Tíminn - 21.10.1962, Blaðsíða 3

Tíminn - 21.10.1962, Blaðsíða 3
 A uglýsingabrella með danskan herragarð Dönum er farið að þykja nóg um, hvernig banda- rískir framleiðendur og auglýsingafyrirtæki not- færa sér orðið „danskt" til þess að koma vöru sinni út. Nú síðast kastaði tólft- unum, þegar bandarískir silfurframleiðendur aug- lýstu danskan herragarð til sölu, án þess svo mikið I síðasta hefti blaðsins The New Yorker birtist tveggja síðna auglýsing frá The Inter- national Silver Company í Connecticut, þar sem Þeir eru ag auglýsa hnífapör, sem líkj- ast óþægilega mikið gerðum Georg Jensens. Auk þess er auglýsingin full upp af óþarfa ábendingum um það, að allt gott komi frá Danmörku. „Traust, lá.tlaust handbragð, sem gefur til kynna ágæti arki tektúrs Skandinavíu . . . boga- Ulstrupherragarðurinn vi'ð Randers. sem ráðfæra sig við eig- andann fyrst. Hér fer á eft- ir grein, sem birtist í Politiken fyrir nokkrum dögum. Litla töfraorðið „danskt“ er nú farið að ganga ljósum log- um aftur. Fyrir nokkru skýrð- um við frá því, að amerískur húsgagnateiknari skreytti aug- lýsingar sínar með þessu orði, til þess eins að tryggja sölu framleiðslunnar. dregnar línur sem minna á stefni dönsku víkingaskipanna . . . Royal Danish kemur fram á konunglegan há.tt í hinum hefðbundnu skreytingum — fyrirmannlegt, en þrátt fyrir það, með nýtízkulegum skand- inaviskum svip . . .hinir banda- rísku smiðir hafa ekki sleppt einu einasta smáatriði . . . “ Auglýsingaskrifstofa Inter- national krítar einnig liðugt, þegar hún auglýsir, Royal Dan- ish-hnífinn. Á síðunni beint á móti birtist tælandi og mjög svo villandi yfirskrft „Það er þess virði að eiga svo skandin- aviska hluti“, og þar undir kem ur svo auglýsing um það, að slot nokkurt í Danmörku sé til sölu. Við nánari athugun kem ur í ljós, að slotið er Ulstrup herragarðurinn við Randers, byggður fyrir greifahjón sem uppi voru í tíð Margrétar drottn ingar ... 28 herbergi eru í slotinu Þar á meðal stofa grefi ans og stofa greifynjunnar, garð stofa, veiðiherbergi, knipplinga stofa og að lokum bókasafn, þar sem vel getur verið, að Hamlet hafi gengið um þrum- andi, Að vera eða vera ekki (!)... vínkjallari með fanga- geymslu (handa kjallarameist- aranum, ef maður skyldi ein- hvern tíman grípa hann glóð- volgan vig drykkjuna) . . . á síkinu eru svanir, sem ef til vill eru „Ijótu andarungarnir'* hans Hans Ghristians Ander- sens (!) Verðið er 218 þúsund dollarar (9,4 milij. ísl. kr.). Seljandinn er Christian Toft, Ulstrup herragarðinum, Dan- mörku. Þessi virðulega gamla bygg- ing á sem sagt að varpa ljóma menningar og gamalla venja og Ijóma orðsins ,,danskt“ á hinn bandaríska borðbúnað, en hún er bara hreint ekki til sölu. — Upphringing til eigandans, sem hvorki Þekkir til þrumandi af- komenda Hamlets frá dögum Margrétar drottningar né alda- gamalla „ljótra andarunga" H. C. Andersens, staðfestir grun okkar um það, að hér sé á ferðinni nýtt dæmi um auglýs- ingarbrellur með orðið ,danskt‘ er eiga að opna veski banda- rískra kaupenda. Eigandi herragarðsins, sem er alveg orðlaus, hefur nú þeg- ar fengið tvö tilboð frá Banda- rikjunum, en staðhæfir að hann hafi alls ekki hugsag sér að selja. Blaðið heldur áfram, að nú sé kominn tími til þess að taka í taumana, áður en meiri skaði hljótist af því, að bandarískir framleiðendur notfæri sér gæða merki danskrar framleiðslu til þess eins að afla sjálfum sér markaða. STARCKE GEGN AÐILD DANA RAGNAR LÁR. íSNORRASAL ars á sýningunni í Snorrasal eru fiestar gerðar á árunum frá 1956. Flestar myndirnar eru til sölu. Aðils — Kaupmannahöfn, 20. okt. Information skrifar í dag, að fyrrverandi ráðherra, Viggo Starcke, muni á lands- fundi Réttarsambandsins á Merkja- sala