Tíminn - 04.01.1963, Síða 16

Tíminn - 04.01.1963, Síða 16
Föstudagur 4. janúar 1963 2. tbl. 47. árg. Yfir 10 þús. lend- Ópelbflarnir í Happdrætti Framsóknarflokksins komu á þessi númer: Nr 36563 Hvítur með bláum toppi. Nr. 37642 Blár með hvítum toppi. í stað hvors bílsins sem er getur vinningshafi fengið FARMAL-dráttarvél með sláttuvél, ámoksturs- tækjum og öðrum tækjum eftir vali fyrir samtals 180. 000.90 krónur. Skrifstofan er í Tjarnargötu 26, sími 12942. KB-Reykjavík, 3. janúar. ÁRIÐ 1962 lentu samtals 10.452 flugvélar á Reykjavíkurflugvelli. Af þessum lendingum urSu 9.102 vegna innanlandsflugs, en 1350 í millilanda flugi. Samsvara þessar tölur því, að lent hafi að meðaltali nálægt 28,6 vélar á flugvelllnum dag hvern á árinu. Er hér miðaö við magn flug- véla, þ. e. lokalendingu hverrar vél- ar, en tölurnar yrðu tll muna hærri, ef millilendingar væru taldar með. Þessar lendingar skiptast á flug- vélagerðir sem hér segir: farþega- vélar í innanlandsflugi lentu 4248 sinnum og einka- og kennsluvélar 4621 sinni. Hervélar í innanlands- flugi gerðu 133 lendingar. í milli- landaflugi lentu 1337 almennar vél ar og 13 hervélar. í skýrslum flugumferðarstjórnar innar, þar sem þessar tölur koma fram, er einnig getið um, hversu flugtök og lendingar á Reykjavík- urflugveili skiptast niður á sólar- hringinn. Er umferðin mest um miðjan daginn og nær hámarki (Framhald á 15. síðu). NONNI MARGVÍSI É HAFNARFIRÐI 1 RÓ—Reykjavík, 3. jan. Hvaða hundur er það, sem þess nr fríðleikskonur láta svo vel að, l spurðuni við ljósmyndara okkar, í þegar liann kom með þessa mynd, j sem hann kvaf'st hafa tekið í fé- , iagsheimili skáta í Hafnarfirði. Ljósmyndarinn sagði, að þctta væri sporhundurinn Nonni og þef- vís með afbrigðum. Nonnj er i umsjá hjálparsveit-j ar skáta í Hafnifirði Hann kom j með Loftleiöavél frá New York á | 1 gamlársdag og var skýrður við komuna til minningar og heið'urs Jóni heitnum Guðjónssyni, skáta- foringja í Ilafnarfirði, sem gætti cg menntaði sporhund flugbjörg- unarsveitarinnar í Reykjavík og vann að því, að þessi hundur yiði keyptur í stað hins. Nonni er blóð- hundur, æít.aður úr Washington- fylki. Reykjavíkurborg lagði 16 þúsund til kaupa hans og fleiri aðilar lögðu fram fé, en Nonni er af góðum ættum og var ekki falur fyrir lítið, slíkur kjörgiipur sem hann er. Gottfred Bernhöft í Rvík hafði milligöngu um kaupin á Nonna, sem er þriggja ára gamall og uppalinn í þekktri stofnun. Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði mun sjá um framfærslu Nonna, en Loftur Bjarnason forstjóri hefur heilið öllu því kjöti, sem hann vill eta. Páll A. Pálsson, yfirdýralækn- ir. mun líta eftir heilsu hans og aðbúnaði. Nonni verður svo reiðu búinn til þjónustu þegar með þarf, og skulu hlutaðeigandi snúa sér til Lögregtunnar í Hafnarfirði, Eeykjavík, Slysavarnafclags ís- lands eða Flugbjörgunarsveitar- innar. — (Ljósm.: Tíminn-RE) AÐSKOTAHLUTiR SKEMMA VÉLAR OG TEFJA VINNSLU J_■ t_i___:_________;_J_:_;_k._!_ KÚBEIN, lestarborð og SKÓFLUR í MJÖLVINNSLU KB-Reykjavík, 3. jan. Þa3 er fleira en síld og aðrar sjávarskepnur, sem síldar- og fiskimjölsverk- smiðjum landsins berst til vinnslu. Með fylgja ósjald- an ýmiss konar munir og varningur, sem greinilega eiga uppi’una sinn á þurru landi. Meðal slíkra aðskotadýra má nefna kúbein, útsláttarjárn, lykkjur, lása, lestarborð, jafn- vel skjólborð af vörubílum, stingi og skóflur svo að eitt- hvað sé nefnt. Þegar togarar leggja upp, má eiga von á flestu úrgangsdrasli frá þeim í þeim afla, sem fer í bræðslu, t. d. vírsplæsingum, rifrildi úr vörp unni og öðru, sem til fellur. Segja forráðamenn fiskimjöls verksmiðja, að stundum sé engu líkara en að bræðsluafl- inn sé notaður sem öskuhaug- ur fyrir flest, sem fleygja skal. Veldur þetta flestum, ef ekki öllum verksmiðjum meira og minna óhagræði og tjóni, eink um þeir hlutir, sem minna fer fyrir og komast iðulega inn í vélakerfið og valda á því skemmdum og stundum tíðum og langvinnum vinnslustöðvun um. Blaðinu barst í dag bréf frá Árna Gíslasyni, verkstjóra í Lýsi og Mjöl í Hafnarfirði. Get ur hann þess þar, að þá þrjá sólarhringa, sem unnið var í verksmiðjunni milli jóla og nýjárs, hafi aðskotamunir ým- iss konar valdið alls þrettán klukkutíma algerri vinnslu- stöðvun í verksmiðjunni, en auk þess tekur alltaf nokkurn tíma að koma vélakerfinu aftur í gang og samstilla það, svo að töfin er alls talsvert meiri en þessar þrettán stundir. Þeg ar eins stendur á og víða nú, að afli er svo mikill, að tregða er á löndun, geta slíkar óþarf- ar stöðvanir úrvinnslutækjanna haft í för með sér enn lengri löndunarbiðir og aflamissi af þeim sökum og er þá orðinn vafasamur hagnaður bátunum að gæta þess ekki betur, að það hráefni, sem fer til bræðslu, sé bræðsluhæf vara. Framhald á 15. síðu. | MYNDIN SÝNIR þá íwuni, sem fylgt hafa með hráefni til verksmiðjunnar Lýsi og Mjöl í Hafnarfirði og hafa valdiS þar stórtöfum. jflHM———BBBBMmmMiiaNiWíiKSBgaHBCi^—t (Ljósm.: Ami Gíslason). iMmmmammm

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.