Tíminn - 27.07.1962, Síða 12
1 ÍÞR[ 3TTSR Illlllliil 11! ÍÞRÚl '
1 '.
MTSTJORI HALLUR SIMONARSON
FYRSTA SÆTI
Akurnesingar náðu forust-
unni í 1. deild meS sigri á
Akureyri í fyrrakvöld og eru
möguleikar þeirra til að hljóta
íslandsmeistaratitilinn nú
orðnir mjög miklir, þrátt fyrir,
að þeir eiga eftir alla leiki
sína í Reykjavík við Val, Fram
og KR. Leikurinn á Akureyri
var skemmtilegur, enda dásam
legt veður og næstum tvö þús-
und áhorfendur sem hvöttu
Ieikmenn mjög.
Eftir því, sem Árni Ingimund-
arson sagði blaðinu í gær, voru
Akurnesingar heppnir að hljóta
bæði stigin. Þeir fengu tvö mjög
ódýr mörk — annað sjálfsmark
hjá Akureyringum — og' setti
þetta heimamenn nokkuð út af lag
inu. Jafntefli eða jafnvel sigur
heimamanna hefði verið nær
sanni, sagði Árni, en þetta taþ
Akureyringa hefur í för með sér,
að liðið hefur nú ekki lengur mögu
leika til að hljóta Islandsmeistara-
titilinn.
Akurnesingar byrjuðu leikinn
með stórsókn og þegar rúm mínúta
var liðin lá knötturinn í marki Ak-
ureyrar. Ingvar brauzt í gegn og
tókst að halda knettinum, þrátt fyr
— Sigraði Akureyringa í íyrrakvöld með 3-1 og Akur-
eyri því ekki lengur í baráttunni um íyrsta sætið.
Ingvar Elísson skorar annað mark Akraness með kollspyrnu.
Heimsmet
Osaka, 26. júlí NTB
Hin fimmtán ára gamla banda-
ríska stúlka Donna Devaronna
setti í dag nýtt heimsmet í 400 m.
fjórsundi. Hún synti vegalengdina
á 5:27,4 mínútum.
ir að brír varnarleikmenn Akureyr-
ar tökluðu hann. Var Ingvar allt
í einu kominn inn á markteig og
renndi knettinum fram hjá Einari
Helgasyni, án þess hann gæti nokk
uð við markinu gert.
En þetta upphlaup var líka hið
eina hættulega hjá Akurnesingum
í fyrri hálfleiknum. Akureyringar
tóku leikinn alveg í sínar hendur,
og langtímum saman kom hann
ekki yfir á vallarhelming þeirra.
Mörg upphlaup Akureyringa voru
hættuleg — en þeim tókst þó að-
eins að skora eitt mark og gerði
Skúli Ágústsson það með góðu skoti
eftir að hafa verið leikinn frír af
félögum sinum. Skúli átti einnig
annað mjög gott skot, sem Helgi
varði, en missti knöttinn og tókst
Akureyringum ekki að koma hon-l
um í autt markið. Eftir gangi leiks
ins hefðu Akureyringar átt að hafa
tvö til þrjú mörk yfir í hléi — en
jafntefli var 1:1.
í síðari hálfleiknum snerust hlut
iinir við, Nú voru það Akurnes-
ingar, sem sóttu miklu meira —
enda tókst þeim fljótlega í hálf-
Ljósmynd: Bjarnleifur.
leiknum að skora þýðingarmikið
mark. Markið kom þannig, að
Sveinn Teitsson var með knöttinn
og hafð'i leikið framvörðinn af sér.
Hægri bakvörður Akureyringa
kom á móti Sveini og varð þá að
!áta Þórð Jónsson vera frían, og
Sveinn sendi knöttinn til Þórðar,
sem lék inn undir línu. Jón Stefáns
son hljóp gegn Þórði, sem gaf fyr-
ir til Ingvars og hann skallaði
mjög laglega í mark. Nokkru síð-
ar skoraði Siguróli bakvörður svo
sjálfsmark en það var þó frekar
Einari markverði að' kenna en hon
um. Einar kallaði til Siguróla og
sagði honum að spyrna knettinum
til sín, en hljóp svo úr markinu
og var ekki til staðar til að taka
á móti sendingu Siguróla.
Síðari hálfleikurinn var ekki
eins vel leikinn og hinn fyrri og
talsverður drungi yfir leikmönnum
— einkum þó eftir að Akureyring-
arnir skoruðu sjálfsmarkið, en þá
Framhald á 5. síðu.
Staðan
í mdtínu
Staðan í íslandsmótinu 1. deild
er nú þannig eftir Ieik Akureyrar
og Akraness:
Akranes 7 4 2 1 17:8 10
Fram 7 3 3 1 13:5 9
Valur 7 3 2 2 9:4 8
KR 7 3 2 2 14:8 8
Akureyri 8 4 0 4 18:15 8
ísafjörður 8 0 1 7 1:32 1
Knötturinn hafnar í netinu
Ágústssonar.
