Tíminn - 21.03.1963, Qupperneq 1
TVOFALT
EINANGRUNAR -
20ára reynslaER
herlendis
SiM111400
68. tbl. — Fimmtudagur 21. marz 1963 — 47. árg.
í „IS-
HAFI”
í opnunni í dag er viðtal við
Jónas Guð'mundsson um sigl-
ingu á Eyrarsundi, sem mætti
nefna „íshafið", enda hefur
það verið ísilagt lengi í vetur.
Jónas er nýkominn heim úr ferð
með Hvassafellinu, og er mynd
in hér til hliðar tekin, þegar
skipið var á leið' inn til Gdynia,
áður Danzig, en lóðsbáturinn
siglir í kjölfarið. Á sama tíma
og þessi gaddur helzt þarna
syðra, er sumartíð hér nyrðra.
Henni á þó að vera að Ijúka,
því að síðustu fréttir herma,
að í nótt hafi átt að frysta og
nú sé frost um allt land. Von-
andi stendur það ekki lengi.
Leitað í gær
MB—Reykjavík, 20. marz.
Leitinnl a8 flugmönnunum tveimur var haldið áfram í dag,
en án árangurs. í dag leitaði flugvéi frá 54. bandarísku björgunar.
sveitinni og lagði hún upp frá Goose klukkan hálf fimm í morgun
skv. íslenzkum tíma; flugvél frá Kanadaflugher, sem lagði upp frá
Torbay klukkan 8,30 og ein vél frá U.S. Coast Guard. Flugvélin
Sólfaxi, sem staðsett er í Grænlandi var einnig til taks, ef Torbay
óskaði eftir, en tll þess kom ekki.
í gærdag flugu leitarflugvélar samtals 62 tíma og 20 mín„
þar af leituðu þær á takmörkuðu svæði 27 tíma og 25 mínútur.
Það svæði var um 4000 fersjómílur og var gefið upp að árangur
leltarinnar hefði verlð 85%, þ.e. að 85% svæðisins hefði verlð
ieitað til hlítar.
Ekki hafðl borizt vitneskja hingað tll lands um frekari ieit,
er blaðið fór í prentun.
VILJA
FLUGIÐ
BÓ-Reykjavík, 20. marz
Gljáfaxi fór í annað skíðaflugið
á hádegi í dag og lenti í Scoresby-
sund kl. 14.35. Vélin átti að fara
þaðan til Meistaravíkur siðdegis
og í fyiTamálið aftur til Scoresby-
sund og Daneborg og til Reykja-
vikur.
Winther verkfræðingur frá Kaup
mannahöfn, sem er eftirlitsmaður
veðurathuganastöðvanna á Austur-
Grænlandi, hefur sagt, að Danir |
niundu að. iíkindum fækka skipa-
ferðum til stöðvanna niður í fjórða
hvert ár og halla sér að Flugfélagi
íslands, ,ef skíðaflugið heppnast
íramvegis sem hingað til.
Þrjár flugferðir til stöðvanna
eru þegar ákveðnar og verða senni
lega fleiri í þetta sinn.
YFIRMANNADEILAN INNAN RAFMAGNSVEITU REYKJAVÍKUR
Munkur vildi
munn deyða dt
uf hænsnabúi
NTB-Deggendorf, 20. marz.
66 ára gamall munkur af Bene-
diktinarreglunni var í dag leiddur
fyrlr rétt í Deggendorf í Vestur-
Þýzkalandi, ákærður fyrlr að hafa
gert tilraun til að svipta reglubróð-
ur slnn einn lífi með rafstraumi.
Raffræðingur einn er ákærður fyrir
meðsekt í ódæðinu.
Munkurinn, bróðir Gunther,
hafði um þrjátíu ára skeið veitt
hænsnabúi klaustursins forstöðu,
en fyrir tveimur árum ákváðu yfir
boðarar hans að setja hann frá því
embætti, þar eð hann hafði ekki
iðkað bænagerðir sínar eins vel og
krafizt var. Sá, sem varð fyrir
banatilræðinu, bróðir Gallus, var
þá settur yfir hænsnabúið.
Bróðir Gunther vildi fyrir alla
muni koma í veg fyrir þetta, þar
SJ0TIU HAFA HEITID
VALGARD STUDNINGI!
eð hann hafði sem hænsnabússtjóri
getað dregið sér fé af eignum
klaustursins, og er hann einnig
ákærður fyrir þann fjárdrátt. —
Raffræðingurinn, George Stein-
bauer, mun hafa verið flæktur i
Framh. á bls. 15.
