Tíminn - 23.06.1963, Qupperneq 15
Minning
Framhald af 2. síCu.
Heimilisstjóm fór Ólöfu úr hendi
meS prýði og reglu. í allri úm-
gengni og framreið'slu var mikill
myndarskapur og hreinlætis og
þrifnaðar gott í hvívetna. Um það
nutu þau hjón ágætrar aðstoðar
Kristínar, systur Ólafar, sem var á
heimilinu og vann því nær alla hjú
skapartíð þeirra hjóna og lagði
krafta sína fram í þágu fjölskyld
unnar og heimilisins í hvívetna,
svo sem hún væii sjálf eigandi
?,llt þess, er hún annaðist eða fór
höndum um. Er slík fórnarlund
næsta sjaldgæf.
Þau Ólöf og Guðni eignuðust
fjóra syni, sem allir eru kunnir
menn og hafa mikilsverð störf á
hendi. Þeir era: Stefán, trygg-
ingalæknir, Svavar, listmálari, báð
ir í Reykjavík, Óskar, frystihús-
stjóri á Höfn, og Garðar, rafvirkja
meistari á Búðum á Fáskrúðsfirði.
Auk þeirra ólu þau upp Þórð, son
arson sinn og fleiri börn dvöldu
hjá þeim lengur eða skemur, bæði
skyld og vandalaus, er þau létu sér
jafnannt um og^ sína eigin syni.
Við andlát Ólafar húsfreyju á
Heklu er margs að minnast, bæði
fyrir þá, er búið hafa í nágrenni
við hana, og einnig hina, sem fjær
eru, en hafa kynnzt henni og
heimilinu sem gestir þess eða á
annan hátt.
Hafnarbúar kveðja einn af
fyrstu landnemunum þar, sem
margir þeirra hafa þekkt frá fyrstu
bernsku. Austur-Skaftfellingar
rðrir kveðja konu, sem með þeim
hefur starfað langa ævi af mikl-
vm dugnað'i og forsjá.
Eg og fjölskylda mín þökkum
Ólöfu og heimili hennar mikla
vinsemd og velgerðir fr'á fyrstu
kynnum. Tryggð þeirra hjóna í
okkar garð var slík, að minningarn
ar um störfin með A-Skaftfelling-
um verða enn ánægjulegri en ella.
Við vottum sonum Ólafar', fjöl-
. skyldum þeirra, systkinum hennar
og öðrum vandamönnum einlæga
samúð.
Jón ívarsson
SELVEIÐI
Framhald af 1. síðu.
Veiðin við Þjórsá hefur verið
mun meiri nú en undanfarin ár.
Veiðisvæðið nær frá Þjórsárósum
að Egilsstöðum, og taka 11 bæir
þátt í veiðunum. Veiðzt hafa 240
selir, sem vitað er um, og er það
um 40 fleiri en vant er. Þrátt
fyrir þetta er veiðin mjög misjöfn,
sumir hafa fengið mikið og aðrir
J'tið sem ekki neitt. Veiðideila
nefur risið upp við Þjórsá. vegna
iípiðiréttinda. Deila bændur aiisí
an og vestan árinnar um það, hverj
um beri að veiða selinn og hverj
um ekki. Austanbændur hafa lítið
sem ekkert veitt í sumar. Við Þ.iórs
á eru selirnir skotnir.
Bændur frá Fagurhólmsmýri
hafa fengið milli tvö og þrjú
hundruð seli í sumar. Frá Skafta-
felli er farið á selveiðar í Skeið
arárós. Svínfellingar eru enn að
veiðum en væntanlegir heim þessa
dagana Veiði við Breiðárós er
í þann veginn að ljúka.
Nokkrar ferðir hafa þegar ver-
ið farnar úr Fljótshverfi til sel
. veiða. og hafa fimm bændur feng
; ið 290 seli. ætlunin er að fara enn
., eina ferð fvrir mánaðamót en þeg-
. ar fer að líða á júnímánuð er
„ veiðivonin m’'nni. Bændur á Nún-
siað og Rauðabergi hafa aðein,-
fomizt í selalátur einu sinni, en
þeir verð" .-.ð fara austur yfir vötn
ju. en i bessa-i einu ferð fensu
þe'" bvork meira né minna en 44
*«fli. A þessu svæð' eru selirni'
.rotaði’' en annars eru þeir vfir
, \-eiridi' í net
Ve"ð á skinnum er miög hátt t
-- o" heíur bað mikið rekið
minnum vig selveiðina Fy.r
, ' 1 flokks skinn fást nú 1300 kr
PtiC kr fvrn 2 flokk og 450—50P
cvrir 3 fiokk. Síðan verður borg
aðar einhverjar uppbætur í haust.
