Tíminn - 22.11.1962, Blaðsíða 8
Álvktanir
þings S.U.F
ÚTGEFANDI: SAMBAND UNGRA FRAMSÓKNARMANNA
RITSTJÓRI: DANÍEL HALLDÓRSSON
T f M I N N, fimmtudagurinn 22. nóv. 1962.;
Ályktun stjórnmálanefndar
9. þing SUF haldið í Reykjavík
2.—4. nóv. 1962 vill sérstaklega
minna á að það er söguleg stað-
reynd að tímabilið 1927—1958 ér
glæsilegasta framfaraskeið í sögu
landsins. Framfarirnar gerbreyttu
landinu, möguleikum einstaklinga
og þjóðarinnar til efnahagslegrar
afkomu og í lok tímabilsins ríkti
hér almennari velmegun en víðast
annars staðar þekktist, enda gætti
áhrifa Framsóknarflokksins veru-
lega á þessu tímabili, en eftir að
núverandi stjórnarflokkum, —
með aðstoð kommúnista — tókst
að knýja fram kjördæmabylting-
una 1959 í því skyni að draga úr
áhrifum landsbyggðarinnar og
Framsóknarflokksins á stjórn
landsins, hefur stjórnarstefnan
mótazt af kyrrstöðu og samdrætti.
Má-'í þessu sambandi sérstaklega
minna á vaxtalækkun, lánsfjár-
takmörkun og skatta- og tollahækk
anir. En þrátt fyrir að núverandi
stjórnarflokkar hafi þannig í tæp
4 ár lagt lamandi hönd á fram-
tak almennings hefur á móti sam-
drættinum aílt fram að þessu verk
að til mikilla áhrifa skriður sá er
kominn var á framfarir þeg-
ar stjórnarstefnan hófst svo og góð
æri frá náttúrunnar hendi tiJ lands
og sjávar, en nú er svo komið
að æskufólki er á allan hátt tor-
veldað að koma sér upp heimili og
koma fótum undir framleiðslu.
Horfir til stórvandræðá, ef ekki
verður snúið við í átt til framfara
og uppbyggingar.
1. Þingið harmar þann drátt sem
orðið hefur á efndum á endur-
skoðun stjórnarskrár við lýðveld-
isstofnunina 1944, og telur brýna
nauðsyn á að þeirri endurskoðun
verði lokið sem fyrst.
2. Þingið Jýsir ánægju sinni yfir
frumkvæði samvinnu- og laun-
þegasamtakanna til lausnar á
kjaradeilum, og að koma þar með
í veg fyrir langvarandi framleiðslu
stöðvun og þrengingar á heimil-
um vinnandi fólks.
3. Þingið skorar á þjóðina að
vera vel á verði um að núverandi
stjórnarflokkum skapist ekki að-
staða til að gera nýjan samning
um skerðingu íslenzkrar landhelgi, [
þegar núgildandi smánarsamning-
ur við Breta gengur úr gildi.
4. Þingið skorar á þingmenn'
I'ramsóknarflokksins að gera sitt
ýtrasta til að koma því til leiðar
aö'ungu fólki verði gert til muna
auðveldara að koma sér upp hús-
næði, svo sem með rýmri láns-
! fjármöguleikum, lægri vöxtum og
Jengri lánstíma, svo og að ungu!
fólki til sjavar og sveita verði j
auðvelduð aðstaða til stofnunar
atvinnufyrirtækja með sambæri-
legri fyrirgreiðslu viðkomandi
lánastofnana.
5. Þingið telur nauðsynlegt að
hraða endurskoðun á núgildandi
almannatryggingarlögum og veita
öllum landsmönnum sama rétt
með þeim, svo sem með því að gera
allt landið að einu verðlagssvæði
og að lífeyrisgreiðslur vegna allra
barna verði jafnháar. Einnig verði
ejjilífeyrir hækkaður og trygginga-
bætur undanþegnar skattaálagn-
iiigu.
