Tíminn - 28.04.1963, Page 7

Tíminn - 28.04.1963, Page 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. — Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. .Auglýs- ingastjóri: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórnarskrifstofur í Eddu- húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur Bankastræti 7: Af- greiðslusími 12323, Auglýsingar, sími 19523. — Aðrar skrif- stofur, sími 18300. — Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innan lands. í lausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. — Ótti Bjarna og Ólafs Ræður þeirra Bjarna Benediktssonar og Ólafs Thors, sem þeir fluttu við setningu landsfundar Sjálfstæðis- flokksins á fimmtudaginn, hafa nú verið birtar í Mbl. Það., sem hlýtur að vekja mesta athygli, þegar þessar ræður eru lesnar, er hinn mikli ótti vtð Framsóknarflokk- inn, er þar kemur fram. Ræða Ólafs Thors, sem er mun lengri fjallar að mestu um Framsóknarflokkinn, þ. e. hún er ýmist bein svör við gagnrýni hans á stjórnarstefnuna eða viðleitni til gagnsóknar gegn honum. Það, sem Ólaf- ur hefur að seg.ja um sjálfa „viðreisnina“, er mörgum sinnum minna. Á sama hátt helgar Bjarni Benediktsson Framsóknarflokknum meginhluta ræðu sinnar. Hins vegar er sama og ekkert minnzt á kommúnista í ræðum þeirra Ólafs og Bjarna. Það helzta er það, að Bjarni víkur nokkrum orðum að þeim í þeim kafla ræð- unnar, sem fjallar um hvort Framsóknarmenn séu sam- starfhæfir í ríkisstjórn. Niðurstaða Bjarna er sú, að kommúnistar séu sízt ósamstarfshæfari! Bjarni vill auð- sjáanlega halda leiðinni til myndunar nýrrar nýsköpun- arstjórnar vel opinni, ef Alþýðuflokkurinn skyidi reynast ófullnægjandi hækja eftir kosningarnar. Ræður þeirra Bjarna og Ólafs bera þannig órækt merki um, að það er Framsóknarflokkurinn, sem stjórnarflokk- arnir óttast Þeir gera sér ljóst, að hann er nú eini sterki andstæðingur kjaraskerðingarstefnu og innlim- unarstefnu stjórnarflokkanna. Þeir finna, að málflutn- ingur hans á hljómgrunn hjá þjóðinni og hin einbeitta stefna hans ! sjálfstæðismálum og kjaramálum þjóðar- innar á vaxandi fylgi að fagna. Þeir gera sér ljóst, að launastéttir, bændur og aðrar miðstéttir gera sér ljóst í sívaxandi mæli, að þessum stéttum ber að þoka sér saman í öflugan flokk, en ekki að skipa sér í smáflokka. Iiins vegar óttast þeir Ólafur og Bjarni ekki kommún- ista, því að þeim er ljóst, að þeir eru á hrörnunarskeiði. Stjórnarandstæðingar geta vissulega mikið lært af ótta þeirra Ólafs og Bjarna. Hann er áugljós vitnisburður um, að það er Framsóknarflokkurinn, sem þeir eiga að efla í kosningunum 9. júní. Bjarni og iaunþegar Þrátt fyrir hinar stórauknu þjóðartekjur seinustu miss- erin, búa launþegar nú við mun lakari kjör en 1958, ef miðað er við óbreyttan vinnutíma Svo grátlega hefur ,viðreisnin“ leikið launastéttirnar. En forkólfum S.jálfstæðisflokksins finnst ekki nóg að gert. Þegar Bjarnj Benediktsson setti landsfund Sjálf- stæðisflokksins, notaði hann tækifæri til að ráðast harð- lega á samvinnufélögin fyrir að hafa forgöngu um að veita verkamönnum 10% kauphækkun sumarið 1961 eftir að þeir höfðu enga kauphækkun fengið í nær þrjú ár, þrátt fyrir stóraukna dýrtíð Þessa samninga kallar B.jarni i ræðu sinni svikasamninga ofbeldi. misnotk- uri, misbeitingu og öðrum slíkum nöfnum og endar með því að hafa í hótunum við verkalýðshreyfinguna og samvinnufélögin. Þessi málflutningur Bjarna. sýnir glöggt hinn raun- verulega hug hans og annarra leiðtoga Sjálfstæðisflokks- ins tii launbega. Það eru svik og misbeiting að veita þeim kjarabætur sem atvinnuvegirnir geta vel risið undir Af þessu geta launþegar séð, hvað í vændum er, ef stjórnarflokkarnir halda velli í kosningunum. Þá munu þeir Bjarni og Emil koma með gengisíall og gerðardóma. r í 1YT T N NT cminiiflncrur 9.R. anríl 1B6B. — Sögulegar kosningar á italíu Líkur iil, aö mynduð verdi vinstrl stjórn að þeim ioknum. t DAG og á morgun munu fara fram á ítalíu þingkosn- ingar, sem geta átt eftir að verða hinar sögulegustu og hafa mikil áhrif á stjómmál Evrópu. Pyrsta hálfan annan ára- tuginn eftir styrjöldina, mót- aðist stjórnmálalíf ítalíu mjög af þvi, að náin sam- vinna var milli kommúnista