Richard Vattingojen listmálari frá Vfn, sýnir myndir sínar í Mokkakaffi viS Skólavörðustíg næstu þrjár
vikurnar. Hann hélt sýn'mgu í Bogasalnum, fékk góða aðsókn og seldi nokkrar myndir. Richard kom
hingað fyrir röskum tveim árum og réði sig til sjós, var á togara í tvö ár. Ha,nn og kona hans, sem er
teiknari, hafa hug á að setjast hér að. Richard ætlar að halda tvær sýntngar í haust, fyrst í helmaborg
sinni Vín og síðan í Franlcfurt. Allar myndimar í Mokka eru til sölu og sést hér ein þelrra. Þótt ekki
beri hún nafn, leynir sér ekki, að málarinn hefur horft yfir Sundin til Esjunnar, þegar hann gerði skyssuna.
SAMIÐ
Samkomulag milli verkamanna-
félagsins Hlífar og Vinnuveitenda-
félagsins í Hafnarfirði, tókst í
nótt, en samningafundurinn stóð
frá fcl. 8.30 um kvöldið til kl. 3.
Samningurinn var lagður fyrir fé-
lagsfund Hlífar kl. 2 ; dag. Fund-
urinn var fjölmennur og voru
samningarnir samykktir þar ein-
róma. Samið var upp á sömu al
menna hækkun og fy-ir norðan
en einnig er um að ræða nokkrar
tilfærslur milli flokka.
Félagsfundur Dagsbrúnar hófsi
skömmu áður en blaðið fór í prent
un, og er því ekki toægt að skýra
frá atkvæðagreiðslunni þar.
þegar gengið hefur verið frá söl-
um erlendis.
Þóroddur E. Jónsson heildsali
er einn aðalmilligöngumað'ur um
útflutning selskinna. Kvað hann
skinnin aðallega seld til London
og Frankfurt, en þar fara fram
skinnamarkaðir, og kaupmenn
hvaðanæva að koma og gera skinna
kaup sín. Áður fyrr var Leipzig
aðal skinnamarkaðsborgin í Þýzka
landi, en nú hefur verzlunin færzt
til Frankfurt. Eftirspurnin er svip
uð og áður á markaðinum, og fram
boðið einmg, en prósentusveiflur
verða ekki miklar á veiðinni. Einn
bóndi veiðir minna í ár en verið
hefur en um leið veiðir annar
meira, svo magnið helzt nokkurn
veginn jafnt.
Skinnin héðan eru send út ósút
uð, því að öðrum kosti yrðu þau
allt of dýr sökum tollaálagningar.
íslendingar standa öð'rum þjóð-
um algjörlega jafnfætis hvað vönd
un skinnanna snertir. Þóroddur
sagðist hafa séð sams konar skinn,
og héðan eru flutt frá Kanada, Ný-
íundnalandi og Norður-Noregi, en
Jr.lendingar vönduðu skinnin bet-
ur. Hann- sagðist hafa tekið upp
þann sið', að senda bændum leið-
aivísa um meðferð skinnanna,
hvernig ætti að verka þau og
skafa og árangurinn hefði verið
mjög góður
Veiðimaðurinn fær 1300 kr. fyr-
ir eitt skinn, en hvað skyldi þá
selskinnspels kosta. Skinnverðið er
komið í 1500 krónur, þegar búið
ei' að súta skinnið, og svo þarf að
laga það til, og má reikna með að
fullunnið kosti það um 2000 krón-
ur, í venjulega kvenkápu þarf
lí—8 skinn svo efnið eitt kostar
sidrei innan við 12—16 þúsund
ícrónur, og þá er saumaskapurinn
eftir.
