Tíminn - 23.11.1962, Page 13
1 iiihiii liwmmii—('iii ip|i Mipumiii muwaBmmMmtmmmm'MmwrnaanR sæií?r,.r::
By
Um leií og þér kaupiti mitia í Happdrætti Barlístrendingafélagsins, gefst
ytfur strax kostur á stórum vinningi, t.d. vikudvöl fyrir tvo í Bjarkarlundi,
vikufertJalag um Vestfirði, vertSmikil búsáhöld og fleira og fleira, — en
þetta eru afteins aukavinningar af 25 mögulegum.
AðaBvinningur:
Miðar seldir
dagiega
úr Landrover-
bíl
w
I
Austurstræti
LAHD-
-ROVER
DREGID1. DESEMBER
UmboSsmenn, félagar og aðrir velunnarar félagsins, sem
hafa miða undir höndum, eru vinsamlegast beðnir að
gera skil við allra fyrstu hentugleika til stjórnar happ-
drættisins:
Kristins Óskarssonar, Skiphoiti 36, sími 10762
Sigríðar Ólafsdóttur, Rauðagerði 27, sími 34551
Harðar Davíðssonar, Víghólastíg 5, sími 24727
Eyjólfs Jóhannssonar, Bankastræti 12, sími 14785
Sigurðar Jónassonar, Laugavcgi 10, sími 10897.
HAPPDRÆTTI BARÐSTRENDINGAFÉLAGSINS
MINNING
Ingi Ölafur Guðmundsson
í dag verður til moldar borinn frá
Hafnarfjarðarkirkju ungur Hafn-
firðingur, Ingi Ólafur Guðmunds-
son, verzlunarmaður, er andaðist
í Landspítalanum aðfaranótt 14.
þessa mánaðar.
Ingi var fæddur í Hafnarfirði
9. ágúst 1937 og var því aðeins 25
ára gamall er hann lézt. Hann var
sonur hjónanna Guðmundar Hann-
essonar og Ragnheiðar Ólafsdóttur
V'esturbraut 4 í Hafnarfirði. Ingi
óist upp í foreldrahúsum og naut
þar sérstakrar umhyggju ástsælla
íoreldra er mótuðu svo mjög alla
framkomu hans. Á uppvaxtarár-
um Inga var Guðmundur faðir
lians á sjónum eins og svo marg-
ir í hinum vaxandi sjávarbæ. Fór
ingi fyrst á sjó með föður sínum
þá aðeins 9 ára gamall. Síðar er
hann var 12 ára fór hann á síld-
veiðar og var á sjónum með skóla-
námi allt til 16 ára aldurs. Á sjón-
tim kom strax í ljós hve miklum
rnannkostum hann var gæddur,
hann var hvers manns hugljúfi og
fyrirmynd annarra ungra manna,
enda vann hann fljótt hylli allra
samstarfsmánna sinna.
Ingi fór til náms í Flensborg-
arskóla og útskrifaðist þaðan sem
gagnfræðingur. Þótt skólagöng-
unni væri !okið, hneigðist hugur
hans áfram að sjónum. Réðst hann
á togarann ,,Röðul“ og jvar þar
um tíma.
Um þetta leyti var 'ekki vitað til
að Ingi kenndi sér þess meins er
síðar þjáði hann svo mjög. 17
ára að aldri veiktist hann hastar-
lega af lömunarveiki, svo að lækn
ar töldu að hann gæti aldrei náð
þeirri heilsu að hann gæti starfað
nokkuð framar. En með sinni ein-
stæðu viljafestu og dugnaði tókst
honum þó að komast á fætur aft-
ur og þótti mörgum það- ganga
kraftaverki næst. En þó var það
svo að hann varð að' halda sér
uppi á meðuium öll hin síðari ár,
og varð meðal annars að dvelja
átta sinnum á spítala í lengri eða
skemmri tíma í hvert sinn.
Ingi hóf nú störf sem verzlunar-
maður, starfað'i hjá „Bækur og
Ritföng" og síðar hjá „Silla og
Valda“ í Reykjavík. Var það svo
þar sem annars staðar, er hann
starfaði að hann reyndist afbragðs
starfsmaður og var það einróma
álit allra sem honum kynntust
ft99ÍáBJ2íÍid ■ * •*'• ; *
jafnt viðskrptavina sem vinnu-
veitenda.
