Tíminn - 27.04.1963, Blaðsíða 9

Tíminn - 27.04.1963, Blaðsíða 9
fólkið, sem kallar öðrum fremur á síauknar frámkvæmdir, þar sem það á eftir að byggja yfir heimili sin og koma undir sig fótum í atvinnulifinu. En stefna núverandi stjórnar- valda leggur einmitt stærstu steinana í götu ungu kynslóð- arinnar. Til þess að takast megi að tryggja varanlega aukningu og vaxandi fjölbreytni framleiðslunnar, verður að leysa úr læðingi framtak hinna fjölmörgu einstaklinga og þá fé- lagslegu og fjárhagslegu orku, sem með þjóðinni býr, með því að taka upp á nýjan leik, öflugan stuðning við fram- kvæmdavilja almennings og hvers konar opinbera fyrir- greiðslu fyrir uppbyggingu meðal þjóðatinnar. Taka verður til algerrar endurskoðunar og nýskipunar allt stofnlánakerfi þjóðarinnar, sem veldur ekki lengur hlutverki sínu eftir þær flóðbylgjur dýrtíðar og gengislækk- ana, sem skollið hafa yfir. íbúðalánakerfið verður að byggja upp á nýjan leik, til að tryggja eðlilega endurnýjun og aukningu íbúðarhúsnæðis. Stefna verður markvisst að því að hagnýta auðlindir landsins í þágu þjóðarinnar. Ört vaxandi þjóð er þróttmikil framkvæmdastefna llfs- v nauðsyn. vm. Tryggja þarf framkvæmd nýrrar raforkuáætiunar. Dreifa raforku um þau byggðarlög og bæi, sem eiga eftir að fá rafmagn og skapa aukið öryggi með samtengingu veitu- kerfanna og þar með bætta aðstöðu vélvæðingar og iðnaðar. Flokksþingið telur lífsnauðsyn fyrir þjóðina, að unnið sé að jafnvægi í byggð landsins og gegn beinni eða hlut- fallslegri fólksfækkun í einstökum landshlutum, —, ekki sízt með því að stuðla að uppbyggingu og vexti þétt- býlismíðstöðva I sem flestum byggðarlögum, og skapa með því bættan grundvöll fyrir nýja atvinnustarfsemi og iðnvæðingu. Styðja þannig hinar. dreifðari byggð- ir umhverfis og gera um leið viðskipta- og samgöngukerfið auðveldara viðfangs og sömuleiðis skólamál, heilbrigðis- mál o. fl. samfélagsmál. IX. Flokksþingið telur, að ráðstafanir núverandi ríkisstjórn- ar hafi algerlega raskað eðlilegri tekjuskiptingu I landinu, almenningi í óhag. Telur flokksþingið nauðsyn á að gera allar skynsamlegar ráðstafanir til að koma tekjuskipting- \ unni í réttlátara horf. Framsóknarflokkurinn vill byggja upp þjóðfélag, sem skapar öllum þegnum jafna möguleika á að njóta hæfileika sinna og atorku og tryggir það þannig, að þjóðfélaginu hagnýtist sem bezt kraftar hvers og eins. Hann lýsir sem fyrr eindregnu fylgi sínu við samvinnustefnuna og' vill vinna að eflingu félagshyggju með þjóðinni. Jafnframt vill flokkurinn stuðla að sem mestu öryggi þeirra, sem sakir æsku, elli, sjúkleika, örorku eða annarra aðstæðna standa höllum fæti í lífsbaráttunni, m. a. með fullkomnu og rétt- látu tryggingakerfi, enda kom flokkurinn, ásamt Alþýðu- flokknum, almannatryggingarkerfinu á, fyrir rúmum ald- arfjórðungi. Um nánari stefnumótun Framsóknarflokksins í einstök- \ um málaflokkum vísast til annarra ályktana flokksþingsins. X. Afstaða stjórnarflokkanna í utanríkismálum einkennist af ögætni og undanlátssemi. Samningar við Breta í land- helgismálinu eru greinileg sönnun þess. Framkoma ríkisstjórnarinnar við umræðurnar um það, hvaða afstöðu íslendingaf elgi fyrir sitt leyti að taka til Efnahagsbandalags Evrópu, sýnir, að ríkisstjórnin — ef henni endist aldur til — ætlar íslandi aðild að Efnahags- bandalaginu með þeim „aðgangseyri", skerðingu á sjálfs- forræði, sem því fylgir. Undirrót utanríkismálastefnu stjórnarflokkanna virðist vera vantraust á landinu og þjóðinni til sjálfstæðis. Flokksþingið telur að íslendingum beri að kappkosta góða sambúð við allar þær þjóðir, er þeir eiga skipti við. Það vill, að þeir hafi samstöðu með vestrænum þjóðum, m. a. með samstarfi á varnarsamtökum þeirra. í samræmi við þá stefnu, sem lýst var yfir, þegar varnar- samningurinn var