Tíminn - 28.04.1963, Síða 5
ÆSKUFOLK A FLOKKSÞINGI
Það var einkennandi fyrir hið
nýafstaðna flokksþing Framsókn-
armanna, að æskufólk var þar
mjög fjölmennt. Ungt fóik tók þátt
í öllum störfum þess, bæði í nefnd
um og almennum umræðum, meira
en nokkru sinni fyrr. Sannaðist
það fyllilega, að æskan fylkir sér
undir merki elzta flokksins 1 la«d
inu og viðurkennir hann, sem kynd
ilbera djarfra, en þjóðlegra hug-
sjóna og framfara.
Samband ungra Framsóknar-
manna, sem á 25 ára afmæli um
þessar mundir, bauð öllum fulltrú
um félaga ungra Framsóknar-
manna til kvöldverðar í Framsókn
arhúsinu að kvöldi annars þing-
dagsins, í tilefni afmælisins. Þar
ræddu fulltrúamir um þau verk-
efni er fyrir þinginu lágu, og
kynntu hverjir öðrum það helzta,
sem félögin og SUF eru með á
döfinni. Ríkti mikill einhugur á
fundtaum og var auðfundið að ung
ir Framsóknarmenn munu ekki
ætla sér að liggja á liði sínu í hönd
farandi kosningum. Myndin hér á
síðunni var tekin við þetta tæki
færi í Hallargarðinum við hlið
Framsóknarhússins.
Tíðindamaður Vettvangsins sat
hófig og átti stutt samtal við einn
fulltrúanna, Hauk Engilbertsson,
hinn víðkunna íþróttamann. Fer
samtalið hér á eftir.
— Þú ert úf Borgarfirðinum?
— Já, ég er fæddur þar og upp
alinn.
— Og ætlar þú kannski að verða
bóndi þar?
— Ja, það en nú kannski óráð
ið enn þá, en mér finnst gaman
að vtana við búskap. Það er frjáls
legt, og þá er maður þó sjálfs
sín húsbóndi.
— Og hvað segir konan þín um
það?
— Eg er nú trúlofaður, en hún
myndi varla bregða fæti fyrir þá
hugmynd, þó að hún sé úr Reykja
vík. Ég held að hún muni alveg
treysta sér til þess.
— Já, eru ekki skilyrði til land-
búnaðar góð í Borgarfirðinum?
— Jú, það má örugglega segja
það, en það er erfitt fyrir unga
E VINRUDE
Reynslan hefir sýnt að
EVINRUDE utanborðs-
mótorar eru traustir og
þægilegir hvar sem er.
á sjó vötnum og ám.
Nú er hver síðastur að
hjá oss mótor fyrir
hækkun í byrjun maí.
ORKA H/F
uaugaveg] 178.
Sími 38000
Varahlutaþjónusta
Haukur Engiilbertsson
Ifólkið að byrja búskap, því að
það þarf mjög mikið fjármagn til
þess að stofna bú núna og má
raunar segja að það sé orðið ó-
kleift fyrir byrjendur að koma
búi á fót. Það er erfitt að fá lán,
og þó að þau fáist, þá eru vextir
svo háta, að erfitt reynist að greiða
þau upp. Ég held að hér séu mikil
verkefni fyrir höndum, ef þessi
mál eiga að komast í lag.
— En er ekki eitthvað af ungu
fólki búandi?
— Það er auðvitað alltaf eitt-
hvað, en þróunin er samt sú, að
það eru alltaf færri og færri af
þeirn ungu, sem ílengjast í sveit-
inni, þó er sennilega tdtölulega
minna unj ungt fólk í Borgarfirði,
heldur en víða annars staðar í
sveitum landsins.
— Hvað telur þú nú að helzt
sé hægt að gera U1 þess að halda
fólkinu í sveitinni?
— Eg tel að lífskjörsv eita-
fólksins séu ekki sambærileg við
i lífskjör borgarbúanna. Sveitirnar
• eru enn á eftir með margt. Þæg-
indi sveitakonunnar eru víðast
minni j sveitum en við sjó. sér-
staklega þar sem ráfmagn er ekki
komið enn þá.
— Er ekki rafmagn víðast í Borg
arfirðinum?
— Nei, það er nú öðru nær, það
er t.d. heill 'hreppur. Lundarreykja
daloir, þar sem ekki er rafmagn
á einum einasta bæ frá samveitu,
og slíkt ástand er auðvitað alveg
óþolandi. Það er eins og það hafi
alveg gleymzt að leggja rafmagn
ið þangað og er varla önnur á-
stæða, þar sem ekki er þar lengra
á milli bæja, heldur en víða ann-
ars staðar. En eins og ég gat um,
er það hvað mestu þægtadin, sem
sveitakonan getur kosið sér. Það
er að verða talið úrelt að elda
við kol, svo að ekki sé mtanzt á
þrifnaðaraukann, sem rafmagninu
fylgir. Enn fremur er rafmagnið
eins og allir vita grundvöllur fyrir
því, að húsmóðirin geti tekig heim
ilisvélamar í þjónustu sína.
— Telur þii að bændur hafi
bolmagn til þess að eignast allan
þann mikla vélakost, sem búskapn-
um fylgir?
— Þarna er nú kannski mergur'
málstas. Vélvæðingunni hefur
fleygt fram hröðum skrefum síð-
ustu árta. Það voru kaupfélögin
sem vélvæddu landbúnaðinn. —
Hefðu þau ekki leyst lánsfjárskort
inn á því sviði, sem mörgum öðr-
um, þá væri íslenzkur landbúnað
ur ekki á iþví stigi í dag sem raun
ber vitni. En vélarnar krefjast si-
fellds viðhalds og tækntani fleyg-
ir fram, bændur eru nauðbeygðir
að fylgjast þar með, en gallinn
er bara sá, að verðlagið hefur stór
hækkað svo, að engu lagi er líkt.
í tíð núverandi ríkisstjórnar hafa
sumar landbúnaðarvélar nærri því
tvöfaldazt í verði, en verðlag af-
urða hefur ekki hækkað nærri því
eins mikið tiltölulega. Því hefur
verið haldið fram og það nú síðast
í útvarpsumræðunum af stjórninni
að því væri etakum um að kenna,
að vélarnar hefðu etakum hækkað
vegna þess að þær væru nú orðn-
ar fullkomnari og afkastameiri en
áður. Þetta er alrangt. Það munar
mjög litlu á verði á þessum vél-
um og þag kostar ekki metaa að
framleiða vél, þó að hún sé nokkr
um hestöflum sterkari en áður.
— Já, þessi kenning er bara fyrta
sláttur og ekkert annað til þess
að dylja aðgerðir núverandi ríkis-
stjórnar í garð sveitabæmdanna,
enda munu þeta fá tækifæri úl
þess að svara fyrta sig við kjör-
borðið.
Nokkrir verkamenn
óskast í byggingarvinnu. Upplýsingar gef-
ur SigurUur Gíslason vi($ Kjötstöíina,
Kirkjusandi.
Samband ísl. samvinnufélaga
T í M I N N, sunnudagur 28. apríl 1963. —
3