blindra Blindravinafélag íslands hefur í |dag sinn merkjasöludag, en nú 1 eru liðin 30 ár frá stofnun þess félags og hafa næstum allar tekj- ur þess verið af merkjasölu, gjöf- um og áheitum frá alþýðu manna. jFélagið hcfur í þrjátíu ár annazt verklega kennslu fyrir blinda menn og starfrækt vinnustofu fyr ir þá, þar sem framleiddir hata verið alls konar burstar og körí- ur. Hafa um 60 blindir menn not ið aðstoðar frá vinnustofunni þetta tímabil. Félagið hefur rekið skóla fyrir blind börn og unglinga frá upp- hafi, og hafa tvö undanfarin ár verið í skólanum þrír sjóndaprir og blindir drengir. í þessa tvo áratugi hefur félag- inu tekizt að útvega árlega að láni 10 viðtæki til fátækra, blindra manna og eru nú Um 80 viðtæki í láni úti um allt land. Þá hefur félaginu heppnast að kaupa tvær húseignir og eru þær báðar í mið hluta bæjarins. Fyrir nokkrum árum hóf félag ið fjársöfnun til kaupa á segul- bandstækjum til útlána handa blindum og er þá ætlazt til, að inn á bandið séu lesnar skáldsög ur eða annar fróðleikur. Allt þetta starf félagsins kostar mikið fé. Þess vegna er nú leitað til allra velunnara félagsins um stuðning til starfsins. Öll merkin eru tölusett og gilda sem happdrættismiðar innan merkjasölunnar. 10 vinningar eru í happdrættinu, þar á meðal sófa- •sett. Foreldrar, leyfið börnum yð ar að selja merki fyrir starfsemi ^félagsins og þar með stuðla að , hjálp til blindra. morgun ganga í lið með þeim hluta flokksins, sem er ein- dregið gegn aðild Dana að EBE. Það, sem Starkc óttast einkum í sambandi við aðild Dana að EBE, er að útlendingar muni í stórum stíl kaupa jarðir í Diumörku, sem eru tiltölulega ódýrar miðað við jarðir í EBE-Iöndunum, eink- um í Vestur-Þýzkalandi. Formaður Réttarsambandsins, Niels Andcrsen, fyrrverandi þing- maður, er hlynntur aðild að EBE, ■'-> stór hluti flokksins berst ötul- •> gegn aðild, og þess er vænzt, sá hluti flokksins muni stinga ipp á frú Lis Starcke, konu Viggo Starcke, til að gegna formanns- embættinu í stað Nicls Andersen. Eins ords ræða Aðils — Kaupm.höfu, 20. okt. Hans Hækkerup, dómsmálaráð- lierra, hélt j gær stytztu ræðu, sem nokkru sinni hefur heyrzt í þinginu. Ilún var aðeins eitt orð, „Takk“, og dómsmálaráðlierrann liélt hana í tilefni þess, að tals- menn ým’issa flokka höfðu lagt fram frumv.arp til laga um heim- ild Færeyinga til veðsetningar á afia. Fékk átta ára þrælkunarvinnu NTB — Karlsruhe, 20. okt. Sovézki njósnarinn Bogdan Stasjinskij, var í diag dæmdur í átta ára þrælku.narvinnu af hæsta réttinum í Karlsruhe. Hann var fundinn sekur urn að hafa átt þátt í að ráða af dögum tvo ukra- inskia flóttamenn, og að hafa stað ið í sambandi við sovézka njósn- ,ara. BÓ—Reykjavík, 20. okt. Ragnar Lárusson opnaði sýningu á 94 penna-, pensil- FÖLDU ÞÝFIÐ UNDIR NETUM BÓ — Reykjavik, 20. okt. í nótt var brotizt inn í biðskýli við Ásgarð í Silfurtúni og stolið þar talsverðu magni af vindling- um og fleiri smávöru. Megnig af þýfinu fannst í dag í kassa undir netadræsu á fótboltavelli skammt frá. Hafnarfjarðarlögreglan taldi l.íklegt, að hún hefði náð í rétta aðila varðandi þjófnaðinn. og blýantsteikningum, dúk- skurðarmyndum og álíming- um í Snorrasal á föstudag- inn. Sýningin verður opin í 10 daga frá kl. 2 til 11 dag hvern. Ragnar Lárusson er, vel kunn- ur fyrir teikningar og svartlist, ekkj hvað sízt skopteikningar og sagnaskreytingar í dagblöðunum undanfarin ár. Ragnar var tvo vetur í Handíða- og myndlistar- skólanum. en lærði síðar hjá Gunnari Gunnarssyni, skálds. Ragnar sýndi fyrst teikningar í Ásmundarsal árið 1956. og 1959 sýndi hann olíumálverk í Morg- unblaðsglugganum. Myndir Ragn- TÍMINN, sunnudaginn 21. október 1962 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.