Tíminn - 14.11.1962, Síða 15
Ályktun kjördæmisþings Framsóknar
manna í Reykjaneskjördæmi
Teppaheitin
Framhald af 16. síSu
margt sem blaðið segir ekki rétt,
t. d. varðandi framleiðslu okkar.
Forstjóri Teppa h.f.: Eg er sam-
mála blaðinu í stórum dráttum,
það veitir ágætar upplýsingar. —
(Teppi h.f. framleiðir límborin
teppi og dregla). Forstjóri Vefar-
pns: Engar athugasemdir, en við
hefðum viljað, að meira kæmi
fram um kosti teppa okkar. —
(Vefarinn framleiðir Bryssel og
Wilton) Forstjóri Álafoss: Upp-
lýsingar blaðsins eru ágætar og
nauðsynlegar. (Álafoss framleiðir
Wilton).
Þag kom hins vegar fram, að for
ráðamenn teppaframleiðslunnar
greinir á um flokkunina hver hjá
öðrum. Verksmiðjustjóri Axmin-
ster sagði, að Álafoss og Vefarinn
kölluðu framleiðslu sína Wilton,
en hún héti réttu lagi Wilton
brother, samkvæmt skilgreiningu
alfræðiorðabókar. Hann sagði, að
slitgarnsþræðir í Wilton væru frá
13x13 til 27x27 á fertommu, en
slitgarnsþræðir Wiltonteppa frá
Álafossi og Vefaranum nál. 7x7 á
fertommu og sverara band notað
en í réttan Wilton. Aðspurður um
þann flokk, sem Axminster hér
framleiðir, sagði verksmiðjustjór-
inn hann kallast Axminster A I, en
það væri annar flokkur af Axmin-
ster.
Forstjóri Vefarans sagði
að slitgarnsþræðirnir í Wilton-
framleiðslu þeirra væru nál. 8x9
á fertommu, en vísaði nafngiftinni
Wilton brother algerlega á bug.
— Flokkurinn er Wilton II, eða
því sem næst, sagði forstjórinn.
Forstjóri Álafsos sagði þráða-
fjöldann í framleiðslu verksmiðj
unnar 18x18 og 29x29 á fertommu.
— Munurinn er fólgin í mismun-
andi grófu garni, eftir því hvort
notað er tvíband eða þríband, en
þá verður að telja samundnu þræð
ina, sagði forstjóri Álafoss og
benti á, að forstjóri Vefarans
hefði ekki tekið það atriði með
í reikninginn, þegar hann taldi
slitgarnsþráðafjöldann í sinni
framleiðslu. — Þá sagði
forstjóri Álafoss, að framleiðslu-
ílokkar verksmiðjunnar væru
Wilton II og III. ' '
1. gr. Vélar og áhöld til land-
búnaðar óg landbúnaðarfram-
leiðslu, ót. a., og hlutar til þeirra
í eftirtöldum köflum og númer-
um tollskrár eru undanþegin að-
flutningsgj öldum:
1. Hjóladráttarvélar (þar á með-
al ámoksturtæki) í nr. 12 í 72.
kafla.
2. Sláttuvélar í nr. 13 í 72.
kafla.
3. Rakstrarvélar og snúnings-
vélar í nr. 14 í 72. kafla.
4. Mjaltavélar í nr. 15. í 72.
kafla.
5. Áburðardreifarar, kartöflu-
upptökuvélar og annað í nr.
21 í 72. kafla.
2. gr. Endurgreiða skal aðflutn-
ingsgjöld af vörum til rafmagns-
framleiðslu á sveitabæjum f eftir-
töldum köflum og númerum toll-
skrár:
1. Bifvélar (mótorar) í nr. 30
í 72. kafla.
2. Mótorrafalar í nr. 3 í 73.
kafla.
3. Rafalar (dýnamóar) í nr. 4 í
73. kafla.
3. gr. Endurgreiða skal aðflutn-
ingsgjöld af hjóladráttarvélum,
sem fluttar hafa verið inn eftir
20. febrúar 1960 og notaðar hafa
verið til landbúnaðar.
4. gr. Ákvæði 1., 2. og 3. gr.
taka einnig til söluskatts af inn-
fluttum vörum samkvæmt III-
kafla og ákvæði til bráðabirgða í
lögum nr. 10 1960, um söluskatt,
sem síðari breytingum á þeim lög-
um. Sama gildir um söluskatt
samkv. II. kafla sömu laga.
5. gr. Lög þessi öðlast þegar
gildi.
