Tíminn - 18.12.1962, Side 15
Ekkert grandar Hrefnu
Framhald af 1. síðu.
sfðar kóm Jón um borð og virtist
þar allt í lagi og lét eldinn lifa
í vélinni. Hann kom svo aftur að
bátnum upp úr miðnætti, en þá
var kviknað í lúkarnum.
Slökkviliðsmenn töldu brunann
ekki hafa stafað frá eldavélinni,
og skoðunarmaður Samábyrgðar
mun hafa látið í ljós, að þar væri
rafmagni til að dreifa, en starfs-
maður slökkviliðsins kvaðst þó
telja mjög óvarlegt að yfirgefa
bát, þegar kveikt hefur verið í
eldavél, því að kyndingarfrágang
ur væri yfirleitt lélegur.
Hrefna er tryggð hjá vélbáta-
ábygðarfélaginu Gróttu fyrir 1618
þúsund og 200 krónur og endur-
tryggð hjá Samábyrgð íslands á
fiskiskipum, en Tryggingamiðstöð
in sér um lausatryggingar.
Ólafur Valdimarsson hjá vél-
bátaábyrgðafélaginu sagði { dag,
að félagið hefði ekki beðið um
sjópróf vegna brunans, þar sem
beðið er eftir skýrslu eiganda.
Valgarður Kristjánsson, fulltrúi
borgardómara, vissi heldur ekki
til, að neinn hefði beðið um sjó-
próf vegna brunans.
Ólafur Valdimarsson sagði, að
skoðunarmaður Samábyrgðar
hefði talið líkur til að kviknað
hefði í út frá rafkerfinu, en blað-
inu tókst ekki að ná í skoðunar-
manninn í dag. Eftirlitsmenn
skoðuðu rafkerfi og kyndingar-
tæki í mörgum bátum í sumar,
en frágangur á þeim hlutum hef-
ur verið bágborinn. Blaðinu er
ókunnugt, hvort rafkefið í Hrefnu
hefur verið rannsakað nýlega.
Fingurgull
Framhald ai 16. síðu
segir til um eigandann. Nú vakna
þessar spurningar:
Var Magnús Benediktsson með
þennan hring á fingri sér hina ógn
þrungnu haustnótt, þegar hann
kyrkti eða kæfði Guðrúnu frá
Úlfá? Rann hann kannski fram af
fingri hans, þegar hann var að
basla við að troða steininum upp
í líkið?
Sennilegt er, að Magnús hafi
týnt hringnum við ána og hún síð-
an skolað honum á þann stað, sem
hann fannst á eftir nálega tvær
aldir. Auðvitað gat það hafa gerzt
við annað tækifæri, því að oft mun
Magnús hafa verið drukkinn og
lítt kunnandi fótum sínunl forráð
á ferð um framsveitir Eyjafjarðar.
En freistandi er aft tengja þetta
'lvennt saman, endalok Guðrúnar
og hringinn, sem fannst í Eyja-
fjarðará um þrjátíu kílómetrum
neðan við Úlfá. Ennfremur má
geta þess, að Magnús týndi þessa
sömu nótt yfirhöfn sinni, og
fannst hún morguninn eftir í Úlf-
ártúni. Þannig gat engum dulizt,
hvernig dauða stúlkunnar hafði
borið að höndum.
Notið sóninn
Framhaid af 16. síðu
að nota sóninn strax og
hann kemur og hanga ekki
með són að óþörfu, en hver
sem fær sóninn heldur einu
sjálfvírku tæki uppteknu,
en hvert þeirra á að sinna
mörgum númerum.
Svikahrappur
Framhald af 16. síðu
sjúkur maður, en ætti ekki fyrir
meðulum. Hét hann Jón, Sigurður
eða Matthías, eftir því, hvað hon-
um fannst bezt henta. Fólk er hér
eins og annars staðar komið í jóla-
skap og mun manninum hafa orð-
ið þó nokkuð ágengt. Meðal ann-
ars kvaddi hann dyra hjá Garðari
skipstjóra á Höfrungi II. Garðar
var ekki heima, en kona hans tók
á móti komumanni. Ætlaði hún að
sjá aumur á honum, sem fleiri,
og brá sér inn til þess að sækja
aura, sem hún ætlað’i að lána hon-
um. Maðurinn kvaðst heita Jón,
er hann bar þar upp erindið.
Úti við dyrnar varð eftir dóttir
Eiginkona mín,
MATTHILDUR GUÐMUNDSDOTTIR,
sem andaSist aS Hrafnistu 11. þ. m., verSur jarSsungin í Fríkirkj-
unni (ekki í Dómkirkjunni, eins og áSur var auglýst) föstudaginn
þ. m„ kl. 10,30 árdegis. Athöfninni verSur útvarpaS. JarSsett
verSur í Fossvogskirkjugar'ði.
Fyrir mína hönd, barna og tengdabarna,
Kristján Helgason.
Hjartkaer sonur okkar,
V I Ð A R ,
sem andaSist í Bæjarspítalanum 10. þ. m. verSur jarðsunginn frá
Dómkirkjunni 19. þ. m. kl. 10,30 f.h. — Blóm vinsamlegast afþökkuS,
en þeim, sem vildu minnast hans er bent á StyrktarsjóS vangefinna.
