Tíminn - 28.02.1963, Qupperneq 9

Tíminn - 28.02.1963, Qupperneq 9
reynt að þræða mig eftir jað- arsvæðum vitundarinnar, farið í öll hulstur, en alltaf komið tómhentur úr þeirri leit, mér hefur bókstaflega verið fyrir- munað að endurheimta lífs- hnoss mitt úr Helgakveri. — Hvernig heldurðu svo að lán- ist að setja stefnuna út í kort- inu, þegar allt er fyrir bí, sem máður á að stýra eftir? Nú ertu kannski til með að segja: „Ég hélt þú hefðir ekki verið minnissljór“. — Það er alveg rétt ályktað hjá þér, ég hef ekkert lakara minni en gengur og gerist. Og ég get fært að því allsæmileg rök. Sama vorið, sem ég fermdist og las Helgakver sem ákafast, leit ég stundum í markaskrá. Ég man enn þá, að Lárus Knudsen hafði: Sneitt framan hægra og gat og gat vinstra, eða gatagat eins og við kölluð- um það. Og markið hans Guð- mundar læknis var: Tvírifað í stúf og biti framan hægra og tvírifað í stúf vinstra. Ég efa, að ég hafi nokkurn tíma síðar litið í þessa skrá. Þú mátt ekki skilja þessa játningu mína eða réttara sagt þetta óhapp mitt svo, að í því felist svo mikið sem ásökunar- vottur í garð bónda þíns, því að hann gekk vel og trúlega frá minni staðfestingu. Ég vona bara, að ég sé sá eini af öllum hans konfirmeruðu, sem hef gloprað niður lífsmottóinu úr Helgakveri, er mér að sjálf- sögðu bar að varðveita ævina alla, hvernig sem kuggurinn veltist. ' Vinur þinn og Scotland Yard. Nú hefurðu senn verið 42 ár í prestsmaddömudyngju Helgafellsbrauðs. Það hefur engin leikið á undan þér. Áð- ur hafði Þuríður Kúld setið þar lengst, en þó nær 10 árum skemur en þú. Þuríður var barnabam Benedikts assesors Gröndals, dóttir Sveinbjarnar Egilssonar rektors og tengda- dóttir Ólafs prófasts Sivert- sens._ Þú ert barnabarn Þórar- ins Ámasonar jarðyrkjumanns í Götu, dóttir Ágústs Þórarins- sonar verzlunarstjóra og tengdadóttir Lárusar Pálsson- ar hómopata. — Það er nú líka allnokkuð. Margt hefur sópazt Durt fyr- ir hrísvendi nýrra hátta og siða, síðan þú giftist. Með þér fara gamlar tratitionir, sem átt hafa ítök í öllum prests- maddömum í Þórsnesi. Nú er ekki lengur neitt í almanak- inu þínu, sem tengir starf þitt eða forsjá við eggtíð eða kofna- tekjutíma. Og nú hleypur eng- inn lengur niður í vör og kast- ar poka út í bát prestsins og segir í ofboðinu: — „Prest í pokann kálið mitt“, en ætlaði að hafa mælt: „Kál í pokann. prestur minn“. Skarfakálið er ekki lengur sú heilsubótar fæða, sem áður var, vitamínin koma úr allt öðrum áttum Kýr í fjósi, hestar á stalli, eld- rauðar kartöfluhlussur upp úr garði, dúnhreinsun og fugla- reyting, allt var þetta innan ummáls þíns verkahrings eða í tengslum við hann. Sú tíð er gengin og á vafalaust ekki aft- urkvæmt. Kannske lumarðu enn þá á garðinum? Mig minnir til þess, að þú varst stundum töluvert á sprangi út um bæ, komst oft í sömu húsin. Ég tyllti mér þá í rannsóknarsessinn, mig lang aði til að vita, hvað þessar spásséringar þínar og heim- sóknir áttu að fyrirstilla. Þetta var he lmikið abhugunarefni. Ég fór ekki beinlínis í njósnar- ferðir og því síður, að ég reyndi að