Tíminn - 21.06.1963, Qupperneq 7
Útgefsndl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Frarakvæmdastjóri: Tómas Árnason. — Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson. FulLtrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Frétta-
stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson.
Ritstjórmarskriístofur í Eddu húsinu, símar 18300—18305. Skrif
stofur Bankastr. 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523. Aðrar
skrifstofur, sími 18300. Áskriftaingjald kr. 65.00 á mán. innan-
lands. í lausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. —
Hin „heiðarlega“
kosningabarátta
Nokkru fyrir seinustu áramót var fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árið 1963 til umræðu og af-
greiðslu í borgarstjórninni. Blöð borgarstjórnarmeirihlut-
ans héldu því þá mjög fram, að það bæri vott um góða
stjórn borgarinnar, að ekki væri gert ráð fyrir teljandi
hækkun á heildarupphæð útsvaranna í fjárhagsáætlunni.
Þetta sýndi, að kjósendum væri óhætt að treysta Sjálf-
stæðismönnum til góðrar fjárstjórnar. Haldið var svo
ospart áfram að hampa þessu fram yfir þingkosningarnar.
Nær strax eftir þingkosningarnar, breyttist svo skyndi-
lega veður í lofti. Þá eru fyrirvaralítið kallaðir saman
fundir í borgarráði og borgarstjórn, þar sem borgarstjóri
skýrh* frá því, að nauðsynlegt sé að hækka útsvörin um
30 milljónir kr. frá því, sem fjárhagsáætlunin gerði ráð
fyrir. Þetta var svo samþykkt af fulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins og Alþýðuflokksins.
Ástæðurnar, sem voru færðar fyrir þessari útsvars
hækkun, voru væntanlegar hækkanh* á launum starfsfólks
borgarinnar. Sú hækkun var fyrirsjáanleg, þegar fjár-
hagsáætlunin var afgreidd fyrir áramótin, enda bentu full-
trúar Framsóknarflokksins þá á, að nauðsynlegt væri
að taka tillit til hennar. Á það var ekki hlustað. Um það
eitt var hugsað að búa til f járhagsáætlun, sem liti vel út
fyrir kosningar.
Þetta er eitt af mörgum dæmum þess, hvernig stjórn-
arflokkarnir hafa búið til áferðarfallegar áætlanir og
skrumauglýsingar fyrir kosningarnar. Eftir þær kem-
ur svo raunveruleikinn til sögunnar. Þá fá kjósendur að
kynnast því, hvernig þeir hafa verið blekktir. Stjórnar-
liðar treysta því hins vegar, að það verði gleymt fyrir
næstu kosningar.
En málgögn og foringjar stjórnarliðsins halda sig samt
áfram við sama heygarðshornið Morgunblaðið og Al-
þýðublaðið eiga ekki nógu sterk orð til að lýsa því hve
síjórnarflokkarnir hafi háð blekkingalausa, heiðarlega og
virðulega kosningabaráttu!
Undh* þessa „blekkingalausu“ og „heiðarlegu“ kosn-
mgabaráttu flokka stjórnarblöðin vafalaust þessa 30 millj.
kr. hækkun útsvara, sem haldið var leyndri fyrir kjós-
endum fram yfir 9. júní!
tJtsvarsstiginn
í blöðum borgarstjórnarmeirihlutans er því nú haldið
fram, að það þýði lækkun útsvara, að veittur er 17%
afsláttur frá útsvarsstiganum.
Hið rétta er, að útsvarsstiginn er miðaður við miklu
lægri tekjur en nú. Vegna dýrtíðarinnar hafa laun manna
stórhækkað í krónutölu, þótt raunverulegur kaupmátt-
ur hafi ekki aukizt. Hækkun launanna þýðir það, að út-
svörin, sem leggjast á þau, hækka. þótt kaupmátturinn
.itandi í stað. Því mun þetta verða í reynd þannig, að þrátt
íyrir 17% afslátt frá útsvarsstiganum, munu t. d. verka-
menn greiða hærra útsvar nú en fyrir 2—3 árum, þótt
kaupmáttur launanna hafi síður en svo aukizt.
Það er því ekkert annað en hrein blekking, þegar
stjórnarblöðin eru að gefa í skyn að útsvörin lækki um
17%, eins og menn munu líka sannfærast um næstu
daga.
Skattseðlarnir munu sýna mönnum. hvernig stjórnar-
hðið reynir að blekkja fólk á allan hátt.
MJÖG er nú rætt um, að Mac-
millan muni bráðlega biðjast
iausnar. Sá maður, sem myndi
verða álitlegasti eftirmaður
hans, er Halisham lávarður, en
sá galli er á, að hann má ekki
vegna tignar sinnar taka sæti í
neðri deildinni. Nú liggur hins
vegar fyrir lagafrumvarp, sem
myndi leysa hann undan þessari
kvöð, ef það yrði samþykkt. Þing
ið mun f jalla um það innan fárra
vikna og ef til vill frestar Mae-
millan lausnarbeiðni sinni á með
an.
Nýlega var haldln i höfuðborg Ethiopíu, Addis Abeba, ráðstefna
29 þjóðhöfðingja í Afríku, sem talin er hafa stuðlað að aukinni
einingu Afríkuríkja. Á myndinni sést Haile Selassie, keisari Ethio-
píu, vera að taka á móti Nkrumah, forseta Ghana.
Mynd þessi var tekin nú í vikunni af Profumo, fyrrverandi hermálaráðherra Breta, og Valerie Hobson,
konu hans og fyrrv. leikkonu, sem staðið hefur örugglega við hlið manns sins að undanförnu, þrátt fyrir
þau hjúskaparbrot, sem hann hefur orðið uppvís að.
T í M I N N, föstudagurinn 21. júní 1963. —
1