gerður, vill Framsóknarflokkurinn vinna að því, að varnarliðið hverfi úr landi, svo fljótt sem auðið er, og leggur jafnframt á það ríka áherzlu, að það er á valdi íslendinga sjálfra, hvort hér dvelur varnarlið og hvernig vörnum landsins er fyrir komið. Framsóknarflokkurinn lýsir sig andvlgan því, að hér sé leyfð staðsetning kjarnorkuvopna. Flokksþingið minnir á það, að íslendingar eiga — eins og mannkynið allt — örlög sin undir því, að friður ríki í heiminum, og leggur þess vegna mikla áherzlu á, að full- trúar íslands á alþjóðavettvangi stuðli af fremsta megni að sáttum þjóða milli, almennri afvopnun og stöðvun tilraung. með kjarnorkuvopn. XII. Nú eru kosningar til Alþingis fyrir dyrum. Kjósendum ber að gera sér grein fyrir þvi við þessar kosningar: Að þeir flokkar, sem nú fara með meirihlutavaldið, stefna að því að koma á efnahagskerfi á íslandi í stil stór- kapitalisma, og hafa á þessu kjörtímabili sóað í þær tilraunir afurðum einmuna góðæris. Að hin næstu ár verða örlagarík í innanlandsmálum. Ofsa- leg dýrtíð með kjaraskerðingu í kjölfari sínu er af- leiðing ríkjandi stjórnarhátta og sækir á með sívax- andi þunga. Mikil átök verður að gera til uppbygg- ingar. Skiptingu þjóðartekna verður að koma á heil- brigðan grundvöll. Að sú landhelgi, sem íslendingar nú hafa og veitt hefur skilyrði til metafla, hefði aldrei fengizt, ef Sjálfstæðis- flokkurinn og Alþýðuflokkurinn hefðu ráðið för í þvi máli, — og nú getur á það reynt á næsta ári, hvort íslenzk stjórnarvöld vilja framlengja veiðirétt Breta, sem þessir flokkar veittu þeim innan landhelginnar. Að stjórnarflokkarnir ráðgera nýja stefnu í sjávarútvegs- málum, sem miðar að því að hleypa útlendingum inn y í fiskiðnaðinn og þar með raunverulega inn í land- m helgina. Að afstaða stjórnarflokkanna til Efnahagsbandalags Evr- ópu er mótuð af veikleika og óvarkárni gagnvart er- lendum áhrifum og áhuga fyrir því að reyna að bjarga „Viðreisnarkerfi“ sínu frá algeru hruni, með þvi að tengja það erlendum stórkapitalisma. Að kommúnistar, sem standa gegn hvers konar sambandi við Vesturveldin, undir yfirskini þjóðrækni og sjálf- stæðisástar, eru óðfúsir til bandalags og afsals réttinda til stórvelda austursins. Að Framsóknarflokkurinn er eini stjórnmálaflokkurinn, sem treysta má til þess, hvað sem í skerst, að hafa þá afstöðu eina, sem miðar að almennu jafnrétti og alls- herjar velmegun, og setur öllu ofar sjálfstæði landsins í nútið óg framtíð. Að Framsóknarflokkurinn er höfuðandstæðingur bæði íhaldsstefnunnar og kommúnismans og eini stjórn- málaflokkurinn, sem allir andstæðingar íhalds og öfga ættu að geta sameinast um. í kosningunum í vor verður kosið um það, hvort áfram skuli fylgt kjaraskerðlngarstefnunni, sem miðar jafnframt að því að arður og eignir dragist saman á færri hendur. Kosið verður einnig um það, hvort íslendingar eiga að innlimast efnahagskerfi þjóðasamsteypu og láta landsgæði sín af hendi til sameiginlegra nota i þeim félagsskap, — eða hvort íslendingar treysta sér til þess að vera sjálfstæð þjóð, er ræður landi sínu ein og stjórnar málum sinum sjálf. XI. Framsóknarflokkurinn vill að stefna íslands í utanríkis- málum sé jafnan við það miðuð, að tryggja stjórnarfars- legt og efnahagslegt sjálfstæði landsins og öryggi þess, — og að leitast sé við að skapa sem víðtækasta samstöðu landsmanna um utanríkismálin. Um leið og flokksþingið þakkar aukinn stuðning vlð flokkinn í bæjar- og sveitarstjórnarkosningunum s. 1. vor, skorar það á alla kjósendur, sem vilja efla almenna hag- sæld og jafnrétti, vernda réttindi íslands og sjálfstæði þjóðarinnar, að styðja Framsóknarflokkinn í næstu kosn- ingum, svo hann geti knúið fram stefnubreytingu á Alþingi. fÍMINN, laugardagurinn 27. aprQ 1963. — 9

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.