Tíminn - 21.10.1962, Blaðsíða 1

Tíminn - 21.10.1962, Blaðsíða 1
Auglýsing í Tímanum kemur daglega fyrir augu vandláfra blaSa- lesenda um allt land. Tekið er á móti auglýsingum frá kl. 9—5 í Banka- stræti 7, sími 19523 236. tbl. — Sunnudagur 21. október 1962 — 46. árg. DEYFIPILLU MÁLIÐ FERI RANNSÓKN IGÞ—Reykjavík, 20. okt. Dagblöðin Vísir og Alþýðu- blaðið hafa að undanförnu gert töluvert veður út af pillu- áti hér í bænum, og látið jaðra við að um töluverða eit- urlyfjaneyzlu væri að ræða. Eru jafnvel farnir að birtast nafnlausir vitnisburðir um pillustandið. Ekkert hefur enn sézt á prenti, sem greinir þessar pillufréttir frá venju- legum slúðursögum, annað en vitnisburður læknis, sem hef- ur orðið var við fólk undir áhrifum deyfilyfja. Hin eiginlegu eiturlyf eru ekki í umferð hér, sem betur fer, held ur er um að ræða pillur, sem gefnar eru af læknum í ýmsum til fellum og eru þvf seldar hér í lyfjasöluverzlunum án sérstakrar hindrunar annarrar en þeirrar, sem felst í útgáfu lyfseðils. Þegar Alþýðublaðið birti mynd af sprautu, sem hafði fundizt, virt ist sem „eiturlyfjamálið“ hefði náð hámarki í þetta skiptið, og hefur það endað með því, að sak sóknari ríkisins hefur ákveðið rannsókn. Það verður eflaust for- ' vitnilegt að sjá, hvað sú rann- í sókn leiðir í ljós. Þá hafa tveir þöglustu menn rannsóknarlögreglunnar, þeir 1 Sveinn Sæmundsson og Njörður | Snæhólm, allt f einu brugðið þagn j arheiti sínu og láta hafa eftir sér pilluviðtal í Vísi, sem varpar engu ljósi á málið og gæti allt eins verið haft eftir einhverjum venju legum borgara. Sé eitthvað alvar legra á seyði í þessum efnum en undanfarin ár, hefði átt að vinna að rannsókn málsins í kyrrþey. FJARLOGIN / ÚTVARPI Á þriðjudagskvöld fer fram 1. umræða um fjár- lagafrumvarpið fyrir 1963 og verða það útvarpsum- ræður. Ræðumaður Framsóknarflokskins í þessum umræðum verður Eysteinn Jónsson formaður flokks- ins. Þá mun Eysteinn ræða þau mál nokkru nánar, sem um hefur verið deilt á Alþingi í sambandi við frumvarp Framsóknarmanna um breyting á lögum um efnahagsmál, þ.e. að hætt verði að frysta og taka úr umferð sparifjáraukninguna og vextir verði lækkað- ir í það horf, sem þeir voru áður en „viðreisnin" kom til framkvæmda. Fjármálaráðherra flytur fyrst yfirlitsræðu um fjár- lagafrumvarpið. Síðan flytja fulltrúar þingflokkanna ræður, — eina umferð, — og að lokum fær fjármála- ráðherra tíma til andsvara. EYSTEINN JÓNSSON SKAKA ST0RÞJ0ÐUM A KJOTMARKAD JK — Reykjavík, 20. okt. i kjötmarkaði Evrópu, og geta j ingur landbúnaðarafurða ver- íslendingar verða í haustjselt meginhluta frysta kjöts-jið óvenju hagstæður í haust, að öllum líkindum talsvert á | ins, meðan verðið er enn sem j og verið er að gera tilraunir undan keppinautum sínum á I hæst. Yfirleitt hefur útflutn-' með nýja sölutækni. r Stríð á landamærunum milli Indlands og Kína NTB- laugardag, 20, okt. í síðustu fréttum frá Ind- landi segir, að nú sé bar- izt á tveimur stöðum við landamæri Indlnds og Kína. í morgun hófust bar- dagar á Ladakhsvæðinu, en áður hafði verið barizt við ána Nam Cha. Menon landvarnaráðherra Indlands skýrði blaðamönnum frá bardögunum á Ladahk svæð inu