Tíminn - 30.03.1963, Blaðsíða 5
hesta-
mannafélassins Faxa
NÆSTKOMANDI sunnudag verður vígS ný kirkja aS HöskuldsstöSum á Skagaströnd. Prestur viS Höskulds-
staSakirkju er séra Pétur Ingjaldsson, en héraSsprófastur er séra Þorsteinn B. Gíslason í Steinnesi. — Á
myndinni stendur nýja kirkjan utan vert frá prestseturshúsinu, en í miSju er gamla kirkjan, sem orSin er
afar hrörleg.
Þýzk kynning
í Tjarnarbæ
HF-Reykjavík, 27. niarz.
DAGANA 28.—31. marz gengst
Æskulýðsrág Reykjavíkur fyrir
Hljomleikar í
Skógaskóla
JRH-Skóguni, 18. marz.
LÚÐRASVEIT Selfoss heimsótti
Skógaskóla sunnudaginn 17. marz
cg hélt þar hljómleika við ágætar
undirtektir. Luðrasveitin er ung
að árum, aðeins fimm ár liðin frá
stofnun ihennar, en hefur starfað
af miklum þrótti og leikið opinber
lega 50—60 sinnum víðs vegar á
Suðurlandi. Stjómandi hennar er
Ásgeir Sigurðsson.
Handbolti
urn helgina
íslandsmótið í handknattleik
heldur áfi'am um helgina og verð-
ur leikið bæði á laugardag og
sunnudag. — Á sunnudaginn fara
fram tveir leikir í 1. deild — í
fyrri leiknum mætast Þróttur og
Víkingur, en í þéim síðari Fram
og Víkingur. Á sunnudaginn fer
einnig fram ieikur í 2. flokki og
leika FH og Haukar.
Á laugardaginn fara þessir leik-
ír fram: í 2. flokki karla leika Vík
ingur—Haukar, KR—Þróttur og
Í3K—Ármann. í meistaraflokki
kvenna fara fram tveir leikir. —
í þeim fyrri mætast Fram og Vík
ingur, en í hinum Þróttur og FH.
Þess má geta, að Ármann hefur
tryggt sér sigur í meistaraflokki
kvenna og verður getið nánar um
það í blaðinu eftir helgina.
Fyrsti leikur bæði kvöldin hefst
kl. 8,15 að Hálogalandi.
þýzkni kynningu í samvinnu við
sendiráS Sambandslýðveldisins V.-
Þýzkalands hér á landl. Þetta er
fyrsta kynningin, sem hér er hald-
in af þessu tagi og vonandi fylgia
fleiri slíkar í kjölfarið', iafnframt
því, sem íslenzkt æskufólk efnir
túl íslenzkra kynninga erlendis.
Þýzka kynningin mun fræða ís-
lenzka æsku, og raunar hvern sem
er, um þýzkar listir, bókmenntir,
þjóðlíf og menningu, og er ekki
að efa að margir munu nota sér
tækifærið. Eins og segir í efnis-
skrá kynningarinnar, þá er á þenn
an hátt stigið skref í þá átt að
efla skilning og kynningu á hög-
um nágrannaþjóðanna, menningu
þeirra og lífsviðhorfum.
Fyrsta dagskráin hefst fimmtu-
daginn 28. marz kl. 8,30 e. h. Þar
kennir margra grasa, m. a. heldur
hr. G. Martins, fulltrúi æskulýðs-
sambands Vestur-Þýzkalands,
ræðu um þýzka æsku á áríinum
1945—1963. Ræðan verður þýdd
á íslenzku á eftir. Einnig munu
þau hjónin Juliane og Gísli Al-
fessor lesa á þýzku og íslenzku
úr þýzkum bókmenntum fyrir ut-
an margt fleira. Á föstudagskvöld-
ið voru sýndar kvikmyndir, og í
kvöld er meðal annars bókmennta-
dagskrá og þá um kvöldið heldur
Musica Nova tónleika og leikin
verða verk eftir Beethoven, Hand-
el og Hindemith. Á síðasta degi
kynningarinnar, á morgun, verða
sýndar þýzkar barnakvikmyndir á
barnasamkomu Dómkirkjusafnað-
arins kl. 11 um morguninn og um
eftirmiðdaginn verða kvikmynda-
sýningar.
Aðgangseyrir að hverri kynn-1
ingu er 10 kr., og þess má geta, !
að þessa sömu daga verður sýning i
á þýzkum bókum í bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar, og myndir j
frá Þýzkalandi verða sýndar í |
glugga Morgunblaðsins.
