Tíminn - 12.09.1963, Síða 7
Utgefc nd'r FRAMSÓKNARHLOKKURINN
Framkvæmdastión 7ómas Arnason — ttitstjórar: Þórarinn
Þórarinsson láb' Andrés Krist.innsson. Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson .Kulltrúi ritstjórnar Tómas Karlsson Frétta-
stjóri: Jónas Kristjánsson Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson.
Ritstjórnarskrifstofur i Eddu húsinu. símar 18300—18305 Skrif
stofur Bankastr 7 Afgr.sími 12323 Augl.. sími 19523 Aðrar
skrifstofur, sími 18300 Askriftargjald kr. 80,00 á mán. innan-
lands. 1 lausasölu kr 4.00 eint - Prentsmiðjan EDDA h.f —
Upplansn og óðadýrtíð
„viðreisnarinnar“
Það er annað hljóð í stjórnarh.<jður>*rn nú en fyrir
þingkosningarnar í vor. Fvrir kosninf.arnar héldu stjórn-
arblöðin því fram, að „viðreisnin*- hefði heppnazt full-
komlega. Það væri ekkert annað en rógur stjómarand-
stæðinga að einhverju væri ábótavant í sambandi við
hana.
Nú er hljóðið allt annað í stjórnarDlöðunum. Nú kepp-
ast þau við að vitna í þau ummæli Tímans, að almenn-
ingur beri ekki traust til efnahagsstefnu ríkisstjórnar-
innar og því ríki hér hreint fjármálalegt öngþveiti. Þau
prenta einnig upp ummæli Þjóðviljans um að ríkis-
stjórnin hafi misst allt taumhald á verðlags- og kaup-
gjaldsmálum og því magnist óðaverðbólga með hverjum
degi. Og nú bera stjórnarblöðin ekki á rnóti því, að
þetta sé satt. Þvert á móti segh' Mbl., að þetta sé rétt
hjá andstæðingablöðunum!
Það, sem stjórnarblöðin stimpluðu hreina lygi fyrir
kosningar, játa þau nú, að sé satt og rétt.
Betur geta þau ekki auglýst með hvaða hætti flokkar
þeirra hafa unnið kosningarnar. Þess ber kjósendum vel
að minnast, þótt síðar verði.
Én hvers vegna er svo komið, að jafnvel stjórnarblöð-
in viðurkenna að hér blasi nú við anplausn og öngþveiti
í efnahagsmálum? Því er fljótsvarað. Þetta er óhjá-
kvæmileg afleiðing „viðreisnarstefriunnar-* — stefnu
gengisfellinga, vaxtaokurs og söluokatta og tollahækk-
ana. Þegar ríkisstjórnin hefur forustu hvað eftir annað
um þvílikar hækkunaraðgerðir sleppir hún óðaverð-
bólgunni lausri. Menn missa trúna á efnahagskerfið.
Allir, sem vettlingi geta valdið, revna að ná sem mestu
í sinn hlut, áður en næsta hækkunaralda af völdum „við-
reisnarinnar“ ríður yfir. Fjöldamargrr verða líka að gera
þetta af hreinni nauðsyn, því að ella gætu þeir ekki risið
undir þeirri okurbyrðum, sem „vtðreisnin“ hefur lagt
á þá. Það er „viðreisnarstefnan“. sem er þannig orsök
þess öngþveitis, þeirrar upplausnar, þeirrar dýrtíðar,
sem nú ríður húsum íslenzka efnahagskerfisins.
En þrátt fyrir þetta allt, látast stjórnarherrarnir ekki
hafa uppgötvað orsökina enn. Þeir berja höfðinu við stein-
inn og æpa sig hása um, að nú fyrst giidi það að halda „við-
reisninni“ áfram — þ. e. fella gengið. hækka vextina,
hækka söluskattanna. auka enn óðadýrtíðina! Það eru
því ekki batahorfur, sem nú blasa framundan í íslenzk-
um efnahagsmálum.
Verðlagseftirlitið
Alþýðublaðið heldur því fram enn einu sinni i gær,
að afnám verðlagseftirlits leiði tú hækkandi verðlags.
Þetta er hins vegar ekki álit jaf.naðarmanna á Norður-
löndum. Þeir hafa fellt niður verðiagseftirlit jafnóðum
og vöruframboðið hefur reynzt fullnægjandi. Þeir
hafa talið, að þetta væri síður en svo óhagstætt neyt-
endum. Það sem framar öðru tryggi hagstætt verð-
lag, væri samkeppni milli kaupféiaga og kaupmanna og
eftirlit neytenda sjálfra með þv* hvar vöruverðið væri
hagstæðast.