í greinargerð meg frumvarp-
inu segir:
Sú stétt, sem einna harðast er
leikin af ráðslagi núver^ndi stjórn
arvalda, er bændastéttin.
f framkvæmdum landbúnaðar-
ins er óþolandi og háskalegur sam-
dráttur á mörgum sviðum og fær-
ist í aukana.
Þeir bændur, sem standa á göml
um merg, þannig að þeir voru bún-
ir að rækta mikið land, byggja við-
hlítandi húsakost á jörðum sínum,
koma sér upp góðum bústofni og
vélvæða sig til tæknibúskapar,
þola mikig án þess að bugast eða
láta f stórum stíl á sjá. Hinir, sem
skemmra voru komnir, eiga í vök
að verjast, — margir mjög
þröngri, sem óðum frýs að þeim.
Afar torvelt er — eða ókleift
með öllu — fyrir nýliða að stofna
til búskapar sökum þeirrar ó-
hemjulegu dýrtíðar, sem búið-. er
að leiða til öndvegis. Ungt fólk,
sem vildi stunda búskap, hverfur
að öðrum verkefnum.
Haldi svo fram sem horfir í
þessum efnum, skapast fljótt eyð-
ur í byggðum sveitanna. Og í stað
þess að sveitirnar leggja nú til
sína hollustu og ljúffengu fæðu á
borð allra landsmanna, verður
þjóðin ekki sjálfri sér nóg um
framleiðslu þeirra matvæla.
þjóðarinnar, að sveitabúskapurinn
\
Það er frá öllum hliðum séð
eitt af þýðingarmestu málefnum
Enn vantar fé
á Fljótsdals-
héraði
Egilsstöðum, 8. nóv.
Hér hefur mikið hlánað síðustu
daga og hefur verig góð hláka,
úrfellislaus og snjór runnið sund-
ur. Ráðgert er að ýta snjó af Odds-
skarði, ef svona hledur áfram og
stytta ófæruna yfir Fjarðarheiði.
Fagridalur er orðinn fær og inn-
svéitarvegir. Ekki er enn vitað
um fjárskaða, en ennþá vantar all-
mikið fé. Flugsamgöngur eru komn
ar í eðlilegt horf. Ekki geta samt
lent hér stórar flugvélar, því
þegar áhlaupið gerði, var verið að
bæta ofan á flugbrautina, sett var
20—25 cm malarlag ofan á hana,
en eftir voru 400—500 metrar og
þar myndast stallur. Verður reynt
að Ijúka þessu, eins fljótt og unnt
Varðandl oroáDðkarskýringuna á
Wilton og Wilton brother sagði
hann orðabækur margar og óvíst
að þeim bæri saman.
Faxi
Framhald af 1 síðu.
leg áform um breytingar á Faxa
gamla, og hafði viðað að sér miklu
ai nýjum tækjum. Var enda eng-
in vanþörf á endurnýjun verksmiðj
unnar sem staðið hefur ónotuð frá
því hún var byggð fyrir rúmum
10 árum. M. a. eru lýsisvélarnar
í henni algjörlega ónýtar.
En nú er sem sagt útséð með,
að Klettur lífgi Faxaverksmiðjuna
við og Reykj avíkui'borg situr enn
uppi með þennan vandræðagrip.
Verksmiðjan var reist fyrir rúmum
10 árum af Reykjavíkurbæ og
Kveldúlfi. Átti verksmiðjan að
vera mjög fullkomin, en reyndist
ónothæf frá byrjun og hefur stað-
ið þögul í öll þessi ár. Alls hefur
kostnaður vig byésingu og við-
hald hennar numið um 35 milljón-
um króna.
Faxi var sameignarfélag, en þar
sem Kveldúlfur var langt frá því
ábyrgur fyrir sínum hluta í verk-
smiðjunni, féll mestur hluti kostn
aðar -á bæinn, og loks var á síð-
asta vetri samþykkt að slíta sam-
eignarfélaginu.
Ekki vildi forstjóri Kletts gefa
neinar nánari skýringar á því,
hvers vegna hætt var við kaupin
á Faxa.
Kúbumenn hand-
íóku USA-foringja
Öryggislögreglan á Kúbu til-
kynnti í dag, að 2. nóvember s.l.
hafi hún handtekið foringja leyni
þjónustu Bandaríkjanna á Kúbu,
einnig tvo hópa manna, sem unnu
undir hans stjórn. Ætlun þessara
manna hafði verið að eyðileggja
kopar og nikkelnámur á tveimur-
'Stöðum á eyjunni. Kúbönsk blöð
skýrðu frá þessu í morgun, og
höfðu blaðamenn fengið að ræða
við leyniþjónustuforingjann. Var
hann sjálfur sagður hafa skýrt
frá því, að Bandaríska leyniþjón-
ustan hefði haft f hyggju að láta
vinna skemmdarverk á ýmsum
stöðum, sem mikilvægir eru fyrir
efnahagslíf eyjarinnar.
