Tíminn - 14.11.1962, Page 3
JARNORKUTILRAUN-
HALDIÐ AFRAM?
NTB—London, 13. nóv.
Harold Macmillan forsætis-
ráðherra Breta sagði í Neðri
málstofu brezka þingsins í dag
að sér hefði verið skýrt frá
því, að búast mætti við, að
Sovétríkin myndu halda áfram
að gera tilraunir með kjarn-
orkuvopn fram að næstu ára-
mótum.
Sovctstjórnin hafði tilkynnt að
allar kjarnorkuvopnatilraunum
yrði hætt í kringum 20. þessa
mánaðar, en Macmillan sagði, að
öllum líkindum yrði tilraununum
með kjarnorkusprengingar neðan
jarðar haldið áfram, þrátt fyrir
það, að tilraunum í andrúmsloft-
inu yrði hætt.
Forsætisráðherrann var spurður
að því, hvort haldið yrði áfram
tilraunum Breta í Nevadaeyði-
mörkinni, og svaraði hann því til,
að vonast hefði verið til þess, að
hægt yrði að framkvæma þar
kjarnorkutilraunir, en vegna þess
hversu ástatt væri á tilraunasvæð
inu yrði það að öllum líkindum
ekki hægt um sinn.
Leiðtogi Frjálslynda flokksins,
sem er í stjórnarandstöðu, lýsti
því yfir, að Macmillan hefði gef
Norðmenn safna
ullarfeppum
NTB—Ósló, 13. nóv.
Norðmenn eru nú önnum
kafnir við að safna ullar-
teppum, sem síðan á að
senda til Alsír, þar sem
bæði börn og íullorðnir
þjást vegna matvælaskorts
og ófullkomins útbúnaðar.
Ýmis flutningafélög hafa
boðizt til þess að flytja tepp
in ókeypis til næstu járn-
brautarstöðvar, og þaðan
komast þau fyrir ekkert, ef
þau eru send til Ullarteppa-
söfnunarinnar í Ósló.
1400 stúdentar
í Bergen-háskóla
NTB—Bergen, 13. nóv.
I haust voru rúmlega
1400 stúdentar innritaðir í
Háskólann í Bergen, og er
það meira en nokkru sinni
fyrr. Tala stúdentanna hafði
aukizt um 150 frá því í fyrra
haust, en árið 1954 voru að-
eins 415 stúdentar við há-
skólann. Að þessu sinni
stunda 300 læknastúdentar
nám í Bergen og í tannlækn-
ingum eru 24.
Adenauer ræSir viS
Kennedy
NTB—Bonn, 13. nóv.
í dag flaug Adenauer
kanslari Vestur-Þýakalands
í sérstakri þotu til Washing-
ton, en þar mun hann dvelj
ast í nókkra daga og ræða
við meðal annarra Kenn-
endy forseta.
í íylgd með kanzlaranum
er Gerhard Schroeder utan.
ríkisráðherra V.-Þýzkalands.
Eru þeir væntanlegir tií
Washington um miðnættið
í nótt eftir íslenzkum tíma.
Á meðan Adenauer dvelst í
Washington, ræðir hann við
Kennedy forseta um Berlín
ar-deiluna og önnur alþjóða-
mál.
j íð algjörlega ófullnægjandi skýr-
| ingar á því, hvers vegna stjórnin
hefði valið þennan tíma til þess
að gera fleiri tilraunir með kjarn
orkusprengjur. Þetta væri óverj
andi og valinn hefði verið óheppi
legur tími. Macmillan sagði hins
vegar ekki telja að tilraun Breta
myndi koma í veg fyrir, að gert
yrði samkomulag um að hætta
við allar tilraunir með kjarnorku
vopn.
Ekki vildi Macmillan gefa neitt
ákveðið svar um það, hvort eftir
þessa ráðgerðu tilraun í Nevada
eyðimörkinni yrði hætt við allar
frekari tilraunir á vegum Breta.
Við höfum aldrei gefið slíkt lof-
orð, en við vonum að komið verði
á banni við tilraunum með kjarn
orkuvopn.
jr
Ovissa um
eftírlitRK
NTB-New York, 13. nóv.
í fréttum írá aðalstöðvum Sam-
einuðu þjóðanna í New York seg- j
ir, að þar hafi verið ákveðið að
leggja til hliðar tillöguna um að
Rauða krossinn taki að séf allt eft-
irlit með SKÍpum sem sigla til
Kúbu.
OpinbeTlega var tilkynnt, að
nokkur big yrði að framkvæmd
þessa máls, þar til fulltrúar Rauða
krossins hefðu sjálfir skýrt af-
stöðu sina til þess.
U Thant framkvæmdastjóri SÞ
átti ,í dag sameiginlegar viðræður
vig ifulltrúa Kúbu og Sovétríkj-
anna hjá samtökunum, og er þetta
í fyrsta sinn, sem hann á sameig-
inlegar viðræður við þessa full-
trúa.
SENDIHERRAR
RÆÐA STRíDID
NTB—London, Berlín, 13. nóv.
Sendiherrar Kínverska al-
þýðulýðveldisins í Austur-
Berlín, Warsjá, Prag, Buka-
rest og Budapest hafa allir ver
ið kallaðir heim til Peking, og
hafa þeir falið undirmönnum
sínum á hverjum stað að
stjórna sendiráðunum.
