Alþýðublaðið - 15.04.1942, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 15.04.1942, Blaðsíða 7
Miðvíku4ágiir 15. apríl 1942. % ' ~ - - - • ■ ■ ’ • ' alþybublaðið I jBærinn i dagJ Næturlæfcnir er Halldór Stef- ánsson, Ránargötu 12, sími 2234. Næturvörður er í lyfjabúðinni Iðunni. . ■ n- i :Æ /- ÚTVARPIÐ: 12,15 Hádegisútvarp. 12,55 Enskukennsla, 3. fl. 15,30—16,00 Miðdegisútvarp. 18,30 íslenzkukennsla, 2. fl. 19,25 Þingfréttir. 20,00 Fréttir. 20,20 Kvöldvaka Skagfirðingafé- lagsins: a) Magnús Jónsson prófessor: Mesta skáld úr Skagafirði. b) Andrés ‘ Bjömsson stud. mag.: Upp- lestur úr kvæðum Stephans G. Stephanssonar. c) Stefán Jónsson frá Höskuldsstöð- um: Pétur í Valadal (Jóp á Reynistað flytur). d) Kári Sigurðsson cand. phil.: Kvæði. Enn fremur Út- varpshljómsveitin leikur. Söngur Sigurðar Skagfield og Stefáns Guðmundssonar I (af hljómplötum). 21,50 Fréttir. Dagskrárlok. Nýtt kvennablað. 7. blað þessa árgangs er nýkom- ið út. Efni: Menningarmál, eftir G. St. Húsmæðraskólarnir og móður- málið, eftir Svöfu Þorleifsdóttur, Minning frá sólskinsdegi, eftfr Ingibjörgu Benediktsdóttur, Þrjár konur í bæjarstjórn Reykjavíkur, eftir M. J. K., Húsfreyjan á Hall- dórsstöðum, eftir J. J. G., Nokkur orð úr Borgarfirði, eftir Á. E., Hver hlutur á sínum stað, eftir Irene Hall o. m. fl. Dýraverndarinn, 1.—2. tbl., er kominn út. í hon- um er þetta efni: Minningarorð um frú Fanneyjú Sigurgeirsdóttur (eftir Þór. Kr.), Skipulagsskrá um minningarsjóð Fanneyjar Sigur- geirsdóttur, Ómannúðin við dýrin, Leitað á náðir manna, Hyrnt sauð- fé eða kollótt (B. Sk.), Skeiðönd (G. Fr.), Nelly (Kr. S. Sigurðs- son), Krummi flytur feigðarboð (Jón Pálsson), Vinátta (B. Sig.) o. m. fl. Brezka setuliðið tilkynnir: Næstu daga fara fram loftvarna skotæfingar þegar veður leyfir. Rangæingafélagið heldur skemmtifund í kvöld í Álþýðuhúsinu kl. 8V2. Nanette heitir ameríksk söngvamynd, sem sýnd er á Gamla Bíó núna. Aðalhlutverkið leikur Anne Neagle. Aukamyndin er hnefa- leikakeppnin milli Joe Louis og Buddy Baer. / Útsvar Ingvars. Frh. af 2. síðu. það skipa 5 menn frá hverjum lista, er standa að núverandi Rikisútvarpið. (Frh. af 2. síðu.) gagnrýni fyrir kirkjulega starf- semi sína. Hins vegar játa allir, að dagskrá útvarpsins þurfi að öðru leyti stórkostlegra umbóta við, en um það er ekkert feng- izt. Það eru því ekki umbæt- urnar á útvarpinu, sem er ver- ið að hugsa um, heldur það eitt, hvort einhver Framsóknarmað- ur utan af landi geti setzt að í Reykjavík! Vel má vera, að biskup lands- ins þurfi aðstoðarmann til skrifstofustarfa, og það er vit- anlega sjálfsagt af ríkisvaldinu að búa svo vel að hinu þýðing- armikla og virðulega embætti hans, að sómi sé að, en það nær ekki nokkurri átt að ríkisút- varpinu sé gert að skyldu að greiða kostnað við biskupsemb- .