í kvöld leikur þýzka hand-
knattleiksliðið Esslingen, sem
er eitt af sterkustu liðum V-
Þýzkalands, sinn fyrsta leik
hér á landi og mætir það þá
gestgjöfunum, Fimleikafélagi
Hafnarfjarðar. Leikurinn verð
ur á Hörðuvöllum í Hafnar-
firði og verður eini leikur
þýzka liðsins á útivelli hér. —
Liðið mun leika þrjá aðra leiki
í förinni, einn í íþróttahúsinu
á Keflavíkurvelli, og tvo í
íþróttahúsinu að Hálogalandi.
Stjóm Fimleikafélags Hafnar-
! fjarðar boðaði blaðamenn á sinn
fund í gær og fengu þeir þá tæld-
: færi til að ræða við þýzkm leik-
mennina. Fararstjórinn Poul
. Kenner kvaðst mjög ánægður að
vera kominn hingað til lands og
fá tækifæri til að leika gegn ís-
lenzkúm handknattleiksmönnum,
sem hann kvaðst bera mikla virð
ingu fyrir. Gaf haún ýmsar upp-
lýsingar um lið sitt og, sagði þá
meðal annars:
Turnerbund Esslingen, eða fim
'ikafélag Esslingen, hefur á und
förnum árum látið mjög að sér
veða í handknattleik og erx nú
alið eiga eitthvert síferkasta lið
>ýzkalands í þeirri íþrótt Liðið
........ kemur frá Esslingen, sem er lítil
hjá Helga Damelssynl, eftir skot Skúla iðnaðarborg i fylkinu Wúrtemberg
Ljósmynd: Bjarnlelfur. j suðvesturhluta Þýzkalands, en
þar hefur liðið notið nábýlis við
hin beztu handknattleikslið önn-
ur í nærliggjandi borgum. Má
þar til nefna F.A. Göppingen, sem
nú er Evrópumeistari í handknatt
leik, en þessi tvö lið hafa löngum
keppt um meistaratitilinn í Wurt-
emberg. Handknattleiksliðið Ess-
lingen hefur einnig á undanförn
i um árum háð marga leiki við
j þekkt erlend lið við góðan orðstír.
Árið 1959 ferðaðist liðið um
Júgóslavíu og 1961 til Alsír, en
þar vann liðið alla sína leiki. —
Meðal þekktra handknattleiksliða
sem Esslingen hefur keppt við,
má nefna MIK Gautaborg (11:7),
Spartak Prag (11:8), BTV St.
Gallen (Svisslandsmeistarar), AT
SV Linz (Austurríkismeistarar)
og Partizan Bjelovar (desember
1961; 23:21. Þetta lið varð 2. í
Evrópumeistarakeppninni).
Þá gaf fararstjórinn ýmsar upp
lýsingar um leikmenn, sem marg-
ir hverjir eru mjög kunnir, og
meðal annars einn þeirra hefur
| leikið í þýzka landsliðinu.
Aðalmenn Esslingen eru þess-
ir:
Markvörður:
Sigfried Wundervvald er 22 ára
og er í handknattleiksúrvali
Wurtemberg.
'^arnarleikmenn::
Werner Hagele 24 ára.
Sigfried Mack 26 ára.
Josef Fink er í úrvalsliði Wúrt
emberg í inni- og útihand-
knattleik og í suður-þýzka
úrvalinu. Ilann hefur leikið
í þýzka landsliðinu.
Werner Kneeht 26 ára. Hann
er í úrvali Wúrtemberg og'
í suður-þýzka úrvalinu.
Dieter Kölz 21 árs.
Sóknarleikmenn:
Manfred Pfeffer 21 árs.
Helmut Simmendinger 24 ára,
fyrirliði liðáins. Hann er í
úrvali Wúrtembérg og í suður
þýzka úrvalinu.
Roland Boger 24 ára. Hann er
í úrvali Wúrtemberg í inni-
handknattleik.
Anton Bayer 21 árs. Hann' er í
úrvali Wúrtemberg í útihand
knattleik og í suður-þýzka
úrvalinu.
Ernst Bayer 22 ára.
Þá eru og nokkrir varamenn
með í förinni.
Eins og á.ður segir, verður
fyrsti leikurinn í kvöld gegn FH
og hefst keppnin kl. 8,15 með leik
milli Ármanns og FH í meistarp
flokki kvenna, en síðan hefst aðal
leikurinn.
Á sunnudaginn leika Þjóðverj-
arnir gegn úrvali Suð-vesturlands
og verður lieikurinn í íþróttahús-
inu á Keflavíkurflugvelli. Áður
en aðalleikurinn hefst leikur FH
gegn Njarðvíkingum í 3. flokki.
Tveir leikir verða svo í næstu
viku að Hálogalandi og leika þá
úrvalslið Reykjavíkur og FH gegn
Þjóðverjunum, en héðan halda
þeir aftur þann 4. ágúst.
12
T I M I N N. föstudagurinn 27. iúlí 1962. —