Alþýðublaðið - 10.04.1942, Side 6
$
Danskennsla
Vegna fjölda áskorana tek ég fólk í einkatíma og í smá-
flokka (ca. 15 manns). — Kenni nýja og ameríkska dansa,
einnig Lanciers og gömlu dansana.
Sigurður Guðmundsson
Sími 4278 til kl. 7 og frá kl. 8—9 í síma 5982.
Lærið að dansa og lærið að dansa rétt.
/
Lifandi músik: píanó.
w
Askorun
frá ríkisstjérniniiKi.
Ríkisstjórnin skorar hér með á almenning að kaupa nú
þegar, svo mikið sem hægt er, út á matvælaseðla þá, sem nú
hefir verið úthlutað fyrir tímabilið apríl til júlí.
Þetta er nauðsynlegt til dreifingar á birgðum og
vegna takmarkaðs geymslurúms fyrir vörur, sem til lands-
ins eru fluttar.
Þó skaí fólki, sem kaupir brauð sín í brauðgerðarhús-
um, bent á að halda eftir kornvöruseðlum til venjulegra
brauðkaupa, ennfremur þarf að taka frá seðla handa böm-
um, sem fara eiga í sveit og öðrum heimilismönnum, sem
á skömmtunartímabilinu kunna að fara til dvalar utan
heimilis.
VIÐSKIPTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ, 9. APRÍL 1942.
Unglinga
vantar til að bera Alþýðublaðið til kaupenda nú þegar.
Alþýðublaðið.
hIÞÝÐUBIAPIO
I Samþjrkktir ilþlðosambands Vestfjarða.
HAJSTNES Á HORNINTJ
. (Frh. af 5. síðu.)
að börnin kæmust í sveit sem fyrst
á vorin, hvort sem stríð hefir geis-
að eða ekki. En á þessu máli hefir
verið allt of mikill seinagangur.
ÉG VIL ráðleggja fólki að at-
huga tilkynningar ríkisstjórnar-
innar, sem birtust í blöðunum í
gær og búa í haginn fyrir sig
æðrulaust. Ég segi það enn einu
dnni, þáð er sjálfsagt að vera við-
búinn því slæma, því að það góða
skaðar ebki.
Á vegum Í.S.Í.
hélt Axel Andrésson, knatt-
spyrnukennari, námskeið í knatt-
spymu að Hólum í Hjaltadal. Er
því nýlega lokið. Flestir skólapilt-
ar tóku þátt i námskeiðinu. 29
þeirra luku dómaraprófi í knatt-
spymu. Ennfremur barst nýlega
skýrsla um glímunámskeið Kjart-
ans Bdrgmatnns Guðjónasonar,
glímukappa íslands, er haldið var
að Hvanneyri í fyrri mánuði. —
Þátttakendur voru 40. Ársþing í.
S. í. verður háð i Reykjavík dag-
ana 12., 13, og 14. jöní n.k.
' Frh. af 4. síðu
veitingu, að allar framkvæmdir
í þessa átt séu sem hagkvæm-
astar.
3. Að styrkir bænda til verk-
færakaupa séu sem ríflegastir.
4. Að stefnt verði að sem víð-
tækustum kynbótum * nautpen-
ings, sauðfjár og dráttarhesta,
og að sauðfjárræktarfélög verði
lögboðin í hverjum hreppi.
5. Að einu fyrirmyndarbúi
verði komið upp á Vestfjörðum
og einnig búnaðarskóla, þar sem
verði lögð alveg sérstök áherzla
á verklega fræðslu.
6. Að tekið verði til nýrrar og
vandlegrar íhugunar, hvort
ekki sé tiltækilegt að stofna til
áburðarverksmiðju hér á landi.
Viðvíkjandli byggingar- og
landnámsmálum sveitanna vill
þingið vekja atygli þingmanna
Alþýðuflokksins á þessum atrið-
um:
1. Gerð verði gagngerð rann-
sókn á því, hvort ekki megi lán-
ast að finna innlent byggingar-
efni, sem geri byggingar ódýr-
ari en nú, og vill þingið nefna
þar sérstaklega til innlenda
framleiðslu á tígulsteini.
2. Þess verði vandlega gætt,
að styrkja ekki af opinberu fé
húsabætur á jörðum, þar sem
ekki þykir líklegt, að fyrir
hendi séu framtiðarskilyrði til
búskapar.
3. Lagt verði fyrir Búnaðar-
félag íslands, að rannsaka á fá-
um árum ræktunar- og land-
námsskilyrði í öllum sveitum
landsins, og geri það síðan til-
lögur um það til alþingis, hvar
byggja skuli einstök býli í fram-
tíðinni og hvar sveitahverfi, og
samþykki alþingi því næst lög
um þessi efni. Hin einstöku
býli skulu svo byggð, strax og
fyrir liggur umsókrrog umsækj-
andi hefir sýnt skilríki fyrir
því, að hann uppfylli sett skil-
yrði, sem verði mun hagkvæm-
ari en nú eru fáanleg. Hm
sveitahverfin fari eftir sérstök-
um lögum, eins og t. d. nú fer
um vegagerðir og símalagning-
ar.
