Tíminn - 22.09.1963, Blaðsíða 3
JANE RUSSEL fór nýlega
ein með flugvél til Las Vegas,
en hún pantaði tvö sæti, þar
sem gullkjóllinn hennar þurfti
að sitja í einu heilu. Jane kem-
ur fram í skemmtiþætti í Las
B Vegas, og fyrir það tækifæri
má ekki kryppla kjólinn. Við
héldum annars að gull krypplað
ist ekki, en þær vita það víst
betur, scm eiga kjóla úf því.
★
PENINGA má nota til flestra
hluta, meðal annars til að
þekja með ungar og laglegar
stúlkur Þessi stúlka heitir
Catherine Spaak og er bróður-
dóttir Paul Henri Spaak, sem
er utanríkisráðherra Belgíu. —
Hinn virðulegi ráðherra er
mjög argur út i bróðurdóttur
sína, vegna ósæmilegra mynda,
sem rndanfarið hafa birzt af
henni í hinum ýmsu dagblöðum
NÚ HEFUR fyrsta bókin ver
ið rituð um Profumo-hneykslið
og ber hún nafnið „Scandal
63”. Ems og að líkum lætur,
þá er bókin þegar orðin met-
sölubók í Englandi, en hún er
skrifuð af Clive Irwing, Jeremy
Wallington og Ron Hall. Þetta
eru allt saman ungir blaða-
menn. sem starfa við the Sun-
day Times. Bókin hefur hlotið
mjög góða dóma og ekki sízt
fyrir það, að á þessum örstutta
tíma se.n hún er skrifuð, hef-
ur xekizt að gera hana að já-
kvæðu og skæru heimildarriti
um það sem gerðist í raun og
veru. — Bókin hlýtur að vera
forsætisráðherranum, Harold
Macmillan mjög kærkomin, því
að hún hreinsar hanu algiör-
lega af nokkurri þátttöku i
málinu. Eins og flestir muna
gerðu pólitískir andstæðingar
hans mikla hríð að honum,
vegna þessa máls, og vildu þeir
gera hann að aðalhetjunni. —
Skoðanakannanir, sem þá voru
gerðar í London, leiddu í ljós,
að vinsáeldir hans voru niður
úr öllu valdi. Verkamannaflokk
urinn vann þá aðeins á, en nú
hefur Macmillan og flokkur
hans aítur unnið fylgi sitt. Til
gamans má geta þess, að Smith
og Son, sem eru mjög þekktar
bókabúðir út um allt England,
pöntuðu 10.000 eintök og þau
seldust öll samdægurs. Fleiri
bækur munu verða gefnar út
um Profumo-hneykslið, en
„Scandal 63” á að vera mjög
skemmtiieg aflestrar. í bókinni
er m. a. tekið fram, að glæpur
Profumos hafi ekki fyrst og
fremst verið sá, að brjóta sjö-
unda boðorðið, heldur það ní-
unda, begar hann bar falskan
vitnisburð. Yfir 80% af þjóð-
inni settu það ekki fyrir sig, að
ráðherrann hefði haft ástkonu,
það er algengt fyrirbrigði með-
al æðri stéttarinnar. Bókin end
ar svo á þessum ljóðlínum: —
„Do not odueltery commit/
advantage rarely comes of it“.
heimsins, en hún lætur sér
standa á sama. í kvikmynd
þeirri, sem Catherine hefur ný
lega lokið leik í, segir hún m.
a. við elskhuga sinn: „Þó að
þú þekir mig með peningum,
þá ætia ég ekki að vera lengur
hjá þér“. Hér hefur elskhug-
inn auðsýnilega gripið til þessa
örþrifaráðs, hvernig svo sem
áhrifin hafa orðið.
NÝR DANS ræður nú lögum
og lofum í Lundúnum og lýsir
hann sér á eftirfarandi hátt:
Setjið upp ,,pókerface“, dillið
mjöðmunum og byrjið að
twista. En ef þið haldið að þetta
sé Twist. þá hafið þið rangt
fyrir ykkur, þetta er „the blu-
es“, eins og hann er nefndur,
en aukaspor dansins~er kallað
fillip. Það er þannig til komið,
að í umræddu spori eru hendur
settar fyrir aftan bak og líkam
inn ha.last örlítið fram. Stell-
ing pessi minnir svo á hertog-
ann á Edinborg, þegar hann
kemur éinhvers staðar i hum-
átt á eftir konu sinni, að spor-
ið hefur verið nefnt Philip. Ann
ars hefur einn aðdáandi blues-
PhUip lýst dansinum svo, að
það eina sem þurfi að gera sé
að standa kyrr og leika, að
manni sé flökurt.