JK-Reykjavik, 20. marz.
Erjur æðstu manna Rafmagns-
veitu Reykjavíkur hafa nú komlzt
á nýtt stig, er um 70 starfsmenn
hennar hafa skrifað Valgarð Thor-
oddsen yfirverkfræðingi bréf, þar
sem þeir helta honum stuðningi sín-
um. Valgarð hefur í heilt ár staðið
i köldu stríðl við Jakob Guðjohnsen
rafmagnsstjóra og Aðalstein Guð-
johnsen deildarstjóra, og í átta mán
uði hefur borgarráð e'ða borgarstjóri
legið á uppsagnarhótun rafmagns-
sfjóra út af þessu máli.
Bréfið, sem Valgarcfc'uar skrifað,
er nokkuð á þessa leið; Þar sem
þrálátur orðrómur er um, að þér,
herra yfirverkfræðingur, ætlið að
segja upp starfi hjá Rafmagnsveitu I Valgarð starfsliði Aðalsteins um
Reykjavíkur, þá skorum við hér j helming, og neitaði Aðalsteinn þá
með á yður að endurskoða þá af-
stöðu yðar og heitum yður því að
styrkja yður í nýsköpun og fram-
kvæmdum Rafmagnsveitu Reykja
víkur í hvívetna. \
Tíminn upplýsti þetta mál
snemma i október í haust. Valgarð
var áður rafveitustjóri í Hafnar-
íirði og var tiltölulega nýtekinn
við starfi uæstæðsta manns Raf-
iragnsveitu Reykjavíkur, þegar ó-
samkomulag kom upp milli hans
og Aðalsteins Guðjohnsens, sem
l'-ar deildarstjóri áætlunardeildar
: rafveitunnar og hafði gert hana að
umfangsmestu deildinni. Fækkaði
að taka við fyrirskipunum frá Val-
garð. Valgarg sagði þá, að þessi
ummæli Aðalsteins hlytu að jafn-
gilda uppsögn hans.
Nú brá löðurbróðir Aðalsteins,
Jakob rafmagnsstjóri, við hart og
tók alla verkfræðideildina undan
Valgarð yfirverkfræðingi og setti
.ndir sjálfan sig. Valgarð líkaði
þetta stórilla og þóttist ekki starf-
hæfur sem yfirverkfræðingur, ef
hann fengi <»ngu að ráða um verk-
fræðistörf
Logaði alit ; erjum í rafveitunni
út af þessu. Jakob Guðjohnsen
íJrrifaði borgarráði eða borgar-
stjóra bréf, þar sem hann krafðist
úrskurðar um réttmæti ráðstafana
s:nna. Hótaði hann ella uppsögn
sinni. Valgarð mun einnig hafa
skrifað bréf og gért grein fyrir af-
sröðu sinni
Á þessum bréfum hefur verið
iegið í meira en átta mánuði, án
þess að nokkuð hafi verið aðhafzt
t>1 að greiða úr flækjunum.
Enginn virðist vita, hver ræður
heerju hjá rafveitunni. Má meðal
annars benda á, að fylgiriti 1 með
Sögu rafmagnsveitu Reykjavíkur,
sem gefin var út 1961, er sýnd
allt önnur dcildaskipting en í
giein frá áætlunardeild Aðaisteins
Framhald á 15. síðu.
RANN- * 1
SAKAR
HAFNAR-
STÆÐE
JK-Reykjavík, 20. marz
Til landsins er kominn
danskur prófessor frá Flor-
ida á vegum Fulbright-stofn
unarinnar, Per Brun að
nafni. Hann er sérfræðing-
ur í sandburði með strönd-
um og mun m. a. starfa með
Vita- og hafnarmálaskrifstof
unni í sambandi við sand-
flutntng við hafnargerðir.
Prófessorinn mun flytja
erindi í Háskóla íslands á
vegum verkfræðideildarinn-
ar og verður fyrsta erindið
annað kvöld, fimmtudags-
kvöld Þessi erindi eru ætl-
uð úlskrifuðum verkfræð-
ingum. Per Brun hefur ver-
ið hér í rúmar tvær vikur
og verður til hausts..
Vita- og hafnarmálaskrif-
stofan hyggur gott til sam-
vinnunnar við Per Brun.
Hann mun meðal annars at-
huga möguleika á hafnar-
gerð í Þykkvabænum og við
Vik í Mýrdal, en þar verða
sahdt'lutningar stór liður í
míigulegri hafnargerð.