Upplýsingar þessar bcrast frá
London, en þar er fullyrt, að sendi
herrarnir muni hafa horfið heim
um miðjan síðasta mánuð. Þá er
einnig talið líklegt, að sendiherr-
ar Kína í Moskvu og Sofíu hafi
haldið heim til Peking, en þar
standi nú yfir fundur með sendi-
herrum landsins, og sé verið að
kynna sendiherrunum afstöðu
kínvejsku stjórnarinnar til landa-
mæradeilunnar við Indverja, og
einnig afstöðu Kínverja til Sovét-
ríkjanna.
Kínverska sendiráðið í Austur-
Berlín neitaði að gefa nokkrar ná-
kvæmar uþ$Lýsingar um það,
hvenær sendiherrann þar hefði
farið til Peking, eða hvenær hann
væri væntanlegur aftur, en hins
vegar var staðfest, að hann væri
ekki í Austur-Berlín.
Adenauer kanzlari og Strauss varnarmálaráðherra stinga saman nefjum á meðan á umræðum
stendur í þýzka þinginu út a'f Spiegel-málinu.
VANTRAUST Á STRAUSS
NTB—Bonn, 13. nóv.
Stjórn Sósíal-demókrata-
flokksins í Vestur-Þýzka-
landi samþykkti í dag aö
leggja fram vantrauststil-
lögu á Franz Josef Strauss,
varnarmálaráðherra lands-
ins.
Sosial-demokrataflokkurinn,
sem er í stjórnarandstöðu, held
ur því fram, að Strauss beri
ábyrgð á þeim aðgerðum, sem
Der Spiegel var beitt fyrir
nokkru, og því verður van-
trauststillaga flokksins borin
fram í þinginu.
Einn af ritstjórum Spiegel,
Claus Jacomi, var látinn laus
í dag.
Áður en Adenauer kanzlari
lagði af stað til Wjashington
í dag, gaf hann varnarmála-
innanríkis- utanríkis- og dóms-
málaráðuneytunum skipun um
að afhenda ríkissaksóknaranum
Framhald á 15 sfðu
úast til áfram-
haldandi bardaga
NTB-Nýju Delhi, 13. nóv.
Indverska þingið greiddi í
dag atkvæði um tillögu frá
Nehru forsætisráðherra, og
var þar samþykkt einróma,
að haldið skuli áfram barátt-
unni gegn Kínverjum með það
fyrir augum að reka þá á brott
frá kínversku landi.
Ayub Kahn forseti Pakistan
sagði í dag, ag landamærastríðið
milli Indverja og Kínverja hefði
aukna hættu í för með sér fyrir
Pakistan.
Barizt var á flestum vígstöðum
meðfram landamænmum, og fregn
ir herma, að Kínverjar haldi áfram
AÆTLUNARFLUG
Fí TIL FÆREYJA
í gær barst Tímanum
skeyti frá Geir Aðils, frétta
ritara sínum í Kaupmanna-
höfn þar sem hann skýrir
frá fréttum af fyrirhuguðu
áætlunarflugi Flugfélags ís
lands til Sörvág í Færeyj-
um. Morgunblaðið birti
jafnframt frétt um þetta í
gærmorgun. Talsmaður
flugfélagsins hér, segir
samt að ekkert hafi verið
ákveðið um þetta og telur
fréttir þess efnis all mikið
í lausu lofti.
Það virðist sem færeysk
stjórnarvöld viti þó all mikið
um þessi mál, og er jafnvel
talað um flutning á fimmtán
hundruð sjómönnum til Græn
lands að sumri. En í rauninni
er ekkert nýtt að blöð fái frétt
ir af svona umsvifum erlend-
is frá, en Hér heima viti menn
harla lítið.
Skeyti Geirs fer hér á eftir:
Fréttir frá Þórshöfn herma,
að Flugfélag íslands muni
hefja fastar áætlunarferðir-til
og frá Færeyjum að vori. Kom-
ast þá Færeyingar í loftferða-
samband við umheiminn i
fyrsta sinn. Ferðir þessar eiga
að hefjast í apríl og áætlunin
er Reykjavík, Sörvág og Prest-
wick einu sinni í viku hvora
leið. Flugferðasambandið við
Prestwick, gerir Færeyingum
fært að nota flugvélar á flug-
leiðum Evrópu.
Færeyingar taka að sér að
Framh. á 13 síðu
að auka liðstyrk sinn við landa-
mærin.
Formælandi bandarisku stjórn-
arinnar tilkynnti í dag, að stjórn-
in hefði tekið til athugunar að
senda flugvélar til Indverja, en
fram til þessa hefur indverska
sijórnin ekki farið formlega fram
á slíka aðstog frá Bandaríkjunum,
en nokkuð hefur þó verið um það
rætt. Er hér um flutningaflugvél-
ar að ræða, og hefur bandaríska
stjórnin tekið vel í málið.
Myrtí jafn-
öldru sína
GA—Kaupmaniiahöfn, 13. nóv.
í nótt myrti 13 ára gamall
skólapiltur 12 ára skólastúlku í
skóginum við Óðinsvé í Dan-
mörku. Lögreglan handtók dreng
inn, sem viðurkenndi a@ liafa
framið glæpinn, eftir langvarandi
yfirheyrslur.
Drengurinn, scm játaði á sig
morðið í morgun, kvaðst fyrst
hafa gerzt nærgöngull vi'ð stúlk-
una, en síðan hefði hann sært
hana djúpu sári með sjálfskeið-
ing sínum.
Þegar lík stúlkunnar fannst var
kallað á ríkislögregluna til að-
stoðar við að upplýsa glæpinn, og
nokkru síðar fannst drengurinn.
Hann hefur nú verið Iagður á
sjúkrahús til rannsóknar.
T1 I 1\1 I V 1\I mí?ti;iþii/l<urinn 1A nAvomhpr 1QR2
3