Tíminn - 05.08.1962, Síða 3
Bygging Stón skéla
hafín í Bolungarvík
Bolungavík, 27. júlí.
Nú fer fyrsti áfangi að
byggingu nýs barna- og gagn-
frœSaskólahúss að hefjast hér
í Boiungavík. Nýsamið er við
ungan byggingameistara hér í
þorpinu um að gera þriðjung
hússins fokheldan.
Skólabyggi'ng þessi á fullgerð
að geta fullnægt bæði barna- og
gagnfræðastigum fræðslulöggjaf-
arinnar í náinni framtíð. Sá hluti,
sem nú var boðinn út, er tvær
hæðir og kjallari. Þar eiga í kjall-
ara að vera handavinnustofur^
stúlkna og drengja og auk þessj
skólaeldhús. Þessi hluti er 400
fermetrar að grunnfleti.
Þrjú tilboð bárust í fyrsta áfang
ann, og var Jón Fr. Einarsson úr
Bolungavik lægstur með 1.990.000
krónuf. Var tilboðið talið hagstæð
Sýnir á Mokka
Á MOKKA eru nú til sýnis 40
myndir eftir 25 ára gamla stúlku,
Sigríði Soffíu Sandholt. Sigríður
er stúdent frá MR 1956, tók kénn-
arapróf 1959 og hefur síðan kennt
við skóla ísaks Jónssonar. Mynd-
irnar eru flestar túss- og pastel-
myndir, málaðar 1961—1982. Sig-
ríður hefur ekki lært neitt í mynd í
list, og er þetta fyrsta sýning I
hennar. Myndirnar eru til sölu, j
Kosta flestar 150—250 krónur. I
ast, en hæsta tilboðið var tæpar
4 milljónir. Útboðin voru miðuð
við að gera bygginguna fokhelda,
og efni og vinna innifalin. Kjall-
aranum á að vera lokið 15. nóv.
í ár, en hæðirnar eiga að vera
steyptar fyrir 1. sept. 1963.
Jón Fr. hefur reist fleiri stór-
byggingar hér í Bolungavik, svo
sem hið myndarlega íshús, sem
nú er að verða fullgert, og auk
þess haft með allmörg íbúðarhús
að gera á hverju áxi. — krjúl.
Yill kjarnavopn
NTB—Genf, 4. ágúst.
Kínverski utanríkisráðherrann,
Chen Yi, sagði í samtalsþætti í
svissneska sjónvarpinu í gær, að
kínverskir vísindamenn héldu á-
fram rannsóknum sínum í sam-
bandi við framleiðslu kínverskra
kjarnorkuvopna, og yrði fram-
leiðsla hafin í stórum stíl, innan
tíðar.
Við gerum þessar rannsóknir
með framleiðslu í huga, vegna
þess, að heimsvaldasinnarnir
halda okkur veika fyrir, meðan
við ekki höfum kjarnorkuvopn
undir höndum, sagði utanríkisráð-
herrann.
Ég get fullvissað alla um það,
að við erum ekki langt á eftir í
þessum efnum, sagði Chen Yi að
lokum.
Tignir gestir í
„rutschebanen
MYNDIN hér fyrir ofan er frá
heimsókn Eisenhowers, fyrrver-
andi forseta Bandaríkjanna, konu
hans og tveggja barnabama í
Kaupmannahöfn.
Á meðan hjónin sátu hádegis-
verðarboð dönsku stjórnarinnar,
brugðu systklnin, David og Bar-
bara, barnabörn hjónanna, sér i
gamla Tfvolf f Kaupmannahöfn
og að sjálfsögðu fóru þau fyrst
eina ferð með skriSbrautinni
(rutschebanen), sem alllr Tfvolf-
gestir kannast við.
Ekki er hægt að sjá annað á
myndinni, en þau systkin
skemmti sér konunglega, David
er á myndinni í röndóttri peysu,
en Barbara er sú f Ijósu káp,
unni f næsta sæti fyrir aftan.
Nú eru systkinin komin til Þýzka
lands með ömmu og afa, þar
sem þau munu dvelja í tvo daga
f oplnberri heimsókn.
Stjórnarnefndin
hélt fund í gær
NTB-Algeirsborg, 4. ágúst.
í morgun hélt stjórnarnefnd
Ben Bella fyrsta fund sinn í
Algeirsborg. Kom þar fram, að
þing yrði kallað saman viku
eftir að kosningar hefðu farið
fram þann 27. ágúst. Yrði þá
mynduð þingbundin stjórn í
landinu og þá fyrst væri raun-
veruleg lögleg stjórnskipun
komin á í Alsír.
Hátíðahöld enn
Útvarpið í Algeirsborg birti í
gærkvöldi sérstakt þakkarávarp
til íbúanna í borginni, fyrir hinar
innilegu viðtökur, sem þeir létu
Ahmed Ben Bella verða aðnjót-
andi við komuna til borgarinnar í
gær.