ÞuríSur Björnsdóttir
Andrés Kr. Hansson
Skeggjagötu 25.
'Hjartkær eiginmaSur minn og faSjr,
INGIMUNDUR HALLGRÍMSSON
Litla Hvammi, GoSheimum 12, andaSlst aS heimili sínu 15. þ. m.
JarSarförin ákveSin siSar.
Þorbjörg Bjarnadóttir og dætur.
Hjartanlegar þakkir færum viS öllum fjær og nær fyrir auSsýnda
samúð viS andlát og jarSarför konu minnar og móSur okkar,
HULDU MAGNÚSDÓTTUR
Magnús Björnsson og börn,
Hnausum A.-Húnavafnssýslu.
Innilegar þakkir fyrir auSsýnda samúS og vinarhug viS andlát og
jarðarför
JÓNS SIGMUNDSSONAR
Sigriður Guðmundsdóttir og börn.
Þökkum af alhug öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð og hlut.
tekningu við fráfall og jarðarför
KRISTJÁNS ÞORSTEINSSONAR
Meiri-Tungu.
Þórdís Þorsteinsdóttir Ragnar Marteinsson
ÞórSur Þorsteinsson GuSmar Ragnarsson
Þórunn Ragnarsdóttir.
Garðars, og spurði hún manninn’
aftur að nafni, meðan móðir henn
ar skrapp inn. Þá kvaðst hann heita
Sigurður. Þetta fannst stúlkunni
kyndugt og spurði móður sína,
hvernig maðurinn gæti bæði heit-
ið Jón og Sigurður. Móðurina grun-
aði nú einnig, að ekki væri allt
með felldu og hætti við að lána
peningana.
Fór nú að spyrjast út háttalag
mannsins. Herbergi hafði verið
pantað fyrir hann á hótelinu hér
og var nú hótelstjórinn beðinn um
að kyrrsetja farangur mannsins,
þar til hann hefði gert fullnægj-
andi grein fyrir hátterni sínu. Um
kvöldið kom hann þangað í leigu-
bíl. Sagði hótelstjórinn honum þá,
að hátterni hans þætti grunsam-
legt. Forðaði maðurinn sér þá hið
bráðasta brott í leigubilnum. í
morgun náðist hann svo uppi í
Borgarnesi og var fluttur hingað.
Hann var hvergi fús að segja til
sín fyrir réttinum, mun þar hafa
verið bæði úr Reykjavík og norð-
an úr Húnavatnssýslu.
Frá Alþingi
Til Alsír...
Framhald af 16. síðu
bandaríska hjálparstofnun. Vinnur
hún þar á barnadeild, sem rúmar
um 70 börn. Eiginmaður hennar,
Elías hefur nú þegar hresstst svo,
að hann er farinn að starfa við
sömu stofnun.
Regína og Elías eru barnlaus.
Þau kunna mjög vel við sig í Al-
geirsborg, en óvíst er, hvað þau
dveljast þar lengi, að líkindum þó
ekki skemur en ár.
Framhald af 6. siðu.
Ingólfur Jóns
son samgöngu-
málaráðherra
las nú upp úr
skýrslu, sem
hann sagði eft-
ir ráðuneytis-
stjóra sinn og
í skýrslunni
sagði, að líta
yrði svo á, að
heimild hafi
verið fyrir hendi til lántökunnar.
Það væri Framkvæmdabankinn,
sem tekið hefði lánið og til væri
í lögum um bankann heimildir til
handa honum um lántökur og enn
fremur að ríkissjóður ábyrgðist
lántökur bankans. Framkvæmda-
bankinn endurlánaði svo annarri
rikisstofnun, vegagerðinni lánið og
yrði að líta svo á, að ekki þurfi
sérstaka heimild til þess að ríkis-
stofnun megi taka lán hjá ann-
arri ríkisstofnun og þar sem rík-
issjóður hefði gefið Framkvæmda
bankanum almenna lántökuheim-
ild og gengið í ábyrgð fyrir hann
yki þessi lántaka ekki skuldbind-
ingar ríkissjóðs. — Ingólfur Jóns-
son sagði málið augljóst eins og
kæmi fram í þessari skýrslu og |
það væri þv{ misskilningur Ey-
steins, að verið væri í einhverjum
feluleik með málið. Þá beindi Ing
ólfur því til Eysteins, að hann
ætti ekki að vera að karpa um
svona atriði, þar sem hann væri
ólögfróður, en skýrslan eftir góð-
an lögfræðing.
Kýpur sækir um
aukaaðilc!
NTB-París, 17. des.
Kýpur, sem er í brezka
samveldinu, tilkynnti Heath
efnahagsbandalagsráðlherra
Breta í dag, að stjórn lands
ins hefði ákveðið að sækja
um aukaaðild að EBE. Verð
ur umsóknin um aukaaðild
lögð fram n. k. þriðjudag
eða miðvikudag.
Rollershaver 110x220 v.
