Tíminn - 27.07.1962, Qupperneq 1

Tíminn - 27.07.1962, Qupperneq 1
Auglýsing í Tímanum kemur daglega fyrir augu vandiátra blaða- lesenda um allt land. Tekið er á móti auglýsingum frá kl. 9—5 í Banka- stræti 7, sími 19523 RIKISSTJORNIN NEITAR SALTENDUM UM ÁBYRGD Hætta þær? TÍMINN tók þessa mynd á Slgluflrðl á mánudaginn. Þá stóð yfir einhver mesta löndunarhrota I manna mlnnum. Konurnar kepptust við að salta, og þær hafa haldið áfram að safta það sem af er vikunni. Nú er stóra spurningin þessi: Verða þær að hætta? Um daginn birtust fréttir í dagblöðunum um mannfjölda á íslandi um áramótin síðustu, og veittu þá margir því athygli að karlmenn voru um 2000 fleiri á landinu en konur. Blað ið hefur fengið bæði upphring ingar og bréf vegna þess, ým- ist með kvörtunum karla yfir þessu ófremdarástandi eða með fyrirspurnum stúlkna um hvar þessa 2000 karlmenn væri að finna! í gær barst bréf, þar sem bent var á, að fyrir 22 árum, eða 1940, var þetta alveg öfugt. Kon- ur voru þá 800—900 fleiri en karl menn, og taldi bréfritari helztu ástæðuna fyrir þessari breytingu vera útflutning kvenna til Banda ríkjanna. Hagstofan rannsakar í þessu tilefni má geta þess, að Hagstofa íslands er að ljúka rann sókn á útflutningi fólks héðan, og er hún gerð samkvæmt þings- ályktunartillögu og greidd af Al- þingi. Þessi rannsókn er gerð um tímabilið 1952—1962, en niður- stöður hennar eru ekki enn opin- berar. Hins vegar hefur blaðið frétt, að komið hafi í ljós, að um 2000 manns hafi flutzt út á þessum tíu I árum og hafi mikill meirihluti Framh. á 15. síðu. Á miðvikudaginn til* kynnti Síldarútvegsnefnd, að lokíð væri við að salta upp í gerða samninga. Það þýðir að saitað hefur verið í tvö hundruð þús- und tunnur. Söltunin um- fram þetta magn verður alveg á ábyrgð saltenda sjálfra. Þessi tiikynning kemur frá Síldarútvegs- nefnd, þegar síldarsöltun er í fullum gangi fyrir norðan og austan. Enn standa yfir viðræður um sölu síldar til Sovétríkjanna, og var síðast leitað eftir svari í fyrra dag hjá rússneska verzlunarfull- trúanum hér, en frá honum hef- ur ekkert heyrzt. Viðræðurnar við verzlunarfulltrúann hafa stað- ið yfir frá því í júní. Þegar þótti sýnt, að fljóílega yrði saltað upp í gerða samn- inga, fóru síldarsialtendur á Norður- og Austurla.ndi þess á leit Við ríkisstjórniiw, að hún veitti ríkisábyngg fyrir 85% af því magni, sem saltað yrði um- fram gerða samninga. Síldarút vegsnefnd studdi þessa nválaleií-j an einróma, en ríkisstjórnin synjaði um þessa ábyrgð. Síldar- j sa'ltendur verða því að spila á eigin spýtur, fáist ekki samning- ar um frekari sölu saltsíldar. Ástandið í þessum málum getur þvf vart verra verið, nú þegar upp gripaveiði er á miðunum. Mikil óánægja var ríkjandi í gær á sölt- unarstöðvunum, bæði fyrir norð- an og austan vegna tjlkynningar Síldarútvegsnefndar um að öll frekari söltun færi fram á ábyrgð saltenda sjálfra. Fréttaritari Tímans á Siglufirði símar, að þar séu menn allt ann- að en ánægðir með að þurfa að hætta söltun, þegar hæst stend- ur. „Þeir munu án efa halda áfram, ef þeir fá góða síld“. í Neskaupstað leizt mönnum illa á tilmæli Síldarútvegsnefndar um að söltun væri lokið, og taldi fréttaritari ekki líklegt, að salt-' endur hættu á að salta mikið upp á eigin ábyrgð, nema þangað bær ist sérstaklega góð söltunarsíld. „Þá verður vart hægt annað en salta hana“. Á Reyðarfirðj heyrðust raddir um það, að veita ætti saltendum leyfi til þess að leita fyrir sér um markaði erlendis sjálfir. Þar var haldið áfram söltun i gær og salt-1 að í um þúsund tunnur. Fréttaritari Tímans á Fáskrúðs- firði sagði, að saltendur þar h>gð ust salta upp á eigin ábyrgð og upp í væntanlega samninga. í gærkveldi barst Tímanmn skeyti frá Síldarútvegsnefnd, þar sem hún biður blaðið að birta eft irfarandi vegna fréttar í ÞjóSvil’- anum i gær um saltsíldarsölim-. „í frétt, sem birtist í Þjóðvíij- anum í dag varðandi samning^- viðræður SíIdarútvegSinefnda!- við verzlunarful'ltrúa Sovétríkj- anna um síldarsölu þangiað, e" um háskalegar ranigfærslur cð ræða. f fyrsta lagj hefur Síldar- útvegsnefnd ekki' samþykkt a*' bjóða Sovéíríkjunum síldina fyr i,- sama verð og í fyrra, heldir fimmtán shillingum hærra verð pr. tunnu. f öðtu Iagi hefur nefndin boðið 100 þúsund tunn- ur af' Norðurlandssíld en ekkl 80 þúsund, eins og segir í frétt- inni. f þriðja lagi er salan a Norðurlandssíld'inni ekki bund- in sölu á Suðurlandssíld, heldur ítrekaði nefndin beiðni um samn ingaviðTæður um sölu á a. m. k. 50 þúsund tunnum af Suður- landssíld. f fjórffia lagi greiddi Gunnar Jóhannsson, alþm., ful' trií'i Alþýðusaiiihands fslands í Sfldarútvegsnefnd og heimjldar- maður fréttaritara Þjóðvilja.ns Framh. á 15. síðu. í gær féll úrskuröur félags- dóms í þjónadeilunrti, og var verkfallsboðun þeirra dæmd ólögmæt, þar sem ekki hafði verið fullnægt tilkynningar- slcyldu til sáttasemjara. Opn- uSu veitingahúsin aftur í gær- kvöldi. Strax eftir dóminn hélt trúnað armannaráð framreiðslumanna fund, og var þar samþykkt a'ð boða aftur til verkfalls með nýj- um fyrirvara. Hefst vinnustöðvun því aftur frá og með laugardeg inum 4. ágúst, hafi samningar ekki tekizt fyrir þann tíma. Á tímabili í gærkveldi voru horfur á því, að sáttafundur yrði ha'kl- inn, en svo var ekki. í gærkvoM. var haldinn sáttafundur með ful'. trúum þjóna og veitiugahéswÞig- enda.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.