Tíminn - 19.01.1963, Síða 13

Tíminn - 19.01.1963, Síða 13
m BiNGÓ BINGÓ BINGÓ í Glaumbæ sunnudagskvöld 20. janúar kl. 8,30. — Aðgöngumiðar seldir í Tjarnargötu 26. Sími 12942 — 15564. Spilaðar 12 umferðir Margir stórglæsilegir vinningar. Þar á meðal 10 þús. kr. vinningur í Húsgögnum eftir eigin vali. DANSAÐ TIL KL. 1 FULLTRÚARÁÐ FRAMSÓKNARFÉLAGANNA í REYKJAVÍK. 2. síðan svörnustu fjandmenn hans þorðu ekki að halda fram, að væru ástasambönd að einhverju leyti. | Var einmanaleiki Freuds hon-[ um sjálfum að kenna í bók' Mombergs, sem bæði fjallar um vini Freuds og óvini, er gefið í s'kyn að ástæðuna hafi verið að finna hjá Freud sjálfum. En margt annað getur auðvitað komið til greina. Það má ekki gleyma því, hve mikla ást hann hafði á sannleikanum. Það kom illa við marga, að lesa niðurstöð- urnar af rannsóknum hans, en þær eru skrifaðar án tillits til les andans, án tillits til siðferðis- legra hleypidóma. Hann var mik- ill stílisti og setur kenningar sínar mjö-g skilmerkilega fram. Fyrst þegar samstarfsmenn hans settu.út á verk hans frá siðferð- islggjj sjónarmiði, varð Freud undrandi. í næsta skipti vissi hann við hverju mátti búast, en hann breytti skoðunum sínum í engu fyrir það. Síðustu æviár Freuds voru stöðugur bardagi við veikindi. Hann fékk krabba í munnvikið, og var skorinn upp hvað eftir annað. Þar ofan á bættist, að hann vildi ekki gera sér ljóst, að Austurríki mundi verða hertekið af nazistum, og var þar kyrr, þangað til of seint var að fara úr landi. Það var Maríu Bonaparti að þakka og peningum hennar, að hann komst til Englands, en það varð ekki fyrr en Anna dótt- ir hans hafði verið handtekin og yfirheyrð af nazistum. í Eng- landi var tekið á móti honum sem miklum manni, og honum' var komið vel fyrir. Honum var úlvegaður einkalæknir, og hann lofaði að hjálpa Freud, ef þján- ingarnar væru óumberanlegar. Og við það stóð hann. Þann 21. desember árið 1939 minnti Freud lækninn á þetta loforð, og næsta dag fékk hann morfíns- sprautu og vaknaði ekki til lífs- ins framar. Ævisaga Freuds er ævisaga einmana manns, sem fyrst varð frægur, þegar hann var orðinn fárveikur og hafði orðið fyrir of miklum vonbrigðum til að geta notið þess. Hann bar þjáningar sínar með stakri ró, vildi ekki heyra minnzt á meðaumkvun og kvarlaði aldrei. Einhvern tíma sagði hann, að þar sem hann tryði á engan guð, væri enginn. sem hann gæti ásakað. Var hann taugaveiklaður? Já, það má reikna með því, en svarið við þeirri spurningu hefur ekki svo mikið að segja. Það er mikil- vægara að líta á það, að þetta var maður, sem ekki einungis hafði ómetanlega mikið að segja fyrir alla fræðina, heldur hefur ■BMHBl / hann einnig stuðlað að því, að nú á dögum lalar fólk um hluti, sem áður var ekki sæmandi að hugsa um. Maðurinn, sem kom þessu til leiðar var enginn venju- legur maður. Hæfileikann til að losa sig við hleypidóma samtíð- arinnar og hið mikla hugmynda- flug, sem liggur á bak við kenn- ingar hans er alveg einstætt. Sumar af kenningum hans geta verið draumórakenndar, en við getum venjulega ekki gengið fram hjá kjarnanum. Íþróttir sambandi. — Væri þaið í hæsta máta spaugilegt, ef frekari deilur stæöu um þetta mál — 'Valbjörn keppir ekki fyrir ÍR á næstunni og lítill hagur væri það fyrir ÍR, að vilja meina honum að keppa með öðru félagi. — Og höf- um við það m.a. eftir áreiðan legum heimildum, að ÍR hygg ist efna til kveðjusamsætis fyrir Valbjörn — þannig að ekki verður séð, að ÍR-ingar beri neinn sérstakan óvildar- hug til Valbjarnar. —alf. Víðivangur sögulog staðreyiid, að bara einu sinni í sögu Sjálfstæðis- fiokksiiiis hefur það skeð, a'ð foringjar hans hafa talið haig atvinnuveganna svo blómleg- an, að hækka mætti almennt kaupgjald, og þetta sögulega undur. skeði í stjórniartíð Her- manns Jónassonar 1958. Fyrir þann tíma og eftir hef- ur þetta ekki verið hægt að þeirra dómi. Kauphækkanir hafa verið knúðar fram af sam- tökum launafólks í andstöðu við blöð og foringja Sjálfstæð- isflokksins. Allra sízt má hækka kaupið nú að dómi „við- reisnarforimgjanna.