Tíminn - 23.11.1962, Page 6

Tíminn - 23.11.1962, Page 6
★ FRUMVARPIÐ um heimild ríkisstjórnarinnar til töku 240 milljón króna láns í Bretlandi var afgreitt gegnum tvær um- ræðtir í neðri deild í gær sem lög frá Alþingi. Fjárhagsnefnd hafði klofnað um málið. Mælti Birgir Kjaran fyrir áliti meiri- hlutans, sem lagði til að frum- varpið yrði samþykkt óbreytt. Skúli Guðmundsson skila'ði séráliti og lagðí til að frum- varpið yrði samþykkt með þeirri breytingu að Alþingi á- kvæði skiptingu fjárins með lögum. Skúli sagðist ekki vera í vafa um, að full þörf væri fyrir þetta Iánsfé. Ráðstafanir í efnahagsmálum, sem gerðar hafa verið á þessu kjörtímabili hafa valdið gífurlegum vexti dýrtíðarinnar, og af þeim sök- um hrekkur innlent fjármagn miklu skemmra en áður til að mæta þörfinni fyrir fram- kvæmdafé. Er því emi meiri þörf en áður fyrir erlent láns- fé til nauðsynlegra fram- kvæmda og uppbyggingar at- vinnuveganna. Og þó að hér sé um mikið fé að ræða, sem á- formað er að taka að láni er- lendis, er liætt við, að það reynist ófullnægjandi til að mæta þörfinni fyrir stofnfé til þýðingarmestu framkvæmda. Breyting efri deUdar á frum- varpinu um að samráð skyldi haft við fjárveitinganefnd væri til bóta, en þó ekki full- nægja.ndi og eðlilegast, að Al- þingi ákveði skiptinguna síðar með Iögum. Gunnar Thoroddsen sagði mörg fordæmi þess að ríkis- stjórnir skiptu einar Iánsfé, og ennfremur að nú væri minni þörf erlends lánsifjár en áður vegna aukinnar sparifjársöfn- unar innanlands. Skúli Guðmundsson kvað augljóst, að miklu meiri þörf væri lánsfjár nú en áðnr, þar sem peningaeign landsmanna hefði verið gertí' verðminni með tveim gengisfellingum og framkvæmdr óheyrilega dýrar. Það gæti veri® að krónumar í sparisjóðum væru eitthvað færri, ef viðreisnin hefð'i ekki komið til, en þær myndu vera mun verðmeiri. Björn Pálsson sagði, að auð- vitað réðu ríkisstjórnir og stjórnarflokkar því eftir sem áður, hevrnig lánsfé væri skipt á Alþingi yrði það gert Iögum frá Alþingi, því að sjálf sögðu er það meirihlutinn, sem ræður. En ef lánsfénu væri skipt á Alþingi væri það gert fyrir opnum tjöldum og ein- stök byggðarlög ættu þá að geta fylgzt betur með og koma óskum sínum á framfæri, því víða er þörfin mikil og brýn Þingstörf í gær fyrir lánsfé. Líklega óttaðíst ríkisstjórnin of nriklar umræð ur um skiptinguna og vildi skipta fénu í kyrrþey. Frumvarpið um almanna- vamir var tekið til 3. umr. og afgreitt til efri deildar. Einar Olgeirsson talaði einn við um- ræðuna. Gylf Þ. Gíslason tók til máls við 1. umr. um frumv. Alþýðubandalagsins um stuðn- ing við' atvinnuvegina og sagði það vera fráleitasta plagg, sem lagt hefði verið fyrir Alþingi síðan Alþingi var endurreist! STORYRÐI FUKU A BAÐA BOGA A ÞINGI ASI I GÆR ÞINGMADUR LÝSTI HAG- FRÆDINGA STÓRLYGARA MB—Reykjavík, 22. nóv. Hafi einhver búizt við því, a3 öldum myndi lægja á þingi ASÍ, eftir að hin umdeildu kjörbréf höfðu