Alþýðuflokkurinn er vaxinn frá lafnaðarmönnum á
Norðurlöndum á þessu sviði eins o< öðrum.
mja Formósa og Sovét-Kína?
Bollaleggingar um framtíS Formésu eftir fráfall Chíang Kai Sheks
ÞAÐ HEFUR oft gerzt áður
í ágústmánuði, að kínverskir
kommúnistar hafa gert miklar
skotárásir á smáeyjar þær á
Formósusundi, sem heyra und
ir stjórn Chiang Kai Sheks. Að
þessu. sinni var ágústmánuður
óvenjulega kyrrlátur, hvað
þetta snerti. Þetta hefur komið
á kreik ýmiss konar getgátum
um, hvað muni valda þessu.
Hvers vegna fara Kínverjar sér
svona hægt vlð Formósusund
nú? Er það vegna þess, að þeir
vilja ekki eiga í átökum þar
meðan deilur vaxa milli þeirra
og Rússa? Eða eru einhverjir
launsamningar á döfinni mi]li
þeirra og stjórnar Chiang Kai
Sheks?
Yfirleitt em getgátur um
hið síðarnefnda taldar frekar
ósennilegar meðan Chiang Kai
Sheks nýtur við. En hann gefur
fallið frá þá og þegar. Að vísu
er heilsa hans sæmilega góð,
en ellin nær þó t.il hans eins og
annarrá. Hann verður 76 ára
í næsta mánuði. Spurningin.
sem er ekki sízt ofarleea í sam
bandi við Formósumálið. er
þessi: Hvað tekur við, beear
Chiane Kai Sbek fellur frá?
EINS OG NÚ er háttað. er
stjórn Formósu fnllkomlega í
höndum Chiang Kai Sheks og
beirra Kínve’'ia. sem fiúð't me*
honvim. frá Kína fyrir 13—14
árúm Hérinri, sem telur um
bálfa -rillión manna, er að lane
mestn levti skipaður bessum
flóttamönnum, sem margir
hverjir eru miög teknir að eld-
ast. Alls er talið. að flóttamenn
irnir og afkomendur beirra séu
um 2 milljónir eða siötti hluti
íbúanna á Formósu. Þessir Kín
verjar mynda eins konar yfir
stétt á Formósu og fer anduð
gegn þeim stöðugt vaxandi
meðal hinna uppritnalegu For-
mósubúa. Þeir krefiast s’öðugt
vaxandi hlutdeildar í stjórn
landsins og er búizt við. að þeir
muni miög nota fráfsll Chiang
Kai Sheks. þegar þar að kemur
til að herða kröfurnar um
aukna hlutdeild í stjórninni.
Vitanlega stefna þeir að því að
ná henni alveg í sínar hendur
og getur það mjög oltið á af-
stöðu Bandaírkjanna. hvor'
þeim tekst það eða ekki Fyrir
þeim vakir, að Formósa verði
alveg sjálfstætt ríki, sem ekk'
sé f neinum tengslum við Kína
Meðal Kínverja á Formósu á
hugmyndin um sjálfstæða For-
mósu hins vegar takmarkað
fylgi, því að þeir þykjast sjá
fram á. að þeir muni þá brátt
missa yfirráðin þar. Fyrir þeim
vakir því stöðugt, að Formósa
verði áfram hluti Kínaveldis.
því að það myndi tryggja áfram
yfirráð Kínverja á Formósu
SÚ VON Chiang Kai Sheks
og fylgismanna hans er nú úr
sögunni, að þeir geti gert inn-
rás á meginlandið og náð aftur
yfirráðum þar. Að vísu held
ur Chiang Kai Shek öðru fram
opinberlega. Hann talar oft
eins og innrásin sé alveg á
næstu grösum, en þær yfirlýs-
ingar hans eru menn löngu
hættir að taka alvarlega.
Þar sem þessi von er brostin.
CHANG CHING-KUO
er ekki nema ein leið til að
tengja Formósu við Kína, önn
ur en sú að kommúnistar brjót
ist þar til valda, sem ekki er
heldur líklegt í náinni framtíð.