og flokks jafnaðarmanna, sem var undir forustu Nennis. Kristilegi demokrataflokkur- inn, sem er hægri flokkur, hefur verið stærsti flokkur landsins, en ekki haft hrein- an meirihluta. Innan flokks- ins hafa vinstri sinnuð öfl og hægri sinnuð, tekizt á um völdin. Stundum hefur flokk- urinn því unnið með öfga- flokkum til hægri eins og konungssinnum og nýfasist- um, en stundum með litlum miðflokkum eins og lýðræðis flokknum og hægri jafnaðar- mönnum. Stj órnarskipti hafa verið tíð og því meira los á stjórnarháttum en ella. FYRIR nokkrum misserum varð hins vegar breyting á þessu. Vinstri armurinn náði þá forustu í kristilega demo krataflokknum undir forustu Fanfanis, er myndaði stjórn með stuðningi hægri jafnað armanna og lýðveldisflokks- ins. Jafnframt tryggði Fanfani sér' hlutleysi vinstri jafnaðar manna og rauf með því tengsl in milli þeirra og kommún- ista. Af hálfu Fanfanis og Nennis hefur seinustu árin. verið stefnt að því að koma á samstarfi milli kristilegra flokksins og vinstri jafnaðar- manna. en það hefur mætt harðri andstöðu í báðum flokkum Þó er svo komið, að meirihluti beggja flokkanna hefur fallizt á slíkt samstarf. Báðir flokkarnir ganga nú til kosninga undir þeim fána, að þeir muni vinna saman, ef 1 úrslitin verða þeim hagstæð. FANFANI Hægri jafnaðarmenn undir stjórn Saragats hafa mjög hvatt til slíkrar samvinnu og munu taka þátt í henni. Lík- legt þykir að þetta muni afla flokki Saragats fylgis. þessu samstarfi er sú, að óráð legt sé að hafa náið samstarf við kommúnista, þótt það geti verið nauðsynlegt um viss mál og í vissum samtök um. Yfirleitt er það nú stefna vinstri jafnaðarmanna um heim allán að hafna öllu sam stárfi við korhmúnista í þing kosningum. Þannig neitaði flokkur Larsens í Danmörku að hafa nokkra samvinnu við kommúnista i seinustu þingkosningum. Á sama hátt hafnaði nýi Sósíalistaflokkur inn í Noregi öllu kosningasam starfi við kommúnista fyrir seinustu þingkosningar þar. EF úrslit þingkosninganna á ítalíu leiða til þess, að stjórnarsamstarf hefst milli kristilegra demokrata og vinstri jafnaðarmanna, mun það hafa í för með sér ýmsar róttækar breytingar á sviði innanlandsmála. Hins vegar mun stefnan á sviði utanríkis mála verða nokk.uð svipuð, þótt vinstri jafnaðarmenn hafi verið andvígir þátttöku í Atlantshafsbandalaginu. — Það mun auðvelda samvinn- una á þessu sviði, að Banda- ríkjamenn hafa ákveðið að leggja r.iður hinar úreltu eld- flaugastöðvar sínar á Italiu og má segja, að þeir hafi á þann hátt óbeint greitt fyrir þessu samstarfi. Ef sæmilega tekst til varö- andi samvinnu þessara flokka á ítaliu, munu það geta haft veruleg áhrif sem for- dæmi annars staðár Sigur þeirra í kosningunum mun og þykia merkja það, að menn kjósi vinstrisinnaðri stjórn en verið hefur á ítaliu til þessa. Þ.Þ. Páfinn í seinustu þingkosningum fengu kristilegir demokratar 42% af greiddum atkvæðum; kommúnistar 22% og ‘ vinstri jafnaðarmenn 14%. AÐ SJÁLFSÖGÐU vekur þessi fyrirhugaða samvinna mikla andspýrnu kommúnista og öfgaflokkanna til hægri. Vegna hennar reyna komm- únistar nú mjög að ná at- kvæðum frá vinstri jafnaðar mönnum, en öfgaflokkarnir til hægri frá kristilegum demokrötum. Ef þessum flokk um verður verulega ágengt í kosningabaráttunni getur það mjög veikt og truflað fyrirhugað samstart kristi- legra demokrata og vinstri jafnaðarmanna. Það er hins vegar talið styrkja mjög að- stöðu kristilegra demokrata og vinstri jafnaöarm., að kirkjan hefur óbeint undir' leiðsögn páfans lagt blessun sína yfir fyrirhugað samstarf þeirra. Þetta mun a.m.k. styrkja kristiiiiga demokrata gagn- vart öfgaflokkunum til hægri. Það mun og einnig styrkja vinstri jafnaðarmenn því að kommúnistar hafa ekki fært þeim þessa afstöðu kirkjunnar til foráttu. held- ur reynt sjálfir að vingast við hana. Af þeim ástæðum fékk sjálfur tengdasonur Krustjoffs einkaviðtal við páfann fyrir skömmu síðan. ÞAÐ hefur að vonum vakið mikla athygli, að vinstri jafn aðarmenn hafa nú hafnað samvinnu við kommúnista á sviði landsmála, þótt enn sé samstarf milli þeirra í verka- lýðsfélögum og í bæjar- og héraðsstjórnum. Reynsla vinstri jafnaðarmanna af

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.