verið afgreidd, þá hefur honum skjátlast hrapallega. Á dagskrá í dag átti að vera skýrsla forseta ASÍ, sem lögð hefur verið prentuð fram á þinginu, en minnstur tími fór í að ræða hana, heldur var deilt um það, sem gert var í gær og stærri orð notuð en nokkru sinni fyrr á þinginu. Alþingismenn kölluðu hvorn annan úr ræðu- stóli ,músarrindil" og „vængjatösku", lygabrigzl voru mýmörg og einn af al- þingismönnum ríkisstjórnar- flokkanna lýsti hagfræðinga erkilygara, í upphafi þingfundar var lögð fram utan dagskrár svohljóðandi yfirlýsing sex manna, sem segj- ast hafa voldug félagssamtök bak við hana: „Á síðasta þingfundi gerðist sá atburður að löglega kjörnum full- 1rúum Landssambands íslenzkra verzlunarmanna var meinaður at- kvæðisréttur hér á þessu þingi, þrátt fyrir að mikill meirihluti j þingsins hafði áður staðfest inn- j göngu LÍV i Alþýðusambandið. j Sú gerræðislega álv^ ðun aðj svifta fulltrúa LÍV lögmætum rétti j var tekin á umræddum þingfundi með 26 atkvæða meirihluta. Á sama tíma var 30 lögmætum full- trúum meinað að hafa áhrif á gerð ir þingsins. Sá „meirihluti" sem hér hefur myndast er því til orðinn í krafti athafna, sem ekki eiga sér neinn stað í lögjim ASÍ né þeim venjum, sem skapazt hafa vig afgreiðslu kjörbréfa á þingum sambandsins. Hinn svokallaði meirihluti þessa þings er því fenginn með þeim hætti, sem ekki er unnt að viðurkenna né láta ómótmælt. Um leið og við mótmælum þess- um vinnubrögðum „meirihlutans" lýsum við yfir því, að við teljum þessar og síðari gjörðir þessa þings, þar á meðal væntanlegt stjórnarkjör, ólöglegar, þótt við höldum áfram þátttöku í þing- störfum til þess að reyna að spyrna gegn frekari misbeitingu valds af hendi hiris vafasama méirx hluta, er skapazt hefur á þinginu. Óskar Hallgrímsson (sign) Pétur Sigurðsson (sign) Guðjón Sigurðsson (sig.'i) Jón Sigurðsson (sign) Eggert G. Þorsteinsson (sign) Fétur Guðfinnsson (sign).“ Eftir að þessj yfirlýsing hafði verið lögð fram, var lesin fundar- gerð síðasta fundar og hún sam- þykkt. Síðan tók Hannibal Valdi- marsson til máls og kvaðst ekki þurfa að vera langorður, þar sem skýrsla sín lægi þegar prentuð fyrir og skyldj hann svara fyrir- spurnum Næstur tók til máls Sveri'ir Her mannsson, forseti LÍV. Þakkaði hann veittan stuðning við verzlun- armenn og harmaði, að þeir hefðu verig sviptir löglegum rétti og kvaðst áskilja sér allan rétt í þessu máli. Hann kvað stjórn ASÍ hafa haft þrjár vikur í haust til þess að kynna sér gögn LÍV, en hefðu ekki treyst sér til að benda á eitt- einasta atriði i skýrslu sinni til Félagsdóms. Vegna aðdróttana um það, að hann (Sverrir) væri at- vinnurekandi, gat hann þess, að hann ætíi 5%' í 2 útgerðarfyrir- tækjum í Hafnarfirði, sem bræður hans ættu annars, og hefðu þeir gefið sér þessi 5% fyrir það að snúast fyrir þá í landi. Þá hefðu f<mm gamlir bekkjarbræður gert þag af rælni ; vor, að gefa leigu- tilboð í FÍldarsöltunarstöðina Ými á