’í>irÓttír
verið notað sem lagergeymsla fyr-
ir Hitaveitu Reykjavíkur. Þar væri
hægt að skjóta á 50 metra braut,
sem myndi gerbreyta öllum æf-
inga skilyrðum. Vonar félagið fast-
lega að úr þessu rætist í bráð.
Stjórn Skotfélags Reykjavíkur
er nú skipuð þessum mönnum:
Egill Jónasson Stardal, form.,
Jóhannes Christiansen, vara-
form.,
Edda Thorlacius, gjaldkeri,
Tryggvi Árnason, ritari,
Leo Schmidt,
Meðstjórnendur
Robert Schmidt,
Karl Olsen
NÝTT "rÆKI
Framhaid af 1. síðu.
réðgátur iarðhitans hérlendis og
gefa aðrar upplýsingar } grunn-
vatnsrannsóknum hérlendis. í því
eru mæld hlutföll milli þungra og
léttra vetnisatóma j vatni, og út frá
beim mælingum má finna, hvaðan
það vat.ri sem mælt er. kemur upp
hnflega. hvert það rennur, og
hvernig
Allir þekkja hringrás vatnsins,
úr sjó tii sjávar Þa? vatn. sem!
gufar upp úr sjó, inniheldur bæöi I
þung og létt vetnisatóm. Er það
berst inn yfir ströndina þéttist
það og fellur til jarðar og þá inni-
heldur fyrsta regnið tiltölulega
mikið magn af þungum atómum,
en það magn fer svo minnkandi,
eftir því, sem fjær dregur sjó. Nú
er unnt að mæla hlutföll atóm-
anna í regni á ýmsum svæðum
landsins og samkvæmt þeim mæl-
ingum unnt að finna, hvar það
vatn hefur fallið til jarðar, sem
upp kemur á hverjum stað, og
þannig hægt að sjá eða finna neð-
anjarðarrennsli vatnsins. Þá er
einnig unnt, með því að mæla
þessi hlutföll í vatni úr tveimur
borholum, hvort þær séu af ein-
um og sama uppruna.
Með öðrum mælingum, sem
ekki verðar raktar hér, er svo
einnig unnt að mæla aldur vatns-
ins, og þannig sjá, hversu lengi
það hefur verið á leiðinni, og með
tímanum eru miklar líkur til, að
segja megi til um með nokkurri
vissu, hvar leita eigi vatns í jörðu
niðri, heits sem kalds.
fpfUgUÍ1
(Framhald af 2 síðu)
Hefði Hallur Garibaldason ver-
ið ungur maður í dag, hefði hann
/erið kjörinn maður til að veita
slórum vinnuskóla forstöðu.
Eg hefi oft hugsað um það,
hversu sjaldan íslenzkir verka-
menn hafa fengið viðurkenningu
þess opinbera, t. d. verið sæmdir
Fálkaorðunni, því ekki er lítið
dagsverk þeirra, þegar á allt er
litið'. Mér tinst, að menn eins og
Hallur Garibaldason eigi slíka op-
ínbera við'urkenningu skilið.
En hvað, sem því líður, Hallur
minn, senda vinir þínir í Reykja-
vík, og þeir eru margir, hugheilar
fiamtíðaróskir til þín, konu þinnar
og barna. Þér er þökkuð vinátta
og tryggð, og þess er óskað', að
þú lifir enn um mörg ár.
Kærar afmæliskveðjur..
Jón Kjartansson
Erlent yfirlit
Framhald af 7. síðu.
þeir Eden og Churchill komu í
veg fyrir það. Butler er nú
saimveldismálaráðherra.
Á tímum Attlee-stjórnarinn-
ar hafði Butler forustu um að
endurskipuleggja starfsemi í-
haldsflokbsins og marka hon-
urn frjálslyndari og umbótasinn
aðri stefnu. Sennilega hefur
hann haft meiri áhrif á stefnu
íhaldsflokksins á síðari árum
en nokkur maður annar Hann
nýtur tnikils álits, en hefur
aldrei notið verulegra persónu
legra vinsælda. Hinir yngri
menn, sem nú ber mest á í
thaldsflokknum, eins og t. d.
Maudling, eru taldir lærisvein-
ar Butlers.
