Tíminn - 27.07.1962, Blaðsíða 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson. Fullfcrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Auglýs-
ingastjóri: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórnarskrifstofur i Eddu-
húsinu; afgreiðsla, auglýsingar og aðrar skrifstofur i Banka-
straeti 7. Símar: 18300—18305. Auglýsingasími: 19523. Af.
greiðslusími 12323. — Áskriftargjald kr. 55 á mánuði innan-
iands. í lausasöiu kr. 3 eintakið. — Prentsmiðjan Edda h.f. — |
Þjónn íhaldsins
Það er athyglisvert aS sjá skrif Morgunblaðsins um
væntanlegt stjórnarsamstarf eftir næstu þingkosningar.
Það staðhæfir alveg hiklaust að samstarf Sjálfstæðis-
flokksins og Alþýðuflokksins muni haldast áfram, ef
þessir flokkar glata ekki þingmeirihlutanum. Mbl. telur
stuðning Alþýðuflokksins við Sjálfstæðisflokkinn eins
ótvíræða staðreynd og að skuggi fylgir manni.
Þetta er eitt af mörgum dæmum þess, að Alþýðuflokk-
urinn er hættur að hafa sjálfstæða tilveru og sjálfstæða
stefnu. Hann er orðinn viljalaus þjónn á heimili íhaldsins,
en það má íhaldið eiga, að það sér þessum þjóni sínum
fyrir góðum mat og klæðum og lætur hann meira að
segja halda, að hann eigi talsvert undir sér! En það er hús-
bóndinn, sem ræður.
Þannig hefur húsbóndinn þegar ákveðið, að svona skuli
þjónninn vinna eftir næstu kosningar. Hann þarf ekki að
spyrja þjóninn neitt um það. Hann gefur yfirlýsingu fyr-
ir hönd þjónsins fyrir fram. Húsbóndinn talar nánast
orðið um þjóninn eins og eign sína.
Sjálfstæðisflokkurinn talaði hins vegar ekki um Alþýðu-
flokkinn á þennan veg meðan Jón Baldvinsson og Héðinn
Valdimarsson höfðu þar forustu. Meira að segja Stefán
Jóhann hafði þá sjálfstæðiskennd, að Sjálfstæðisflokkur-
inn gat ekki í formannstíð hans gefið yfirlýsingu um af-
stöðu Alþýðuflokksins langt fram í tímann.
Hin ömurlegu endalok Alþýðuflokksins má bezt marka
á því, að á Norðurlöndum og Bretlandi eru jafnaðar-
mannaflokkarnir aðalandstæðingar íhaldsins. Hér er Al-
þýðuflokkurinn þjónn þess.
En þótt Alþýðuflokkurinn sé úr sögunni sem slíkur og
hann áður var, mun merkið, seni; hann bar, ekki falla
niður
Framsóknarflokkurinn og Alþýðuflokkurinn voru
stofnaðir nær samtímis til að vinna að svipuðum hugsjón-
um _ hugsjónum samvinnu og jafnréttis. Þeir skiptu í
fyrstu þannig með sér verkum, að Framsóknarflokkurinn
sínnti einkum málefnum dreifbýlisins. en hinn málefnum
bæjanna. Nú er það orðið hlutverk Framsóknarflokksins
að bera merkið á báðum stöðum. Það kom glöggt fram
í seinustu bæjar- og sveitarstjórnarkosningum, að fólkið
í kaupstöðunum og kauptúnunum hefur gert sér þetta
Ijóst.
Þess vegna skal íhaldið fagna hóflega því, að það hefur
gert Alþýðuflokkinn að þjóni sínum. Hugsjónir og stefn-
ur lifa, þótt þeir, sem gerast værugjarnir og valdaglaðir,
bregðist þeim.
Útgerðin féflett
Gunnar Thoroddsen hefur nú birt niðurstöður ríkis-
reiknings fyrir árið 1961. Samkvæmt þeim telur hann
greiðsluafgang hafa orðið 57 millj. kr
Gunnar getur þess hins vegar ekki. að þessi afgangur
hefur fengizt á pappírnum með því að veita ríkisábyrgðar-
greiðslum, sem urðu 71 millj. kr. á árinu, yfir á útgerðina.
í sambandi við gengisfellinguna í fyrra. var tekinn á ann-
að hundrað milljón króna gengishagnaður af útgerðinni
og það fé m. a. notað í ríkisábyrgðargreiðslur.
f yfirliti Gunnars var ekki minnzt einu orði á þessa
eignatöku hjá útgerðinní og hvernig hún var notuð til
að tryggja greiðsluafgang hjá ríkisstjórninni á pappírn
um.
