Tíminn - 11.09.1963, Side 1
MATVÆLI VARÐVEITT MEÐ NÝRRI GEISLUNARVEL
ISLENZKURVISINDAMADUR
VINNUR MIKID STÓRVIRKI
KEMUR TIL GÓÐA MILLJÓNUM MANNA í VANÞRÓUÐU LÖNDUNUM
Aðils-Kaupmannahöfn, 10. ssptember. (Einkaskeyti).
UNGUR, íslenzkur magsster í kjarnorkuvísindum, Ari
Brynjólfsson, sem starfað hefur við kjarnorkuvísinda-
stöðina í Hrísey (Risö), um 6 km. norðan Hróarskeldu í
Danmörku, og nú undanfarið í Bandaríkjunum á vegum
hersins, hefur séð um smíði stærstu Kobolt-6 geislabyssu
í heimi, sem meðal annars er ætluð til geislunar á mat-
vælum í stórum stíl.
Þessi geislabyssa er grundvöllur stórkostlegrar, banda
rískrar matvælaáætlunar, sem mífiar að því, að láta van-
þróuðu löndunum í té svo mikíS af matvælum, meðal
annars af offramleiðslu Bandaríkjanna, að milljónum
manslífa verði bjargað frá hungri, en geislabyssan varn-
ar því, að sýklar komist í matvælin og eyðileggi þau.
Þegar Ari hafði smíðað geisla
byssu í Hrísey, stjórnaði hann
smíði hins svokallaða lineaere
acceleratur við kjarnorkustöð-
ina í Hrísey, en það tæki er
grundvöllur tílrauna með geisl
un matvæla. Þegar þær tilraun
ir báru jákvæðan árangur, fór
Ari til Bandaríkjanna, þar sem
hann á vegum bandaríska hers
ins stjórnaði smíði stærstu
koboit-geislabyssu, sem til er í
heiminum, og einnig öilum
framkvæmdum við byggingu
lineaer accelleratorsins, sem
er 24 milljónir elektrovolt.
Þessu mikla vísindaverki er nú
að fullu lokið og hverfur Ari
nú aftur til Danmerkur, þar
sem hann mun sjá um geislun-
artilraunir á matvælum í Hrís-
ey. Á sama tíma og þessar frétt
ir berast af hinum unga vísinda
manni og afrekum hans, skýrir
Politiken frá því í dag, að
bandaríska matvæla. og lyfja-
vörustofnunin hafi viðurkennt
geislað hveiti og hveitifram-
leiðslu. Segir blaðið, að þessi
viðurkenning þýði, að nú verð'i
hægt að senda mikið magn um
frambirgða Bandaríkjanna af
matvæium til vonþróuðu land-
anna.
Ef matvælin væru hins veg
ar send án geislunar með geisla
byssunni, myndu þau að lang-
mestu leyti eyðileggjast vegna
sýkla, sem í þau sæktu. Nú er
talið, að með þessum nýju vís
indaaðferðum, sem Ari hefur
stjórnað, verði hægt að vernda
þessi matvæli frá skemmdum
og bjarga þannig milljónum
mannslífa.
Bandaríska matvælastofnun
in, sem áður er ge'ið um, hef-
ur nú til athugunar tilmæli frá
bandaríska hernum um, að hún
viðurkenni einnig geislaðar
kartöflur sem fuilgildar til
manneldis.
f grein Politiken segir að
lokum: Samkvæmt frétt frá
vísindastofnun hersins í Massa-
chusetts, sagði Merrill Tribe,
hershöfðingi, m. a. eftirfarandi
við brottför Ara Brynjólfsson-
ar:
„Hann framkvæmdi verk sitt
með einstökum vísindalegum
dugnaði og var okkur hinum
öllum stöðug hvatning í erfiðri
vinnu“.
Hinn 11. júní 1958 birtist i
Tímanum viðtal við Ara Bryn-
jólfsson, en hann hafði þá byrj
að starf sitt við kjarnorkuvís-
índastöðina í Hrísey og vann
þá þegar af fullum krafti við
kobolt-geislabyssuna þar.
