Tíminn - 30.03.1963, Blaðsíða 3
STJÓRNKN
HÉLT VELLI
Atkvæðagreiðsla um traust í Finnlandi
NTB-Helsinki, 29. marz
Þing Finnlands samþykkti
í dag traustyfiriýsingu á ríkis-
stjórn landsins en stjórnin
hafSi be'ðizt trausts vegna
stefnu sinnar í verkfallsmál-
unum. Fyrir fram var talið
víst að stjórnin hlyti umbeðið
traust, ekki sízt þar sem verk-
fall ríkisstarfsmanna leystist
í gærkvöldi.
Vi3 atkvæðagreiðsluna i finnska
þinginu greiddu 104 atkvæði með
stjórninni en 80 á móti. Einn at-
kvæðaseðill var auður og 14 þing-
menn fjarverandi. Áður en at-
kvæðagreiðslan fór fram höfðu
staðið yfir umræður í tvær klukku
stundir.
Karjelainen forsætisráðherTa
sagði í umræðunum, að finska rík
iS hefði tapað 24 milljónum nýrra
marka á verkfallinu, en starfs-
menn hins opinbera tapað 7,4 mill-
jónum marka í launagreiðslum
þær fjórar vikur, sem verkfallið
stóð.
Sænska póststjórnin ráðgerir nú
r.ð leigja scrstaka flugvél til að
koma til skila pósti til Finnlands,
en í Svíþjóð hefur hrúgast upp
meira en 300 tonn af pósti þang-
að.
Yfirmaður póst- og símamála-
stjómarinnar finnsku sagði í dag,
að trúlega myndi það taka þrjár
vikur að koma póstþjónustunni aft
ur í eðlilegt horf eftir truflun verk
fallsins. Stjcrn járnbrautanna tel-
ur hins vegar, að járnbrautaferðir
verði komnar í eðlilegt horf eftir
örfáa daga.
ÞJOÐVERJAR
HVASSYRTIR
m rOssa
NTB-Bonn, 29. marz.
í ORÐSENDINGU, sem sendi-
herra Vestur-Þýzkalands í Moskvu,
Horst Groepper, afhentl Sovétstjórn
inni I dag, segir, aS fullyrSingar
Rússa um aS varnarstefna Vestur-
Nýjar árásir og klögu-
máí við Kúbustrendur
NTB-Moskva og Washington,
29. marz. j
Framkvæmdanefnd örygg-
isráðs Bandaríkjanna kom
saman til fundar í dag undir
STUTTAR
FRÉTTIR
• NTB 29. marz. — 50
þúsund námuverkamenn
fóru í dag í mótmælagöng-
ur í námubænum Lens í
Frakklandi til að mótmæla
stefnu stjórnarinar í launa-
málum.
• í næsta mánuði munu
fara fram fyrstu viðræður
franskra og brezkra ráð-
herra eftir slitin í Briissel.
• George Bidault ræddi
í dag við sendiherra Brazil-
íu í Lissabon, en talið er
líklegt, að liann muni hafa
hug á að fara til Brazilíu.
• .Vlþjóðasamband blaða-
manna skoraði í dag á
brezku stjórnina að láta
blaðamcnnina tvo, sem sitja
í fangelsi fyrir að neita að
skýra frá heimildum sínum,
Iausa.
® Kennedy forseti mun að
öllum líkindum fara í opin-
bera lieimsókn til Indlands
í byrjun næsta árs.
• Joszef Mindszenty kardi-
náli, sem dvelst í sendiráði
Bandaríkjanna í Búdapest,
varð 71 árs í dag.
forsæti Kennedys forseta til
að ræða Kúbu-málið og þá
einkum árás kúbanskra þota á
bandaríska 'flutningaskipið
Floridian við Kúbustrendur.
Einnig voru árásir kúbanskra
útlagasamtaka á sovézk skip
á dagskrá fundarins.
Bandarísk yfirvöld hafa undir
höndum myndir, sem skipstjórinn
á Floridian tók meðan á árásinni
stóð, og veiður filman nú rann-
sökuð til að fastákvarða hvaða
flugvélar voru að verki. Haft er
eftir skipverjum á Floridian, sem
kom til Miami í dag, að vélarnar
hafi skotig í sjóinn rétt hjá skip-
inu og hafi þær án efa verið af
inig-gerðinm rússnesku. Hins veg-
ar hafi þær ekki virz^ miða á skip
ið
Síðar í Jag upplýsti utanríkis-
ráðuneyti Bandaríkjanna að kúb-
anska stjórnin hafi tilkynnt, að
þoturnar hafi skotið á Floridian af
misgáningi, en Bándaríkin hafa
íarið fram á, að Kúbustjórn gefi
fullkomna skýrslu um atburðinn.
