Alþýðublaðið - 17.05.1942, Page 5
Stramtdagur 17. maí 1942.
ALÞÝÐUBLASIÐ
HÁKON KONUNOUR SJÖUNDl
rn •
• W 3*«
Samtal við August Esmarch, sendí-
herra Norðmanna hér.
■4 nr MAÍ,' þjóðhátíðardagur Norðmanna, er j dag. líeima
J. # • fyx-ir geta Norðmenn ekki minnzt þessa d ;gs, vegna
þess, að þar bæla nazistar allt slíkt niður með kúgun og
ofbeldi. En frjálsir Norðmenn utan Noregs mínnast þjóð-
hátíðardags síns hvar sem þeir eru staddir.
Norðmenn, sem staddir eru hér á íslandi, haida 17.
maí hátíðlegan hér í Reykjavík í dag, auk þess sem Nor-
ræna félagið á íslaíndi minnist hans sérstaklega.
í tilefni af þessum hátíðahöld-
. um og þjóðhátíðardegi Norð-
manna átti Alþýðublaðið tal við
sendiiherra Norðmanna hér, hr.
Aug. Esmarch, á heimili hans í
gær.
— Við, Norðmenn á íslandi,
höfum leitazt við aS undirbúa
liátíðahöldin á þjóðhátíðardegi
okkar^ 17. mai, eins vel og okk-
ur er unnþ sagði sendiherrann,
og við hlökkum til dagsins. En
hins vegar er þess ekki að dylj-
ast, að þeir atburðir, sem nú eru
að gerast í Noregi, varpa nokkx-
um skugga á þá tilhlökkun. Og
samt sem áður hygg ég, að við
Norðmenn höfum aldrei minnzt
þjóðhátíðardagc okkar með jafn
miklum innileika og nú. Og við,
sem dveljumst utan Noregs,
hugsum þennan dag með djúpri
virðingu og þakklæti til þeirra,
Noregssöfnunin
I
JÁRSÖFNUNIN
TIL
NORÐMANNA hefst í
dag um allt fsland. Fer hún
fram í hverjum einasta bæ,
kauptúni og hreppi á landinu,
við sjó og upp til sveita. Þeg-
ar er vitað, að deildir Nor-
ræna félagsins efna til sam-
koma af tilefni þjóðhátíðar-
dags Norðmanna í dag: hér í
Reykjavík, á ísafirði, á Siglu-
firði og á Akureyri.
Söfnunin fer fram með
þrennum hætti: með merkja-
sölu, meS almennum sam-
skotum og með skemmtisam-
komum. Mun söfnunin halda
áfram næstu vikur.
Hér í Reykjavík verða
merkin afhent kl. 9 í Iðnskól-
anum. Skátastúlkur, svo og
aðrir unglingar, selja merkin.
í Iðnskólanum verður og tek-
ið á móti gjöfum. í*á verða
merkin og seld og tekið á
móti gjöfum í Blaðabúðinni í
Austurstræti 14. En framveg-
is verður tekið á móti gjöfum
í öllum bókaverzlunum bæj-
arins, í öllum blaðaafgreiðsl-
nni í bænum, svo og hjá Nor-
na félaginu.
E
Forystumenn Norðmanna
AUGUST ESM ARCH
sendiherra.
sem heima dveljast, fyrir þá ó-
bugandi hugprýði og þraut-
seigju, sem þeir sýna á þessum
ógnatímum.
— Þær þungbæru raunir, sem
föðurland vort hefir ratað í, hafa
þrátt fyrir allt haft það í för
með sér, að þjóðin er nú samein-
aðri en nokkru sinni fyrr. 1
hlekkjum nazistánna lifa nú og
starfa útgerðarmenn vorir og
verzlunarmenn, vísindamenn,
embættismenn, bændur og
verkamenn hlið við hlið, og sú
persónulega vinátta, sem nú
tekst með þeim, mun haldast
alla ævi.
