Tíminn - 23.11.1962, Qupperneq 7
Utgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Tómas Arnason. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Auglýs-
ingastjóri: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórnarskrifstofur i Eddu-
liúsinu. Afgreiðsla, auglýsingar og aðrar skrifstofur í Banka-
sfcræti 7. Símar: 18300—18305. — Auglýsingasími: 19523. Af.
greiðslusími 12323. — Askriftargjald kr 65.00 á mánuði innan-
lands. í lausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan Edda h.f. —
„Henni er svo trúlof-
unarhætt“
Maður einn, sem átti kornunga dóttur, lagði sífellt
sterkar hömlur á það — eftir því, sem hann gat, — að
hún færi á samkomur. Þetta þótti stelpunni hart og áttu
þau í hörðum brösum út af því oft og einatt.
Granni mannsins spurði hann eitt sinn að því, hvers
vegna hann vildi ekki leyfa stelpu-skinninu að fara á
samkomurnar.
Maðurinn sagði: „Henni er svo trúlofunarhætt. — Þa&
er segin saga, að hún trúlofar sig alltaf, ef hún fer á
ball“.
Við umræður um Efnahagsbandalagið látast þeir, sem
hafa -orð fyrir stjórnarflokkunum, vera undrandi yfir
því, að Framsóknarmenn skuli vera á móti því — eins og
sakir standa — að leitað sé af stjórnvöldum íslands eftir
viðræðum erlendis við forgöngumenn stofnunar Efna-
hagsbandalagsins. i Þykjast liðsoddar ríkisstjórnarinnar
ekki skilja, þá skoðun Framsóknarmanna, að rétt sé að
fresta slíkum viðræðum um skeið. Þeir hafa fallizt á það
með Framsóknarmönnum (þó áður teldu þeir annað rétt),
að enn þá sé ekki kominn tími til að ákveða, hvaða samn-
inga íslendingar eigi að leita af sinni hálfu. Betra sé að
bíða átekta og sjá hvernig stærri þjóðir skipa þessum
málum fyrir sig og byggja EBE upp Leita að því búnu
lags.
En að mega ekkí fara strax utan og spjalla „yfir glasi
á góðra vinafundi“ um málið, kynna málstað íslands, —
og meira að segja kannske fá skipulagi Efnahagsbanda-
lagsins breytt í stórkostlega hagkvæmara horf fyrir ís-
lendinga, — það finnst þeim meiri fjarstæðan hjá Fram-
sóknarmönnum.
Látum vera að þeir skilji ekki, að þeir eru ekki líklegir
til að hafa nein áhrif á skipulag EBE
Hitt ættu þeir samt að vita, að ótimabærar viðræður
geta skapað misskilning, sem valdið getur miklum sam-
komulagsörðugleikum síðar á úrslitastundum mála.
Misskilhingurinn er þá búinn að fastmóta afstöðurnar.
En svo má einnig bæta því við. úr því að þessir menn
sjálfir virðast ekki hafa hugkvæmni til að láta sér detta
það í hug, að Framsóknarmenn treysta ekki ríkisstjórn-
inni til að ræða þessi mál á erlendum vettvangi, án þess
að láta ánetjast, meðan Alþingi hefir ekki búið henni
vel í hendur, en það kemur nú öllum saman um, að enn
sé ekki tímabært.
Við ríkisstjórnina á nefnilega, þegar hún mætir erlend-
um aðilum, það, sem piaðurinn sagð; um dóttur sína:
, Henni er svo trúlofunarhætt“!
Það er t. d. ekki gleymt. hvernig hún trúlofaði sig í
landheigismálinu.
Og auðvitað er fylista ástæða til að æt.la. að það hafi
verið þeim veikleika hennar að kenoa í viðræðum ytra,
að Adenauer hefir haidið bví tvívegis blákalt fram. að
hún sé þegar búin að trúlofa sig Efnahagsbandaiaginu
Sýnt er að hana blóðlangar ,,á samkomurnar“ undir
eins.
Þvi ekki það Ííka?
