Tíminn - 27.06.1962, Qupperneq 1
HEIDURSMERKI FYRIR AÐ HÆFA
Sjá
bls. 5
I
Munið aS tilkynna
vanskil á blaðinu
' síma 12323
fyrir kl. 6.
Afgreiðsla, auglýs-
ingar og gjaldkeri
Tímans er í
Bankastræti 7
143. tbl. — Miðvikudagur 27. júní 1962 — 46. árg.
DOMURINN / OL/UMAUNU:
99
í gær var kveðinn upp í
sakadómi Reykjavíkur dómur
í hinu svokallaða olíumáli,
sem höfðað var gegn Hauki
Hvannberg og fleiri. Rannsókn
þessa máls stóð yfir í mjög
langan tíma og var all um-
fangsmikil. Dómsniðurstöður
eru í mörgum liðum, og fer
dómsorðið hér á eftir:
Ákærður Haukur HvanrSierg
sæti fangelsi 4 ár.
Ákærður Jóhann Gunnar Stefáns
son, greiði kr. 250.000.00 í sekt til
níkissjóðs og komi varðhald 12
mánuði í stað sektarinnar, verði
hún eigi greidd innan 4 vikna frá
birtingu dóms þessa.
Ákærðir Helgi Þorsteinsson,
Skúli Thorarensen, Ástþór Matt-
híasson, Jakob Frímannsson og
Karvel Ögmundsson, greiði hver
29 HOLUR £N
171 VANTAR
Þessi mynd er svolítið sumarlegri en hljóðið
enda ekki frá þessu sumri. — (Ljósm.: KM).
Þeir Þorkell Grímsson og,
Þorleifur Einarsson hafa núj
grafið 29 holur í fornleifaleit
sinni við gatnamót Aðalstræt-
is og Kirkjustrætis, en hafa
nú misst borana, þar sem
þeirra er þörf við undirbúning
Þjórsárvirkjunar. Þeir félagar
hafa mikinn hug á að fá bor-
ana aftur við fyrsta tækifæri,
enda munu þeir telja, að yfir
200 holur séu nauðsynlegar
til þess að fullur árangur ná-
ist.
í fyrradag var brunnurinn
hreinsaður að innan. Kom þá í
ljós, að hann er um tveggja metra
djúpur, og er nú 25 centimetra
vatnsborð í honum. Hleðslan í hon-
fréitinni hér fyrir neðan, um er laglega gerð, en ekkert
j verður enn sagt um aldur hans.
Hann verður nú byrgður með góð-
um hlera, unz afráðið verður, hvað
verður gert við hann; hvort hann
verður gerður upp og hafður sem
þjóðminjagripur.
Þorkell sagði blaðinu í gær, að
þeir hefðu ekki góðar vonir um að
fá borinn aftur fyrr en í haust, en
þó væri ekki loku fyrir það skotið.
Þorkell hefur haldið nákvæma
Framh. á bls. 3
um sig kr. 100.000.00 í sekt til rík
issjóðs og komi varðhald 7 mánuði
í stað hverrar sektar, verði sektirn
ar eigi greiddar innan 4 vikna' frá
birtingu dóms þessa.
Ákærður Vilhjálmur Þór, greiði
kr. 40.000.00 í sekt til ríkissjóðs
og komi varðhald 3 mánuði í stað
sektarinnar, verði hún eigi greidd
innan 4 vikna frá birtingu dóms
þessa.
Stjórn Olíufélagsins h.f. greiði f.
h. félagsins kr. 29,240.00 í ríkis-
sjóð, ásamt 7% ársvöxtum frá 16.
desember 1958 til greiðsludags.
Stjórn Hins íslenzka steinolíu-
hlutafélags greiði f.h. félagsins kr.
251.586.00 í ríkissjóð, ásamt 7%
ársvöxtum frá 16. desember 1958
til greiðsludags.
Ákærður Haukur Hvannberg
greiði Hinu íslenzka steinolíuhluta-
félagi $135.627.29, kr. 51.933,42 og
£-11.079.-11-08, ásamt 7% ársvöxt
um frá 9. marz 1962 til greiðslu-
dags.
Ákærður Haukur Hvannberg
greiði skipuðum verjanda sínum,
Benedikt Sigurjónssyni, hrl., máls
varnarlaun, að fjárhæð kr. 65.000.
Ákærðir Jóhann Gunnar Stefáns
Framh. á bls. 3
NYJAR SPÓLUR
NAUÐSYNLEGAR
Sérfræðingur frá framleið-
anda spennisins, sem bilaði í
KALT
ERFITT
NÆSTUM ALLT LAND
Blaðið ræddi fyrir skömmu
við Steingrím Steinþórsson
búnaðarmálastjóra, um ástand
og horfur í búnaðarmálum á
þessu sumri.
Búnaðarmála-stjóra
á þessa leið:
fórust orð
— Vorið var og er mjög kalt
og erfitt, svo að segja um land
allt. Einkum hefur síðari hluti
vorsins reynzt kaldur og erfiður,
þó ekki sunnanlands sem í öðrum
landsfjórðungum. Grasvöxtur er
yfirleitt mjög skammt kominn á-
leiðis, og víða um land eru stór-
felldar kalskemdir. Á Norður- og
Austurlandi eru kalskemmdirnar
geysimiklar. Ekkert nema sérstak
lega hlý og góð tið gæti bjargað
frá eyðileggingu af völdum kals
héðan af, og er þó hæpið, að um
björgun yrði að ræða.
Sauðburður gekk yfirleitt vel
og stóráfallalaust. Um sauðburð-
inn var tíð yfirleitt þurr og köld,
en sauðgrös sprottin þrá.tt fyrir
kuldann. Slíkar aðstæður eiga vel
við um sauðburð.
Enn er of snemmt að ræða um
uppskeru garðávaxta, en yfirleitt
var seint sett niður í garða í
vor, því klaki var lengi í jörðu
og jarðvegurinn blautur.
Framh. á bls. 3
Áburðarverksmiðjunni, kom
hingað á sunnudagskvöldið, og
í gær kvað hann upp þan úr-
skurð, að ómögulegt væri að
gera við brunnu spólurnar.
Þar af leiðandi verður að búa
til nýjar spólur, en venjulegur af-
greiðslufrestur er sex vikur. Sér-
fræðingurinn fór utan í morgun.
Hann sagði ennfremur að ske
kynni, að fyrirtækið gæti afgreitt
spólurnar á skemmri tíma en sex
vikum, þó án þess að lofa neinu.
Spólurnar hafa þegar verið pant-
aðar.
Forráðamenn Áburðarverksmiðj
unnar hafa nú fengið lánaðan
spenni hjá Rafmagnsveitu Reykja-
víkur, og standa vonir til, að með
honum verði unnt að koma fram-
leiðslunni af stað að hálfu leyti
í vikulokin. Verið er að gera ýms-
ar ráðstafanir til að nota þennan
spenni, en það voru innlendir sér-
fræðingar, sem komu auga á þann
möguleika að nota hann.