Tíminn - 26.01.1963, Blaðsíða 15

Tíminn - 26.01.1963, Blaðsíða 15
AlþýSuflokkurínn víkur sér undun ábyrgð ■ vill kosningur / HufnurfirSi Þau tíðindi liafa igerzt, að Al- þýðiíflokkurrnn í Hafniarfiríf hefur krafizt kosnin»a, þar sem samstarf Framsóknarflokksins og SjálfStæíiisflokksins hefur rofnað, eins og kunnugt er. Út af þessu átti Tíminn við- tal við Gu'ðmund Þortáksson, formann fulltrúaráðs Fram- sóknarfélaganna í Hafnarfirði og spurði hvað hann vildi segja um þetta mál. Guðmundur saigði: „Ég áiít þessa kröfu furðu- lega og ábyngðarlausa cig ekki til annars en að reynia að skapa glundroða og öngþveiti í bæj- armálunum. Að sjálfsögðu ber bæjarfulltrúum að þrautreyna allar leiðlir um samstarf. Þeir eru kjörnir til að stjóraa mál- efnum bæjarins og þeim ber siðferðileg skylda til að kanna alilar leiiðir. Takist ekki að ná endum saman, þá má segja að krafan um kosnjngar eiigi fyrst rétt á sér, en fyrr ekki.“ Hver er ástæðan fyrir þess- ari afstöðu Alþýðuflokksins? „Það sem ég hygg, að liggi á bak við þessar kröfur, er m. a. þetta: í fyrsta lagi: reyna að skapa sem mestan glundroða, og láta líta svo út, að ekki sé hægt að stjórna bænum án Al- þýðuílokksins. t öðru lagi álít ég, að þetta sé málamiðlun milli þeirra afla innan Alþýðuflokks ins, sem vilja samstarf við Sjálfstæðisflokkinn, og hinna sem vilja vinstra samstarf. Og þá kannski sérstaklega til að friða eða sefja þau öfl, sem vilja vinstra samstarf, því hægri mennirnir telja rétt að bíða fram yfir þingkosningar meg aðgerðir. Og í þriðja lagi vill Alþýðuflokkurinn láta í það skína, að hann standi vel í kosningum“. Hefur eitthvað verið talað um samstarf vinstri flokkanna þriggja? „Það hefur náttúrlega verið talag um ýmislegt í bænum að undanförnu, og ýmsir menn, engu síður Alþýðuflokksmenn en aðrir, og sumir framarlega í hans röðum, hafa óspart látið í Ijós vilja sinn um samstarf vinstri flokkanna, og talið sig hafa öll ráð flokksins i Hafn- arfirði í sínum höndum, livað þetta snertir. En formlega hefur ekkert verið urn vinstra sam- starf talað, og ég sé ekki ann- að, en þessi afstaða Alþýðu- flokksins torveldi mjög, og raunar útiloki þann mögu- leika.“ Heldurðu ag Alþýðuflokkur- inn muni græða á kosningum? „Um það er náttúrlega ekk- ert hægt að segja. Þeir töpuðu verulega í bæjarstjórnarkosn- ingunum, 02 reikna sjálfsagt með að þeir fari ekkj öllu neð-1 ar. Þeir vildu kenna því uni ófarir sínar, að uppstillingin á listanum hefðj ekki verið góð, en ég hef ekki trú á því, þó að þeir skipti eitthvað um menn, að það muni bæta neitt úr fyr- ■■i.i ....... w—W ir þeim. Þeir hafa nú misst að- stöðuna hjá bænum, og tæp- Iega er ástæða til að ætla, að það verði til þess að efla þá. Og ýmislegt fleira mætti tfna til, sem gerir aðstöðu þeirra vafa- saman í nýjum kosningum“. Hvað þarf Alþýðuflokkurinn að fá mikið til að fá meiri hluta? „Nú, um það þarf náttúrlega ekki að tala, það er svo fjar- stæðukennt, að hann nái meiri hlutaj Hann hefur núna þrjá bæjarfulltrúa af níu, og þarf því að bæta við sig tveimur mönnum. Atkvæðalega þarf hann að auka fylgið um ca. 600 —700 atkvæði, eða 50—60%“. Hver heldurðu að verði fram vinda þessara mála í Hafnar- firði? „Ýmisleg vandamál eru fram- undan, sem leysa þarf hið fyrsta. Fjárhagsáætlun er óaf- greidd, fjárhagserfiðleikar