Tíminn - 26.01.1963, Síða 3
FYRSTA THALIDOMIDE-
MÁUD í Þ ÝZKALANDI
MIKIÐ hcfur verið rætt og
ritað um svefnlyfið thalidom-
ide að undanförnu, en eins og
kunnugt er, komust læknar að
þeirri niðurstöðu, að neyttu
vanfærar konur lyfsins gæti
það haft þær afleiðingar að'
bámið fæddist vanskapað. —
Fjöldi barna munu hafa fæðzt
meira eða minna vansköpuð af
þessiun sökiun, en nú hefur
læknum verið bannað’ að gefa
lyf þetta nema í sérstökum til-
fellum.
Litli snáðinn á myndinni heit
ir Uwe Sempf, og hann er að-
eins 16 mánaða gamall. For-
eldrar hans hafa höfðag skaða-
bótamál gegn Ohemie Grunthal,
fyrirtæki því í Vestur-'Þýzka-
landi, sem framleiðir thaíidom-
ide. Krefjast þau 30 þúsund
' marka (um 325.000 ísl. kr.),
vegna vansköpunar drengsins.
Þetta er fyrsta málið þessarar
tegundar í Vestur-Þýzkalandi,
og hófust réttarhöldin í Ham-
borg 23. janúar s. 1.
Alls munu liggja fyrir á
fimmta þúsund kærur foreldra
á hendur Chemie Grunthal,
vegna þess að börn hafa fæðzt
vansköpuð eftir að móðirin
hefur neytt thalidomide.
Uwe litli er meg vanskap-
aða handleggi og hendur.
SMÍÐA MIG-
ARÍ
NTB-Nýju-Dehlí, 25. jan.
Indverska þingið samþykkti
í dag Colombó-tillögurnar sem
grundvöll að samningaviðræð
um við Kínverja um landa-
mæradeilu ríkjanna, og á
morgun minnast Indverjar
þess, að 13 ár eru liðin síðan
Indland hlaut sjálfstæði sitt
og gekk ( brezka samveldið.
Indverska þingið hefur rætt
Colombó-tillögurnar i tvo daga,
og lauk umræðuhum um þær í
morgun. Fór síðan fram atkvæða-
greiðsla um tillöguinar og sam-
þykkti þingið, að þær yrðu notað-
ar sem, undirstaða í samninga-
viðræðum milli Kína og Indlands
með 349 atkvæðum gegn 59.
Nehru forsætiaráðherra sagði
áður en umræðunum lauk, að til-
lögurnar væru í aðalatriðum þann
ig, að Indverjar gætu fallizt á þær,
er ekki kæmi til greina að hefja
samningaviðræður, nema því að-
eins að Kínverjar samþykktu þær
einnig að mestu leyti.
Á morgun eru liðin 13 ár frá
því Indland hlaut sjálfstæði sitt
og gekk í brezka samveldið. í því
tilefni hélt forseti landsins Sar-
vapalli Radhakrishna ræðu í út-
varpið í dag, þar sem hann lagði
áherzlu á, að Indverjar hefðu gert
það, sem í þeirra valdi stendur til
þess að halda uppi vinsamlegri
sambúð við Kínverja, en svo hefði
verið komið, að þeir hefðu ekki
lengur getað setið hjá aðgerðar
iausir. Atburðirnir við landamær-
in hefðu komið Indverjum á óvart
og rifið þá upp úr sínum hefð
bundnu friðsamlegu lífsvenjum
sagði forsetinn.
í sambandi við afmæli sjálfstæð
isms hefur Chou En-lai forsætis
ráðherra Kina sent Nehru for-
sætisráðheria skeyti, þar sem hann
lætur í ljós þá von sína, að alda-
gömul vinátta þjóðanna megi hald
ast og aukast enn.
Sovézkir tæknifræðingar eru
væntanlegir innan skamms til
Indlands, þar sem þeir munu að-
UWE STEMPF er 16 mánaða gamall, en hann fæddist me3 vanskapaða handleggi og hendur, vegna
þess aS móðir hans hafði notað thalídomide á meðgöngutímanum.
V-þýzka stjórnin styð-
ur emroma
Breta
NTB-París, Brussel, 25. jan.
Vestur-þýzka stjórnin sam-
þykkti einróma á sérstökum
ráðuneytisfundi í dag, að
halda fast við þá ákvörðun
sína að styðja aðild Breta að
Efnahagsbandalagi Evrópu. í
tilkynningu, sem gefin var út
að fundinum loknum segir,
að aðild Breta sé nauðsynleg
bæði af stjórnmálalegum og
efnahagslegum ástæðum.
