Tíminn - 22.08.1962, Blaðsíða 9

Tíminn - 22.08.1962, Blaðsíða 9
AÐFARANÓTT 21. iúlí s. I. var ég stödd á Laugarvatnl, hafði dvalið þar nokkrar nætur. Allir, sem komlð hafa að Laugarvatni, vita hversu fallegt þar er, en Iík- lega hafa ekki margir orðið fyrlr því að hjá þá sýn, er ég sá þessa nótt. Mér varð litið út um gluggann minn, en i sömu stundu hafðl tungllð, sem var þá fullt rennt sér upp á yfirborðið og virtist sitja á hæsta tlndi Heklu. Engin rönd af lofti virtist vera þar á milll, var likast sem kveikt hefði verið á risaperu. Og rétt viS hlið mánans gat aS llta eitt smástirni, sem lelt út eins og lít- ið barnsauga. Þessl eru tildrög kvæðislns. Nótt á Laugarvatni Lætur mér svo ljúft í eyra lóukvak og þrastakliður. Mér er þraut að þurfa að sofna Þreyttu höfði að beði halla Eg vil heldur vaka, — vaka — vera ein með næturfriðinn. Þá er hægt að taka, — taka — telja, hvísla, sjá og heyra og láta ei yndi dagsins rofna. Kyrrðin ein mig sefjar, seður, - svona er gott að hvíla í örmum. Eiga allt, sem augað gleður, æskuþrótt í heitum hvörmum. Líttu út um gluggann, gestur, guð er að kveikja ljós á bænum. Trén senda skrítna skugga, skyggnstu lengra, — yfir vatnið. Yfir vatnið, — ljúft er íeiðið, — logntært, blátt með geislum grænum. Hinum megin heldur vörðinn Heklutindur, gnæfir hæstur. Máninn hljóður, horfir rjóður hingað yfir Laugardalinn. Tyllir sér á tindinn hæsta, töfrum bregður yfir salinn. Það er nótt, en sefasjóður sífellt vakir — mannsins inni •— lítur Heklu gulli glæsta geislum vafða, í mánaskini! Blikar stjarna — barnsins auga barminn fyllir unaðskennd. Aldrei fyrr hef augum litið, ein er sýn í huga brennd. Sigriður Björnsdóttir. Nú keyrir drétt- lætið um þverbak í Morgunblaðinu, föstudaginn 17. þ.m., er grein á annarri síðu, er ber yfirskriftina: „Bændum fjölgaði á árunum 1960 og 61.“ Á þessi grein að vera svar við grein Ágústs Þorvaldssonar, alþm. í Tím anum 14. s.m. Enda þótt að þessi Morgunblaðsgrein hnekki í engu rökstuddu máli Ágústs Þorvalds- sonar og sé naumast umtalsverð þá vil ég þó fara um hana nokkrum orðum. Ekki vil ég vefengja það, að Pálmi Einarson, landnámsstjóri, fari ekki rétt með tölu bænda i landinu á hverjum tíma, en ekki hefur þeim fjölgað þar sem ég þekki til nú á síðustu tímum. En þetta er ekki kjarni málsins. Vitað er, að margir bændur eru nú uggandi um framtíðina. Hjá þeim gætir nú mikillar bölsýni í stað bjartsýni, er rikti almennt í landbúnaðinum allt fram að valda- töku Alþýðuflokksstjórnarinnar. Síðan hefur stöðugt hallað meir og meir undan fæti, enda er nú svo komið, að fjölmargir bændur segja að þeir gefist hreinlega upp, ef hlutur þeirra verði ekki stórbættur þegar á komandi hausti. Er áreiðanlegt, að bændur þekkja kjör sin betur en ramma- greinahöfundur Morgunblaðsins. Það er algerlega nyt fyrir utan kjarna, að tala um afkomu bænda 1958 og nú. Allir vita að Alþýðu- flokksstjórnin meg fullum stuðn- ingi Sjálfstæðisflokksins stöðvaði verðbætur þær, er bændur áttu að fá vegna kauphækkananna 1958 og skaðaði þannig fslenzkan landbúnað stórkostelga. Þó var þaft smáræði móts við það mikla tjón, er hann hefur beðið af völd- um „viðreisnarinnar“ svo kölluðu, í flestum hennar myndum. En sé nú svo, að hlutur land- búnaðarins 1958 og áður, hafi ekki verið eins góður og skyldi, og ráða menn Sjálfstæðisfiokksins fundið það og viðurkennt, þá er það óaf- sakanlegt framferði, sem þeir hafa beitt bændur landsins síðan þeir fengu völdjn í sínar hendur og höfðu tök á að geta ráðið kjör- um þeirra, því allir vita að í stjórn- artíð Sjálfstæðisflokksins