Siglufirði, en ekki dottið i hug, að þeir fengju hana leigða, eins og orðið hefði. Taldi Sverrir, að ýmsir þ á. m nafngreindir vöru- bifreiðarstjórar, innan ASÍ ættu heldur að teijast atvinnurekendur en hann. Meðal annars væri Hanni bal í síldarútvegsnefnd, en sú nefnd borgaði út milljónir árlega. Eggert G Þorsteinsson sagði, að ef það væri nauðsyniegt að end- urskoða féiagaskrár og önnur gögn LÍV, þá myndi það ef til vill ekki síður reynast nauðsyn- legt um fleiri félög. Þá ræddi hann um húsnæðismál og bar saman upphæðir, sem veitt hefði verið til þeirra mála í stjórnartíð Hanni- bals og nú. Næstur tók Jflanniþal (il máls. Kvað hann Egg^ftJ^k^^þpu^atriði um húsnæðismál, sem hann hefðr ininnzt á í setningarræðu sinni, óþarflega nærri sér. Rakti Hanni- bal síðan, hversu íbúðarbygging- ar hefðu dregizt saman í tíð nú- verandi stjórnar. Þá gat Hapnibal um hneyksii, sem átt hefði sér stað í tíð núverandi húsnæðismála stjórnar. Væri það úr Hnífsdal. Þar hefði maður nokkur sem væri að byggja stærra hús, en húsnæð- ismálastjórn mætti lána út á, fengið hundrað þúsund króna lán eftir að hafa talag við Þorvald Garðar, en fátækur barnamaður á staðnum, sem hefði í þrjú ár reynt að koma sér upp húsi, hefði feng- ið synjun. Kvað hann Eggert G. Þorsteinsson, sem Hannibal gaf gælunafnið „músarrindill", bera ábyrgð á þessu hneyksli og væri honum sæmst a ðtala ekki hátt um þessi mál. Þá kvað Hannibal það nauðsynlegt að hraða rannsókn á ! gögnum LÍV Viðvíkjandi fullyrð-1 ingum Sverris Hermannssonar um það að hann væri tæpast atvinnu- lekandi, upplýsti Hannibai það, ?.ð Sverrir hefði með eigin hendi sótt um abyrgð bæjarstjórnar Hafnarfjarðai vegna kaupa á tveim 165 iesta skipum og hann hefði það staðfest í símskeyti frá Sigurjóni Sæmundssyni bæjar- stjóra á Siglufirði frá 26. okt. s.l. að Sverrir Hermannsson væri pró- kúrúhafi fyrir Ými h.f. Kallaði Sverrir þá úr sætj sínu, að það væri lýgi. Hannibal e^durtók þá að simskeytið væri staðfest. Sverrir: Þú hefur ekkí alltaf trúað krötum svona vel. Hannibal kvaðst vera fulltrúi sjómanna innan ASÍ j Síldarút- vegsnefnd, og væri það í meira lagi hæpið, að telja þá bera keim af atvinnurekstri. Næstur tók til máls Hermann Guðmundsson úr Hafnarfirði, og var ræða hans ólík hinum fyrri, þar eð hann ræddi um skýrsluna og af hógværð. Hann kvað sér finnst hún afar flaustursleg. Hann harmaði, að ekki skyldi vera er- indreki á vegum ASÍ. Þá harmaði hann einnig, að ekki skyldi hafa verið framfylgt samþykkt síðasta þings ASÍ um að ráða mann til fræðslustarfsemi. Sannleikurinn væri sá, að vegna ókunnugleika yngri manna verkalýðshreyfingar- innar væri hægt að etja þeim gegn sinni eigin hreyfingu í stundum. Þá þakkaði hann stjórn ASÍ fyrir forgöngu hennar um orlofsheim- ili. Þá lýsti Hermann yfir and- stöðu sinni við yfirlýsingu þá, sem lögð var fram í upphafi fundar. Hann kvaðst vera sá lýðræðis- sinni, að hann beygði sig undir vilja