6. Þingið telur að núverandi
sljórn hafi komið lánamálum al-
mennt í öngþveiti, og nægir í því
sambandi að minna á kennara-
I skort, læknadeilur, lögskipun
j gerðardóms í síldveiðideilunni.
j Og telur þingið þetta afleiðingu
r.f því að landinu er stjórnað í
| trássi vjð hinar vinnandi stéttir
j landsins. Og telur þingið nauðsyn-
j legt að hverfa af þessari óheilla-
Jiraut.
7. Sambandsþingið telur óhjá-
kvæmilegt að horfið verði frá ó-
heillastefnu núverandi stjórnar-
íiokka og aftur verði upp tekin í
stjórnarfari þjóðarinnar umbóta-
og framfarastefna, sem ein leiðir
til jafnréttis og réttlætis í skipt-
s'ramhaid a r. Is
Fulltrúar FUF í Strandasýslu létu ekki aftra sér frá þingsókn, þótt um langan og torfarinn veg yrði aS
fara. Þeir eru, taliS frá vinstri, fremri röð: Páll Þorgeirsson, formaður félagsins; Jóhann Halldórsson, Sig-
urður Jónsson; E"F ■ - 'sdóttir; Jón AlfreSsson; Brynjólfur Sæmundsson og Sigurgeir GuSbrandsson.
(Ljósmynd: Kári Jónsson)
Sívaxandi starl
. á Ströndum
Á nýafstöðnu þingi Sam-
bands ungra Framsóknar-
mannat hitti tíðindamaður
Vettvangsins nokkra af þing-
fulltrúum af landsbyggðinni
að máli og spurði þá frétta af
athafna- og félagslífi í þeirra
byggðarlagi. Einn af þessum
fulltrúum var Páll Þorgeirs-
son formaður FUF í Stranda-
sýslu-
Á Ströndum er nú starfandi öfl-
ugt félag og fer'það ört vaxandi.
Sagði Páll að áhugi unga fólksins
væri mikilJ á félagsmálum og sann
aðist bezt á því að allir kjörnir
fulltrúar félagsins hefðu tekið
sig upp og farið til Reykjavíkur
á sambandsþingið, þó að svona
langan veg og erfiðan væri að
fara. Væri þessi góða þingsókn
sönnun um mikinn félagsmálaá-
huga og jafnframt nokkur þakk-
lætjsvottur í garð SUF fyrir marg-
vislega aðstoð í félagsstarfinu. í
þessu sambandi benti Páll rétti-
lega á, hversu nauðsynlegt það er
að náið samband sé á milli SUF og
sambandsfélaganna.
— Hafið þið Strandameenn
nokkrar sérstakar áætlanir á
prjónunum?
— Við höfum í huga að efna
sem fyrst til almenns fundar til
þess að skýra fyrir félagsmönn-
um ályktanir SUF-þingsins í ein-
stöku málum og einnig til að und
irbúa starfið fyrir næstu alþingis-
kosningar. Akveðið er að efna til
skemmtiferðar að vori í Árnes-
Jirepp, afskekktasta hrepp
Strandasýslu, og halda þar fund.
Eg skrapp þangað í haust, ásamt
formanni og gjaldkera SUF og
undirbjó að nokkru þetta mál. Því
miður má segja, að félagsstarfið
hafi lítið náð þangað enn, þótt
þar sé að finna margan góðan
efniviðinn og trausta stuðnings-
menn Framsóknarflokksins.
— Hvernig er ástatt í atvinnu-
málum ykkar Hólmvíkinga?
— Síðan landhelgin var færð
út, hefir útgerð aukizt mjög, og
kemur það lika til að kaupfélagið
starfrækir frystihús. Einnig bætir
þeð líka aðstöðu til útgerðar að
komin er ný og góð bryggja, sem
er auðvitað undirstaða fyrir sjó-
sókn.
— Er ekki kaupfélagið aðal-
atvinnuveitandinn á Hólmavík eins
og á svo mörgum öðrum stöðum?
— Jú, það má sannarlega segja
það, og raunar þakka því að
nokkru, að unga fólkið hefur get-
að fengið næga atvinnu á sínum
heimastöðvum.
Framhald á 13 síðu
jju &***1 -
HÖFNIN Á HÓLMAVÍK *