ættið! Það var á öllu meiri þörf við útvarpið en að ráða því ráðu- naut í kirkjumálum. Oliva de Havilland Þetta er hin fræga ameríkska leikkona, Olivia de Havil- land, sem sézt hefir í mörg- um kvikmyndum hér á landi. Hún tók upp þá nýbreytni að bera á barmi sér frímérki, sem seld eru til styrktar landvörnunum, og voru ljós- myndararnir í Hollywood ekki lengi að taka af því ótal myndir. Flugslysið. Framhald af 2. síðu. sýndist hún þá vera í um 30 metra hæð, og steyptist hún með allmiklum hraða til jarðar. Kom hún niður beint á nefið í móum rétt við völlinn og eyðilagðist algerlega að sögn forstöðu- manna Flugfélagsins. Lá hún í mörgum hlutum. Allir þeir, sem voru í flugvélinni lágu þó í búk hennar, er að var komið. Smyrillinn var í raun og veru ný flugvél, þó að hann sé ekki sama vélin og kom frá Ameríku um daginn. Búkurinn var nýr, vængirnir voru nýir og hreyfill- inn var raunverulega alveg nýr, en ýmislegt smávegis í vélinni var í vélinni, sem hrapaði í Skerjafirði í fyrra. Hafði vélin verið nýlega upp gerð og var búið að fara þrjú reynsluflug á henni. Ekkert kom í ljós í henni, sem þótti athugavert, en þetta var fyrsta áætlunarferðin henn- ar. Þetta er mikið áfall fyrir Flugfélag íslands og hlýtur að breyta mjög áætlunum félags- ins fyrir sumarið. Flugfélagið átti þrjár vélar og hafði í hyggju víðtæka starfsemi á sumri kom- anda. Nú verður það að breyta þessum áætlunum sínum vegna þessa hörmulega slyss, og hlýtur það að skapa mikil vonbrigði hjá öllum landsmönnum. -----«Jl- Nýtt hraðfrystihús. Frh. af 2. síðu. í því eru tvær 100 hestafla Dieselvélar og stórir frysti- klefar, sem rúma um 400 smál. fiskflaka. Húsið er stórt og rúmgott og getur unnið úr 42 smál. fiskjar á sólarhring. í því er einnig upp- hitaður kaffisalur fyrir 50 manns. I morgun byrjuðu aðeins nokkrar stúlkur að vinna, en þegar allt er tilbúið og nægur fiskur er fyrirliggjandi, geta um 70—80 manns haft atvinnu þar. Hraðfrystihúsið mun upp komið kosta 450 þús. kr. Stjórn hlutafélagsins skipa Erlendur Þorsteinsson, Friðrik Guðjónsson, sem er formaður stjórnarinnar og framkvæmda- stjóri, Andrés Hafliðason, Aage Schiöth og Ingvar Guðjónsson. Fiskafli var sæmilegur hér í dag, 6—9 þúsund pund. Viss. meirihluta bæjarstjórnar. For- maður . ráðsins er bæjarfógeti Guðm. Hannesson, sem einnig 1 er samkvæmt lögum formaður yfirskattanefndar, sem átti að . fjalla um þetta mál eftir tillögu A-listafulltrúanna og lögvim samkvæmt. Á Íokuðum fundi bæjar- stjómar í gaprkveldi var sam- þykkt lausnarbeiðni Andrésar Hafliðasonar bæjarfulltrúa. Sennil^gt er að sæti hans taki Þormóðpjg Eyjólfsson, sem eins og menn muna var strikaður svo út yið síðustu kosningar, að .. hann. tyífé]). , ., : Enn ;.hé:|ir!