Nýtt elliheimili
á Akureyri
ED-Akureyri, 3. nóv.
í DAG tók til starfa hið nýja
elliheimili á Akureyri og fyrstu
dvalargestirnir, sem komu á heim
ilið, voru tvenn hjón, en alls munu
i dag koma 8 dvalargestir. Elli-
heimilið er ekki að fullu tilbúið,
en verður það í næstu viku og
tekur þá til starfa ag fullu. Dval-
argestir munu alls verða 30. —
Starfsliðið er 5 stúlkur og for-
stöðukona verður Ásthildur Þór-
hallsdáttir. Stjórnarformaður er
Jón H. Torfason.
Hér stendur nú yfir nautgripa-
slátrun og virðast bændur ætla að
slátra mun fleiri nautgripum en
áður.
Læknadeilan
Framhald at L síðu.
Læknadeilan svokallaða hefur j
nú verig til lykta leidd á grund-,
velli tilboðs ríkisstjórnarinnar frá
10. nóvembsr méð þeirri breyt- j
ingu, að væntanlegar kjarabreyt-
ingar skuli reiknast frá 1. ágúst
s.l., enda heíur stjórn BSRB lýst
yfir, að það mun ekki gera kröfur
fyrir hönd annarra starfsmanna
þótt ríkisstjórnin samþykki að
greiða sjúkrahúslæknum fyrr en
öðrum samkvæmt væntanlegum
kjarasamningi eða dómi, og sam-
komulag tekist um nokkur fram-
kvæmdaatriði lausnarinnar.
Áætlunarflug til Færeyja
(Framhald ax 3. síðu)
sjá um byggingar og ljósaút-:
búnað á flugvellinum sjálfum,
en Flugfélagið mun sjá um að
reisa radíóvita og siglingavita.
Þá býðst flugfélagig til að
skipuleggja hópferðir til Fær-
eyja að sumrinu, óski Færey-
ingar þess. Jafnframt hefur fé-
lagið boðizt til að flytja fær 1
eyska sjómenn til fa- ■
veiða við Grænland að áuai' >
Þá getur orðið um flutning a
fimmtán hundruð sjómönnumi
að ræða. '
Stefnt til Eyja
Framhald at 1. siðu.
enda í sambandi við strand tog-
arans og sjópróf, var stefnt, og
enn fremur Geir Zoega, for-
stjóra, sem bréflega hafði viður-
kennt að vera umboðsmaður fyrir
ábyrgðarvátryggjanda togarans.
‘ 9. nóv. 1961 gerðu lögmenn
stefndu kröfu til frávísunar máls
ins á þeim forsendum, að Geir
H. Zoega væru ekki umboðs-
menn hér á landi fyrir stefnda
og einnig, að stefndu bæri ekki
að hlíta vamarþingi á fslandi út
af skaðabótakröfum þessum. —
Héraðsdómur kvað upp þann úr-
skurð 22. marz 1962, að málinu
skyldi vísað frá dómi, og Hæsti
réttur staðfesti þann úrskurð 14.
maí 1962, en eingöngu á þeim
forsendum að ekki væri leitt í
Ijós, að vamaraðilar kæmmáls-
ins væru bærir til að hafa á
hendi fyrirsvar eiganda og vá-
tryggjenda b.v. Marie-José-Ros-
ette í málinu.
Með hliðsjón af úrskxu-ði
Hæstaréttar telur stefnandi aug-
Ijóst að reka megi mál þetta
fyrir íslenzkum dómstólum, en
óhjákvæmilegt að stefna eiganda
skipsins og vátryggjendum beint,
þar sem þeir hafa ekki viður-
kennda umboðsmenn hér á
landi.
Fyrir því stefnir bæjarstjóri
Vestmannaeyja f.h. Hafnarsjóðs
Vestmannaeyja Marcel Lambregt
sem var eigandi og útgerðarmað
ur Marie-José-Rosette, og til
réttargæzlu stjóm vátrygginga-
félagsins Onderlinge Verzeker-
ingsmaatschappij „De Ster“ S.