Hún er sú, að þeir Kínverjar,
sem taka við stjórn á Formósu
af Chiang Kai Shek, semji um
einhver tengsli við kommúnista
stjórnina í Peking. Þótt mörg
um þyki þetta ósennilegt, fljótt
á litið, er þetta ekki nein fjar-
stæða, en vitanlega fer það eft
ir því, hvað hagkvæmum samn
ingum .þeir .gela náð. Það, sem
Kínverjar á Formósu sjá fram
á, er eins og áður segir, að völd
um þeirra geti brátt verið loldð
á Formósu. að óbreyttu ástandt
því að Formósubúar. sem eru
margfaú fleiri, stefna að því
að taka stjórnina í eigin hend
ur og eru líklegir til að hljóta
aukinn stuðning Bandarík.ia-
manna í þeim efnum. Þess
vegna væri það ekki óeðlileg
lausn fyrir Kínverja á Formósu
að tryggja sér yfirráðin þar
með samningum við Kínaveldi.
ef þeir næðu þeim með skap-
legum hætti. Ýmsir kunnugir
telja. að stjórnin í Peking muni
ekki reynast óliðieg í slíkum
samningum, þar sem hún teldi
það mikils virði að slíta sam-
bandið milli Bandaríkjanna og
Formósu, en það yrði vitanl'ega
frumatriði slíkra samninga
ÞAÐ GETUR ráðið miklu um
framvinduna í þessum efnum
hver eftirmaður Chiang Kai
Sheks verður sem næsti valda
maður á Formósu. Sá. sem
stendur næst honum að mann-
virðingum, er Chen Cheng,
sem er varaforseti. Hann er
gamall hershöfðingi. frjálslynd
ur og hæglátur. Hann er sá
leiðtogi Kínverja, sem hefur
unnið sér einna mestar vin
sældir á Formósu. Samvinna
hans og Bandaríkjamanna hef
ur verið góð og hefur hann því
stundum verið kallaður
„ameríski Kínverjinn“ Sá
galli þykir á honum, að hann
sé ekki mikill skörungur, og er
því ekki talið ólíklegt, að hon
um verði brátt þokað til hliðar
af ráðríkari og harðskeyttari
mönnum, enda er hann orðinn
64 ára gamaíl. Sá, sem þykir
einna líklegastur til að hrifsa
völdin undir slíkum kringum
stæðum, er elzti sonur Chiang
Kai Sheks, Chang Ching-Kuo.
Hann er nú yfirmaður leynil'ög
reglunnar á Formósu og for-
maður hinna hernaðarlegu
æskulýðssamtaka þar. Báðar
þessar stöður skapa honum
mjög sterka aðstöðu í valda-
tafli því, sem er líklegt að hefj
ist eftir fráfall Chiang Kai
Sheks.
CHANG CHING-KUO er 54
ára gamall, sonur Chiang Kai
Sheks og fyrri konu hans. Þeg-
ar samstarfið rofnaði mil]i
Chiang Kai Sheks og rússneskra
kommúnista upp úr 1925, var
Kuo á skóla í Sovétríkjunum
og dvaldist þar áfram næstu 12
árin. Því er haldið fram, að
hann hafi verið mikili kommún
isti á þessum árum og mjög
andstæður föður sínum, eink-
um þó eftir að hann kvæntist
aftur. Sjálfur ber hann á móti
þessu og segir söguria þannig,
að hann hafi unnið á samyrkju
búi, líkað vistin þar illa og sýnt
mótþróa og því verið sendur
til Síberíu. Hann segist þar
hafa kynnzt hinni rússnesku
konu sinni, Fanina, sem er verk
fræðingur að menntun. Hún
dvelur nú á Formósu með
manni sínum, en sum börn
þeirra eru við nám í Bandaríkj
unum. Vegna dvalar sinnar í
SovéHíkjunum er Kuo oft
nefndu- rússneski Kínverjinn"
Hvað sem rétt er í þessu, er
hitt víst, að Chiang Kai Shek
tók son sinn í fulla sátt, þegar
hann kom heim frá Sovétríkj-
unum. Hann hóf hann brátt til
mikilla mannaforráða og þykir
margt benda til, að hann standi
föður sínum ekki að baki sem
stjórnandi, heldur sé mun harð
ari í horn að taka og stórum
raunsærri. Sá orðrómur hefur
stöðugt fylgt honum, að milli
hans og kommúnista sé viss
leyniþráður og hefur þetta
styrkzt við það, að hann er
einn hinna fáu leiðtoga Kín-
verja á Formósu, sem nær
aldrei er deilt á í áróðri komm
únista. Stöðugt ganga líka sög-
ur um, að hann sé að semja við
kommúnista, en hann ber
hvorki á móti þeim né staðfest
ir þær. Ef til vill er það vegna
þess, að hann vill halda þess-
ari leið opinni, eða hann vill
halda Bandaríkjamönnum í
þeirri trú, að þessi leið geti ver
ið opin, ef þeir höndla ekki
rétt. Þ. Þ.
J)
T f M I N N, fimmtudaginn 12. september 1963,