Kr. 1129,—
Roll-a-Matic 12—220 volt
Verð kr. 1739,—
Viðgerðir og varahlutir
PENNAVIÐGERÐIN
Vonarstræti 4
Sími 10207
Eysteinn Jónsson sagði fjármála
ráðherra nú hafa útvegað sér
skjaldsVein af betra taginu til að
verja sig. Sagði hann að þær skoð
anir, sem fram hefðu komið varð-
andi lánsheimildina væru stór-
furðulegar og í rauninni skiljan-
legt af hverju fjármálaráðherra
vildi heldur láta Ingólf túlka þess
ar skoðanir, en samkvæmt þeim
geta ríkisstjórnin og Fram-
kvæmdabankinn hvenær sem er
tekið lán og ráðstafað því í fram-
kvæmdir á vegum ríkisins án
þess að leita nokkurra heimilda
frá Alþingi, þar sem í lögum er,
að Framkvæmdabankinn megi
taka lán og ríkið ábyrgjast skuld-
ir hans — og þetta væri allt í
lagi, því að það yki ekkert skuld-
bindingar ríkissjóðs — þótt ríkis
sjóður eigi þó að greiða lánið. Ef
ríkisstofnunum er heimilt án þess
að Alþingi sé um það spurt, að
taka lán hjá annarri ríkisstofnun,
getur hvaða ríkisstofnun sem er
tekið lán t. d. hjá Seðlabankanum,
sem er ríkisstofnun, og ráðstafað
fénu { framkvæmdir án þess að
leita leyfis áður. Það eru horn-
steinar í okkar stjórnskipun, að
Alþingi ákvarði fjárveitingar og
lántökur ríkisins, en lántökur rík-
isins eru ekkert annað en fjár-
veitingar fyrir sig fram og afborg
anir af lánum koma svo til ríkis-
útgjalda. Þetta eru stærstu mál
Alþingis og kannski finnst ráð-
herrum það vera orðinn hégóminn
helber að vera að spyrja Alþingi
um þessi mál, Sagði Eysteinn fróð
legt að fá að vita það, hvort fjár-
málaráðherra hefði sömu skoðan-
ir á þessum málum og þær, sem
Ingólfur Jónsson hefði verið að
túlka.
Ráðherra sat sem fastast og
var umræðunni lokið og atkvæða
greiðslu frestað.
Aki* Siáif »kið ýA,
"wjum bíl SJALF
AJmenns nlfreiðalelgan h.t Hrlngbram Klfi — Siml 1513 NÝJUM BU
*LM KIKKKIÐALEIGAN
Keflavík Klapnarstig 40
SÍMI 13776
VERKAMENN
j VÍNGARÐI
eftir Guðmund Daníelsson
Tuttugu og átta samtöl við
menn af öllum stéttum, þ.á.m.
þjóðkunna menn eins og Bjarna
á Laugarvatni, sr. Sigurð í
Holti, Sigurð Ó. Ólafsson alþm.,
sr. Árelíus Nielsson, Gunnar
Dal skáld, dr. Stefán Einarsson
o.fl. o.fl.
Páll V. G. Kolka scgir um
þessa bók'í Mbl. (13. des.)
„Þegar maður situr á hús-
tröppunum heima hjá sér og
horfir út á þetta markaðstorg,
upplýst neonljósum skammdeg-
isins, þá er hressandi að sjá
þar á ferð menn, sem ekki
vekja á sér sérstaka athygli
með hjákátlegum tilburðum,
lieldur af því að þeir eru meiri
að vallarsýn og liafa heilbrigð-
ara yfirbragð en allur fjöld-
inn. Slíkur maður er skáldið,
rithöfundurinn og skólastjór-
inn Guðmundur Daníelsson.
Það er eitthvað hraustlegt og
hressilegt við allt, sem hann
lætur frá sér fara, hvort sem
það eru persónurnar, sem hann
hefur sjálfur skapað í sögum
sínum, raunverulegar mann-
eskjur, sem liann hefur birt
viðtal við í blaði sínu, Suður-
iandi, eða amerískir athafna-
menn, sem haga sér eins og
drengir á fermingaraldri. Þessa
tvo síðari flokka hefur hann
tekið til meðferðar í síðustu
bók sinni, Verkamenn í Vín-
garði, en það nafn er mjög vel
valið, þvi að hér er eingöngu
um það fólk að ræða, sem er
eða verið hefur vinnandi að
margvíslegum störfum, en ekki
bara verið kynjablóm í gras-
garði mannlífsins. Þetta er
engu að síður merkilegt fólk,
með margsháttar reynslu og
mismunandi lífsviðhorf, sem
fróðlegt er að kynnast."
„Það, sem ég vildi sagt hafa
umbúðalaust, er það, að þessi
bók Guðmundar vex að gildi
eftir því sem árin líða, þvl að
hún verður allmerkilegt heim-
ildarrit um starf manna og
hugsunarhátt, er tímar fram
líða.“
Bókin er prýdd fjölda mynda.
Verð kr. 220,00.
Bókaverzlun
ísafoldar
TÍMINN, þriðjudaginn 18. desember 1962
15