leggja snörur fyrir þig, en eigi að síður báru þessi umsvif mín keim af leynilög- reglustnrfsemi. Smám saman fór eitt og annað að skýrast, möskvarnir urðu þéttriðnari, það fór að bóla á eðli stað- reyndanna að þessu athæfi þínu, og þá fór ég að leggja saman tvo og tvo. — Það kom sem sé upp úr kafinu, að hér og þar í þorpinu voru gamlar konur, sem áttu ekki alltaf ýkjamarga að. Þá var eitt og annað af skornum skammti, t. d. mjólk, en þú orðin búkona, áttir ítak í eyjagagni, stóran kálgarð, fjós og dropsamar kýr. — Ég held, að i þessum rannsóknarskýrslum mínum hafi vottað fyrir því, að hún móðir þín hafi verið allhand- gengin sumum þessara öldruðu einstæðingskvenna og ekki lát- ið þær afskiptalausar. Svona geta nú vinirnir stund um reynzt, brugðið sér í leyni- lögreglugervi — bókstaflega sett á fót Scotland Yard. Vefrarbrautin — Lokkur ingibjargar Mikið fjaðrafok hefur verið hér syðra í vetur í sambandi við skilaboð að handan og yfir- náttúrlegar lækningar. Hver vísdómsmaðurinn á fætur öðr- um hefur reigt sig og reist, og blaðagreinafansinn nægir til að fylla stóra doðranta. Ég læt mig ekki inn í slíkt, enda ekki maður til þess. Eitthvað leit ég lítillega í eina anda- bókina. Eftir lesturinn spurði ég sjálfan mig: „Geta ekki stundum verið margir fletir á sama hlutnum?" En úr því ég er kominn út í þessa sálma, ætla ég að segja þér frá þremur atvikum, er snerta fólk, sem við höfum bæði þekkt. Einu sinni um vetumætur, þegar ég var smástrákur, senni lega 10 eða 11 ára, var ég að leika mér á Silfurgötunni, á móts við húsið þitt. Snjór var yfir allt, talsvert frost, heið- skírt veður, stjörnuskin, enda komið kvöld. Þá sé ég, að mað- ur gengur niður götuna. Hann er að stanza annað veifið og kóka upp í himininn. Mér þótti þetta dálítið einkennilegt og þess vegna beindist athygli mín að háttalagi karls. Loks stóðst ég ekki freistinguna, gekk til hans og sagði: — „Sérðu eitthvað skrýtið í himn- inum?“ — „Skrýtið og ekki skrýtið, ég er, skal ég segja þér, drengur minn, að lesa í vetrarbrautina“. — „Hvað þýð- ir það?“ spyr ég. — „Af þeim lestri ályktar maður, hvernig veturinn verður. Hvort það verða miklar hríðar og frost- hörkur, eða hvort veturinn verður meinlaus" Þessi bóndi var Sveinn Magnússon á Gaul, mesti skýr- leiksmaður eins og þú veizt, enda var hún Ingunn móðir hans ömmusystir Ólafs okkar Thors. Og nú er ég að velta því fyrir mér. hvort Sveinn á Gaul, ef hann væri uppi á fold inni, mundi ekki enn treysta fremur á forspá vetrarbrautar innar en veðurspá upp á vet- urinn komna að handan gegn um miðil. Erlendur Svavarsson í hlutverkl Hinriks og Arnar Jónsson (til hægri) í hlutverki Falstaffs. Leikhús æskunnar: Shakespeare-kvöld Eg þarf ekki að spyrja þig | að því, að þú manst enn vel Ingibjörgu á Selvöllum. Hú" ‘ v’ar mikil gæðakona. vel greind Framhaio n i-ihn Shakespeare-kvöld Leikhúss æsk unnar á laugardaginn var merkur viðburður og athyglisverður, ekki sízt fyrir, að flytjendur, nítján manns úr þrem leikskólum, hafa ráðizt í að ,':ara með þætti úr verk um hins mikla skáldjöfurs, sem