Fréttamaður Reuters í París,
Harold King, skýrir um leið frá
því, að franska stjórnin athugi nú
tvær tillögur, en þeim sé ætlað í
fyrsta lagi ag koma í veg fyrir, að
formlega verði bundinn endi á
snmningaviðræðurnar við Breta,
þegar ráðherranefnd EBE kemur
saman í Brussel á mánudaginn, og I de Gaulle í vikunni, en hann stakk I ganga annarra EFTA-landa í
í öðru lagi^að koma í veg fyrir! upp á, að ráðherranefndin léti: l-.andalagið kynni að hafa á það.
gera skýrslu um það, hvaða áhrif í tilkynningu vestur-þýzku stjórn
aðild Breta að EBE kvnni að hafa arinnar segir, að bæði sé hægt og
álitshnekki Frakka.
Önnur tillagan var borin fram
af Adenauer, þegar hann ræddi við
og sömuleiðis hvaða áhrif inn-
Framhald á 15 siðu
ANDSTAÐA GEGN ÚRBÓTA-
TILLÖGUM ÍRANSKHSARA
NTB-Teheran, 25. janúar.
FYLGISMENN Mossadeqs fyrr-
uin forsætisráðherra fóru í dag í
mótmælagöngu í Teheran, og
vildu þeir mótmæla félagsmála-
umbótum, sem keisarinn hefur
lagt fram, og sömuleiðis þjóö'arat-
kvæðagreiðslu, sem fram á að fara
um tillögur keisarans um helgina.
Hermenn vopnaðir byssustyngj-
um og vélbyssum urðu að taka
sér stöðu á skeiðvellinum í Teher-
an, og þangað voru einnig sendir
brynvarðir bílar og skriðdrekar
stoða við að koma upp flugvéla-
verksmiðjum, er smíða eiga þotur
af gerðinni MIG. Þá hafa Bretar,
Bandaríkjamenn og Ástialíumenn
heitið að láta Indverjum í té orr-
ustuþotur, ef til þess kynni að
koma, að Kínverjar gerðu árásir
á iðnaðarmiðstöðvar í Indlandi.
auk iögreglumanna vopnuðum
kylfum og öðrum bareflum.
Úrbótatillögur keisarans fjalla
meðal annars um það, að hann
vill láta landbúnaðarráðuneytið
skipta stórum jarðeignum á meðal
(Framhald á 15. síðu).
VeðriÖ
umvíða
veröld
NTB-London, 25. jan.
Kuldinn, sem herjað hef-
ur á íbúa Evrópu síðan um
jól, virðist lítið minnka. Þó
var heldur hlýrra í norðan-
verðri Evrópu í dag, en í
Balkanlöndunum, fór veðrið
ekkert batnandi, nema síður
væri. í Norður-Frakklandi,
Sviss, Danmörku, Austur-
ríki, Ungverjalandi, Noregi
og Svíþjóð mældist sums
staðar frost, og veðurfræð-
ingar spá áframhaldandi
kuldum í flestum landanna.
Að minnsta kosti 112
manns hafa látið lífið í
Bandaríkjúnum, vegna
kulda, snjóa og eldsvoða
eða umferðaslysa á hálum
vegunum að undanförnu.
Annars er veðrið sem hér
segir:
AUSTUR-BERLÍN: Sjö-
tíu skólum hefur verið lok-
að vegna kuldanna, og börn
in verið send heim til þess
að lesa skólabækurnar sín-
ar þar, eða hjálpa til við að
moka kolum á eldinn.
PARÍS: f dag var þíðviðri
í Norður-Frakklandi, en
samt er enn mjög kalt víðs
vegar um landið. f ein-
staka borgarhlutum í París,
hefur eldsneytisskortur gert
vart við sig.
VÍN: í vestanverðu Aust-
urríki sýndu hitamælarnir
10 stiga frost og þar undir,
enda þótt fréttir bærust um
það, að veður færi batnandi
í austurhluta landsins.
SÓFÍA: Útvarpið í Sófíu
í Búlgaríu tilkynnti í dag,
að menntamálaráðuneytið
hefði ákveðið að loka öllum
skólum landsins af völdum
kuldanna, og skyldu þeir
ekki verða opnaðir aftur
það sem eftir er þessa mán-
aðar, heldur skyldi betra
veðurs beðið.
KAUPMANNAHÖFN:
Rekísinn umhverfis Dan-
mörku og við strendur Sví-
þjóðar, hefur neytt austur-
þýzka togara til þess að leita
afdreps f höfnum bæði í
Danmörku og Svíþjóðu.
STOKKHÓLMUR: Stærsti
ísbrjótur Svíþjóðar, Óðinn,
fékk í dag skipun um að
halda Eyrarsundi opnu, þar
eð olíuflutningaskip þurftu
að komast þar leiðar sinn-
ar.
TÍMINN. laiiffardatrinn f?fi. ianúar 1963