Ennfremur fór útvarpið þess á
leit við fólkið, að það lyki hátíða-
höldum sínum á miðnætti, en þrátt
fyrir þessa áskorun héldu fagnað-
arlætin áfram til morguns. ^
Hundruð manna fóru hópgöngur
um göturnar og sungu og döns-
uðu. Flugeldum var skotið á loft
og bílar þeyttu horn sín.
Þröng á þingi
Er flugvél Ben Bella hafði lent
á flugvelli borgarinnar fór þar
Hlé í heilan mánuð á viðræðum
Breta og Efnahagsbandalagsins
NTB-Brussel, 4. ágúst.
Á fundum Efnahagsbanda-
lagsins í gærkveldi voru
teknar fyrir breytingatillögur
Breta við framlagðar tillögur
ráðherranefndar sexveldanna.
Stóðu fundir langt fram á
nótt og hófust að nýju í morg-
un. Ekki náðist neitt samkomu
lag og mikill ágreiningur er
nú kominn upp innan ráð-
herranefndar EBE um af.stöð-
una til kröfu Breta um sér-
stöðu til handa samveldislönd-
unum, ef Bretar ganga í banda
lagið.
Vegna þessa ágreinings er
talið líklegt, að frekari fund-
um verði frestað fram í sept.
Segja fréttamenn, að þessi.frest-
ur geti orðið til góðs, því að enn
sé svo langt í samkomulag milli
aðilanna, að gott sé að fá hlé til
að athuga ágreiningsmálin og
reyna að finna málamiðlunarleið.
Breytingatillögurnar, sem Bret-
ar lögðu fram í gær, fengu heldur
kaldar viðtökur.
Áreiðanlegur talsmaður Benelux
landanna sagði eftir fundina í gær
Týndi5000kr.
ELDRI mann hér í Reykjavík
henti í fyrradag þa3 ólán að glata
5000 krónum, sem hann var nýbú-
inn að taka úr banka. Maðurinn
fór hingað og þangað um bæinn, |
ýmist gangandi eða með strætis-,
vagni, svo að hann getur ekki
sagt um, hvar peningana muni'
helzt að finna, en skilvís finnandi
er beðinn að snúa sér til lögregl-,
unnar.
kveldi, að ekki væri nokkur leið
að fallast á kröfur Breta óbreyttar.
Talsmaður Frakka sagði, að ráð-
herranefndin hefði þegar hafnað
meira en helmingi af tillögunum.
Sumir segja jafnvel, að Couve
de Murville hafi á fundinum í gær
hafnað hverri einustu tillögu Breta
í málinu, en vitað var fyrirfram,
að Frakkar myndu vera sérstak-
lega andvígir sérstöðu til handa
samveldislöndunum.
allt í háaloft. Þúsundir manna
ruddu sér braut fram hjá lög-
regluverðinum að flugvélinni, og
þótt lífverðir Bella hleyptu af
byssum sínum upp í loftið til
þess að dreifa mannfjöldanum,
varð ekki hjá því komizt, að Bella
yrði umkringdur fagnandi mann-
fjöldanum.
Það er til marks um öngþveitið
á flugvellinum, að það tók Bella
stundarfjórðung að komast þá
hundrað metra, sem voru milli
flugvélarinnar og heiðursvarðar-
ins.
Þar kom að, að slagsmál brut-
ust út meðal nokkurra aðdáenda
Bella og varð lögreglan að han'd-
taka hóp manna.
Föðmuðust
Siðan ók Bella um göturnar og
fór fyrir bifreið hans heiðursfylk
ing. Við ráðhús borgarinnar biðu
Ben Khedda og Balkacem Krim
og hafði Ben Bella engin umsvif,
en gekk að þeim og faðmaði þá
lengi og innilega.
í gærkvöldi flutti Bella svo út-
varpsávarp, þar sem liann sagði
m. a., að þetta væri raunverulega
þjóðhátíðardagur íbúanna. Bað
hann alsírsku þjóðina að samein-
ast um stjórnarnefndina og veita
henni fulltingi og styrk til þess
að skapa demókratískt þjóðfélag
í Alsír.
Færeyjar
Flugfélag íslands efnir til skemmtiferðar til Fær-
eyja dagana 17.—21. ágúst, ef næg þátttaka fæst.
Flogið verður frá Reykjavík föstudaginn 17. ágúst
klukkan 10:00 og lent á Sörvágsflugvelli. Farþeg-
um verður séð fyrir bátsferð til Tórshavn og gist-
ingu á góðu hóteli þar. Heim verður haldið þriðju-
daginn 21. ágúst kl. 16:00.
Nánari upplýsingar veitir söluskrifstofa okkar,
Lækjargötu 4 eða ferðaskriístofurnar.
T í MI N N, sunnudaginn 5. ágúst 1962
3