hafa aldrei tyrr verið sviðsett hér- þrátt fyrir snilldarþýðingar og ianga geymd eins þeirra á tungu landsmanna Þar gafst velþeginn kostur á að 'oera saman lök þýðendanna, Matt- hiasar Jochumssonar og Helga Ilálfdánarsoiiar á verkum Shake- speares, volduga snilli Matthíasar og líttviðjafnanlegan fimleik Helga sem eins og leikstjórinn komst að orði, er að lyfta Grettistaki í ís- lenzkum bóKmenntum með Shake- speare-þýðingum sínum. Leikhús æskunnar var stofnað 30. maí s.l Stofnendur voru 30. en félagar eru nú 70 talsins. Ald- ursmörkin eru 16—25 ár, en nokki ir eldri féiagar mynda öldunga- deild svokallaða. Sb-’ke^pe •• eþæH irnir er annað verkefni leikhússins. Það fyrra var Herakles og Agíasar- fjósið eftir Diirrenmatt, sýnt i haust. Flytjendui Shakespeares eru úr leikskólum Þjóðleikhússins, Leik- félags Reykjavíkur og Ævais Kvar- an, sem stjórnar flutningi, en hann hefur undirbúið þessa sýn- :ngu lengi vetrar. Ævar ritar í ieikskrá og segir, að það hafi lengi verið trú sín, að verkefni áhuga- leikenda ættu alltaf að vera góð. | Léleg verkeíni skapi leiða hjá leik endum og geti haft áhrif til að eyði ieggja smekk þeiira. Merk við- fangsefni hafi þá kosti, að leikend- ur finni smám saman eitthvað nýtt í snilld höfundarins, sem end- urnýi áhuga þeirra sífellt. Af þess um ástæðum hefði Leikhús æsk- unnar ráðizt í að flytja kafla úr verkum Shakespeares. Eg hygg, að þessi afstaða leik- stiórans sé >-éttmæt, grundvölluð á rtynslu hans af kennslunni. Ein- hverjum kann að virðast það of- metnaður í sjálfu sér að láta frum tyrjendur i listinni flytja Shake ;peare opinDerlega, en slíkar mót járur hjaðna ef litið er á þessa cvnningu sem almennt tækifæri til að skoða árangur kennslunnar — fiomar um nessa sýningu hljóta að hvggjast á þeim forsendum. Ævar tataði um Shakespeare í avarpi, og kvaðst gera ráð fyrir, að sumir þeir sem ættu eftir að láta mjög til sín taka á leikfjölunum framvegis, mundu stíga þar fyrstu sporin opinberlega með þessari Shakespeare-kynningu það kvöld. Svningin gaf til kynna, að leikstjór ir.n hefði ályktaðiþetta' rétt. • Fyrsti þáttur var úi Rómeó og •íúlíu í þýðingu Helga Hálfdánar- sonar. Flytjendur voru sex: Arnar •Jónsson (Rómeó) Þórunn M. Magnúsdóttlr (Júlía). Jón Ingva son, Grétar Hannesson, Sigriður G.innlaugsdottir og Sigurður Skúla son. Arnar fór snoturlega með hlut- verk Rómeós og mælti hinar frægu ástarjátningar skýrt og fallega. Þór unn kom vel fyrir í hlutverki Júlíu og Sigríður Gunnlaugsdóttir bar sig skemmtilega í hlutverki fóstr- ui.nar, og það var léttleikablær vfjr öllum þættinum. Pétur Einarsson og Oktavía Stefánsdóttir fluttu Macbeth í þýð ingu Matthiasar — þáttinn um morðið. Leikur Oktavíu bar af í ílutningi þáttanna, án þess hallað sé á nokkurn annan, Harðneskjan, Dfmetnaðurmn og kuldinn í fasi og ræðu konunnar var með engum við vaningsbrag. Pétur er vörpulegur maður á sviði og hefur til að bera Framhalo a 13 síðu Pétur Einarsson í hlutverki Macbeths, T f M I N N, fimmtudagur 28. febrúar 1963. 9

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.