR
GEFINS BÍL - VERÐUR ÞAÐ ÞÚ?
Eyðimörk og undralönd
Framhald af 9. síðu.
og grjót úr fjöllunum í kring.
Fjárráð voru af skornum
skammti, er bygging var hafin.
Þá sagði Wright, að strigi væri
eina almennilega þakefnið, það
gæfi rétta birtu í húsin, og lét
strengja striga á hreyfanlega
fleka, sem hægt er að renna
fram og aftur í grópum. En þó
að skólinn hafi aðeins aðsetur
þarna hálft árið eða yfir vetrar
mánuðina, þá vildi rigningin
ekki virða hið rétta ljós og gerð
ist áleitin við strigann, sem tók
að fúna, svo að nú er farið að
setja plast 1 þökin í staðinn.
Ungur pi'tur fylgdi okkur um
staðinn og lýsti hugmyndum og
Þlganji , meistarans" sáluga af
slíkum f jálgleik, að fremur
minnti á trúboð en lýsingu á
byggingalist. Heldur er skóla-
kerfið laust í reipunum, sumir
fara þaðan eftir nokkurra ára
nám og taka próf við löggilta
háskóla, aðrir eru þarna meiri
hluta ævi sinnar og lifa í eins
konar sameignarbúskap.
Óneitanlega fá margar frum-
legar hugmyndir að njóta sín
í húsagerð og skreytingum, og
leiðsögumaður okkar virtist
kunna sérlega vel við sig, þótt
hann byggi í tjaldi, eins og aðr-
ir byrjendur, yrði að annast
matseld og mjalta kýr og dubba
sig upn í kjólföt á hverju laug-
ardagskveldi til að sitja til
borðs í leikhúsi staðarins á
grjótbekkjum. Samt varð hann
að greiða stórfé fyrir að fá að
njóta þeirrar náðar að vera
þarna.
Skammt utan við Phoenix eru
allvíðáttumikil ræktarlönd sem
Indiánar eiga. Þar bylgjaðist
grænt fóðurgresi og ýmiss kon-
ar jarðargróður á ökrunum, en
stórvirk dælustöð veitti vatni
úr á upp á akrana. En manna-
bústaðirnir, sem fram hjá var
farið, voru ákaflega lágreistir
og lítt aðlaðandi kofar úr þjöpp
uðum leirhnausum, þaktir með
hálmi. Bílar stóðu fyrir utan
suma þeirra, ónýtar þvottavélar
og ísskápar utan við aðra.
Nú þótti mér leyndardóms-
fullt, hvers vegna fólk, sem
hefði þetta góða land, ætti svo
léleg hús og spurði leiðsögu-
mann okkar, hverju það sætti.
Hann sagði, að þar væru sjaldn-
ast Indíánarnir. sem ræktuðu
landið. heldur leigðu þeir það
borgarbúum og létu sér nægja
þær tekjur tii lífsframfæris.
Okkur Norðurlandabúum er
orðið býsna heitt þennan dag,
því að hitinn nálgast 40 stig á
Celsius. Þarna eru samferða
mér sænsk hjón, forstjóri sjón-
varpsins í Svíþjóð og kona hans
sem er blaðamaður og rithöfund
ur. Okkur þykir notalegt að
koma heim á gistihúsið og snara
okkur í sundlaugina, sem er rétt
utan við herbergisdyrnar mín-
ar á fjórðu hæð hússins. Þang-
að fór ég á hverjum morgni
meðan við dvöldum þarna og
hitti þá oftast laugarvörðinn,
sem var ákafur að fræðast um
íslands. Varð ég venjulega að
halda smáfyrirlestur um land
og þjóð marandi hálf í kafi í
sundlauginni.
Hvatlegur maður og fríður
sýnum kemur að flytja okkur í
næsta áfanga, sem er bærinn
Flagstaff. Þar er hann háskóla-
kennari, ítalskur að uppruna og
ekur bíl eins og Suðurlandabú-
um er títt, spilar á benzíngjaf-
ann, eins og organisti á fótspil,
fórnar höndum til áherzlu ræðu
sinni og hefur sannarlega ekki
farþega í aftursætinu út und-
an í viðræðum.
Þegar borginni sleppir, ökum
við um ávaxtagarða, næst grýtta
kaktusaeyðimörk, upp á víðlend
ar heiðar, þar sem sér til há-
fjalla með fannir á tindum, um
græn dalverpi. Allt í einu opn-
ast mikið undraland. Fagurrauð
fjöll með ljósari þverrákum
sorfin í myndir álfaborga, við
rætur þeirra dökkgrænn trjá-
gróður, bleikblómstrandi tré, —
(rose bud tree), — við hliðina
á hundatrjánum — (dogwood)
— sem þakin eru hvítum blóm-
um frá stofni út á yztu greinar.
Bláir kveldskuggar 'úr vestur-
hlíðum, sólarglóð yfir og aust-
urhlíðar eitt bál. Þessi staður
heitir Sedona. Á einum stað er
mjög einkennileg kirkja milli
klettanna.
Síðar tekur við þröngur dal-
ur og reginfjöll á báðar á hend
ur. Nú skiptir um gróður. Veg-
urinn liðast í stórum sveigum
upp brattann, og barrtré og
birki þekur hlíðarnar. Upp og
upp ökum við, þrjú þúsund fet
í einni brekku. Efst eru skaflar
við veginn, og þegar upp á há-
lendið er komið, er gras naum-
ast farið að gænka og barrskóg
urinn einn í skrúði. TJmskiptin
frá hitanum og eyðimerkur-
gróðrinum umhverfis Phoenix
eru ótrúleg.