Öll orðsendingaskipti milli Banda
ríkjanna og Kúbu fara fram fyrir
milligöngu svissneska sendiráðs-
ins.
Þá sendu Sovétríkin Bandaríkj-
unum mótmæli í dag vegna árásar
kúbanskra flóttamanna á rúss-
neska skipið Bakú á þriðjudag.
Segir í mótmælaorðsendingunni.
að þetta sé nýtt sjórán og glæp-
samlegur verknaður, sem kúbansk
ir gagnbyltingarmenn hafi unnið
með samþykki og stuðningi Banda
ríkjanna. Sovétríkin geti ekki
horft þegjandi á þetta ofbeldi og 1
sjái sig tilneydd til ag gera ráð-
stafanir til að tiyggja öryggi
sovézkra skipa í grennd við Kúbu.
Skorar Sovétstjórnin á þá banda-
rísku að gera þegar í stað ráðstaf
anir til að stöðva þetta framferði
kúbönsku útlaganna. Þá segir í
orðsendingunni að Sovétríkin
muni krefja bandarísku stjórnina
um skaðabætur vegna árásarinnar
á Bakú.
Framhald á bls. 15.
Þýzkalands miðl að því að koma af
stað kjarnorkustyrjöld, séu fárán-
legar.
Þessi orðsending er svar við orð
sendingu Sovétríkjanna frá 5. febr-
úar, þar sem Rússar mótmæltu
samvinnusáttmála Frakka og Þjóð
verja. í svari Þjóðverja segir, að
þeirri samvinnu sé ekki stefnt
gegn neinu landi eða þjóð. Þá seg-
ir í orðsendingunni, að þýzka
stjórnin muni ekki svara þeim
röngu, villandi og móðgandi full-
yrðingum, sem hafi verið í orðsend
ingu Sovétríkjanna, þar eð þær
hafi verið svo margar, en vilji að-
eins taka eitt atriði til meðferðar.
Sovétríkin fullyrði að fransk-
þýzki sáttmálinn sé ögrandi, þar
eg hann nái til Vestur-Berlínar.
Af þessu tdefni vill vestur-þýzka
Framhald á 15 síðu.
Smyglað úr herskipum
í FLESTUM löndum er mörg
um svo farið, að þykja gott að
geta flutt með sér inn í land-
ið áfengi og tóbak og annan
varning, án þess að greiddur
sé af honum tollur. En auðvitað
er það ólöglegt og heitir smygl
og varðar þungum kárínum, ef
upp kemst. Síðustu dagana hafa
orðið'uppvís smygl á Norður-
löndum, sem vakið hafa tals-
verða athygli, ekki fyrir þá sök,
að smygl og smygltilraunir séu
svo sjaldgæf fyrirbrigði þar,
heldur fremur fyrir hitt, hverj-
ir að smyglinu standa. En það
eru þeir, sem settir eru til að
gæta laga og réttar, áhafnir
her- og varðskipa. í fyrradag
kom sænska skólaskipið Álv-
snabben, flaggskip sænska flot
ans, til Gautaborgar og þá
gerði tollurinn upptækar all-
miklar birgðir áfengis og tó-
baks, sem 25 skipverjar ætluðu
ag smj'gla með sér í land. Voru
það aðallega undirforingjar,
sem að þeirri tilraun stóðu og
höfðu þeir keypt vöruna aðal-
lega í Suður-Ameríku, en Álv-
snabben siglir um öll heimsins
höf og er einkum notað til
kurteisisheimsókna.
í dag varð svo aftur upp-
vist smygl úr herskipi, að
þessu sinni í Kaupmannahöfn,
en skipið, sem um var að ræða
var freygátan Nils Ebbesen,
sem að jafnaði gætir landhelgi
Færeyja. Gerði danski tollur-
inn upptækt í skipinu 300 flösk
ur af áfengi og 80 þúsund síga-
rettur, en ekki fylgir það með
fregninni, hvaðan sá varning-
ur er ættaður.
Myndin hér að neðan er af
hluta herfangs sænsku tollvarð
anna við komu Álvsnabbens til
Gautaborgar.
fÍMINN, laugardaghm 30. marz 1963 —
3