Tíminn - 20.12.1962, Blaðsíða 1
(QjE>
BÖKPHflRVÖRUR
H EI LDSÖLU BIRGÐIR
SKIPHOLT HF SÍMI23737
f
Flokksþing 7. marz
Ákveðjá hefur veriS að
13. flokksþing Framsóknar
manna komi saman í
Reykjavík 7. marz næst-
komandi. Kjósa ber full-
trúa til flokksþingsins eft-
ir sömu reglum og gilt hafa.
Flokksþing Framsóknar-
manna eru haldin fjórða
hvert ár að minnsta kosti.
Síðásta flokksþing var
haldið í marz 1959.
Flokksþingin marka
stefnu flokksins og úrræði
í öllum höfuðmálum.
Áríðandi er að hvert ein-
asta félag Framsóknar-
manna í landinu noti rétt
sinn til að senda fulltrúa á
flokksþingið.
SAS neitaS um að
fíjúga yfír Síberíu
NTB—Stokkhólmi, 19. des.
Það hefur vakið mikla undrun
nianna, að því hefur verið lýst
yfir í Rússlandi, að SAS fái ekki
leyfi yfirvalda þar til að fljúga
yfir Síbcríu á flugleið Norðurlönd
— Tokíó. Það var A.F. Loginov,
herforingi, yfirmaður flugfélags-
ins Aeroflot, sem lýsti þessu yfir á
fundi með hlaðamönnum í Moskvu.
Hann sagði að Rússar yrðu að
neita SAS um fyrirhugað flug frá
Nor'ðurlöndum beint yfir rúss-
neskt land til Tokíó. Talsmaður
SAS sagði í dag, að þetta væri í
hæsta máta undarleg neitun, þar
sem ekki hefði verið sótt um það
Framh. á 15. síðu
FRAMSÓKNARMENN FLYTJA TILLÖGU í BORGARSTJORN UM BRÁÐABIRGÐALÁN
15 MILUÓHIR KR. TIL AÐ
ÚTRÝMA HERSKÁLAÍBÚÐUM
TK-Reykjavík, 19. des.
f dag guggnaði ríkisstjórn-
in loks alveg i deilunni um i
heimildina fyrir láninu í Kefla 1
víkurveginn og ákvað að
hætta hinum sérstæða felu-,
leik með lánið. Lét hún fjár-i
veitinganefnd bera fram til-
lögu um það í kvöld, að Al-1
þingi veitti ríkisstjórninni'
heimild til ailt að 70 milljón
króna lántöku til Keflavíkur-
vegar.
Eins og kunnugt er af fréttum
i blaðinu stóðu fyrir fáum dögum
allharðar deilur um það á Alþingi
milli Eysteins Jónssonar og fjár-
mála- og samgöngumálaráðherra,
hvort heimild væri fyrir töku þess
lánsfjár, sem varið hefði verið til
vegarins. Deildi Eysteinn fast á
ríkisstjórnina fyrir framkomu
Framh á 15 síðu
Fundin hefur verið upp lítil fisksjá i Rússlandi, og hefur nú nýlega verið reynd með góðum árangri vlð Kolsk-
skaga. Fisksjá þessi hentar vel i iitlum trllium þegar róið er á handfærl, enda er fyrirferð tækisins ekkl mikil.
Myndin hér að ofan sýnir rússneska tæknimenn vera að prófa tækið, sem er hið meðfærilegasta.
Hljóp logandi upp á
JK-Reykjavík, 19. des.
1. vélstjóri á aflaskigMnu Ólafi
Magnússyni EA-250 brenndist iila,
er kvikmaði í vélarrúmi skipsins
á ytri höfninni í Reykjavík í gær-
kveldi.
SkýMð hafði farið út á ytri höfn
i.na til vélarstil'lingar. DálítiII sjór
Var, og er skipinu var beygt snögg
lega, fór olíufata á stað í vélar-
rúminu. Olían slettist upp úr
henni, bæði á vél'inia og á Jóhann
Guðmundsson vélstjóra, sem ætl-
aði að haindsama fötuna. O'Iían
fuðraði skyndilega upp og eldur-
inn læsti siig í föt Jóhanns.
Jóhann hljóp logandi upp úr
vélarrúminu til þess að losa sig
við fötin, en skaðbrenndist áður.
Þrjú slökkvitæki voru um borð í |
Olafi Magnússyni og tókst fljót-
lega að ráða niðurlögum eldsins
í vélarrúminu, áður en skemmdir
yrðu miklar.
Um leið óg skipverjar urðu eids
ins varir, var siglt á fullri ferð til
hafnar. Jóhiami var fluttur í sjúkra
bíl i Slysavarðstofuna og sfðan í
sjúkrahús. Líðan hans þar var
þegar síðast fréttist ekki góð, oig
er reiknað með meira en mánað-
ariegu. Jóhann ætlaði í dag heim
til Akureyrar í jólafrí.
Reykjavík, 19. des.
Fulltrúar Framsóknar-
manna í borgarstjórn Reykja-
víkur hafa lagt fram breyting
artillögu við fjárhagsáætlun
borgarinnar, sem verSur af-
greidd á borgarstjórnarfundi
á morgun. Þar er lagt til, að
Reykjavíkurborg taki fimm-
tán milljóna króna lán til þess
að útrýma herskálahúsnæði í
höfuðborginni.
Óþarft er að fjölyrða um það,
hversu Ijótur blettur herskálahús
næðið er á höfuðborginni. Hús-
næði það, sem er í bröggunum
svonefndu, er j flestum tilfellum
svo heilsuspillandi, að það er langt
frá því að geta talizt hæfir manna
bústaðir.
Oft hefur verið um braggana
rætt og fyrir hverjar borgar-
stjórnarkosnmgar eru allir flokkar,
íhaldið ekki undanskilið, sammála
um það, að brýna nauðsyn beri
til þess að útrýma þeim og tryggja
íbúum þeirra mannsæmandi hús-
næði. Efndirnar blasa við augum
borgarbúa. Enn búa á anna'ð hundr
að fjölskyldur í bröggunum og á
framfæri þeirra eru um þrjú
hundruð böm.
Ekki ætli að þurfa að fjölyrða
um þau óheppilegu uppeldisáhrif
sem braggarnir hafa. Kemur þar
hvort tveggja til: Hið ömurlega
umhverfi, oft á tíðum lélegur um-
gangur um braggahverfin annars
vegar og hins vegar sú minnimátt
arkennd og reiði út í samfélagið,
sem glósur og aðkast frá öðrum
Framhald á 15. síðu.
í blaði II er efni sem hér
segir:
Bls. 4 íþróttafréttir
Bls. 5 Tíu daga fjallaferð.
Bls. 8 Lithi jólin í Mela-
skóla.
Bls. 1U—11 Smáscgur