Þegar prófessor Giusti er bú-
inn að koma okkur fyrir á gisti-
húsi þeirrar tegundar, sem kall
að er „motel“, kveður hann
okkum með þeim ummælum.
að næsta morgun, sem er sunnu
dagur, muni hann sækja okkur
ekki síðar en klukkan átta, svo
að eitthvað verði úr deginum.
Og næsta dag ökum við svo í
tólf klukkustundir um ný undra
lönd og eyðimerkur.
Sigríður Thorlacius.
VARMA
PL AST
EINANGRUN
Þ PorP>-itns‘:on & Co
Borgartúm 7 Sími 22235
Flugfélag Reykjavíkur
FLJÚGUM TIL Hellissands
mánudag. laugardag.
Hólmavíkur, Gjögurs,
fimmtudag Stykkishólms
laugardag
Flugfélag Reykjavíkur
Sími 20375
- Trúloiunarhringar -
Fl.lót afgreiðsla.
GUÐM ÞORSTEINSSON
gullsmiður
Bankastræti 12.
Sími 14007
Sendum gegn póstkröfu.
SKIPAUTGCRÐ RIKISINS
M.s Skjaldhreið
vestur um land til Akureyrar
18. þ.m. Vörumóttaka í dag til
Sveinseyrar, áætlunarhafna á
Húnaflóa og Skagafirði og Öl-
afsfjarðar.
Farseðlar seldir á mánudaginn.
Trúlofunar-
hringar
afgreiddir
samdægurs
Sendum nm allt tand
Hflti siGURÐSSO
Skólavörðustis 2
yíÐAyANGUR
hlutlaust urn utanríkismáli
landsins frami fyrir fulitrúum
margna erlendra ríkja, skuli
bera sér slíkt nakalaust fleipur
í munn.
MINNING:
Þórey Sumarliðad.
Fröken Þórey Sumarliðadóttir,
Valshamri, var jarðsett að Reyk-
hólum miðvikudaginn 23. f.m.
Hún var fædd að Borg í Reykhóla-
hreppi 16. sept. 1911, dóttir hjón-
anna Jóhönnu Loftsdóttur og Sum
arliða Guðmundssonar, pósts, er
bjuggu þar.
Þórey átti oft við heilsuleysi að
búa, en það' bar hún með hetju-
skap og hugprýði. Hún dvaldi hjá
foreldrum sínum meðan þau lifðu,
og í veikindum þeirra hjúkraði
hún þeim báð'um af svo mikilli
ástúð og umhyggjusemi að fá
dæmi munu sýna að betur hafi
verið hægt. Þannig var Þórey sí-
fellt reiðubúin til að fórna kröft
um sínum, sem oft voru veikir, til
liknar öðrum og á einn og annan
hátt til áð gleðja vini og nágranna.
Hávaðalaust vann hún sín kær-
leiksverk.
í vöggugjöf hlaut Þórey frá for-
eldrum sínum góða leið'sögn, trúna
á Guð, forsjón hans og kærleik.
Þessi vöggugjöf var henni ómetan-
legur styrkur í þrautum hennar. 1
verkum sínum sýndi hún trú sína.
Ég og fjölskylda mín þökkum
þér Þórey hjartanlega fyrlr þá um-
hyggju og vináttu, er við nutum
frá þér; við vonum að nú sé bjart
í kringum þig og erfiðleikar þínir
á braut.
Það er vissa mín að ef samborg-
arar þínir værum þess megnugir
að temja okkur háttvísi þína og
þroska kærleikslundina, yrðum við
miklum mun hamingjusamara fólk.
Ó.E.Ó.
Loftpressa
fil leigu
Loftpressa til leigu.
Upplýsingar gefur
Konrátl Andrésson,
Borgarnesi
sími 155.
Auglýsið í Tímanum
TRULOFUNAR
H
R
I
N
G
A
R
ULRICH FALKNER
AMTMANNSSTÍG 2
PILTAP, '
EFPIDEIOICUNNUSTUNA /f\
ÞÁ fl ÉC HRINMNfl ///' /j/W
fátr/a/r/lsmc//>/ssonA (v
/fc/<r/s/fjer/ 8 \ ' \>c—V)—.—
TILKYNNING
Framvegis mun ég eingöngu hafa viðtalstíma og
móttöku sjúklinga í Tryggingastofnun ríkisins að
Laugaveg 114.
Almennur viðtalstími (vegna Tryggingarstofnun-
arinnar) kl. 13,30—14,30, nema laugardaga.
Viðtalstími fyrir sjúkrasamlagssjúklinga kl. 13—
13,30, nema laugardaga.
Sérfræðingsviðtöl aðeins á fyrirfram ákveðnum
tíma. Tímapöntun í síma 15730 kl. 15,00—15,30.
Páll Sigurðsson,
tryggingayfirlæknir.
LAUSAR STÖÐUR
Loftleiðir vilia ráða sem fyrst nokkra starfsmenn
— karla eða konur — í bókhalds- og endurskoð-
unardeildir félagsins. Enskukunnátta og bókhalds-
þekking áskilin.
\
Umsóknir burfa að hafa borizt ráðningadeild Loft-
leiða fyrir 1. júlí n.k. Eyðublöð fást í skrifstofum
félagsins, Lækjargötu 2 og Reykjanesbraut 6.
TÍMINN, fimmtudaginn 14. júní 1962
13