Á það hefur verið bent, að framkvæmdalán það —
240 millj. — sem stjórnin vill fá einræði til að ráðstafa,
nemi svipaðri fjárhæð og því. sem ætiað er á fjárlögum
til raforku-, vega-, vita-. hafnar-. flug- og sjávarút
vegsmála. Getur þingið þá ekki a;vee eins afgreitt fjá^
lög þannig að gefa stjórninni einsdæmi lil að skipta því
fé? Hvérnig litist mönnum á það þingræði?
Freeman aövarar ráðamenn EBE
Herter verður aðalsamníngamaður Kennedys í tolla- og viðskiptamálum.
EINS og kunnugt er, sam-
þykkti seinasta Bandaríkja-
þing lög um tolla- og viðskipta-
mál, þar sem forsetanum var
gefið víðtækt vald til að semja
um gagnkvæmar tollalækkan-
ir við önnur ríki og þó fyrst
og fremst við Efnahagsbanda-
lag Evrópu. í lögunum er m.a.
gert ráð fyrir að algert toll-
frelsi geti komizt á milli Banda
ríkjanna og EBE, hvað snertir
þýðingarmiklar vörutegundir.
Áður en lög þessi voru sett,
hafði forsetinn notað allar hei.m
ildir, sem eldri lög veittu hon-
um, til að semja um gagnkvæm-
ar tollalækkanir við EBE. Um
þessar tollalækkanir var samið
innan ramma alþjóðlega tolla-
bandalagsins (Gatt) og urðu
því önnur þátttökuríki þess
þeirra einnig aðnjótandi.
Kennedy forseti hefur ekki
farið dult með það, að mark-
mið hans er að nota hin nýju
tollalög til hins ýtrasta til að
koma fram tollalækkun milli
landa en kommúnistalandanna,
en við þau síðarnefndu verð-
ur að semja sérstakiega um
þessi mál þar sem þau eru
öll utan Gatt, nema Júgó-
sLavía, sem er nú í þann veginn
að gerast meðlimur þess.
Það er skoðun Kennedys, að
það mundi torvelda samkeppn-
ina við kommúnistaríkin og
draga úr framförum í heimin-
um, ef hin frjálsu ríki girða á
milli sín með háum tollmúrum,
-eins :-og' hinum ytra tolli, sem
EBE stefnir að. Margt bendir
til, að forráðamönnum EBE sé
að aukas' skilningur á þessu,
og því verði brott horfið frá
hinum ytra tolli þess, a.m.k
eins og hann er fyrirhugaður i
dag.
KENNEDY
flokka Bandaríkjanna. Herter,
sem er 67 ára gamall, hefur að
baki mikla reynslu í Utanríkis-
málum. Hann var um 12 ára
skeið þingmaður í fulltrúadeild
Bandaríkjaþings og lét þá utar
ríkismál mjög til sín taka, átti
m.a. góðan þátt í að undirbúa
Marshallhjálpina. Síðar varð
hann ríkisstjóri í Massachu-
setts, þá aðstoðarutanríkisráð-
herra í stjórn Eisenhhwers, og
loks utanríkisráðherra 1958—
’60. Hann þótti leysa það starf
vel af hendi.
skýrt fram, að Bandaríkjamenn
myndu ekki horfa aðgerða-
lausir á það, ef gamlir mark-
aðir þeirra fyrir landbúnáðar-
vörur væru eyðilagðir með
verndartollum, en Bandaríkin
hafa um langt skeið flutt mikið
af landbúnaðarvörum til Vest-
ur-Evrópu. Hann kvaðst ekki
vera með neinar hótanir, en
þó vilja minna á að í hinum
nýju tollalögum Bandaríkjanna
sé ákvæði, er heimili forsetan-
um að beita gagnkvæmum
tollahækkunum gegn ríkjum,
er hækka óeðlilega t.oll á banda
rískum vörum.
ÞAÐ voru þingmenn frá land
búnaðarfylkjunum, er komu
þessu ákvæði inn í lögin, og
þeir fóru ekki dult með, að því
væri stefnt gegn Efnahags-
bandalagi Evrópu, ef það gerði
alvöru úr því að hækka tolla
á bandariskum landbúnaðar-
vörum.