“ Með þessu hafa forkólfar flokksins í verki slegið því föstu, að aldrei hafi betur ver- ið stjórnað en í tíð vinstri- stjóruarinnar. (Þjóðólfur). Þingmálaglefsur Framhald af 6. síðu. um frá 1960 — en þetta gjald lagði viðreisnarstjórnin á þær vörur, sem líta mátti á scm svokallaðar lúxusvörur — eða þær vörur, sem taldar cru minna nauðsynlegar en þær sem undanþegnar eru gjaldinu. Hugtak eins og lúxusvörur lilýt ur hins vegar ætíð að vera laust í reipunum og tekur sí- felldum breytingum með þróun og framvindu. — f frumvarpi þeirra Þórarins og Halldórs er ekki gengið lengra en að leggia til að innflutningsgjaldið frá 1960 verði niðurfellt. Ef frum- varpið' nær fram að ganga á þinginu myndi það hafa í för með sér, að þvottavél, sem nú kostar kr. 19.200 myndi kosta 14.200, og kæliskápur, sem nú kostar 18.200 myndi kosta 13.500. Þrátt fyrir þessa verð- lækkun myndi samt verð þess ara véla verða talsvert hærra en það var 1958, en þvottavél, sem nú kostar kr. 19.200 kost aði þá 13.100 og kæliskápur, sem kostar nú ki\ 18.200, kost að'i þá kr. 12.000. Reynir nú á, hvort stjórnar liðið vill halda áfram „viðreisn argjaldinu" á þessimi nauðsyn legu tækjum heimilanna í landinu. Kjarnorkuvopn Framhald af 7. síðu. ríku, en ekki að ýta kjarnorku- vopnum inn á svæði, þar sem mikil spenna ríkir. Ég vil benda Macmillan á að takmarka umræðurnar um inngöngu í Efnahagsbandalag- ið við efnahagsleg atriði, sem því er ætlað að fjalla um. Láta svo brezku þjóðina dæma, þeg- ar umræðurnar eru um garð gengnar og skilyrðin kunn. Fjárhættuspil með efpahags- legt öryggi landsins og Sam- veldisins hlýtur að' hefna sín við kjörborðið. fhaldsstjórnin ætti ekki að bæta gráu ofan á svart í spilamennskunni með því að leggja heimsfriðinn í borð^ í viðbót. Framseljum aldrei — (Framhald aí 9. síðu.) sjálfstæði þjóðarinnar er ein- mitt sú orkulind, sem hún hef- ur sótt í þrótt og stórhug til þeirra afreka, sem þegar hafa verði unnin í áppbyggingu þessa lands. Framsóknarflokk- urinn á rætur sínar í þeim fé- lagsmálahreyfingum, sem í upphafi þessarar aldar blésu þjóðinni í brjóst trú á land sitt og á sjálfa sig og gáfu henni sjálfstraust til þeirrar sóknar sem síðar hefur orðið i atvinnumálum og sem Fram- sóknarflokkurinn hefur átt drýgstan þátt í að móta. Hann einn hefur aldrei hvik- að í trúnni á möguleika lands “g þjóðar, á möguleika okkar fslendinga til að lifa farsælu 1 ífi í eigin landi, efnalega og mdlega sjálfstæð þjóð. Einn ís- lenzkra stjórnmálaflokka geym ir hann þá þjóðlegu arfleifð, sem íslendingum er nauðsynleg kjölfesta í ólgusjó alþjóðamála. Aðeins sigur hans í Alþingis- kosningunum á komandi sumri getur tryggt það, að snúið verði inn á þjóðlegar brautir í at- vinnumálum okkar og samskipt um okkar við aðrar þjóðir. Að næsta kjörtímabili liðnu kann þag að vera of seint. Helgi Bergs. 16 mm filmuleiga Kvikmyndavélaviðgerðir Skuggamyndavélar .Flestar gerðir sýningarlalnpa Ódýr sýningartjöld Filmulím og fl. Ljósmyndavörur Filmur Framköllun og kópering Ferðatæki (Transistor) FILMUR OG VÉLAR Freyjugötu I' Sími 20235 Innréttingar Smíðum eldhúss- og svefn- herbergisinnréttingar Sími 10256. Hlutavelta í Listamannaskáianum í dag kl. 2 er hlutavelta í Listamannaskálanum. Engirrn núll — Ekkert happdrætti — Enginn aðgangseyrir. Knattspyrnufélagið FRAM. Selfoss og nágrenni „Ekki barátta við blóð og hold" nefnist erindi, sem Svein B. Johansen flytur í Iðnaðar- mannahúsinu, súnnudaginn 20. janúar kl. 20,30. Garðar Kortes og Birgir Guð- steinsson syngja einsöng og tvísöng. Allir velkomnir. I N N, laugartíagur 19. janúar 1963.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.