nú, hef- ur keyrt um þverbak hlutfallið milli tilkostnaðar við framleiðslu landbúnaðarvara og afurðaverðs- ins. Þetta vita allir bændur og hefur margsinnis verið sannað með tölum. Reynslan er líka ólygnust í þeim efnum. Að bændur viti ekki hvað rangt er eða rétt í þessum efnum, eins og Morgunblaðið segir (sennilega talað fyrir munn landbúnaðarráð- herra eða af honum sjálfum), er svo ósvífin aðdrótun, að mönnum, sem eru bændur, að furðu gegnir. Slfkt tal lýsir svo purkunarlausu virðingarleysi f garð manna, sem reyndir eru að vönduðum mál- flutningi og heiðarleik f öllu sínu framferði, að almenningur og eink- um bændur Landsins hljóta að for- smá slíka málfærslu. Og svo þykist þessi höfundur vera þess umkom- inn að gera grein fyrir verðlags- málum landbúnaðarins á réttan hátt!! Hver trúir því eftir slíkan málflutning? Enda felur höfundur nafn sitt. Óskar Jónsson. mmttgm r m JAFNPRAMT því, sem vitnað er til Biblíunnar með léttúð og af handahófi, á það sér einnig stað, að hún sé notuð í fullri alvöru, t. d. þau ummæli, að sá, sem liti konu girndarauga, hafi þegar drýgt hór með hjarta sínu (Matt. 5, 28.). Þetta hefir Ibsen leitt fram í dags- ljósið í þættinum um þá græn- klæddu með óhugnanlegu raunsæi og af þeirri alvöru, sem ekki verð- ur um villzt. Pétur Gautur komst hjá að bera áby.rgð gagnvart kon- unni, en Ibsen lætur hann finna hinar siðferðilegu afleiðingar með þeim hætti, að ævintýrið með hinni grænklæddu verður i vegi fyrir honum, þegar hann síðar hitt ir Solveigu og ætlað að byggja upp heimili með henni. Dofrinn telur, að girndin nægi: Viltu neita, að hún var þér í hug með fýsn og girnd? Þið reynist samir og jafnir, ég veit það. Hjá mönnum er játaður andinn í orði. en einskisvert það, sem sézt ekki á borði Svo þú heldur, að girndin gildi ekki neitt? En góði minn, það skal nú sýna sig betur Þú verður faðir á árinu. Pétur Konan lofar að hefna sín og spilla sambandi hans við Sólveigu Hó, ég get staðizt högg og slag. Ég hverf til þín, Pétur, hvern einasta dag Ég gægist á dyrnar og sé ykkur saman. Við eigum þig hálfan hvor, þú skalt skiptast. Heill og sæll, Gautur! Nú máttu giftast. Og orsök alls þessa. — •— (Pétur nýr höndunum saman). tómur þankinn og girndin, segir konan. Annars er það ein ritning- argrein, sem Ibsen virðist vera hugstæðar en allt annað. Hún er þessi: „Hvað gagnar. það manni að hafa eignast allan heiminn en týnt eða fyrirgert sjálfum sér”, (Lúk. 9, 25.). Raunar er áðeins einu sinni vitnað f þennan ritn- ingarstað, og þá í þvi sambandi, að merkingunni er alveg snúið við Pétur Gautur er að útskýra fyrir ferðafélögum sínum, að takmark lífsins sé að verða keisari yfir öll- um heiminum með hjálp gulls- ins: Það áform hef ég haft svo iengi Það hélt mér uppi f þraut og gengi. — Hér áður sveif ég yfir hafið sem ungur loftkastalareisari með gullna skálm við skikkjulafið og skall svo niður djúpt, á kafið. En þessi hugsun hefir lifað. — Ég held, að mælt sé eða skrifað það orð, ég man nú ekki hvar, þó ynni maður borgirnar, en missti sjálfan sig, þá ber hann sinn sigurkranz um klofið enni. sú kenning man ég stendur þa.r, og það er ekkert hjóm í henni. Þessi tilvitr.un er eftirtekt arverð, því að hún sýnir, að orð- tæki Biblíunnar ,,að týna sjálfum sér” stendur þarna í sambandi við viðfangsefni skáldverksins „að vera maðurinn sjálfur”. Samkvæmt ritningarorðunum veltur allt á því að týna ekki sjálfum sér. En sá, sem ekki vill týna sjálfum sér, verður að vera hann sjálfur. Með þessum hætti er sú meginhugsun, sem er uppistaðan í Pétri Gaut, kristilegt