•
Nýlega var skotið af öll-
um fallbyssum Marokkó-rík-
is í einu, og um leið voru
mikil hátíðahöld í höfuðborg
inni Rabat, en ástæðan var
sú ,að hin 19 ára gamla eig-
inkona Hassans II, hafði
eignazt son, og um leið gefið
landinu ríkisarfa. Soninn á
að skíra Mohammed til minn
ingar um hinn látna föður
Hassans, Mohammed V. Síð-
ast þegar fréttist, heilsaðist
þeim mæðginum vel.
MORG helztu tízkufyrirbrigð
in verða tU á sumardvalarstaðn
um St. Tropez, en þar er hluti
af Rivierunni, þar sem fína fólk
ið dvelur á sumrin, eins og t. d.
Brigirte Bardot, hertogahjónin
af Windsor og fleiri. Nú er
nýjasta hugdettan þaðan þessi
hérna, að láta handmála mynd-
ir á föt sín. Þess má geta, að
listaverkamálun af þessari teg-
und er hreint ekki ódýr.
•
Hinn 23 ára gamli ítali
Giuseppe Draco var heldur
óheppinn fyrir skömmu.
Hann neyddist til að snúa
sér til lögreglustöðvarinnar í
heimabæ sínum, Siracusa, til
að biðja um leyfi til að fá að
ganga í gegnum bæinn og
heim til sín á sundskýlunni.
í Italíu er það stranglega
bannað að sýna sig í baðföt-
um annars staðar en á
ströndinni, en Giuseppe var
nauðugur einn kostur. Hann
hafði ekki um annað að velja
því að fötum hans hafði öll-
um verið stolið meðan hann
var úti að synda. Fötunum
hafði verið stolið úr bíl hans,
en í honum þorði hann ekki
að aka heim, þar sem þjóf-
arnir höfðu einnig tekið öku-
skírteinið.
PARÍS er nú á góðri leið með
að verða jafngrámygluleg og
London. Birtan í loftinu þar
var 70% árið 1923, en er nú
ekki nema 45—50%. Dauðatil-
felli af völdum lungnakrabba
hafa aukizt mjög, vegna reykj-
ar, sem kemur.úr verksmiðjum
og húsum. Dauðsföll vegna
lungnakrabba hafa aukizt um
helming á síðustu tíu árum.
- Þessi breiðleita og bros-
milda kona er Nina Krus-
shchev, eiginkona forsætis-
ráðherrans, og þarna er hún
að dansa þjóðdansa í Mont-
enegró í Tékkóslóvakíu. Til-
efnið er hin opinbera heim-
sókn, sem þau hjónin fóru
í til Tékkóslóvakíu fyrir
skömmu. Nina virðist
skemmta sér vel, og ekki ber
á öðru en að samlyndið milli
þessara tveggja þjóða sé upp
á sitt bezta núna, þö að ým-
islegt hafi gengið á að undan
förnu.
GRAHÆRÐA konan á mynd
inni er frú Macmillan. Hún sit-
ur þarna að hádegisverði í
Stokklió’mi en þangað fóru
þau íijónir. nýlega í opinbera
heimsóim. Utanríkisráðherra
Svíþjoðar, Torsten Nilsson, sit
ur við hliff frúarinnar, og lætur
í ljós aðdáun sina, en eins og
sjá ma á myndinni, þá sýndi frú
in ótakmarkaða leikhæfileika í
þessu nádegisverðarboði.
• i_
HVAÐ er þetta. nunna eða
klettaþúst? Nei, hvorugt, þetta
er Marokkó-stúlka á baðströnd.
Fötin eru baðfatatízkan þar ár-
ið 1963 Það kemur sér alltaf
vel að vera hlýtt klæddur, eink
um þo ef hitamælirinn sýnir 35
gráðu hita
7 j M I N N, sunnudaginn 22. september 1963. —
3