í morgun ,og sagði hann þá hafa byrjað um 5 leytið eftir þarlendum tíma, en Menon kvað Indverja ekki hafa nein ar orrustuflugvélar á þessum slóðum. Flugvélunum hafði. öll um tekizt að lenda heilu og höldnu á flugvöllum sínum. Kínverjar saka Indverja um að hafa byrjað bardaga á báð- um þessum stöðum. Hefðu þeir gert árásir á stöðvar Kínverja meðfram Nam Cha-ánni, og væru bardagarnir á svipuðum slóðum, og þeir hefðu verið að undanförnu. Kínverska fréttastofan skýrði frá því, að indverskar flugvél- ar hefðu farið inn yfir kín- verska lofthelgi á austurlanda- mærunum, og flogið þar yfir landamærastöðvum Kínverja. Indverskir hermenn höfðu einn ig látig ófriðlega á Þessu svæði, sagði fréttastofan. Fréttastofan sagði, að á vest- ursvæðinu hefðu flutningaflug vélar Indverja varpað niður miklu af hergögnum i Chip Chapdalnum og lokaðar hefðu verið þar inni kínverskar her- sveitir. Þangað höfðu Indverj- ar einnig flutt mikinn liðsauka, ag sögn fréttastofunnar. „Þetta sýnir greinlega, að ár- ásarsveitir Indverja eru i þann veginn að hefja stórfelldar árás ir á Kína bæði við austur og vesturlandamærin.. Kínversk yfirvöld fylgjast nákvæmlega með framvindu þessa alvarlega máls“ segir í fréttinni. Síðustu fréttir herma, að Kínverjar hafi dreift sér fyrir um 24 km. svæði meðfram Nam Cha ánni. Hins vegar er talið öruggt, að Indverjar hafi enn á valdi sínu 5 brýr, sem liggja yfir ána. Menon landvarnarráðherra minntist á fréttir nýju kín- versku fréttastofunnar af bar- dögunum, og sagði hann þær hafa komið nokkru áður en bar dagar hófust bæði á Ladakh og við Nam Cha ána, sýndi þetta, að rásirnar hefðu verig skipu- lagðar fyrirfram. Fréttastofan hafði á hinn bóginn skýrt frá Því, að Kínverjar hefðu á báð- um þessum stöðum aðeins svar að árásum Indverja og verið í sjálfsvörn. Á austursvæðinu urðu Kínverjar fyrir miklu mannfalli. Indverski kommúnistaflokkur inn hefur nú deilt harðlega á Kínverja fyrir aðgerðir þeirra við landamærin. og er þetta i fyrsta sinn, sem hann snýst til. fylgis með stefnu stjórnarinn- ar í landamæradeilunni. Segir í tilkynningu flokksins, að Kín Framh. á 15. síðu EKKERT SEMST KH-Reykjavík, 20. okt. Sáttasemjari ríkisins hélt fund í gærkvöldj nieð samningsaðilum í dei'lunni um kjör á Suðurlands síldveiðunum. Stóð fundu.rinn frá kl. 9 til 2 í nótt, en samkvæmt upplýsingum Jóns Sigurðssonar, formanns Sjómannasambandsins stóðu málin nákvaemlega ejns ' lok fundarins og í upphafi hans. Nýr fundur hefur ekki verið boð- aður. SUNNUDAGSBLAD TÍMANS FYLGIR Tíminn átti í dag tal við Agnar Tryggvason framkvæmdastjóra, eftirmann Helga Péturssonar í bú- vörudeild SÍS. Agnar sagði, að nú væri mesti annatíminn, enda væri mikil áherzla lögð á að selja írysta kjötið meðan markaðurinn er beztur í Bretlandi, en þangað fer langmestur hluti þess. Svo vel vill til að verðið er nú meg hagstæð- asta móti þar. Verðið var lágt á heimsmarkaði allt árið sem leið og alveg fram á síðastliðið sumar, en þá lifnaði mjög skyndilega yfir markaðinum, og hefur það haldizt síðan Agnar sa.í 5i, að flutt hefðu verið út rúm 11100 tonn og verið Framh. á 15. síðu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.