Tíminn - 14.07.1962, Síða 9

Tíminn - 14.07.1962, Síða 9
Marel Vilbogason og keyra bif- reiðina R-1241. — Ertu búinn að keyra lengi? — Eg hef nú stundað atvinnu akstur í 27 ár, ýmist sem rútu- bflstjóri eða leigubílstjóri. Þó hef ég eingöngu keyrt leigu- bíl síðan 1955. — Hvernig líkar þér starfið? — Prýðilega. Mér fannst að sumu leyti betra að vera rútu- bflstjóri, bæði betra að keyra á löngum leiðum, og svo komst maður meira í samband við far- begana. En þetta er líka ágætt. — Ekurðu á næturnar? — Já, það er ekkert verra, þó að sumir álíti það. Það' er alveg hægt að sneiða hjá verstu skemmtistöðunum, og þá losu- ar maður við fylliríið. Auðvitað getur komið fyrir, að maður fái ruddamenni í bílinn, en ég man ekki eftir neinum sérstökum vandræðum í því sambandi. Yf- irleitt eru menn kurteisir o4g almennilegir. — Þið heyrið líklega ýmislegt í þessu starfi? — Sjálfsagt, ef maður nennti 'að leggja eyrun við. Eg loka þeim alveg, maður getur ekki verið að hlusta á það, sem manni kemur ekkert við. — Eru ekki menn úr öllum stéttum í leigubílaakstri? — Jú, jú, allt frá sprenglærð- um menntamönnum niður í al- gjörlega ómenntaða menn. En í starfinu eru allir jafnir, og mað- ur verður ekki var við neinn stéttamun. — Hvað um sprúttsölu? — Eg er algjörlega á móti slíku, og það eru flestir í þessu starfi. Þetta eru bara örfáir menn, sem leggja sig niður við það. Það eru eiginlega óskráð — Hefurðu lesið bókina? — Já, ég las hana, þegar hún kom út og líkaði hún vel. Það er nú orðið anzi langt síðan, svo að ég er dálítið búinn að gleyma söguþræðinum. Eg dust- aði af henni rykið um daginn og ætla að lesa hana aftur, áð- ur en kvikmyndin verður sýnd. — Þetta er ekki fráleit lýs- ing á lífi leigubílstjóra? — Nei, ekki finnst mér það. Lífið var svona, áður en tal- stöðvarnar komu til og er reynd ar enn, við sátum og spiluðum eða tefldum, meðan við biðum eftir akstri. Nú, og svo var kjaftað og rifizt, eins og geng- ur. — Annað er nú varla um þetta að segja. Eg hef aldrei lent í því að lána stúlku reim, eins og hann Ragnar í 79 af stöðinni, hvað þá að ég hafi orðið fyrir öllu því, sem á eft- ir kom. Ekki saimnála Indriða Afgreiðslumaðurinn hélt víst, að hann væri orðinn kvikmynda leikari, þegar við hringdum á Borgarbílastöðina og spurðum eftir 79 af stöðinni, því að kvikmyndusn nokkurra atriða sögunnar hafði einmitt farið fram á stöðinni hjá þeim um nóttina. Upp kom þó, að númer 79 átti Gísli Sesselíusson, fyrr- verandi lögregluþjónn, núver- andi leigubílstjóri og kennari í akstri, sem keyrir spánýjan bí1 R-7520. — Hvernig stóð á því, að þú hættir í lögreglunni, Gísli? — Næturvaktin var alveg að drepa mig, svo að ég neyddist — En farþegarnir? — Alveg dásamlegir yfirleitt. Eg hef ekki undan neinu að kvarta með það. Sem dæmi get ég sagt þér, að í þau sjö ár, sem ég hef stundað þessa at- vinnu, hef ég í eitt einasta skipti verið stunginn af og svik inn um greiðslu. Eins hefur það aðeins einu sinni komið fyrir, að maður hafi sýnt slíka rudda- mennsku, að ég þyrfti að vísa honum út úr bílnum, og þó skömm sé frá að segja, þá var það þekktur íþróttakappi, sem ekki sízt hefði átt að sjá sóma sinn í að haga sér vel. — Þú kennir á bíl? — Já, ég hef mikið gert af því, einkum á sumrin, og það er Ijómandi