viðfangsefni, og út frá meglnhugsuninni hlýtur skáld- verkið þvi að teljast kristilegt. Skýrt kemur þetta þó ekki i ljós fyrr en í síðasta þætti, þar sem við fáum úrslitaskýringuna á þvi, hvað það er að „vera sjálfum sér líkur?” Aðallega eru það tvenn tilsvör, sem hér hafa þýðingu. Pét- ur Gautur spyr að ævilokum: Sá líkist sér sjálfum, sem sjálfan sig deyðir. Þá setning er þér nú víst meinað að skilja. Og o-rðum það þá, — sá sem ævinnar leiðir ber utan á sér húsbóndans vilja. „Að deyða sjálfan sig” er biblíuleg hugsun, t. d. þegar talað er um, að „sá, sem týni lifi sinu. muní finna það” eða að kristinn maður verði að „deyja”, til að „lifa með Kristi”. Það lýsir hinm kristnu sjálfsafneitun. sem leiðir af sér dauða hinnar eigingjörnu sérgæzku „Að deyða sjálfan slg” er hin neikvæða hlið málsins Hið jákvæða: Að „bera utan á sér húsbóndans vilja”, kemur ekki glöggt fram. en er nánar útskýrt hinu tilsvarinu, sem mesta þýðingu hefir, þegar Pétur spyr Solveigu. „Hittu þá á, hvar Pétur Gautur svo lengl dvaldi" Með ákvörðun Drottins sem merki, dvaldi sem hugsjón í Skaparans verki? Hvar er ég, sá sanni, sem ekki hefir breytzt, með einkenni Guðs mins, sem aldrei brást?” Þessi jákvæða túlkun á meg- inhugsun teiksins er einnig há- kristileg. Þó að orðalagið sé ekki sótt f Bibliuna, er hin kristna hugsun fullkomlega skýr: Það, sem allt véltur á, er að vera eins og Guð hefir ætlazt til, að maður- inn væri. Það er samkvæmt Bibl- funni sú guðsmynd, sem mannin- um var ætlað að gjöra að veru- leika. jnÉTRI GAUT er lýst sem manni, * er ætlar sér að vinna allan heiminn, en er nær og nær þvi að fyrirgera sjálfum sér. f stað þess að vera raunverulega „líkur sjálfum sér”, er Iff hans stöðug svik. f stað þess að vera líkur sjálfum sér, er hann sjálfum sér nógur. f hóflausri sjálfselsku Hvert skipti, sem alvaran hvarflar að honum, beygir hann framhjá iðruninni. Iðrun? Svo lifðu ef til vill ár, án þess ég kæmist. Það líf yrði magurt. Tvenn eru þau öfl, sem Ibsen gengur út frá í Pétri Gaut, að heyi baráttu: syndugur tröll skapur og kristindómurinn Ávallt. þegar neyðir er stærst, eru það klukknahljómar og sálmasöngur sem verða honum til bjargar. Hvorki meira né minna en fjórum sinnum gerir Ibsen ráð fyrir sálmasöng í þessu leikriti — og kemur það enn greinilegar < ljós f hinni síðustu nýnorsku teik- sýningu. Og um fram allt er það persóna Sólveigar og söngur henn- ar, sem táknar kristindóminn: Guðs kraftur sé með þér, hvert sem þú fer. Guð kæti þig, nær sem þig að fótskör hans ber. Ég bið þig þess þú komir heim eitt sinn. Við hittumst hjá Guði, biðir þú þar, vinur minn. f fimmta þætti fer sú stund að færast nær, að Pétur Gautur geri upp reikninga lífs síns, og það endar, eins og brátt mun sjást, með kristilegum hætti. En mikið þarf til þess að hann komist svo langt. Fyrst kemur skipbrotið, sem raunar gengur nærri honum, en breytir honum samt ekki í neinu tilliti, heldur sýnir eigin. girni hans f allri sinni andstyggð, þegar hann berst við matsveininn á flakinu og kemur honum í dauð- ann. Það er blóðugt háð, þegar Pétur Gautur seglr: Veröldln ön er vantrúin tóm, — menn virða, sem sagt, engan kristindóm, — fátt er um góðverk og færra um bænlr, sýnd fyrirlitning stórsjó og óveðri. — Þegar hann hustar á ræðu prestsins við gröfina, dregur held- ur ekki til neinna úrslita. Það er ekki fyrr en hann heyrir Sólveigu syngja: Hátlðin nálgast nú húsin mfn. Hjartans vlnur, þú ert fjarri. — Framhald á 15. síðu T f MIN N , miðvikudaginn 22. ágúst 1962 9

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.