Tómas flrnason, lögfræðingur:
Full aðild að EBE óhugsandi
fyrir islendinga—Bíðum átekta
Tilgangurinn meiS
stofnun EBE
Þau höfuðsjónarmið, sem liggja
til grundvallar stofnun EBE, eru
í fyrsta lagi viðleitni Vestur-
Evrópuríkja til að skapa nýjan
grundvöll til víðtæks samstarfs
á sviði efnahagsmála. Ein helzta
orsökin eru hinar stórstígu fram
farir iðnaðarins með aukinni
tækni., f annan stað ákveðin
stefna til að styrkja áhrif Vestur
Evrópuríkja á sviði alþjóða-
stjórnmála. Er við íslendingar
íhugum okkar aðstöðu gagnvart.
EBE, verðum við að hafa þetta
hvort tveggja í huga, jafnframt
því sem grandskoðuð eru þau
rök, sem ákveða afstöðu íslands
tii EBE.
ísland, EBE og
vestræn samvinna
Með hugtakinu vestræn sam-
vinna er að öllu jafnaði átt við
samvinnu þjóðanna báðum meg-
in Atlantsála í Norður-Ameríku
og Vestur-Evrópu. Þessar þjóð-
ir eiga samleið af ýmsum ástæð
um. Landfræðilega hagar svo
til, að samskipti þessara þjóða
hafa jafnan verið mikil. Stjórn-
arfar er yfirleitt í grundvallar-
atriðum svipað. Lífsviðhorf og
menningararfleifð þannig hátt-
að, að eðlileg samstaða þeirra
er sjálfsögð. Þrátt fyrir þetta,
hefur samvinna milli vestrænna
þjóða í heild ekki verið mjög
náin fyrr en eftir seinni heims-
styrjöldina. Samtökum samein-
uðu þjóðanna var í upphafi ætl
að að tryggja víðtæka alþjóðlega
samvinnu. Því miður brugðust
yonir manna í þeim efnum, þar
sem Sovétríkin skárust úr leik
og héldu fram ósættanlegri sér-
stöðu sinni. í öndverðu var Mars
hall-hjálpinni ætlað að ná bæði
til Austur- og Vestur-Evrópu. —
Stjórn Sovétríkjanna hafnaði al-
gjörlega slíku efnahagssamstarfi
og hugðist færa út áhrifasvæði
sitt í Evrópu. Rembihnútinn
ráku svo Rússar á útþenslu-
stefnu sína vestur á bóginn, þeg
ar kommúnistar tóku völdin í
Tékkóslóvakíu, þótt þeir hefou
ekki nenia brot af fylgi lands-
fólksins á sínu bandi. Upp úr
þessari þróun málanna spratt
svo Atlantshafsbandalagið, sem
hefur tryggt friðinn í Evrópu og
stöðvað frekari ofbeldisyfirgang
kommúnista.
Það virðist ljóst, að sá mikli
árangur, sem vestræn samvinna
hefur áorkað ætti að vera vest-
rænum þjóðum hvatning til rek
ara samstarfs. Stofnun EBE er
beint framhald í áttina til enn
þá nánari samvinnu en nokkru
sinni fyrr, þótt bandalagið sem
slíkt sé bundið við Evrópu eina.
Ef bandalagið rekur frjálslynda
pólitík í efnahagsm:'1 'gn-
vart hinum frjálsa heimi, má
vænta mikils góðs af starfsemi
þess. í heild á vestræn 'sámvinna
að miða að því að viðhalda og
úlbreiða þær hugsjónir og
stjórnarhætti sem bezt hafa
reynzt vestrænum þjóðum í því
efni að tryggja frelsi. velmeg-
un og frið á jörðu.
Sérstaða Islands
Vestræn samvinna hefur mjög
mikla þýðingu fyrir sjálfstæði
íslands. Ef NATO hefði ekki
TÓMAS ÁRNASON
notið við, hefði sókn kommúnista
til yfirráða í V-Evrópu áreiðan-
lega ekki stöðvazt. Sennilega
hefði þróunin orðið sú í fram-
haldi af valdatöku kommúnista
í fjölmörgum ríkjum Evrópu, að
ein og ein hefðu, a.m.k. litlu
, þjóðirnar í V-Evrópu orðið
kommúnismanum að bráð. En
V-Evrópu stafar ekki aðeins
hætta frá kommúnismanum á
sviði öryggismála, heldur einnig
á vettvangi efnahagsmála. Það
er því brýn nauðsyn vestrænum
þjóðum að efla og treysta sam-
starf í efnahagsmálum. Við ís-
lendingar höfum í ríkum mæli
notið góðs af samstarfi við aðr-
ar vestrænar þjóðir í efnahags-
málum. En traustur efnahagur
þjóðarinnar er einn helzti hyrn-
ingasteinn sjálfstæðisins eins og
öllum er raunar ljóst.
Það er sjálfsagt mál, að ís-
iendingar taki þátt í vestrænu
samstarfi. En slík samvinna verð
ur að grundvallast á alveg sér-
stæðri tilveru og aðstöðu ís-
lendinga. Við erum svo örsmá
þjóð, að útlendingar sem lítið
þekkja til, trúa því alls ekki að '
við séum einar 180 þús. manna.
