Tíminn - 21.10.1962, Blaðsíða 16
Sunnudagur 21. október 1962
236. tbl. 46. árg.
Vilja ísland
með í ferða-
samvinnuna
CHRISTIAN BÖNDING
Bókin um
Láru miðil
Út er komin bók um Láru
miðil, skrifuð af sr. Sveini
Víkinigi. Séra Sveinn skrif-
arsjálfur formála fyrir bók-
inni um dulræn fyrirbæri
og skýringar þeirra. f upp-
hafi bókar er dvalið nokkuð
við æskuár Láru, en síðan
hefjast kaflar um sálarrann b
sóknir og miöilsstarf Láru. f?
Mestur hluti bókarinar eru S
frásagnir sjónar- og heyrn- W
arvotta. Lára er nú búsett
á Akureyri. Hún heitir fullu
nafni Ingibjörg Lára Ágústs
dóttir, og er fædd að Eystri-
Hellum í Gaulverjabæjar-
hreppi í Árnessýslu 15.
apríl 1899. Lára er nú gift
Steingrími Sigursteinssyni,
bífreiðarstjóra. Bókin um
Láru miðil er um tvö hundr
uð blaðsíður að stærð,
Kvöldvökuúfcg. á Akureyri
gefur út. f dag birtir Tím-
inn viðtal við Láru miðil.
SJÁ BL5. B
Christian Bönding, ritstjóri
Norrænu blaðaþjónustunnar
í Kaupmannahöfn, dvelst hér-
lendis um þessar mundir. í
gærkvöldi hélt hann fyrir-
lestur í Dannebrogfélaginu,
og fjallaði hann um ferðalög
á Norðurlöndunum, en eink-
um þó um hin miklu áhrif,
sem kynni ræðumanns af ís-
landi höfðu haft á hann.
í fyrirlestri sínum skýrði Bön-
ding frá því, að nú væri unnið
Framh. á 15. síðu
SIGURÐUR MEÐ
NET Í SKRÚFU
KH—Reykjavík, 19. okt. — Tog-
arinn Sigur'ður, sem nefndur hef-
ur verið flaggskip íslenzka tog-
araflotans og frægur er orðinn
fyrir þrjár veiðiferðir á tveimur
árum , kom til hafnar í morgun
með netaflækju í skrúfunni. Tog-
arinn fór í sína þriðju veiðiferð
22. sept. s.l. og seldi þá veiði sína,
144 tn. fyrir 116 þús. mörk í Brem
crhaven. Þaðan hélt hann aftur á
veiðar, en kom svo til Reykjavík-
ur kl. 8 í morgun vegna fyrr-
gieindrar ástæðu. Kafarar hreins-
uðu skrúfuna, og togaiinn hélt út
aftur kl. 2 í dag. Sigurður var
búinn að fá í sig 35 tonn.
Dagsverk
aS tengja
sæsímann
MB—Reykjavík, 19. okt. — Blað
ið átti í dag tal við Jón Skúlason,
yfirverkfræðing hjá Landssíman-
um og spurðist fyrir um það, kve-
r.ær nýi sæsíminn frá Kanada
yrð'i tengdur í Vestmannaeyjum.
— Það fer algerlega eftir veðr-
inu, þeir verða að fá gott veður
til þess. Þetta verður tæplega
Þá er eftir að mæla og prófa, en
meira en dags verk, þegar gefur.
það verður minnst mánaðar
verk. Það var ætlunin að opna
ssmbandið 1. desember. Hvort
það verður hægt fer algerlega
eftir veðrinu.
t
msms
MEÐ VIWNDARLA USA
KONAN ÞRÍTUG f DAG
BÓ-Reykjavík, 20. okt.
Jódís Björgvinsdóttir,
sem slasaSist í Bankastræti
23. september, er þrítug á
sunriudaginn. Hún hefur
nú legið fjórar vikur á
Landspítalanum og ekki
komizt til meðvitundar, en
það er sennilega ein
lengsta lega í meðvitundar-
leysi, eftir slys, sem hér
hefur átt sér stað.
Blaðið taláði í gær við dr.