bæjarútgerðarinnar miklir, og slíkt og hið sama má segja um rafveituna. Að afgrejðsla þess ara mála þolir bið fram yfir kosningar, ef til þeirra kæmi, tel ég vafasamt, og ekki fæ ég séð, að kosningar mundu nokk uð leysa úr þeim vanda. Vel jmí ysra,t,^ð,,þessi óábyrga af- staða Alþýðuflokksins leiði til kosninga, en ég verð að segja það, að ég bjóst við meiri á- byrgðartilfinningu hjá þessum flokk, lildur en komið liefur á daginn“. Leitin Framhaid af 16. síðu inn. Var þá ekki um annað að ræða fyrir hann en að freista þess að ná landi í Viðey. Vél- in sveik ekki þennan spöl og tókst lendingin framar öllum vonum, en ekk; mátti miklu muna, því hefði munað fjórum metrum eru litlar líkur á því ag Valberg hefði komizt lífs af, því hann lenti í smávík, með hamra á báðar hendur. Slysa- varnafélagsmenn tjáðu blaðinu, að sker það, er Úf; rakst á, værj á sömu slóðum og kútter Ingvar fórst á upp úr aldamót- unum, svo sem frægt er. — Ég hraktist nokkuð í land tökunni, sagði Valberg. Ég varg holdvotur og eldspýtur mínar blotnuðu. svo og vasaljós er ég hafði með mér. Hafði ég því hvorki aðstöðu til að kveikja bál né gera vart við mig með ljósi, er ég sá til leitarbátsins. Ég bjóst við að vistin yrði mér köld í eyjunni, þar eð ég var eins og fyrr segir holdvot- ur og gat efcki kveikt bál. Tók ég því það til ráðs að smala kindum, er voru í eyjunni, inn í besthús, sem er við ibúðarhús- in, til þess að hafa hlýjuna af þeim um nóttina. Ekki varð mér svefnsamt um nótfina. Er björgunarmenn komu með Vaiberg til lands fékk hann þurr föt og síðan settist hann að heitu kaffi með slysavarna félagsmönnum. Bátur Vaibergs mun nokkuð brotinn en þó taldj hann, að ef báturinn ekki brotnaði meira, myndi unnt að gera við hann. Iran Framhald af 3. síðu. bænda, sem aðeins eiga smáland- skika. Þá vill keisarinn einnig láta fara fram breytingar á efnaihags- kerfi landsins, og bæta úr ýmsu á sviði menntamála. ICeisarinn hefur mætt mikilli andstöðu meðal stúdenta og stór- landeigenda, sem efcki vilja láta skipta jörðum sínum á milli smá bændanna. ASild Breta ,Framhalri al 3 síðu) eigi að halda áfram viðræðunum um aðild Breta að EBE, með það fyrir augum að ná jákvæðum ár- angri. Vestur-þýzka stjórnin standi í stöðugu sambandi við- frönsku stjórnina og stjómir hinna EBE- iandanna varðandi þetta mál. Þýzk sendinefnd heldur til Bruss el á máudag undir forystu próf- essors Ludwig Erhard, efnahags- málaráðherra, og mun hún þar leggja fram tillögur, sem eiga að koma í veg fyrir að samningavið- ræðurnar við Breta fari út um þúfur. Sagt er í Bonn, að Þjóðverjam- ir muni stinga upp á því, að Hall- stein-nefndin muni gera yfirlit yf- ir það, sem komið hefur fram í vig ræðunum fram til þessa dags, en um leið mun stjórnin láta fulltrúa sína leggja fram ákveðnar tillög- ar til úrbóta, en ekki hefnr frétzt, hverjar þær tillögur verða. Ijjróttir En þrátt fyrir þennan fjölda, sem æfir og leggur stund á íþrótt- ir í tómstundum sínum, er það staðreynd, að sérstaka áherzlu þarf að leggja á það, að ná til enn flelri á aldrinum 12—15 ára og gera þá að virkum félögum. Til þess að það sé hægt, verður að auka verulega alla útbreiðslustarf- semi ÍSf. Þá þarf að fá fleiri iþróttakennara til starfa, svo og auka allt starf iþróttasambandsins svo það verði