Tíminn - 10.05.1963, Síða 1

Tíminn - 10.05.1963, Síða 1
FLÝJA FRÁ UMRÆDUM UM LANDHELGI OG EBE Fá dæmi munu vera til um aðra eins málefnalega uppgjöf og þá, sem Morgunblaðið auglýsfi á 1. síöu sinni í gær. Fyrir þremur dögum eða á þriðjudaginn, birti Mbl. heilsíðugrein, þar sem það skoraði á Tím- ann að ræða við sig um utanríkismá! og nefndi sérstaklega þrjú mál, þ. e. landhelgismálið, Efnahagsbandalagsmálið og landhelgisgæzlumálið. Tím- inn varð strax við þessari áskorun og svaraði með forsíðugrein daginn eftir, þar sem þessi mál voru rakin. í gær svarar Mbl. aftur með langri grein á forsíðu, en það furðulega skeður, að þar er hvergi minnzt á land- helgismálin og EBE-málin, heldur byrjar Mbl. nú umræður um nýtt mál, afstöðuna til Atlantshafsbandalagsins. Tíminn mun vissulega ekki siður skorast undan því að ræða um það mál við Mbl. Ekki kosið um NATO Mbl. spyr hvers vegna Tlm- inn hefði ekki minnst á At- lantshafsbandalagið og varnar- málin í grein sinni. Skýringin er einföld. Mbl. minnist ekki neitt á þetta efni í áskorunar- grein sinni, heldur vék fyrst og fremst að hinum málunum og því taldi Tíminn rétt að binda umræðurnar við þau. Þessi upp haflega málsmeðferð var líka rétt hjá Mbl. af þeirri ástæðu, að ekki verður kosið um At- lantshafsbandalagið í þessum kosningum eða hvort fylgt skuli hlutleysisstefnu. Framsóknar- flokkurmn er fylgjandi aðild að Atlantshafsbandalaginu engu síður en stjórnarflokkamir og áréttaði það skýrt á nýloknu flokksþingi sínu. Hann vill jafn framt, að íslendingar ráði því einir hvenær hér er her eða ekki her. Sá eini flokkur, sem hér hef”- barist fyrir hlutleysis stefnu, Þjóðavarnarflokkurinn, er endanlega úr sögunni, og því getur ekki orðið kosið um hana, þar sem enginn flokkanna, sem bjóða fram, eru fylgjendur hennar. Því fer vitanlega fjarri, að hægt sé að telja Alþýðu- bandalagið merkisbera hennar, því að nánast sagt fylgir það ekki annarri utanríkisstefnu en þeirri, sem er hentug Hússum hverju sinni og snýst sam- kvæmt því eins og vindhani á burst, eftir þvi hvemig vindur- inn blæs að austan. Þess vegna hafa leiðtogar Alþýðubandalags ins ýmist verið með hlutleysi eða móti hlutleysi, með hervörn um eða móti hervörnum eftir því, sem Rússum hefur hentað. Á stríðsárunum vildu þeir t. d. hafa hér sem mestan her, ef það gæti orðið tU þess að gagna Rússum. Þessi afstaða kom líka glöggt í Ijós á seinasta þingi, er Alfreð Gíslason og Einar Olgeirsson fluttu í þingbyrjun tillögu um brottflutning hers- ins. Það gerðist, þegar Kúbu- deilan stóð sem hæst og Rúss- ar kröfðust, að Bandaríkin flyttu allt herlið frá erlendum bækistöðvum. Eftir að samn- ingar hófust svo milli Kennedys og Krústjoffs, báðu þeir Alfreð og Einar um, að tillagan yrði ekki tekin til umræðu! Til- Iagan var því aldrei rædd á þinginu, þótt hún kæmi fram i þingbyrjun. Af þeim ástæðum, sem hér eru raktar, verður ekki kosið um afstöðuna til Atlantshafs- bandalagsins í þessum kosning um. Þrír flokkanna, Framsókn- arflokkurinn, Sjálfstæðisflokk- urinn