meirihlutans, þótt hann hefði barizt fyrir því á þinginu, að kjör- bréf fulltrúa LÍV væru samþykkt. Eggert G. Þorstejnsson kvaðst taka á sig sinn hluta af hneyksli því, sem Hannibal hefði minnzt á, ef um hneyksli væri að ræða. Þeir í húsnæðismálastjórn yrðu að trúa uplýsingum þeim, sem fylgdu með umsóknum. Hann gaf Hanni- bal gælunafnið „vængjataska" og átaldi, að Hannibal skyldi á þingi vitna til ritsins Úr þjóðarbúskapn um“, þegar rætt var um íbúðar- byggingar. Orðrétt sagði Eggert: „Og hvaða tölur eru það svo, sem forseti okkar heimtar, að ég lesi. Hann hejmtar það, að ég lesi hér tölur úr „Úr þjóðarbúskapn- um“, sem saman er hnoða'ð af hagfræðiingum, þeim ágætu mönn. um, sem hafa nratreitt fyrir okkur hér áratugum saman þá mestu lygi, sem við höfum fcngið." Það hafði verið borið fram fyrr í umræðum, að fulltrúar norrænna verkalýðssamtaka, sem voru á ferð hér j sumar, teldu þá för lík- asta ferð austur fyrir tjald, þar sem þeir hefðu ekki fengið að ræða við forystumenn andstæð inga miðstjórnar ASÍ, og forseti ASÍ hefði reynt að koma í veg fyrir, að þeir gætu setið boð fé- lagsmálaráðherra- Einnig hefði komu þeirra hingað nánast verið haldri leyndri. Hannibal upplýsti síðar í umræðum, að dagblöðin hefðu sagt frá komu þeirra, áður en þeir komu. Hann hefði hringt til félagsmálaráðherra, Emils Jóns^onar, og spurzt fvrir um það, hvort hann vildi hitta þá. Emil kvaðst ekki geta það strax, þar eð hann væri að fara í laxveiðar með sendiherra Rússa. Umræður snerust þannig mjög um persónuleg málefni. En það kom greinilega fram í stuttum ræðum ýmissa fulltrúa, að þeir voru mjög óánægðir með gang mála. Dýrmætum tíma væri varið í illdeilur, en enginn tími enn unnizt til raunverulegra þing- starfa. Væri ekki lengur hægt að komast hjá því að breyta skipu- lagi ASÍ. Fyrir fundarhlé, um klukkan 19, voru svo loks samþykktir reikn- ingar ASÍ og stóðu vonir til, að þá yrði unnt að hefja raunveru- leg þingstörf. Fyrsta málverka- uppboð haustsins BÓ-Reykjavík, 21. nóv. SIGURÐUR Benediktsson held- ur fyrsta málverkauppboð hausts- ins í Þjóðleikhúskjallaranum kl. 5 í dag og hefur nú meðal annars í boði málverk eftir Jón Stefánsson, Ásgrím, Kjarval, Scheving og Blöndal. Málverkið eftir Jón Stefánsson er af Lyngdalsheiði , 62x90 cm. Ekki vildi Sigurður leiða gétur að því, hvað sú mynd færi hátt, þeg- ar blaðið talaði við hann í gær. Sigurður taldi eitt Schevingsmál- verkið mundi komast yfir 30 þús- und, og Sumarkvöld við Korpu eft ir Kjarval 25—28 þúsund. Vatns- litamynd eftir Ásgrím taldi hann seljast á 22 þúsund og málverk frá Parísarárum Blöndals 14—18 þúsund. — 25 málverk eru í boði. SKIPAUTGCRÐ RÍKISiNS Ms, Skjaidferefö fer vestur um land til Akureyr- ar 28. þ. m. Vörumóttaka í dag til Húna- flóa- og Skagafjarðarhafna og Ólafsfjarðar. Farseðlar seldir á þriðjudag. 6 T f M I N N, föstudagurinn 23. nóvember 1962

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.