Tíminn - 27.06.1962, Qupperneq 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Auglýs-
ingastjóri: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórnarskrifstofur í Eddu-
húsinu; afgreiðsla, auglýsingar og aðrar skrifstofur i Banka-
stræti 7. Símar: 18300—18305. Auglýsingasími: 19523 Af-
greiðslusími 12323. — Áskriftargjald kr. 55 á mánuði innan-
lands. í lausasölu kr. 3 eintakið. — Prentsmiðjan Edda h.f. —
Sambúð útvegsmanna
og sjómanna spillt
Deálan um síldveiðikjörin, sem stöðvaði flotann í
þrjár vikur meðan síldveiði var næg suðvestan lands og
norðan, er átakanlegt dæmi þess, hvernig skammsýn
stjórn getur aukið á stéttadeilur og stéttasundrungu, en
aðalmarkmið sérhverrar réttsýnnar ríkisstjórnar á vitan-
lega að vera það að stuðla að bættri sambúð og sam-
komulagi milli stétta.
Um leið og ríkisstjórnin felldi krónuna í fyrrasumar,
stórhækkaði hún útflutningsgjöld á sjávarafurðum.
Ásamt hinum háu vöxtum, hefur þetta gert rekstrarkjör
útvegsins stórum lakari en áður. Sérstaklega bitnar þetta
á þeim útgerðarmönnum, er ráðizt hafa í dýr tækjakaup
eða ætla sér að gera þa,ð. Til viðbótar þessu, tók ríkis-
stjórnin svo ranglega stórfé af útgerðinni í sambandi við
gengislækkunina í fyrrasumar.
Til þess að mæta þessum auknu áiögum og fjár-
drætti af hálfu ríkisvaldsins, völdu útgerSarmenn þá
leið að krefjast kauplækkunar hjá sjómönnunum.
Það er því raunverulega ríkisstjórnin, sem hefur
knúið fram þessa deilu útvegsmanna og sjómanna.
Þegar ríkisstjórnin sá, að þessi deila útvegsmanna og
sjómanna myndi leiða til stöðvunar á síldarflotanum, átti
hún vitanlega að bregða fljótt við. Hún átti að skila því,
sem ranglega var tekið af útgerðinni í fyrra og lækka
ú tflutningsgj öldin í hið fyrra horf. Þá fengu útgerðar-
menn fullkomlega það, sem þeir kröfðust af sjómönnum
og gátu því látið kröfur á hendur þeim falla niður. Þá
hefðu síldveiðiskipin aldrei stöðvazt.
Ríkisstjórnin hélt hins vegar að sér höndum og lét
flotann liggja aðgerðarlausan í þrjár vikur meðan út-
lendingar mokuðu upp síldinni við landið. Eftir þriggja
vikna stöðvun, tók hún loks rögg á sig og setti bráða-
birgðalög um gerðardóm.
Ekki munu þau lög verða til að bæta samkomulag út-
vegsmanna og sjómanna.
Staðreyndir eru þannig þessar: Ríkisstjórnin bjó til
deilu útvegsmanna og sjómanna með hinum óréttlátu
auknu álögum í fyrra. Ríkisstjórnin gat leyst þessa deilu
með því að aflétta þessum álögum. Það lét hún ógert og
setti hins vegar gerðardómslögin.
Öllum má vera ljóst, að það er nauðsynlegt, að'-stétt-
ir eins og útvegsmenn og sjómenn vinni vel saman. Það
á að reyna að auka gagnkvæman samhug og góðvild
þessara stétta, en ekki hið gagnstæða. Núverandi ríkis-
stjórn hefur hér farið öfugt að.
Glöggt dæmi þeirrar óvildar, sem þessi afskipti rík-
isstjórnarinnar hafa skapað, eru eftirfarandi ummæli,
sem Vísir hefur eftir sjómönnum í Grindavík í fyrra-
dag (25. þ. m.):
„Útgerðarmenn segja alltaf, að þeir séu aS tapa,
en þeir sýna annaS meS líferni sínu, utanferSum og
alls kyns óhófi."
Þannig hafa umrædd afskipti stjórnarinnar orðið til
að vekja meting milli þeirra, sem saman eiga að vinna.
Úr þessu er enn hægt að bæta. í stað þess að láta
deiluna ganga til gerðardóms, getur ríkisstjórnin látið
útgerðin fá það aftur. sem þar tekið ranglega af henni
í fyrra, og fært útflutningsgjöldin i sitt fyrra horf. Ef
ríkisstjórnin gerir þetta ekki, geta útgerðarmenn og sjó
menn sameinazt um bessa kröfu, en látið í staðmn inn-
byrðis deilur sínar falla niður. Það væri að starfa í anda
þess stéttafriðar, sem þjóðin þarfnast.