þess umkomið, að valda því þýðingarmikla hlutverki, er það hefur að gegna í þjóðfélag- inu fyrir allan æskulýð landsins. Kauphækkun Framhaid af 1. síðu. verði gerg og löndunarskilyrði öll stórbætt, stórar vörugeymslu- skemmur verði byggðar við höfn- ina og vélbátaflotinn aukinn. Þá telur fundurinn að hráefni sjávar- útvegsins þurfi að gernýta, skipu- lag á vinnu í fiystihúsum að'batna og verksmiðjukostur bæjarins .að aukast. Að endingu var lagt til að gatnagerð verði stóraukin, og að kannaðir verði allir möguleikar á iagningu hitaveitu til Hafnarfjarð- ar frá Krísuvík og hafizt handa um að nýta gufuorku þá, sem Hafnar- fjarðarbær á í Krísuvík til fram- leiðslu rafmagns og iðnaðar ails lconar. í fundarlok var svo sam- þykkt tillaga um að athuga mögu- leika á sameiningu verkalýðsfé- laganna í Hafnarfirði. REYKJANES- KJÖRDÆMI Fundur verður haldinn í stjórn kjördæmissambands Framsóknar- manna í Reykjaneskjördæmi þriðjudaginn 29. janúar n. k. kl. 20,30 í Tjarnargötu 26, Reykjavík. Framsóknarmenn Aðalfundur Framsóknarfélags Mýrarsýslu verður haldinn í Borg- arnesi sunnudaginn 27. janúar n.k. og hefst hann kl. 3 e.h. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á flokksþing. 3. Önnur mál. Félagsmálaskólinn Fyrsti fundur Félagsmálaskóla Framsóknarflokksins á þessu ári verður í fclagsheimilinu Tjarnar- götu 26. n.k. mánudagskvöld og hefst kl. 8,30. — Einar Ágústsson bankastjóri hefur framsögu og svarar fyrirspurnum. Útgerðarmenn Framhald af 1. síðu. ingnum ekki sagt löglega upp í Sandgerði, eins og fyrr segir. f haust lét Guðmundur svo munstra á sín skip í Garðinum. Guðmundur telur, að þar sem hans skip séu skráð í Garði og samningum hafi þar verið sagt upp, sé hann bundinn ákvæðum gerðardómsins, en Sandgerðis- menn eru þessu ekki samþykkir og vilja að meðlimum verkalýðs- félagsins þar, er voru á bátum Guðmundar og munstraðir í Sand gerði sé greitt samkvæmt gömlu ' samningunum. Stendur þar hníf- urinn [ kúnni. Formaður verka- lýðsfélagsins sagði í viðtali við blaðið, að þegar hann hefði feng- ið afrit af dómi Félagsdóms, myndu þeir félagar halda til Guð- mundar og fá hjá honum ákveðin svör um afstöðu hans, en síðan leita úrskurðar dómstóla, ef hann neitaði. Eftir svörum Guðmundar að dæma, er blaðið átti tal við hann, er ekki ólíklegt, að til nýs málavafsturs kunni að koma. -IITSALA- Hefst á mánudag. Herraföt, drengja- föt, frakkar, stakar buxur. Mikill afsláttur. Hltima T-" k- JijGiga/tði ÞAKKARÁVÖRP Innilega þakka ég öllum vinum og vandamönnum, nær og fjær, sem Theiðruðu mig á sextugsafmæli mínu 15. janúar s.l., með heimsóknum, gjöfum, ljóðum, söng og heillaskeytum. Guðsblessun fylgi ykkur öllum. Eðvald Halldórsson Stöpum. Innilegar þakkir sendi ég öllum, sem heiðruðu mig með heimsóknum, skeytum og gjöfum á sjötugs afmæli mínu. Ólafur Björnsson, Núpsdalstungu «8fl Dóttir okkar, HILDUR lézt af slysförum 24. þ. m. Margrét Ólafsdóttir Ólafur Jensson Sonur okkar, MAGNÚS EINARSSON, búnaðarkandldat, lézt af slysförum fimmtudaginn 24. þ. m. Jakobína Þórðardóttir Einar Ásmundsson Þökkum af alhug öilum þeim, er au'ðsýndu samúð og vlrðingu, mtnnlngu EGGERTS STEFÁNSSONAR, söngvara. Selma Kaldalóns Jón Gunnlaugsson TÍMINN, laugardaginn 26. janúar 1963 15

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.