Tíminn - 18.12.1962, Blaðsíða 3
UiM KLUKKAN 17,30 í gær
varð harður árekstoir á Reykja-
nesbraut, móts við kapelluna í
Fossvogi. Tveir sendiferðabíl-
ar á leið til og frá Reykjavík
skullu saman og snerust út og
inn á veginum. Síðarnefndi bill-
rann
krapa
sner-
ist í veg fyrir hinn. Bæði hægri
framhorn bílanna snertust í
sama vetfangi, en ökumaáurin'n
á leið frá Reykjavík kastaðist
út í sveiflunni og fannst liggj-
andi fyrir aftan hinn bílinn.
Hann var meðvitundarlaus og
var fluttur á slysavarðstofuna
og þaðan á Landakotsspítalann.
Nafn hans var ekki gefið upp,
en maðurinn var talinn í lífs-
hættu. Hinn ökumaðurinn skall
aði framrúðuna úr bílnum og
slapp með bólgið höfuð. Báðir
bílamir stórskemmdust. Mynd-
in er tekin á slysstaðnum.
Samvinnan öllum
mesta gleðiefni
NTB-París, 17. des. | Ekki hefur verið skýrt frá sam-
Utanríkisrúðherrar Frakka komulagi þeirra Schröders og de
og Vestur-Þjóðverja, þeir j
Couve de Murville og Gerhard
Schröder, komust að sam-
J komulagi í dag um aðferðir
I þær, sem beita skal til þess
að koma á nánari samvinnu í
stjórnmálum, hermálum og
efnahagsmálum milli land-
anna.
Ákveðið hefur verið, að utan-
ríkisráðherrarnir hittist í framtíð-
inni með þriggja mánaða millibili
og forsætisráðherrarnir hittist
tvisvar sinnum á ári.
Þá eiga fjármálaráðherrar Frakk
lands og Vestur-Þýzkalands einn-
ig að koma saman annað slagið til
viðræðna, og munu þeir þá að
öllum líkindum gera tilraun til
þess að koma á sameiginlegri
stefnu í verzlunarmálum landanna
tveggja vig kommúnistalöndin.
! Murville í smáatriðum, en samn-
ingurinn verður undirritaður af
Adenauer forsætisráðherra og de
Gaulle forseta, er þeir hittast í
París í janúarmánuði.
Formælandi vestur-þýzka utan-
ríkisráðuneytisins skýrði frá því í
Bonn, að hinum löndunum fjórum
sem aðild eiga að EBE, verði skýrt
frá öllu því, sem fram kann að
koma í viðræðum Frakka og Þjóð
verja. Sagði hann þá vera full-
vissa um að hin fyrirhugaða sam-
vinna landanna myndi verða gleði
efni Efnahagsbandalaginu og öðr
um vestrænum ríkjum.
Forsetinn og ráðherr-
ann berjast um völdin
NTB—París og Dakar, 17. des.
Stjórnarkreppa er í Afríku-
ríkinu Senegal, og hefur þar
verið samþykkt vantrauststil-
laga á stjórn landsins, og í
NEHRU SKÝRT
FRÁ TILLÖGUM
NTB—Nýja Dehlí, 17. des.
Nehru forsætisi’áðherra Ind-
iands hefur svarað bréfi Ho Chi-
Minh forseta Norður Vietnams,
og segir Nehru Indverja vera fúsa
ti! þess að hefja samningaviðræð-
ur við kínversku stjórnina svo
fljótt sem Kínverjar hafa horfið
aftur til þeirra stöðva, er þeir
höfðu á sínu valdi 8. september s.l.
Ho' Chi-Minh sendi Nehru bréf
fyrir nokkru, þar sem hann kvað
sáttatilboð Kínverja vera sann-
gjöm og góðan grundvöll að frið-
samlegri lausn deilunnar.
Nehru var í dag skýrt frá þeim
tillögum, sem fram komu á fundi
hinna sex hlutlausu ríkja, sem
komu saman í Colombo á Ceylon
í síðustu viku. Ambassador Burma
á Ceylon, G. S. Pieres, er kom-
inn til Nýju Dehlí, og átti hann
stuttan fund með Nehru, þar sem
liann sagði honum frá því helzta,
sem fram kom á ráðstefnu ríkj-
anna sex/
Háskólaf yrirlestu r
Prófessor Boldizár við Tækni-
liáskólann í Miskolec í Ungverja-
landi flytur fyrirlestur í boði
verkfræðideildar þiiðjudaginn 18.
des. kl. 5,30 í 1. kennslustofu Há-
skólans. Fyrirlesturinn verður
fluttur á Ensku, og fjallar um
rannsóknir á nýtingu jarðhita í
Ungverjalandi.