„ekki, verið kosinn. bæjarstjóri, sem þó skyldi lok- ið.: fyrir -gO. marz s.l. Um stöð- una sótti aðeips einn maður, Jón N.’Sigurðsson lögfræðing- ur. Eftir að umsóknarfrestur var liðinn hefir Alfons Jónsson lög- fræðingur boðizt til þess að taka að sér starfið. Alfons var bæjarstjóraefni Sjálfstæðis- og i Framsóknarflokksins 1938. Þá * hefir einnig heyrzt hér að Framsóknarflokkurinn telji Ei- rík Pálsson logfræðing,. sem nú mun starfsmaður hjá alþingi, fúsan til þess . að taka þetta starf að sér. Talið er að 15 manna ráðið éigi að taka á- kvörðun urn kosningu bæjar- . stjóra, og hafi'þvi verið frestað þar til Andrés Hafliðason væri formlega farinh úr bæjarstjórn. ’ " . Viss. FatapressHB P. V. Bierlng Smiðjustíg 12. Sími 4713. Pressar fatnað yðar fljótt og vel, — Tek einnig fatnað í kemiska hreinsun. Ibúð 2—3 herbergi og eldhús óskast 14. máí. A. v. á. Konan mín, GUÐRÚN SVEINSDÓTTER, andaðist að Vífilsstöðum í gær. Fyrir hönd vandamanna. • Guðjón Bjarnason. Jarðarför mannsins míns og sonar, MAGNÚSAR HALLDÓRSSONAR, járnsmiðs fer fram, fimmtudaginn 16. þ. m. kl. 2V> e. m., frá heimili hans Nýlendugötu 17. Jarðað verður í Fossvogsgarði. Sabína Jóhannsdóttir, Halidór Hallgrímsson. Við þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför frú ÁSTU HALLGRÍMSSON Kristrún Benediktsson, Tómas Hallgrímsson. Þökkum imiilega auðsýnda hluttekningu við fráfall og jarðarför NICOLAI HANSEN hjúkrunarmanns. Aðstandendur. Móðir okkar, * ELÍN SÆMUNDSDÓTTIR frá Lækjarbotnum, andaðist aðfaranótt þ. 14. þ. m. á heimili dóttur sinnar, Ný- lendugötu 15 A. , Fyrir hönd okkar og annarra vandamarma. Katrín Pálsdóttir. Sæmundur Pálsson. Jarðarför JÓHANNS HÖSKULDAR STEFÁNSSONAR fer fram frá dómkirkjunni á morgun (fimmtudag) og byrjar með bæn að elliheimilinu Grund kl. 1. Aðstandendur. Eúgnnarlðgnnnm visað til 3. umræðu með 15:7 Breytingartrllögur boðaðar við 3. umr. NNARRIUMRÆÐU um gerðardómslögin lauk í neðri deild í gær. Samþykkt var að vísa frv. til 3. umræðu og greiddu 15 Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn atkvæði með því, en 7 voru á móti. Voru það Alþýðuflokksþing- mennirnir f jórir, kommúnist- arnir tveir og Héðinn Valdi- marsson. Sjálfstæðismennirnir . Jón Pálmason ^ og Sigurður Krist- jánsson, sem höfðu gagnrýnt lögin harðlega við 2. umræðu, greiddu þó atkvæði með þeim í gær til 3. umræðu, en sögðu áður, að þeir myndu leggja fram breytingartillögur við frv. þá. Bergur Jónsson tilkynnti einnig, að hann mundi bera fram breytingartillögur við frv. við 3. umræðu, og vill hann breyta nafni gerðardómsins, með öðrum orðum: hann viður- kennir, að stofnunin sé enginn gerðardómur. Mazistar óttast and- stððn norsku kirhj- nnnar. NORSKU prestarnir predik- uðu á sunnudaginn eins og ékkert hefði í skorizt. Mun það þó hafa verið ætlun Quislings að láta lögreglu sína vama þeim inngöngu í kirkjurnar, en á síðustu stundu kom skipun frá Þjóðverjum úm að láta þá fara allra sirina ferða um kirkj- umar. Virðast nazistamir vera orðnir hræddir við baráttu norsku kirkjunnar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.