Árið 1957 hóf Ingi svo sjálfstæð-
an verzlunarrekstur, fyrst með
sælgæti og blaðasölu við hliðina á
sparisjóði Hafnarfjarðar en síðar
biðskýlið við Álfafell. Á þessum
árum kom í ljós hinn sérstæði
liæfileiki Inga sem verzlunar-
manns því þótt hann væri oft og
tíöum sársjúkur að starfi þá var
hann alltaf eins hið hið ytra kát-1
ur og glaður og vildi hvers manns
vanda leysa. Hann var sérstaklega |
hjálpfús við þá sem lítilmagna ]
voru og vildi ekki að á þá væri j
hallað. Ingi hafði skömmu fyrir l
andlát sitt, endurbyggt verzlun j
sína og flutti hana á nýjan stað
og batt við það miklar vonir.
Árið 1958 gekk Ingi að eiga eft-
irlifandi eiginkonu sína Kristrúnu
Bjarnadóttur frá Hafnarfirði og
eignuðust þau eina dóttur Ragn-
heiði sem nú er 3ja ára.
Einnig eignaðist Ingi son Guð-
mund Inga, sem nú er 6 ára.
Kristrún reyndist manni sínum
hin bezta eiginkona, og stóð hún
við hlið hans í öllum veikindum
hans þar-til yfir lauk. Er harm-
ur hennar sérlega sár,' þar sem
hún á eftir a'ð sjá ástkærum eigin-
manni í blóma lífsins en þau höfðu
buið í haginn fyrir framtíðina en
svo hverfur hann frá þessu öllu á
einni nóttu.
Sömuleiðis er sár harmur eftir-
iifandi foreldra og systur, sem nú
sjá á eftir einkasyni og bróð'ur
vfir móðuna miklu, hann sem var
þeim svo mikið og þau bundu svo
miklar vonir við er allt í einu
horfinn.
Sá sem þessar fátæklegu línur
rítar vottar þeim sína dýpstu sam-
úð og biður almáttugan Guð að
i*'raính á 15 síðu
Ekki ásfæða til að óttast
íFramhald af 9. síðu )
vitað um æðasigg til þess að
unnt væri að draga þar af bein
ar ályktanir um áhrif mjólkur
fitu; að svb kömnu væri lítil
ástæða til þess að amast við
mjólkurfitu sem einum þætti
í blönduðu mataræði.
Eggjahvítuefni í mjólk væri
undirstöðuatriði í umbúðum á
mataræði, einkum þar sem
fæðutegundirnar væru fátækar
að næringarefnum.
Talið var, að eins og sakir
stæðu, virtist lítil ástæða til
þess að óttast strontium 90 í
mjólk. Tilraunir til þess að
takmarka mjólkurneyzlu sökum
geislavirkni, mundu áreiðan-
lega leiða til aukinna vand-
kvæða í næringarmálum, sér-
staklega að því er varðaði korn-
börn og eldri börn.
Seytjánda alþjóðaþing mjólk
uriðnaðar verður haldið í Vest
ur-Þýzkalandi 1966, og blaða-
stofa þingsins skýrði frá því,
að Munchen mundi verða þing-
staðurinn.
Þann 5. sept. var ég í kvöld-
boði hjá dönsku ríkisstjórninni
og þann 7. sept. var ég í cock-
tailboði hjá hans hátign Dana
konungi og drottningu. Þar
voru einnig prinsessurnar.
Veizlugestir þarna voru að-
eins 179 af 3060 manns, en sá
fjöldi sótti ráðstefnuna, sem
fyrr greinir.
Hins vegar var síðar veizla
fyrir alla fulltrúa í Ráðhúsi
Kaupmannahafnar.
BOLZANO-rakblöðin
renna létt yfir húðina,
| /
raka vel
— og endast.
Hvort sem þér borðið kjöt eða fisk,
þá eru
jarðepli og gulrófur
nauðsynlegar á borðið.
Kaupfélag Eyfirðinga
/r
Akureyri
T f M I N N, föstudagurinn 23. nóvember 1962
13