Togaraafli
febrúar
KH-Reykjavík, 25. marz.
AFLI togaranna í febrúarmán-
uði var mjög misjafn, en nokkrir
voru þó með sæmilegan afla. Söl-
ur erlendis tókust ekki cins vel
og í janúarmámið’i, t. d. fékkst
nú alíí að 1,20 kr. Iægra meðal-
verð fyrir kílóið í Þýzkalandi en í
janúar.
Togararnir voru alUr á heima-
miðum í febrúar. Veður var yfir-
leitt hagstætt til veiða, og varla
meira en 1—2 da.gar, sem féllu úr.
Heildaraflinn í mánuðinum nam
rúmlega 4.470 lestum, þar af var
1.113.918 kg. landað í Reykjavík,
Hafnarfirði og Akureyri, 1.392.058
kg. fóru á brezkan markað, og
1.965.092 kg. voru seld til Þýzka-
lands, ...
ýoi;fcílóið til jafnað-
af-áisl kr. é.Io^sem er 18 aurum
lægra meðalverð en fékkst í janú-
ar: í Þýzkalandi fengust ísl. kr.
7,70 að jafnaði á kg., en það ef
1,20 kr. lægra meðalverð en í
janúar.
Auk þess seldu togararnir 1.450,
375 kg. af síld, og fengu fyrir
hana ísl. kr. 3,47 til jafnaðar á
kg., en það er 2,36 kr. lægra en
meðalverð í janúar.
Jóhann Hannesson
flytur erindi
JÓHANN HANNESSON, próf-
essor, flytur erindi, sem hann
nefnir „Áhrif verzlunar á dreif-
ingu menningar“ á fundi Stjórn-
unarfélags íslands í Þjóðleikhús-
kjallaranum í dag kl. 2 e. h. ÖU-
um er heimill aðgangur.
HESTAMANNAFÉLAGIÐ Faxi í
Borgarfirði minntisf 30 ára afmælis
sins með hófi á Hótel Borgarnesi,
faugardaginn 23. þ. m. en þann dag
fyrir 30 árum var félagið stofnað.
Veizlustjóri var Sigursteinn
Þórðarson, afgreiðslumaður í
Borgarnesi. Formiaður félagsins,
Símon Teitsson, járnsmiður í
Borgarnesi, rakti sögu félagsins.
Upphaflegir stofnendur þess voru
18 og 14 enn á lífi. Félagið hyggst
styðja mikið ag ræktun hestsins í
Borgarfirði. Það á m. a. kynbóta-
hest þann, er Skuggi heitir, er
fékk fyrstu verðlaun á landbúnað-
arsýningunni. Félagið heldur ár-
lega hestamannamót og kemur þar
ag sjálfsögðu fram mikið af góð-,
hestum, og auk þess hefur félagið
tekið þátt í landsmótum.
Lengst af starfstíma félagsins |
var formaður þess Ari Guðmunds-
son frá Skálpastöðum i Lundar-
reykjadal, en síðan hann lézt 1959
hefur Símon Teitsson verið for-
maður. Ari hafði lengst af mestan
veg og vanda af viðgangi félagsins.
Meðal skemmtiatriða í hófinu
var einsöngur Eyvindar Ásmunds-
sonar í Borgarnesi og gamanvísna
söngur Ragnars Olgeirssonar að
Oddsstöðum í Lundarreykjadal og
Guðmundar Magnússonar í Arn-
þórsholti í Lundarreykjadal. Sig-
mundur Einarsson í Gröf flutti
kvðjur og árnaðaróskir frá Fáks-
félögum og fleiri.
Hófið fór hið bezta fram og
skemmtu menn sér við dans lengi
nætur.
Núverandi stjórn félagsins
skipa: Símon Teitsson formaffur,
Sigursteinn Þórðarson, Ágúst Jóns
son, Sigmundur Einarsson og Ey-
vindur Ásmundsson.
MB-Reykiavík, 27. marz.
SAMKVÆMT upplýsingum Sig-
urlaugs Þorkelssonar blaðafull-
trúa Eimskipafélagsins, barst fé-
laginu í dag skeyti frá Burmeister
& Wain, þar sem staðfest er, að
viðgerð á Gullfossi muni lokið það
snbmma, aff skipið geti farið í á-
ætlunarferð þann 8. júní næstkom
andi. Sigurlaugur kvað enn ekkert
ákveðið ligigja fyrir um það,
hversu mikiff tjónið af brunanum
væri, allar tölur, sem í því sam-
bandi hefðu verið nefndar, væru
ágizkanir einar.