skemmtilegt. Á ég að kenna þér? — Við skulum geyma það til betri tíma. Er kvenfólkið ekki miklu tornæmara en karlmenn- irnir? — Nei, síður en svo. Þær eru ágætar, og þær eru snöggtum öruggari í umferðinni, þegar þær eru orðnar dálítið vanar. — í sambandi við aksturinn langar mig til að geta þess, að leigubílstjórar eru yfirleitt mjög öruggir og góðir bílstjór- ar, enda þurfa þeir að sjálf- sögðu að vera það. Og þeir eru reglusamir og vandaðir menn, ég er viss um, að 90% þeirra má treysta fullkomlega. — Það er gott að heyra. Lík- ar þér ekki við númerið þitt? — Jú. það er ágætt, mér fannst það dálítið skemmtileg tilviljun þegar ég byrjaði á stöðinni árið 1955 og fékk þetta númer. lög hjá okkur á BSR að láta það ekki koma fyrir. — Þú hlýtur að þekkja borg- ina upp á þína tíu fingur, úr því að þú hefur ekið svona lengi? — Já, maður verður að gera það. Það er dálítið eifitt fyrir þá, sem eru að byrja, að læra á göturnar og allt þetta. — Hvernig er að vera 79 af stöðinni? — Það er ágætt. Eg hef að vísu ótrú á tölunni 7, en 79 hefur reynzt mér vel. til að grípa til einhvers annars, þó að mér líkaði starfið vel. Eg byrjaði á Borgarbílastöðinni ár- ið 1955 og hef verið við þetta starf síðan. — Og líkar vel? — Alveg prýðilega. Eg er nú þannig gerður, að ég vil ekki vera of bundinn, helzt eins og fuglinn fljúgandi, og mér finnst einmitt þetta starf vera hæfilega frjálslegt. Svo hef ég prýðilega yfirmenn þarna á Borgarbílastöðinni og félagarn- ir eru góðir. — Hefurðu lesið söguna? — Nei, ekki enn þá, en ég hlustaði á hana í útvarpinu og hafði gaman af henni. Eg er bara ekki sammála honum Indriða, að það sé svona rauna- legt líf að vera leigubílstjóri. Mér finnst það þvert á móti lifandi og skemmtilegt starf. — Og þú ert að sjálfsögðu ,á- kveðinn í að sjá kvikmyndina, þegar þar að kemur? — Auðvitað, og ég er mjög eftirvæntingarfullur. k. ! «j Gísli Sesselíusson — vill vera eins orj fuglinn fliúgandi, I BALDVIN Þ. KRISTJANSSON: öryggismál íslenzkra sjómanna — Engar kröfur gerðar um stöðugleikaútreikn- inga fiskiskipa — Fiskiskipstjórum ekki veittur nægilegur tími til náms — Hugleiðingar um svar skipaskoðunarstjóra Ég þakka Hjálmari R. Bárðarsyni skipaskoðunarstjóra fyrir skjót og greið svör við nokkrum fyrirspurnum mínum í dagblöðum fyrir s.l. helgi. Grein hans er mjög fróðleg, og ég efa ekki, að allt sé satt og rétt, sem hann upplýsir. Hitt er svo annað mál, að það ástand í öryggismálum íslenzkra fiskimanna, sem skipaskoðunarstjóri lýsir — og liggur ljósar fyrir almenningi nú en áður— en engan veginn þesslegt, að við það verði unað. Og með nokkur atriði er ég skipa- skoðunarstjóra ósammála um eða lít öðruvísi á en hann. ★ Áður en lengra er haldið, vil ég strax segja það, að varla fer milli mála — a.m.k. ekki í vitund almennings — hvað sem líður orðanna hljóðan í öllum lögum og reglugerðum að Skipaskoðun ríkisins er sett á stofn til þess að tryggja alhliða sjóhæfni íslenzkra SKIPA og láta einskis ófreistað í þeim efnum. Á sama hátt má með miklum sanni Fyrrí hluti segja, acS hlutverk Stýrimannaskólans sé það, að tryggja „sjóhæfni“ íslenzkra skipsstjórnarMANNA. Veit ég, að báðar þessar merku stofnanir lúta ákveðnum reglum og fyrirmælum „að ofan“ — en hvort tveggja er, að aldrei