(Frá Háskólanum).
síöustu fréttum segir, að for-
sætisráðherrann sé horfinn.
Allt símasamband frá Senegal
liefur verið rofið, og hafin rit
skoðun á öllum fréttum.
Upphaf málsins er það, að á
íöstudaginn var borin fram í þing-
inu í Senegal vantrauststillaga á
stjórn Mamadou Dias forsætisráð-
herra, en liún er sögð hafa svik-
ið öll heit sín, og einnig hefur hún
orðið fyrir hörðum ádeilum vegna
þess, að ekki hefur verið aflétt
neyðarástandi því, sem lýst var
yfir, þegar Senegal og Mali slitu
sambandi sínu fyrir tveimur árum.
Þegar hefja átti umræður um
vantrauststillöguna, kallaði Dia
íorsætisráðherra út lögreglulið og
hermenn og lét þá ganga inn í
þingsalinn, og vildi með því ráða
úrslitum atkvæðagreiðslunnar.
Einnig hindruðu lögreglumennirn
ir Lamine Guye þingforseta í því
að taka sér sæti í forsetastólnum,
er þingfundur átti að hefjast.
Hvarf Guye þá þegar úr þingsaln
um, og ók hann heim til forseta
landsins, Leopolds Senghore, til
þess að skýra honum frá því, sem
fram fór í þinginu. Þegar Guye
kom aftur til þinghússins var hon-
um meinað að ganga inn en hann
komst að lokum inn um bakdyr
hússins.
Um það bil 100 lögreglumenn
höfðu safnazt saman við þinghús-
ið, en síðar barst þeim liðsauki, og
öllum götum, sem lágu að þing-
húsinu var lokað.
Leopold Senghore forseti lét
þegar gefa fallhlífahermönnum
skipun um að halda til Dakar, en
þeir höfðu bækistöðvar í bænum
Thies, noklcra kílómetra frá Dak-
ar. Fallhlífahermennirnir áttu að
reka lögregluna og hermenn Dia
út úr þinginu, að því er scgir í
fréttum frá París.
Þar eð atkvæðagreiðsla um van-
trauststillöguna gat ekki farið
fram í þinginu leyfði forsetinn,
að fundur yrði haldinn á heimili
Guye þingforsetans, og þar fór
atkvæðagreiðslan fram, og var til-
lagan samþykkt með naumum
meirihluta.
Leopold Senghore forseti Sene-
gal er mikill keppinautur Dia í
stjórnmálum Senegal.
OánægðirmeðSÞ
NTB—Haag, 17. des.
Fjögurra manna nefnd
Papúana frá Vestur-Nýju
Guíneu gekk í dag á fund Jan
de Quay forsætisráðherra Hol-
lands, og fór þess á leit við
hann, að hann gerði það, sem
í hans valdi stæði til þess að
yfirráðin yfir Nýju Guíneu
yrðu falin Indónesíu strax
upp úr áramótunum.
i gerður var á milli Hollands og
! Indónesíu iyrir milligöngu Sam-
einuðu þjóðanna var ákveðið að
Sameinuðu þjóðirnar færu með
j stjórn eyjarinnar þar til 1. maí í
i vor, þegar Indónesía tekur við
stjórninni. Sendinefndin sagði
hins vegar, ag efnahag landsins
væri mjög farið að hraka undir
stjórn SÞ.
De Quay forsætisráðherra lýsti
því yfir, að SÞ bæru nú alla ábyrgð
á landinu og það eina, sem stjórn
Hollands gæti gert, væri að standa
Samkvæmt samningi þeim, sem við gerða samninga.
Dæmdar hæstu miska-
bætur
Framhald af 1. síðu.
lags íhaldsmanna og krata var
að _ bæjarstjóranum, Daní-
el Ágústínussyni, var fyrirvara
laust sagt upp starfi. Var það
gert 24. ágúst, 1960.
Voru í uppsagnarbréfinu
þungar sakir bomar á Daníel,
sem átylla fyrir uppsögninni.