Friðrik Einarsson, aðstoðaryf-
irlækni við handlækningadeild
Landspítalans, og spurðist fyr-
ir um ástand Jódísar. Dr. Frið
rik sagði mjög lítilla breytinga
hafa orðið vart, kvaðst ekki
vilja setja fram neina skoðun
um, hvernig Jódísi mundi reiða
af, en tók fram, að fólk hefði
í svipuðum tilfellum stundum
alveg jafnað sig. Jódís byrjaði
að opna augun fyrir nokkrum
dögum, en það er ekki tabð
merki um, að hún hafi komizt
til raunverulegrar meðvitund-
JÓDÍS BJÖRGVINSDÓTTIR
ar, samkvæmt þeiih skilningi,
sem læknar leggja í orðið.
Þá talaði blaðið við Sigmundu
Guðmundsdóttur, móður Jódís-
ar, að heimili hennar, Berg-
staðastræti 54. Sigmunda hafði
verið hjá dóttur sinni til klukk
an tólf í nótt, en hún sagði, að
í gær hefði sér virzt, að Jódís
hefði þekkt sig. Hún opnaði aug
un og leit á móður sína, sem
hélt í höndina á henni, og
þrýsti svo hönd móður sinnar
fast. Björgvin Sigurjónsson,
faðir Jódísar, var hjá henni,
þegar blaðið talaði við Sig-
mundu í gær, en hann hafði.
áður talið sig vera þess áskynja,
að Jódís þekkti hann.
Þau Sigmunda og Björgvin
eiga fjögur börn, og er Jódís
yngst þeirra. Hún er fædd hér
i Reykjavík, starfaði lengi í af-
greiðslu Vísis og síðan í þvotta
húsi á Bergstaðastræti 52. — í
sumar fór hún til Danmerkur,
en vann síðan áfram f þvotta-
húsinu. Að undanförnu hefur
móðir Jódísar tekið eftir því, að
hún er farin að gera hreyfing-
ar, sem voru henni tamar. Þess-
ar hreyfingar eru mjög hægar
nú, líkt og hún þreifi fyrir sér,
þegar hún ber hendurnar upp
að andlitinu.
— Hún hefur nú legið þann-
ig í fjórar vikur, sagði móðir
hennar, og sá tími hefur verið
eins og heilt ár.
EÐUSFRÆÐISTOFNUNIN
ILOFTSKEYTASTODINA
KH—Reykjavík, 20. okt.
Eins og kunungt er, afhenti rík-
ið Háskóla íslands í fyrrahaust
Loftskeytastöðvarhúsið á Melun-
um til eignar og umráða. Seint
gengur þó, að Háskólinn fái hús-
ið til umráða, og verður það vænt-
anlega ekki fyrr en í marz á næsta
ári. Þó hefur Eðlisfræðistofnun-
in fengið eitt herbergi til umráða
nú nýlega, og í framtíðinni er
ætlunin, að sú stofnun fái meira
athafnasvið þar.
Þarna við húsið á Melunum
voru geymsluskúrar og girðingar,
sem nú hefur verið rifið niður,
en húsið sjálft verðar Landsím-
inn ekki búinn að losa til fulln-
ustu, fyrr en seinnipartinn í vet-
ur. Sagði rektor Háskólans blað-
ir.u í dag, að ekki væri endanlega
ákveðið, hvað gert yrði við þetta
húsnæði, annað en það, sem þeg-
ar er getið, en ljóst væri, að það
kæmi ekki að notum fyrr en á
næsta starfsári Háskólans.
t " " "" ■ 1 ...........
ÍTíðinda að vænta í læknadeilu
KH-REYKJAVÍK, 20. okt. — í næstu viku má vænta tíðinda
í læknadeilunni, sem er nú að komast á lokastig. Enn er þó
ekki hægt að skýra frá öðru en því, ag hjá B.S.R.B. liggur nú
fyrirspurn frá Fjármalaráðuneytinu um ýmislegt varðandi kjara-
breytingar, og er svars frá þeim að vænta í byrjun næstu viku.
Ekki hefur enn komið til orða að auglýsa lausar stöður Þeirra
25 aðstoðarlækna, sem sagt hafa upp frá 1. nóv. n. k., og ekki
hefur heldur heyrzt, að þeir hafi ráðið sig í aðrar stöður.
i