verður allt sagt í eitt skipti fyrir öll með neinni „forskrift“, enda væri líka skörin tekin að færast óþægilega langt upp í bekkinn, ef skortur á lagabókstaf einn saman stæði eðli- legri gagnsemi þeirra leng’i fyrir þrifum. En því segi ég þetta, að mér finnst skipaskoðunarstjóri bera óþarflega mikla „respekt" fyrir sumu þvi, sem er á kostnað þess, sem óumdeilanlega þarf að verða. Ég endurtek með öðrum orðum, að það, sem okkur vantar, er EKKI ANNAÐHVORT traust skip eða góðir sjómenn, HELDUR HVORT TVEGGJA. Hér er ekki um að ræða EITT fyrirbæri, heldur TVÖ. Við getum ekki sett dæmið þannig upp: að lélegt sjóskip plús afburða sjómaður sé s.s.: GOTT SKIP! Ekki frekar en afburða sjóskip plús lélegur sjómaður er: GÓÐUR SJÓMAÐUR! Þetta veit ég að skipa-’ skoðunarstjóri veit og skilur manna bezt. En hvers vegna mælir hann þá þessi furðulegu orð:„Skipsstjórnarmaður ræður raunverulega miklu meira um SJÓIIÆFNI SKIPSINS heldur en sá, er teiknaði og byggði skipið. (Allar leturbreytingar gerðar af mér. Svo var og í fyrri grein minni. — B.Þ.Kr.). Hvað á þá að segja, þegar afburða skipsstjórnarmaður kveður „manndrápsbolla" og miðlungsmaður eða þar fyrir neðan tekur við? Hvert er þá öryggi skipshafnar? Eða ef skip vegna margháttaðra bilana hrekst stjórnlaust fyrir stórsjó og stormi? Svona skjól finnst mér skipaskoðunarstjóri megi sízt allra manna búa tíl fyrir hæpna skipateiknara og skipasmiði að skríða í! Nóg er nú samt. ★ Víkjum svo að öryggismálum fiskiskipasjómanna í sambandi við þá „sjóhæfni“ skips og stjórnanda ,sem ég hef fyrr minnzt á, og gerum það í ljósi nýgefinna upplýsinga skipaskoðunarstjóra. „fslenzk lög og reglur krefjast EKKI NEINNA stöðugleikaút- reikninga á öðrum skipum en farþegaskipum.“ Þetta upplýsir skipa- skoðunarstjóri. En ég spyr: Hvers vegna ekki að krefjast þess arna varðandi fiskiskipin líka? Þrátt fyrir alla annmarka, ærinn vanda og mikla vinnu, sem skipaskoðunarstjóri gerir sjálfsagt réttilega mikið úr, FRAMKVÆMA margar skipasmiðastöðvar þetta nauð- synjaverk. T.d. fylgja „mjög góðir útreikningar með öllum skipun- um, sem byggð voru í Austur-Þýzkalandi, sömuleiðis flestum togar- anna“. Þetta er því HÆGT. Þess vegna á að GERA það. Og þótt fátt eða ekkert sé einhlítt, viðurkennir skipaskoðunarstjóri, að ákveðin dæmi byggð á stöðugleikaútreikningum nægi til þess „að skipstjóri geti umreiknað ástand skipsins í hverju einstöku hleðsluástandi.“ Er ekki ómaksins vert að skapa slík skilyrði? (miðað við, að skipstjór- um sem öðrum gefist tími og tækifæri til náms i fagi sínu, hvað ekki virðist enn þá vera). En meðal annarra orða: Hvernig snertir nú þessi mjög svo um- talaði skortur á stöðugleikaútreikningum fiskiskipa, sjálfan STARFSGRUNDVÖLL skipaskoðunar ríkisins? Embættið fær, segir skipaskoðunarstjóri, „EKKI þau gögn í hendur, að HÆGT sé að reikna út stöðugleika skipanna hér.“ Hversu geigvænleg hætta og alvara er hér á ferð, sézt bezt á öðrum örðum hans sjálfs, en þau eru þessi: „Breytingar á sjóhæfni vegna umsmíða á skipi er ÞVÍ AÐEINS HÆGT að prófa, að FYRIR HENDI SÉU STÖDUGLEIKA ÚTREIKNINGAR á skipinu fyrir breytinguna“. Svo mörg eru þau Framhald á 13. síðu. i T f M I N N, laugardagurinn 14. júlí 1962 9

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.