Daníel neitaði qð víkja, en
brottvikning hans var staðfest
með fógetaúrskurði, sem gekk
31. sama mánaðar í gildi. En
í þessum sama fógetaúrskurði
voru sakargiftir þær, sem born
ar voru á Daníel, dæmdar dauð-
ar og ómerkar.
Svo harkalegar voru aðgerðir
íhaldsmanna og krata á Akra-
nesi, að þeir neituðu að borga
Daníel nokkurt kaup frá upp-
sögninni. Þessu vildi Daníel
ekki una, og 13. marz 1961
stefndi hann bæjarsjóði og
krafðist launa og miskabóta. —
Dómur gekk í undirrétti hinn
31. ágúst og var hann á þá leið,
að bæjarsjóður skyldi greiða
Daníel 120 þúsund krónur í
laun og 12 þúsund krónur í
málskostnað. Kröfu hans um
miskabætur var hins vegar hafn
að á þeim forsendum, að hér
væri um pólitískar aðgerðir að
ræða.
Venjulegur áfrýjunarfrestur
er 3 mánuðir, en með leyfi ráð-
herra er hægt að fá þann frest
lengdan upp í 9 mánuði. Bæjar
sjóður Akraness fékk frestinn
lengdan og það var ekki fyrr en
sjö mánuðir voru liðnir frá
dómi undirréttar, að áfrýjun
var send Hæstarétti. Gagná-
frýjaði Daníel þá.
Eins og fyrr segir, gekk dóm
ur í Hæstarétti í dag. Niður-
stöður hans eru í stórum drátt-
um þær, að Daníel voru dæmd-
ar 114 þúsund krónur í laun,
Gáfu Laos 10
flugvélar
NTB-Vientiane, 17. des.
Sovétríkin afhentu í dag
sa.msteypustjórninni í Laos
að gjöf eina þyrlu og 9
minni flugvélar. Við afhend
ingu vélanna sagði sendi-
herra Sovétríkjanna, að
stjórn hans dáðist að tilraun
um Laosstjórnarinnar til að
fylgja hlutleysisstefnu og
vinna að friðsamlegri sam-
búð og vináttu við alla.
Háseta saknað
BÓ—Reykjavík, 17. nóv.
í morgim leitaði rannsóknar-
lögreglan að háseta af m.s. Seley,
en hans er saknað frá því á sunnu
dagsnótt. Vitað er, að maðurinn
fór um borð í mótorbátinn Guð-
rúnu Þorkelsdóttur, sem lá við
Ægisgarð og fór þaðan einn síns
liðs kl. 3—4 um nóttina. Síðar
veittu menn því athygli, að stigi,
sem var reistur í Guðrúnu upp á
biyggjuna, hafði fallið niður í bát
inn. Reynt var að slæða hjá Guð-
rúnu í morgun, en það var ill-
mögulegt vegna veðurofsa. Háset-
inn af Seley er úr Borgarfirði
eystra, rúmlega hálffertugur. Hann
heitir Björn Þórarinsson.
25 þúsund krónur í málikostn-
að og 35 þúsund krónur í miska
bætur, en það munu vera hæstu
miskabætur, sem Hæstiréttur
hefur dæmt. Auk þess voru
Daníel svo dæmdir 8% vextir
frá stefnudegi. Eru málaferli
þessi því orðin Bæjarsjóði Akra
ness harla dýr, því enn er ótal-
inn ýmis kostnaður, s. s. laun
lögfræðinga, endurskoðunar-
kostnaður og fleira.
Hinar háu miskabætur sýna,
svo ekki verður um villzt.
hversu gersamlega tilefnislaus
brottvikningin var og að hún
var einungis af pólitískum toga
spunnin.
Blaðið átti í kvöld tal við
Daníel. Hann sagði: Ég vil lýsa
ánægju minni yfir því, ag end-
anleg niðurstaða skuli fengin
í þessu máli, eftir meira en
tveggja ára málaferli, og vænti
þess að þau vinnubrögð, sem
hér voru dæmd, geti orðið öðr
um sveitarstjórnum til viðvörun
ar.
Lögfræðingur Daníels, bæði
fyrir undirrétti og Hæstarétti.
var Sveinbjörn Jónsson, hrl., en
fyrir bæjarsjóð Akraness flutti
Áki Jakobsson hrl. málið fyrir
undirrétti. en Páll S. Pálsson
hrl., fyrir Hæstarétti.
T f MIN N , þriðjudaginn 18. desember 1962
3