Social Credit flokkurínn hefur m úrslitavafd i þinginu
ÚRSLIT kosninganna, sem fóru
fram í Kanada 18. f.m., komu
að því leyti ekki á óvart, að í-
haldsflokkurinn tapaði miklu
fylgi og Frjálslyndi flokkurinn
bætti miklu við sig. íhaldsflokk
urinn fékk ekki nema 116 þing-
sæti í stað 208 í kosningunum
1958 Frjálslyndi flokkurinn
fékk hins vegar 99 þingsæti í
stað 49 í kosningunum 1958.
Munar nú orðiö álíka litlu á
flokkunum og í kosningunum
1957, þegar íhaldsflokknum
tókst að sigra Frjálslynda flokk
inn eftir 25 ára óslitinn valda-
ferd þess Síðf.rnefnda. Þá fékk
Ííhaldsflokkurinn 113 þingsæti,
en Frjálslyndi flokkurinn 106
þingsæd. Eftir þær kosningar
myndaði Diefenbaker, foringi í-
halds‘"okksins, fyrstu stjórn
sir.a, sern var minnihlutastjórn.
S Ári síðar vann íhaldsflokkurinn
hinn mikla kosningasigur sinn,
sem er hinn stærsti í allri sögu
Kanada.
ÞaS kom ekki á óvart þótt
íhaldsflokkurinn tapaði miklu
fyigi nú, því að stjórn Diefen-
bakers hnfur bæði verið sein-
heppin og óheppin. Fylgisaukn-
ing Frjálslynda flokksins kom
heldur ekki á óvart. Það kom
hins vegar á óvart, að hínn svo
nefndi Social Credit flokkur
fékk 30 þingsæti og þar með
oddaaðstöðu á þingi Kanada
Þess vegna beinist nú athyglin
fyrst og fremst að honum.
SOCIAL CREDIT flokkurinn er
orðinn nokkuð gamall flokkur.
stofnaður á kreppuárunum fyr-
ir stríðið Aðalstefnumál hans
var b?s ♦■rv.crjjria niömiirm r»í)pfTÍ
legt lánsfé, því að það örvaði
viðskipti og framleiðslu og skap
Iaði þannig velmegun af sjálfu
sér. Flokkurinn fékk strax veru-
legt ' dgi i vestustu fylkjunum
í Kanada og náði fljótt fylkis-
=tjórninni í Alberta og síðar
í British Columbia. í öðrum
hlutum landsins náði hann ekki
verulegri fótfestu. í fylkisstjórn
=inni í Alberta og British Col-
umbia reyndist hann íhaldssam
ur og gerði lítið til að fram-
fylgia hinu upphaflega stefnu-
máli sínu. t þingkosningunum
1957 fékk hann 19 þingmenn
kosna, alla Aiberta og British
Columbia. en missti þá alla í
kosningunum 1958 til íhalds-
flokksins. Almennt var því litið
svo á, að flokkurinn væri búinn
að vera sem landsflokkur.
Þetta reyndist hins vegar á
aðra leið. Flokkurinn fékk nú
30 þingmenn kjörna, en þar af
ekki nema 4 í Alberta og Brit-
ish Columbía eða á hinum
gömlu slóðum flokksins. Hins
vegar fékk flokkurinn 26 þing-
menn kjörna í Quebec, þar sem
hann hafði ekki haft neina fót-
festu áður. Sá sigur flokksins
þykir miklum tíðindum sæta og
geta orðið upphaf meiri tíðinda
sð dómi ýmissa kunnugra. Það
or nefnilega í Quebec, sem fólk
frönskum ættum er í yfir-
vi.æfandi meirihluta og hefur
=ú hreyfing verið vaxandi þar.
að Quebec heimtaði enn meiri
sjálfsstjórn. því að hin brezk-
■^ttaði meirihluti í Kanada léti
Duebec að ýmsu leyti verða
útundan Social Credit flokkur-
'nn fékk mest fylgi í sveitahér-
Vjðurinm. þar =em hin fransk-
wwiMwwwMMriii——f tm
CAOUETTE
sinnaða þjóðernishreyfing er
sterkust.
EINN MAÐUR er talinn öðrum
fremur eiga meginþátt í sigri
Social Credit flokksins í Que-
bec. Þessi maður heitir Real
Caouette. Hann er 44 ára gam-
all, bílasali að atvinnu. Hann
hefur verið leiðtogi flokksins
í Quebec síðan 1946, er honum
tókst að ná kosningu fyrir flokk
inn í aukakosningu og var það
í fyrsta skipti, er flokknum
tókst aö fá mann kjörinn í Que-
bec Hann sat þá þrjú ár á þingi,
en náði ekki endurkjöri. Hann
hefur samt ekki gefizt upp. Fyr-
ir fjórum árum seldi hann
helminginn af bílasölu sinni og
hefur síðan alveg helgað sig bar
áttunni fyrir flokkiiin í Quebee.
Hann hefur bæði ferðazt mikið
og komið oft fram í sjónvarpi.
llann er sérlega snjall ræðumað
ur, er talar í trúboðastíl og nýt
ur sín því bezt á stórum fund-
um. Það hefur hjálpað honum,
að hann er jafnvígur á frönsku
og ensku. Hann hefur í ræðum
sínum fremur lítið útskýrt
stefnu flokksins, heldur lagt
me.gináherzlu á eftirfarandi víg
orð: Þið getið ekki haft það
verra, — enginn munur er á f-
haldsflokknum og Frjálslynda
flokknum, því að auðmenn
stjórna báðum, — reynið því
Social Credit flokkinn.