VERDLÆKKUN A SEMENTI
A FUNDl stjóinai Sementsverk
smiffju ríkisins nýlega var ákveð-
iff aff lækka verff á sementi um
kr. 70,00 pr. tonn frá og meff 26.
marz 1963, og lækkar verff á sem-
enti úr skemrnu í Reykjavík því
úr kr. 1330,00 pr. tonn í kr. 1260,00
pr. tonn og annaff verff samsvar-
andi.
Þess hefur jafnan verið gætt,
að verg á sementi frá verksmiðj-
unni væri ævinlega nokkru lægra
en verð á innfluttu sementi myndi
vera, og hefur svo verið að undan-
förnu, en með þeirri lækkun, sem
nú á sér stað, vex munurinn veru-
Iega.
Verksmiðjustjórnin ákvað verð
lækkunina nú með hliffsjón af því,
aff telja megi víst, að notkun sem
ents innanlands aukist verulega á
þessu ári. Með sölu innanlands á
75 þús. tonnum árið 1962 reyndist
afkoma verksmiðjunnar sæmileg
og ætti sízt að verða lakari á
árinu 1963, ef notkun sements
kemst upp í 85—90 þús. tonn,
enda þótt ofangreind lækkun
komi til framkvæmda nú.
Eins og margoft hefur veriff tek
ið fram, skiptir það mjög veru-
legu máli fyrir afkomu verksmiðj-
unnar, hver notkun sements er
innanlands, og lækkar að sjálf-
sögðu einingarverð sementsins
með aukinni afsetningu. Jafnframt
hefur á undanförnu hálfu öðru
ári tekizt að mmnka rekstrar-
kostnaff verksmiðjunnar svo að
verulegum upphæðum nemur. Tel
ur verksmiðjustjórnin eðlilegt, að
notendur sementsins fái aff njóta
þess, þegar rekstrarafkoma verk-
smiðjunnar batnar Afkomu verk-
smiðjunnar ætti ekki að verða
stefnt í hættu með þeirri lækkun,
sem hér um ræðir.
(Sementsverksmiðja
ríkisins).
AS-Ólafsvík, 25. marz.
EINS og frá hefur veriff sagt,
var mlfeill uppgripaafli hjá Ólafs-
víkurbátum síffustu vlku. Samtals
varð afli þeirra átta báta, sem
gerffÍT eru út héffan, 1297,5 lestir.
Aflahæsti báturinn var Stein-
unn, meff 234,4 lestir í sjö róðrum,
eða 33,5 lestir að meðaltali í róðri.
Skipstjóri á Steinunni er Krist-
mundur Halldórsson. Önnur í röð-
inni varð Hrönn með 218,2 lestir
í sjö róðrum, þriffji Jón Jónsson
með 206,1 lest í sex róðrum, fjórði
Bárður Snæfellsás með 191 lest í
7 róðrum, fimmti Sæfell með 129
lestir í fimm róffrum, sjötti Jökull
með 108,4 lestir í sex róðrum,
sjöundi Valafell með 105,6 lestir
í fimm róðrum og Freyr var með
104,8 lestir í sex róðrum. Það
tafði Jón Jónsson, Valafellið og
Snæfellið, að þau þurftu að fara
alla leið til Reykjavíkur með afl-
ann, vegna þess hve mikið bar§t
að.
Fjórir efstu bátarnir sækja önn-
ur mið en þeir, sem minna öfluðu.
í gær voru Sæfell og Freyr afla
hæstir með um 25 tonn.
A hestbaki í
veitingasal
ED-Akureyri, 27. marz.
UM DAGINN bar einn af hesta-
mönnum hér að dyrum eins veit-
íngastaðariíis Var hann á fák
sínum og fannst ekki taka því að
fara af baki heldur hleypti inn um
dyrnar og svo langt inn eftir gólf-
inu, sem hann komst. Kom þá að.
einn gestanna og teymdi hestinn
sömu leið til baka og skildi við
hann utan dyra. Sat knapinn þá
enn á baki.
BORÐPLAST - VEGGPLAST
Fyrirliggjandi:
BORÐPLAST:
margir litir
stærffir 62x275 cin. og
125x275 cm.
VEGGPIAST
mefl tíglamynstri
stærffir 120x120 cm.
BORÐKANTUSTAR
úr aluminium
og plastnúðaffir.
Sími 1-3333
T í M I N N , laugardaginn 30. marz 1963