Á ÞESSU stigi verður því
ekki endanlega spáð. hvor
þeirra Hailshams eða Butlers
verður hlutskarpari eða hvort
einhver þriðji maður verðuir fyr
ir valinu, sem eftirmaður Mac-
millans. Það getur ráðið miklu
um þetta, hvort þingið sam-
þykikir fyrir sumarfriið þá
breytingu, að lávarður, sem
á sæti í efri málstofunini, megi
afsala sér því og taka sæti í
neðri málstofunni. Frumvarp
um þetta liggur nú fyrir þing-
inu. Verðí það samiþykkt, styrk
ist aðstaða Hailhams mikið.
Þ.Þ.
GESTAMÓTIÐ
Frii' ;t 9 síðu
Elsa Guðjónsson, Björn
Bergvinsson og frú og
Haraldur Bergvinsson. —
Clara fór vestur um haf
árið 1939 til starfa við
íslenzku deiidina á heims-
sýningunni í New York.
Hún ílentist vestra og er
ein hinna fáu íslend-
inga, sem búsettir eru
í Spokane í Washington-
ríki. Elsa heilsar hér
gömlum kunningjum frá
Seatttle, en þar var hún
og maður hennar. Þór
veiðimálastjóri, við há-
skólanám fyrir mörgum
árum Björn og kona
hans fluttust tii Van-
couver fyrir sex árum
og þaðan til Seattle þar
sem Björn er sjómaður
og unir vel hag sínum.
Kona hans starfaði áður
í prentsmiðjum hér í bæ
og er systir prentaranna
Páls og Ingvars Bjarna-
sonar Magnea og Har-
aldur eru systkin Björns,
bæði búsett hér Ljósmynd
irnar tók Kári Jónasson.
Nýir kylfiíipir
vekja athvgli
— Þorvair$ur
sigurvegari í Jason-
keppninni í goifi s.1.
sunnudag
í mjög góðu veðri sunnu-
daginn 16. júní s.l., hófu 18
kylfingar leik í JASON-kenpn
inni. Sigurvegari varð Þor-
varður Árnason og soilaði
hann 36 holurnar á 159 högg
um neftó Annar varð Jóhann
Eyjólfsson á 162 höggum
nettó og Ólafur Áa. Ólafsson
hriðji á 163 Jafnir í fiórSa og
Hmmta sæti urðu beir Tómas
Árnason og Jón Thorlacius á
164 höggum nettó.
Án forgjafar lítur útkoman þann
ig út:
1. Jóhann Eyjólfsson 170
2. Ól. Ág Ólafsson 173
3. Pétur Bjömsson 179
Jóhann er því beztur án for-
giafar 36 holurnar en Ól. Ág. bæði
9 holur og 18.
Lélegastí höggafjöldi án for-
gjafar var 224 högg. en með for-
liöf 196 hógg.
Þátttaka í keppninni var heldui
iítil og á það auðvitað einhvern
þátt í því, að strætisvagnaferð'ir á
nýja golfvöllinn í Grafarholtslandi
eru enn sem komið er nokkúð
riopular.
Firmakeppninni lauk á laugar
haginn 15 iúlí s.l. með sigri Bif-
reiðastÖðvarinnar Steindór (Ólaf-
ur Ág. Ólafsson), sem sigraði Marz
Trading Company (Jóhann Eyjólfs
son). Sagt verður nánar frá firma
keppninnj síðar.
Systir okkar
Claudina Östergaard
andaðist f Kaupmannahöfn 20. maí s.l. — Fyrir hönd barna hennar
og annarra aðstandenda.
Ragnhildur Wiese — Benedikt H. Líndai.
Útför
'^ns Bryniólfssonar
Suðurgötu 61, Hafnarfirði,
fyrrv. bónda að Grafarbakka, Hrunamannahreppi, fer fram aö n um
miðvikudaginn 26. júní kl. 2 síðdegis.
MINNINGARATHÖFN verður í Hafnarf jarðarkirkju sam? r!-g
kl. 10 árdegis.
Börn og tengdsbörn.
Inniiegar þakkir tll ailra, sem heiðruðu minningu föður míns,
Þorláks Marteinssonar
frá Veigastöðum,
og auðsýndu mér samúð við andlát hans og útför.
Krlstin Þorláksdittir.
T í M I N N, sunnudagurinn 23. júní 1963. —
15