Þótt CaouPtte hafi raunveru-
lega unnið mest fyrir flokkinn
á undanförnum árum og verið
aðalforingi hans. va- hann ekki
kjörinn formaður hans á síð-
asta flokksþingi. Af sögulegum
ástæðum þótti rétt að flokkur-
inn væri búsettur í Alberta. Fyr
ir valinu varð því Robert
Thomson, 48 ára gamall trú-
boði, sem er nýlega kominn
heim frá "’thiopiu eftir 15 ára
dvöl þar. Hann verður nú for-
ingi flokksins í þinginu, en
Caouette þykir hins vegar lík-
le.gur til að ráða mestu.
Athygli vekur, að þingflokkur
Social Credit flokksins er yfir-
leitt skipaður mönnum, er ekki
hafa komið nálægt sljórnmál-
um áður eða þótt líklegir til
slíkra afskipta. Þá hefur það
vakið umtal, að þeir 24 þing-
menn flokksins, sem eru kvænt
ir. eiga sex börn til jafnaðar.
ANNAR smáflokkur, Nýi demo-
krataflokkurinn reyndi nú gæf-
una í fyrsta sinn. Harm var
stofnaður í fyrra upp úr
gamla Samvinnuflokknum, er
átti átta menn á þinginu, með
tilstyrk Alþýðusambands Kan-
ada Samvinnuflokkurinn hefur
einkum átt fylgi meðal bænda
í miðfylkjunum í Kanada og t.d.
lengi haft fylkisstjórnina í
Saskatshewan. Fyrirætlun hins
nýja flokks var að fylla svipað
rúm og Verkamannaflokkurinn
gerir i Bretlandi. Hinum p.ýja
flokki tókst að vinna 19 sæti,
þar af 10 í British Columbia,
þar sem Social Credit flokkur-
inn var sterkastur áður. Aðal-
fylgi hans reyndist vera í borg-
unum, en í sveitum hélt liann
ekki því fylgi, sem gamli Sam-
vinnuflrkkurinn hafði áður
haft. Það hefur vafalaust dregið
mjög úr gengi þessa nýja
flokks, að Frjálslyndi flokkur-
inn hefur verulega færzt til
vinstri seinustu árin.
ÞAÐ, sem bjargaði íhaldsflokkn
um mest frá hruni, var það, að
hann frekar jók við sig í bænda
héruðunum í mið- og vestur-
fylkjunum. Þetta er ekki sízt tal
ið að þakka því, að Diefenbaker
hefur selt mikið af hveiti til
Kína seinustu misserin og rétt á
þann hátt hlut bænda mjög
verulega. Af hálfu Frjálslynda
flokksins var Diefenbaker nokk
uð gagnrýndur fyrir hin stór-
auknu viðskipti Kanada við
Kína og Kúbu, en þau væru mis
jafnlega séð af vinaþjóðum Kan
ada. Diefenbaker tók þetta ó-
stinnt upp og sneri þessu upp
í þá sókn á hendur Frjálslynda
flokknum, að foringjar hans
væru of tillitssamir við Banda-
ríkin, enda benti margt til þess.
að bandarískur auðhringur, er
hefði fest rætur í Kanada í
valdatíð Frjálslyndra, óskaði nú
bersýnilega eftir sigri þeirra.
Fullvíst er talið, að þessi áróð-
ur Diefenbakers hafi reynzt hon
um drjúgur til fvlgis.
ÞAÐ VIRÐIST vera ætlun
Diefenbakers að halda völdun-
um áfram í skjóli þess, að í-
haldsflokkurinn er áfram
stærsti flokkurinn, þótt hann
sé kominn í minnihluta. Af
hálfu Social Credit flokksins.
sem _er líklegastur til samstarfs
við íhaldsflokkinn, hefur verið
lýst yfir því, að samsteypustjórn
komi ekki tH greina, en það sé
ekki heldur rétt að láta kjósa
strax, heldur ber að reyna fyrst
að rétta við erfiðan fjárhag
Kanada. Flokkurinn sé fús til
að styðja réttar aðgerðir í þeim
efnum. Diefenbaker hefur nú
lagt fran tillögur sem ganga í
þ átt að dómi hans, en eftir
er að sjá, hvernig Social Cred-
it flokkurinn tekur þeim.
Yfirleitt er það álit manna,
að miki] óvissa ríki nú í stjórn-
málum Kanada og fram úr þeim
verði ekki ráðið nema með nýj-
um kosningum Líklegt er hins
vegar, að bæði íhaldsflokkur-
inn og Social Credit flokkurinn
vilji draga þær á langinn.
Þ.Þ.
T í MIN N, miðvikudaginn 27. júní 1962
z