Þeir geta vart skilið, að svo fá-
menn þjóð geti verið hlutgeng
í alþjóðlegu samstarfi. Sem
dæmi um smæð okkar má nefna,
að a.m.k. 40 fyrirtæki í Vestur-
Þýzkalandi hafa hvert um sig
meiri umsetningu en allar þjóð-
artekjur íslendinga.
Fámenni okkar skapar vanda-
mál í samvinnu við stærri þjóð-
ir og stórveldi. Verndun þjóð-
ernis vors, tungu og menningar
er rnikið vandamál í nýjum heimi
vaxandi samskipta og samvinnu.
Við gerum þá kröfu til þeirra
þjóða, sem við eigum samvinnu
við, að þær taki tillit til sér-
stöðu okkar. Á þessum grund-
velli hlýtur þátttaka okkar í
vestrænu samstarfi að byggjast. •
Og það er mjÖg þýðingarmikið,
að innlend samstaða sé um þetta
höfuðsjónarmið.
Vegna sérstöðu íslands urðum
við ekki stofnaðilar að Samein-
uðu þjóðunum. Það var samstaða
lýðræðismanna um sérsjónarmið
íslendinga. þegar ísland gekk í
NATO Á sama hátf verður mjög
áríðandi, að afstaða okkar til
Efnahagsbandalags Evrópu, mót
ist og miðist við algera sór-
stöðu íslendinga.
Ég hef áður minnzt á fámenni
vort. En land okkar er tiltölu-
lega stórt, ásamt verðmætum
fiskimiðum. Hins vegar tiltölu-
lega lítt numið enn sem komið
er.
Aðstæður allar setja ísland í
sérflokk meðal þjóðanna, og virð
ist framtíð íslenzkrar þjóðmenn
ingar undir því komin, að sú
sérstaða verði áfram viðurkennd
í verki af öðrum þjóðum, enda
haldið fram af fullri einurð af
okkur sjálfum.
Af þessari sérstöðu okkar
leiðir, að við getum ekki og
megum ekki afsala vissum rétt-
indum til annarra. Kem ég nán-
ar að því síðar.
Hvað þýÖir full a'ðild
aí EBE fyrir ísland?
Með bandalagi því, sem stofn-
að er með Rómarsamningnum
(EBE) er ekki aðeins gert ráð
1 fyrir sameiginlegum vörumark-
aði, heldur hreinni efnahagssam
steypu. Mun ég nú nefna nokkur
atriði, sem skýra nánar í hverju
full aðild fyrir fsland að EBE
væri m. a. fólgin.
í Rómarsamningnum eru á-
kvæði um réttindi til atvinnu-
reksturs innan EBE-landanna.
Þessi ákvæði fella niður þær
takmarkanir, sem verið hafa á
rétti borgaranna í aðildarlönd-
um EBE til stofnunar atvinnu-
reksturs í öðrum aðildarlöndum
EBE, með sömu kjörum og borg
arar þeirra landa njóta. Af
þessu leiðir, að fyrirtæki og ein-
staklingar í EBE lönduni geta
þar með eignazt eignir á íslandi
og stofnað fyrirtæki eins og fs-
lendingar sjálfir. Énn fremur
eiga þeir þar með jafnan rétt á
við íslendinga að hagnýta sér
íslenzka fiskveiðilandhelgi.
Ef borin eru saman venjuleg
íslenzk fyrirtæki og risafyrirtæki
EBE-landanna,' kemur skýrt í ljós
hin algera sérstaða íslands. Ligg
ur í hlutarins eðli, hversu mik-
ið ójafnræði væri milli hinna
risastóru fyrirtækja og smá-
rekstursins hér heima fyrir. Hin
stóru fyrirtæki hafa t.d. ótak-
markað fjármagn, frá okkar
sjónarmiði séð, og væri auðvelt
fyrir þau að gleypa hin örsmáu
íslenzku fyrirtæki. Tökum fisk-
iðnaðinn og útgerðina sem
dæmi. Erlend risafyrirtæki á
sviði fiskdreifingar og sölu gætu
t.d. haft hina mestu hagsmuni
af því að leggja undir sig að
meiru eða minna leyti fiskiðnað
þjóðarinnar, ef allar gáttir væru
opnaðar í þessu efni. Hætt er
/við„ að sú freisting yrði mikil,
að eiga kost á að selja fyrirtæki
fyrir miklu hærra verð en ella
væri mögulegt Einnig má nefna
það, að fjársterkir einstakling-
ar frá stórveldunum kynnu að
hafa áhuga á að eignast hér
eignir af ýmsum ástæðum. Þá
verður ag hafa í húga, að auðug
ir menn á þeirra vísu, eru svo
gífurlega auðugir borið saman
við það sem hér gerist. að auð
velt væri fyrir þá að yfirbjóða
venjulegt verðlag hér í landinn
Hvernig sem á málið er litið
virðist ljóst, að það er hreinn
Framhald á 13 síðu
T í M I N N, föstudagurinn 27. júlí 1962. —
7