Við vígslu kjarnorkuvísinda-
stöðvarinnar í Hrísey kom fram
að Ari Brynjólfsson hafði stað
ið fyrir byggingu geislarann-
sóknarstöðvarinnar, en hann
var þá þegar talinn í fremstu
röð vísindamanna. — Ari lauk
eðlisfræðinámi við Bohrs-Insti-
tutet í Kaupmannahöfn árið
1954, en fór heim að loknu
námi, og vann við segulmæl-
ingar í íslenzku bergi. Skömmu
síðar hélt hann til Göttingen í
Þýzkalandi og stundaði þar
framhaldsnám, en réðist að því
búnu til Atomenergikommiss-
ionarinnar í Danmörku. Meðan
Ari dvaldist í Göttingen lauk
harin við úrvinnslu segulmæl-
inganna, sem hann hafði gert á
íslandi, og birtust niðurstöður
hans í mörgum erlendum vís-
mdaritum. Er til Danmerkur
kom fékk Ari það starf að sjá
um uppsetningu kobolt.geislun
arstöðvarinnar í Hrísey og að
því loknu að sjá um kaup á
elektron-accelerator til geislun
ar á kjöti, fiski og grænmeti.
Eramh a 15 siðu
Var hér í fyrra
HF-Reykjavík, 10. september.
ÞAÐ hefur áður verið
minnzt á það, a3 Guðrún
Bjamadóttir, alheimsfegurðar-
drottningin okkar og Friðrik
Ólafsson, skákmaður, væru þeir
íslendingar, sem gerðu garðinn
frægan og héldu uppi heiðri
landsins, en nú hefur einn
bætzt í hópinn. þar sem Ari
Brynjólfsson er.
Við böfðum tal af móður
Ara, Guðrúnu Rósenkarsdóttur,
þegar okkur bárust fregnir um
hlutdeilci þá, sem hann átti i
byggingu Koboltgeislunarstöðv-
arinnar i Bandaríkjunum og
var hún að vonum mjög undr-
andi og ánægð.
— Hvaðan var það, sem Ari
tók studentspróf, Guðrún?
— Hann útskrifaðist úr
menntaskólanum á Akureyri
árið 1948 og var þá ákveðinn í
því að íara til eðlisfræð'ináms
í Danmiirku.
— Gekk honum mjög vel í
skóla?
— Já honum gekk frekar
vel, þó að hann væri ekki með
ágætiseir.kunnir. Hann hefur
alltaf s'aðið sig vel, hvar sem
hann hefur verið.
— Hann hefur ekki komið
í heimsókn hingað nýlega?
— Hsnn var hérna síðast í
fyrrasumar, en í bréfi, sem ég
fékk r.ýlega frá honum frá
Bandar’kjunum. segist hann
munu korna hér /ið í leiðinni
til Danmerkur núna um miðj-
an manuðinn
— Hann riefur ekki minnst
neitt á starf sitt ytra í bréfinu?
— Nei, ég veit nú ekki mik-
ið um það
— Hann ætlar að dveljast í
Danmoiiu í framtíðinni, er
það eksr ?
— Jú að minnsta kosti fyrst
um sinn.
— Ar- er auðvitað þegar
kvæntur maður?
— j'á hann er giftur danskri
konu, að nafni Margaret og
eiga pau þrjú börn, Ariönu,
Guðrúnu, 12 ára, Ólaf, 8 ára
og Eirik ársgamlan.
Framh a 15. síðu.
ARI BRYNJÓLFSSON
,v»ww.-i->:Sitijt
MATVÆLAGEISLUN
HAGNÝT HÉR HEMA
I viðTa;m> við hinn unga vís-
indamann, sem birtist í Tím-
anum 1958, sagði hann meðal
annars ap sér fyndist senni
legt, að íslendingar yrðu búnir
innan þnggja ára að taka
kjarnageisla í sína notkun til
geritsneyðingar á fiski. kjöti og
grænmeti.
Nefndi Ari þá sérstaklega,
hve arðvænlegt gæti orðið að
geisia kartöflur Geislun varn-
aði þv1 að þær spíruðu og
mætn gtyma þær árum saman
og beldu þær sér sem nýjar
væru.
Hvatti An íslendinga til að
fylgjast vel með þróun þessara
mála, Þvi að of kostnaðarsamt
yrði tý-rir bá sjálfa að stunda
rannsókniv heima fyrir. Ef ís
lendiugai tækju tæknina í sína
þjónustu gæti það þýtt auðveld
ari sölu og aukna markaði.