Tíminn - 30.03.1963, Blaðsíða 1
rT’jnrr'r' r*5r
SUPUR
HEILÐSÖLUBIRGÐIR
SKIPHOLTHF SÍMI2373/
76. tbl. — Laugardagur 30. marz 1963 — 47. árg.
* FLUGVÉLAR farast me5
ýmsu móti, en vélin, sem
myndin er af hér a3 neðan,
mun hafa hafnað á einstaeö-
asta stað, sem um getur í
sögu fulgsins, eða á húsþaki.
Þetta gerðist í Bretlandi á
miðvikudaginn. Varsity-æf-
Ingavél hrapaði meS tveim
mönnum, sem fórust báðir, en
Fólkið í húsinu slapp ómeitt.
DETTI'FOSS
GOÐAFOSS
DETTIFOSS SIGRAÐIG0ÐAF0SS
IKAPPSIGLINGUFRÁ NEW YORK
VERÐUR N-RODESIA
AÐ NÝJU „KONGÓ"?
MB-Reykjavík, 29. marz
Tvö systurskip Eimskipafélags
j íslands, Goðafoss og Dettifoss,
komu til hafnar i Reykjavík síð-
degis i dag með hálftíma milli-
hili. Skipin voru að koma frá
New York og mun „kalt stríð“
I'.afa átt sér stað á leiðinni tun það,
h.vort fleyið yrði fyrr til hafnar.
Dettifoss for hálfum öðrum tíma
á eftir Goðafossi úr höfn í New
■ýork. Fljótlega dró saman með
skipunum og við suðaustur enda
Nýfundnalands fór Dettifoss fram
úr „bróður“ sínum, og var á und-
an eftir það.
— Við hefðum getað verið þrem
ur tímum fljótari, hefð'um við
siglt á fullu sagði Eyjólfur Þor-
valdsson sKipstjóri á Dettifossi.
Annars fengum við óþverraveður,
sem náttúrlega kom jafnt niður
á báðum skipunum. Við fengum á
okkur slæma sjóa og lunningin hjá
okkur bognaði inn um 3—4 tomm-
ur á þremur stöðum, auk þess
fengum við mjög slæman sjó á
skipið, sem lenti á skrokknum.
Hann hefði valdið miklum skemmd
um ef hann hefði lent á yfirbygg-
ingunni. Við lentum í þessu veðri
á mánudag og það hélzt þriðju-
dag og miðvikudag, en gekk nið-
ur á fimmtudag.
— Eg veit ekki hvað ég á að
segja um þetta ferðalag, við hefð-
um getað verið skemmri tíma,
eins og ég sagði áð'an, en á mið-
nætti í nótt, þegar veðurfregnir
voru lesnar, heyrði ég að Goðafoss
væri kominu „ískyggilega“ nálægt.
Við höfðum verið 20 mílur á und-
an, en hann hafð'i dregið á okk-
úr. Eg bætti við ferðina, en það
dugði ekki til, því klukkan hálf
sjö sjáum við hann í ratsjá og
þá var hann aðeins orðinn sjö og
hálfri mílu á eftir okkur og þá
bætti ég enn við og það dugði.
Framh á bls. 15
NTB-London, 29. marz i
Richard Butler, ráðherra Bret-
lands í málefnum Mið-Afríku,
staðfesti í dag, að ríkisstjórnin
liafi ákveðið að viðurkenna rétt
Norður-Ródesíu til að ganga úr
Mið-afríkanska rikjasambandinu,
en í því eru einnig Suður-Ródesía
og Njassaland. í opinberri tilkynn
ingu frá ráðuneyti Butlers segir,
að ekki sé hægt að þröngva neinu
landanna til að vcra áfram i sam-
bandinu og öll þrjú löndin hafi \
þess vegna rétt til að rjúfa sam-
vinnuna.
Þessi ákvörðun mun hafa í för
með sér, ag ríkjasambandið liðast
sundur, og er alger ósigur fyrir
Sir Roy Welensky, forsætisráð-
herra þess, helzta baráttumann
gegn þjóðernisstefnu blökkumanna
í Afríku.
HERSTEINN PÁLSSON SVARAR G.G. SCHRAM í TÍMANUM
FÆR EKKI AÐ BIRTA SVARIÐ
I SÍNU EIGIN BLAÐI, VÍSI
■fc í GÆR sendi Hersteinn Páls-
son, ritstjóri Vísis, Tímanum
stutta grein, sem hann hefur
ekki fengið birta í sínu eigin
blaði. Grein þessi er svar við
grein eftir meðritstjóra hans,
Gunnar G. Schram, sem birtist
nú í vikunni og fjallaði um við-
tal, sem Hersteinn Pálsson tók
vlð Finn Jónsson, listmálara.
í viðtalinu við Finn og einn-
ig í leiðara Vísis síðar var fjall
að um deilur, sem uppi væru
meðal málaranna.
í svari sínu sagði G. G.
Schram m.a.: „Þeir menn, sem
hafa ekki annað betra við tíma
sinn að gera en skrifa skamm-
ir um íslenzka listamenn í götu
strákastíl í dagblöðin, jafnvel
þótt í nafni gamalla og góð-
kunnra listamanna sé, ættu að
snúa geiri sínum í skynsam-
legri áttir“.
Hersteinn Pálsson er einn
elztur starfandi ritstjóri hér-
lendisi Hann hefur unnið í tutt-
ugu og sjö ár við Vísi, og átti
til skamms tíma hlut í blaðinu.
Hér fer á eftir bréf Her-
steins til blaðsins:
Framh. á bls. 15.
Framh a bls lú.