Verkalýðsmál.
1. 8. þing A. V. skorar á rík-
isstjórnina að flytja frumvarp
til laga um orlof verkafólks, að
efni til eins og meirihluti orlofs-
nefndar hefir skilað áliti um.
2. 8. þing A. V. skorar á þing-
menn Alþýðuflokksins að beita
sér fyrir þeirri breytingu á lög-
um um stéttarfélög og vinnu-
deilur, að hið opinbera greiði
allan kostnað af málflútningi
stéttarfélaganna fyrir félags-
dómi.
3. 8. þing A. V. beinir því til
þingmanna Alþýðuflokksins, að
vinna að þeirri breytingu á al-
þýðutryggingarlögunum, að
hlutarmenn á 6-—12 smálesta
vélbátum verði sömu réttinda
aðnjótandi í slysa- og veikinda-
tilfellum, eins og hlutarmenn á
bátum, sem skylt er að skrá.
4. 8. þing A. V. lítur svo á, að
þar sem það á sér alloft stað, að
meðlimir ihinna ýmsu félaga
fara staða á milli til þess að
stunda atvinnu sína, og því erf-
itt að innheimta hjá þeim árs- I
gjöld viðkomandi félags — sé I
nauðsynlegt að sambandsfélög-
in veiti hvert öðru gagnkvæma
aðstoð til innheímtu félags-
gjalda. Jafnframt gæti félögin
þess, hvert á sínu félagssvæði,
að ekki virrni þar aðrir en þeir,
sem hafa kvittuð félagsskírteini
yfirstandandi árs. Þá telur þing-
ið einnig nauðsyn bera til, að
stéttarfélögin á ísafirði setji á
stofn sameiginlega skrifstofu
til þess að annast afgreiðslu
hinna daglega aðkallandi mála
samtakanna, svo og innheimtu
félagsgjaldanna, eftir því sem
þurfa þykir, og beinir þeirri á- |
skorun til stjórnar A. V., að
vinna að framgangi þess.
5. 8. þing A. V. telur að
gefnu tilefni ekki nægilegt til
samræmingar kaupgjalds, að
sambandsfélögin sendi stjórn
Alþýðusambands íslands samn-
inguppköst sín til álits og at-
hugunar áður en þau eru lögð
fyrir atvinnurekendur, heldur
þurfi einnig samþykki sam-
bandsstjórnar eða fjórðungs-
stjórnar að fásÞtil undirskrifta
samninga, svo að þeir öðlist
gildi, og skorar þingið því á
næsta þing Alþýðusambands
íslands að gera um það bind-
andi samþykkt.
6. 8. þing A. V. mótmælir
harðlega bráðabirgðalögum um
svonefndan gerðardóm í kaup-
gjalds- og verðlagsmálum og
skorar eindregið á alþingi það,
sem nú situr, að fella þau.
7. 8. þing A. V. telur, að efla
beri fjórðungssambandið eftir
föngum, og teldi þingið æski-
legt að A.S.I. veitti sambandínu
Grýlukerti.
Þið hafið sennilega oft
séð grýlukerti á hús-
burst. En hafið þið nokk-
uratíma séð grýlukerti á
brunaliðsmanni? Hér sjá
ið þið það í fyrsta sinn.
Fostudagur 10. ajuríl 1M2.
Lítill skíðagarpur.
Þessi litla skíðakona
heitir María Cooper, og
er dóttir kvikmyndaleik-
arans fræga, Gary.
Cooper.
nokkurt fé til umráða til að ann-
ast aukna fræðslu og útbreiðslu-
starfsemi á sambandssvæðinu.
Ýmis mál.
Áttunda þing Alþýðusam-
bands Vestfjarða lítur svo á,
að niðui'stöðutölur tekna og
gjalda ríkissjóðs frá árinu 1941
sýni það glögglega
a) að fjáreyðsla utan fjárlaga
hafi verið óhófleg,
b) að aðgerðaleysi hlutaðeig-
andi ráðherra í dýrtíðarmálun-
um hafi einungis verið að kenna
viljaleysi og hirðuleysi um hag
almennings og þjóðárheildar og
hollustu við hagsmuni heild-
sala og braskara.
Þingið lítur enn fremur svo
á, að mótbárur þær, er fram
hafa komið gegn frumvörpum
Alþýðuflokksins um dýrtíðar-
málin og gengishækkun séu að-
eins fyrirsláttur og skorar ein-
dregið á alþingi að samþykkja
þessi frumvörp.
Pygmalion
heitir myndin, sem Gamla Bíó
sýnir núna. Er hún samkvæmt
samnefndu leikriti eftir Bernhard
Shaw. Aðalhlutverkin leika
Wendy Hiller og einn frægasti
skapgerðarleikari Englendinga,
Leslie Howard.
Á suðrænum slóðum
heitir myndin, sem Nýja Bíó
sýnir núna, og er hún tekin í eðli-
legum litum. Aðalhlutverkin leika
Don Ameche og Betty Grable.
Hringið i sima
490G
og gerist áskrifendur að
Alþýðublaðlnu.