og Alþýðuflokkurinn, eru fylgjandi aðild að bandalaginu áfram. Um stefnu fjórða flokks ins, Alþýðubandalagsins, veit raunar enginn. Þótt hann kunni að telja sig móti því í dag, get- ur hann verið með þvi á morg- un. Það fer allt eftir austan- vlndinum og samningum Rússa og Bandaríkjamanna. Nokkuð var og það, að Alþýðubandalag ið hafið ekki neitt við aðildina að NATO að athuga á stjórnar- árum sínum 1956—1958. Máiin, sem kosiö er um Af þeim ástæðum, sem raktar eru hér að framan, er ekki kos ið um Atlantshafsbandalagið eða hlutleysisstefnuna í kosn- ingunum 9. júní. Þó snú- ast kosningarnar meira um utanríkismál en nokkru sinni fyrr síðan 1908. Ástæðan er sú, að á næsta kjörtímabili verður því ráðið til lykta, hvort fs- land á að gerast aðili að Efna- hagsbandalagi Evrópu eins og Sjálfstæðisflokkurinn vill, eða hvort aðeins verður gerður við það tolla- og viðskiptasamning- ur, eins og Framsóknarflokkur inn vill. Einnig verur kosið um það, hvort áfram skuli veittar undanþágur í sambandi við fiskveiðalandhelgina í einu eða öðru formi, sem stjórnarflokk- arnir eru ekki síður líklegir til að veita eftir kosningar en 1961, eða hvort ekki skuli veita nein- um afslátt, heldur barist fyrir óskertu tilkalli til landgrunns- ins alls, eins og Framsóknar- flokkurinn vill. Það er um þessar tvær stefn- ur í utanríkismálunum — stefn ur meginflokkanna tveggja, — sem kosið verður í kosn- ingunum í sumar. Mbl. telur málstað flokks síns ekki betri en svo, að það gefsfupp við að ræða um þessar tvær stefnur í Efnahagsbandalagsmálinu og landhelgismálinu eftir þó að hafa boðið upp á umræður um þær. Jafnframt reynir það að gefa í skyn, að það sé andstætt samvinnu við vestrænar þjóðir og fjandsamlegt þeim, ef við höldum fast á rétti okkar í sam bandi við EBE og landhelgina. Slíkt er megin misskilningur. Með því vinnum við þvert á móti virðingu þessara þjóða, en glötum henni, ef við skríðum. Það hefur alltaf gefist íslend ingum vel að halda fast á rétti sinum. Undanhald hefur hins vegar boðið óvirðingu og ósigr- um heim. Þess vegna á þjóðinni að vera auðvelt að velja á milli umræddra stefna meginflokka hennar í utanríkismálunum. HEVRIÐ ÞEK.-HEITIP UT*M - RÍKISKÁOHETRRAWM EVCKl 6Uf>MUNPUR X ? Flýtt sé inngöngu Breta og annarra umsækjenda í EBE NTB-Strassbourg, 9. maí Ráðgjafaþtng Evrópuráðsiins Jagði í gær til, að samningaviðræð- ur milli EBF og Bretlands hæfust að nýju eins skjótt og kostur væri á og aðildarríki Evrópuráðsiins tækju upp sameiginlega stefnu til að auka einingu Evrópu og alþjóða samvinnu. Þetta kemur fram í tveimur á- Iyktunum, sem þingið samþykkti eftlr iveggja daga umræðux. í fyrri álykti.ninni er lagt til að samningaviðræður milli Breta og EBE hefjist skjótlega og einnig viðræður milli EBE og þeirra landa, sem -ótt hafa um fulla að- íld eða aukaaðild. í ályktuninni eru einniig látnar í ljósi vonir um tð samningavðiræðurnar við Bandaríkin muni ganga að óskum Framhald á 15. síðu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.