Tíminn - 22.09.1962, Page 1
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir
auga vandlátra blaða-
lesenda um allt land.
Tekið er á móti
auglýsingum frá
kl. 9—5 í Banka-
stræti 7, sími 19523
SÝNING Á
BLÓMUM
Hún heitir Elsa Þórðardótir og er að huga að blóm-
um í gróðurhúsi við Miklatorg. Blómastúlkan okkar
vinnur í gróðrarstöðinni Alaska, en þama í húsi
stöðvarinnar við Miklatorg er verið að opna blóma-
sýningu. Sýndar verða á sjötta hundrað tegundir af
inniplöntum auk nokkurra jólatrjáa. Auk þess verða
aýndar ýmsar vörur, pottar, verkfæri og lyf, sem nota
má vi'ð blómarækt. í gær var okkur sagt að sýningin
i itilrlll*
/ T • Timmn
Nú fer senn að líða að
því, að læknarnir við
sjúkahúsin í Reykjavík
hætti störfum, en þeir
hafa fyrir nokkuð löngu
sagt upp frá og með 1.
nóvember næstkomandi.
Uppsögn læknanna staf-
aði af óánægju með launa
kjörin ,en ekkerf hefur
enn verið gert í málinu af
hálfu hins opínbera. Marg
ír læknanna eru nu að afla
sér sams konar atvinnu
erlendis.
í gær og í fyrradag voru haldn-
ir fundir með fulltrúum sjúkra-
húslæknanna og fulltrúum ríkis-
stjórnarinnar, en ekkert sarn-
komulag náðist. Ekki er þó með
ölla útilokað, að semjist, áður en
læknarnir hætta.
Læknarnir sem sagt hafa upp,
eru aðstoðarlæknar sjúkrahús-
anna í Reykjavfk. Kandidatarnir
og yfirlæknarnir við sjúkrahúsin
hafa ekki sagt upp og einnig örfáir
aðstoðarlæknar. Yfirlæknarnir
hafa krafizt þess, að stöður að-
stoðarlæknanna verði auglýstar
lausar til umsóknar, en því hefur
verið hafnaft af hálfu hins opin-
bera. Allur þorri sjúkrahúslækna
eru aðstoðarlæknar svo að sjúkra-
húsin verða nánast óstarfhæf 1.
nóvember ef læknarnir fara.
Framh. á 15. síðu
FORNMANNA-
DYS Á ÖXNA-
DALSHEIÐI!
AKUREYRI, 21. sept.
f sumar átti glöggskyggn og athugull maður, Ingólfur
Nikódemusson, Sauðárkróki, leið um Öxnadalsheiði. Kom hann
þá auga á hauskúpu og lærlegg, sem glitti á upp úr sverðin-
um, í svonefndu Skógarnefi, sem er örnefni í Skógarhlið, niður
við ána, því sem næst þar á móti, sein Heiðará og Króká mætast.
Við nánari athugun á beinunum virtist Ingólfi þarna vera
hauskúpa af karlmanni og lærleggur af hrossi. Taldi hann því
víst, að hann hefði hér rekizt á forna dys. Hann gerði dr.
Kristjáni Eldjárn, þjóðminjaverði, þegar viðvart, en liafði að
öðru leyti hljótt um fund sinn.
f gær kom dr. Kristján Eldjárn norður og athugaði fundar-
staðinn, ásamt Ingólfi og Stefáni Jónssyni á Höskuldsstöðum.
Þar fundu þeir meira af beinum ásamt tveim nerlum og hringju,
sem trúlegt er talið, að sé af rciðtygjum. Kristján telur þetta
vera fommannadys og þarna hafi ma'ður og hestur verið lagðir
í sömu gröf, eins og títt var á þeim tíma, cn sýnt þykir, að
gröfin hafi áður verið brotin, til þess bendir lega beinanna.
í dag var rannsókn haldið áfram. E. D.
SÆNSKA VÉLIN FUNDIN
Sluppu lífs
úr flakinu!
NTB-Elisabethville, 21. sept.
Leitarflokkar fundu i dag
níu Svía á lífi við flak sænsku
SÞ-flugvélarinnar, sem skotin
var niður vfir Norður-Katanga
í gærkvöldi. Einn hinna
sænsku herflugmanna lézt af
völdum skotsára.
Seint í gæi'kvöldi sást flakið
úr leitarþyrlum, sem sendar voru
á vettvang í fylgd orrustuþota, en
flugvélin hafði fallið til jarðar á
stað, sem mjög erfitt var að kom-
ast að. í dag tókst svo leitarmönn-
um að komast á slysstaðinn og var
þá einn Svíanna látinn, en annar
mikið slasaður. Talið er að um
innvortis blæðingar sé að ræða
Fjórir flugmannanna voru lít-
ilsháttar meiddir, en' fjórir alveg
óslasaðir.
Dularfullur atburður
Ekki er enn vitað, hver hefur
skotið flugvélina niður, en Tshom-
be, valdsmaður í Katanga fullyrð-
ir. að hermenn úr frelsisher Kongó
hafi skotið flugvélina niður, en
hún var tveggja hreyfla af gerð*
inni C-4.
Atburður þessi átti sér staff ein-
mitt er fréttist af miklum herflutn
ingum í Norður-Katanga og var
lafnvel búizt við, að til bardaga
kynni að koma milli Katanga-hers
og hersveita Kongó-stjórnar.
Af þessum sökum gaf SÞ út skip
un um, að allir herflutningar
skyldu stöðvaðir í nágrenni slys-
staðarins, og ef vart yrði við ein-
hverjar dularfullar ferðir her-
manna á svæðinu, höfðu orrustu-
þotur frá SÞ, sem sendar voru á
Framh. á 15. síðu
Mælt fyrir
kísilgúr-
verksmiðju
Akureyri, 21. sept.
Þessa dagana eru að hefjast
mælingar vegna væntanlegrar
kísilgúrverksmiðju í Mývatnssveit.
Áætlað er, að þegar Norður-
landsborinn hefur lokið verkefni
sínu á Ólafsfirði, fari hann upp í
Námaskarð og hefji þar boranir
vegna kísilgúrverksmiðjunnar.
E. D.
LEIKDÓMUR M FRÆNKUNA, BLS- 6
I