Þá krefjast alúminíumfram-
leiðendur í Bandaríkjunum
hliðstæðra aðgerða, ef tollur á
framleiðslu þeirra verður hækk
aður eins mikið í löndum EBE
og nú er ráðgert .
JAFNHLIÐA því, sem
Bandaríkin búa sig undir það
að knýja Efnahagsbandalagið
til að falla frá þeim fyrirætl-
unum að girða sig inni með
háum ytri tolli, eykst stöðugt
andstaðan gegn þessum fyrir-
ætlunum í löndum Asíu, Afríku
og Suður-Ameríku, er líta á
tollinn sem mikla ógnun við
sig. Innan landa Efnahags-
bandalagsins vex þeirri skoðun
líka óðum fylgi, að ytri tollur-
inn muni reynast Efnahags-
bandalaginu lítill ávinningur,
KENNEDY forseti hefur þeg
ar sýnt, að hann ætlar ekki að
láta hendur liggja í skauti í
þessum efnum. Fyrir nokkr-
um dögum skipaði hann
mann til að hafa með höndum
yfirstjórn þeirra tollsamnjnga.
sem fylgja eiga í kjölfar hinna
nýju tollalaga. Maðurinn, sem
Kennedy fól þetta vandasama
embætti, er Christian A. Hert
er, fyrrv. utanríkisráðherra
Bandarikjanna.
mælzt sérstaklega vel fyrir
Þó Herter sé republikani. nýt
ur hann 'rattsts beggja að
Það hefur vakið sérstaka at-
hygli í sambandi við útnefn-
ingu Herters, að' hann hefur
lengi verið talsmaður stórauk-
innar samvinnu rnilli Banda-
ríkjanna og Evrópu. Á síðastl.
ári birtu þeir sameiginlega
greinargerð hann og Will Clay-
ton, aðstoðarutanríkjsráðherra
í stjórn Trumans, þar sem skor-
að var á Bandaríkjaþing að
beita sér fyrir því, að afnumdar
vrðu allar tolía- og viðskipta
hömlur á verzlun milli Banda
ríkjanna og Vestur-Evrópu.
Herter hefur nú fengið gott
tækfæri til að vinna að því að
koma þessari stefnu sinni i
framkvæmd.
UM LÍKT LEYTI og Herter
var skipaður | þetta nýja emb
ætti, var Orville Freeman land
búnaðarráðherra Bandarík.i
anna staddur i Brussel, þar sem
hann ræddi við forráðamenn
EBE um tollnhækkkanir þæn
sem orðið hafa nýlega á ýmsum
bandariskum landbúnaðaraf-
urðum í aðildarríkjum EBE
og eru afleiðing þess. að þau
eru byrjuð að framkvæma á
kvæðin tim ýtri tollinn. Meðan
Freentan dvaldi í Brttssel átli
hann samtal vjð blaðamenn og
lét þar óspart í Ijós, að hann
taldi EBE fylgja óraunhæfri
verndartollastefnu, er bryti
í bága gegn þeirri yfirlýstu
stsfnu þess að vinna að frjáls
1 ri verzlun og viðskiptum.
Freeman tók það jafnfranu
Freeman
þegar frá líður, því að hann
muni draga úr viðskiptum þess
við umheiminn.
Flest bendir því til, að EBE
neyðist fyrr en síðar til að
hverfa frá þeirri hættulegu
cinangrunarstefnu, scm felst t
ytri tollinum. Allir frjálslyndir
menn munu hiklaust taka itndir
þau orð, sem Gaitskell lét faíta
í brezka þinginu, en þau voru
á þá leið, að hann vildi ekki
þurfa að sjá þá Evrópu, er lok
aði sig inni Lnk viii háan lo:i
múr heldur É'/tópu. st-m vttni
að auknum eg friáisrri heims- f
viðskiptum. i>Þ. ^
rÍMINN, föstudagurinn 23. nóvember 1962
/
I