W.V. í Hollandi, enn fremur til
réttargæzlu stjórn ábyrgðarvá-
tryggingarfélags togaoans, The
Shipowners Protection & Indem
nity Association Limited í Eng
landi, til að mæta fyrir sjó- og
verzlunardómi Vestmannaeyja,
fimmtudaginn 7. marz 1963, til
þess þar og þá, ef sáttatilrauv.
dómara reynist árangurslaus, að
sjá skjöl og skilríki lögð til í
rétt, a'ð hlýða á sókn sakar og
dómkröfur, til að svara til sakar
og þola dóm. Stefnufrestur er
tveir mánuðir.
Stefnukröfur eru kr. 2.900.000,
00, ásamt 8% ársvöxtum frá 15.
jan. 1961 til greiðsludags, kr.
8301,00 í matskostnað, auk alls
málskostnaðar.
NÝR Á-
TRÚNAÐUR
Blaðið frétti að eftirfarandi
vísa hefði flogið fyrir í gær, er
grein séra Benjamíns Kristjáns-
sonar birtist í Morgunblaðinu, þar
sem fjallað er um andalækningar.
Fátt er á huldu um himnavist,
þótt herji’ oss ’hin bölvaða tækni,
Fátt er á huldu um himnavist,
fyrst presturinn eignaðist annan
Krist:
Ólaf Tryggvason — lækni.
Vísan er eftir Hannes Péturs-
son, skáld.
Síldveiðideilan
Framhald ai 1. síðu.
samningum sinna manna á Akra-
nesL
í dag héldu útgerðarmenn fund
með sér um samningsmálin og
ræddu m. a. Akranessamningana.
Samninganefnd sjómanna hefur
gefig út fréttatilkynningu, sem
hljóðar svona:
„Samninganefnd sjómanna í deil
unni um sildveið'ikjörin vill á-
kveðið taka fram, að samningur
sá, er stjórn sjómannadeild Verka
lýðsfélags Akraness hefir gert við
útvegsmenn þar, um kaup og kjör
á síldveiðum er gerður og undir-
ritaður án vitundar og án sam-
ráðs við samninganefndina og vill
nefndin taka það ákveðið fram að
hún var ekki og er ekki reiðubú-
in að gera samninga á þeim grund-
velli er gert var á Akranesi.
Samninganefndin heitir eindreg
ið á öll þau félög, sem síldveiði-
deilan tekur til, að standa fast
saman þar til sameiginlegur samn
ingur hefur verið gerður fyrir fé-
lögin öll.“
Veiðiréttur
Framhald aí 1. síðu.
andi hæð yfir sjávarmáli. Þar
eru líka góð skógræktarskilyrði.
Enn stendur hnífurinn í kúnni
með tveggja milljón króna til-
boði bóndans á Mógilsá. Þegar
blaðið átti í dag tal við Jón á
Mógilsá, sagði hann, að ekkert
hefði verið rætt vig sig um kaup-
in í nokkurn tíma. Að lokum
sagði Jón: „Þeir reyna ef til vill
eignarnám, eða jafnvel bráða-
birgðalög!“
Vantrausi á Strauss
Framhald af 3. síðu.
sameiginlega skýrslu um að-
gerðirnar gegn Der Spiegel.
Ráðuneytisstjórar hinna fjög
urra ráðuneyta voru kallaðir á
fund kanzlarans skömmu áður
en hann lagði upp til Was-
hington, og var þeim þá til-
kynnt þessi áícvörðun hans. Á-
stæðan fyrir þessari sameigin
legu skýrslu er sú harða gagn-
rýni, sem yfirvöldin hafa orðið
fyrir vegna aðferðanna, sem
notaðar hafa verið í málinu.
Aðeins tveimur tímum áður
en Adenauer flaug til Washing
ton var tilkynnt, að Krone, ráð
herra án ráðuneytis, yrði ekki
í för með honum, eins og upp-
runalega hafði verið ákveðið.
Engin skýring var gefin á þess
ari breytingu, en menn hafa
getið sér þess til, að talið hafi
verið nauðsynlegt, að einhver
ráðherra með nægilegu valdi
yrði um kyrrt í Bonn, ef eitt
hvað nýtt kæmi fram í dags-
ljósið, enda þótt ekki sé búizt
við neinum vandræðum innan
stjórnarinnar á næstunni.
Aðalfundur Fram-
sóknarfélags Vest-
ur-Skaftfellinga
Framsóknarfélag Vestur-Skaftfell
inga heldur aðalfund sinn að Eyr-
arlandi f Reynishverfi, sunnudag-
inn 18. nóv. n.k. kl. 2 e.h. — Á
fundinum mæta þingmenn flokks
ins í kjördæminu.
^Atóf-'ftó'hatíiomAkó
H E R RADJE I L D
T f MIN N, miðvikudaginn 14. nóvember 1962
15