— Það hefir verið Noregi og
norsku þjóðinni ómeíanleg gæfa,
bætir Esmarch sendiherra við,
að vér höfum á þessum örðugu
tímum átt' konung, sem vegna
persónlegra eiginleika sinna er
sjálfkjörinn leiðtogi allrar þjóð-
arinnar og sem alíir Norðmenn
hafa fylkt sér um. — Haraldur
hárfagri sameinaði Nóreg i eitt
ríki Hákon konungur sameinar
Norðmenn í eina þjóð.
Oivarp Morrænaíélagsins
TT LUKKAN 13,15 lúðra-
hljómleikar frá Austur-
velli, kl. 13,30 ávarp Sigurgeirs
Sigurðssonar biskups frá svöl-
um alþingishússins og kl. 14
norsk messa úr dómkirkjunni.
Útvarpið í dag er yfirleitt allt
helgað þjóðhátíðardegi Norð-
manna.
NDA ÞÓTT NQREGUR
sé nú, undir oki nazism-
ans, iokað land, höfum við
heyrt hitt og þetta af hirmi
vopn.iau.su og þögulu, en
þrautseigu og hugprúðu bar-
áttu norsku bjóðarinnar
heima fyrir. En þótt merki-
legt megi virðast, vitum við
mikþi .minna um þann öfluga
þátt, sem frjálsir Norðmenn
úti urn heim taka, undir for-
ustu norsku stjórnarinnár í
London, í stríðinu gegn naz-
isipamjm. og' þann mikla und-
irbúning, sem fram fer meðal
þeirra tii þess að endur-
heimtá land sitt og frelsi
þess. ,
Alþýðublaðið vill því í dag
biría í íslenzkri þýðingu ræðu
um þessa baráttu frjálsra Norð-
manna, sem Hákon konimgr.r
flutti í útvdrp til Ameríku þ. 9.
apríl síðastliðmn, ’þegar tvö ár
voru Iiðin frá mnrásinni í Noreg'
Hún gefur í síuttu og yfirlits-
góðu máli ágæta hugmynd uni
þennan þáttinn í frefsisbaráttu
norsku þjóðarinnar.
Fer ræðan hér á eftir:
Arásin á Noreg níunda apr-
íl fyrir tveimur árum var
óvæntasti atburður stríðsins —
bæði í augum Vesturvelda
Evrópu og okkar sjálfra. Flestir
Norðmenn höfðu vonað, að hægt
yrði að halda þjóðinni utan við
stríðið á sama hátt og i fyrri
heimsstyrjöldinni 1914—.1318.
Þjóðverjar notfærðu sér það,
að oss kom árás þeirra á óvart
og gengu á land samtímis á
mörgum þýðingarmiklum stöð-
um á hinni löngu strandlengju.
Og þegar Noregur var hertekin
eftir tveggja mánaða hetjulega
vörn gegn óvini, sem var mörg-
um sinnum sterkari í lofti, á
Nýgaardsvold forsætLsráðherra, Hákon konungur og Ólafur
krónprins á fundi í London.
láði, og á legi, átti yfirstjórn
laridsLns ekki nema um tvennt
að velja: ;annað’hvort að láta
hina þýzku ofbeldismenn kúga
sig, eða fara úr landi og halda
baráttunni áfram utan landa-
mæranna. /
Vér völdum síðari leiðina —
og það var í raun og veru ,eina
leiðjn fyrir frelsisunnandi þjóð.
Noregur heldur áfram að berj
ast.
Noregur en enn þá í stríði
við Þjóðverja og verður það,
þar til freLsið er fengið á ný.
Það er bersýnilegt, að bar-
átta vor verður að vera liður í
hinni sameiginlegu baráttu
Bandamanna. Og hinn stóri
verzlunarfloti vor gerir oss að
síerkum þætti í þeirri baráttu.
Þegar Noregur lenti í styrj-
öldinni áttum vér ágætan kaup-
skipaflota, bæði hvað snerti á-
hafnir, stjórn og útbúnað skip-
anna, og þegar norska stjórn-
in hafði 22. apríl 1940 gert upp-
tæk öll norsk skip, sem ekki
voru í höfnum óvinalanda eða
Kveðja Nygaardsvólds
Þessari kveðju frá Nygaardsvold, forsætisráðherra norsku stjórn-
arinnar í London, hefir verið dreift í tugþúsundatali út á meðal
norsku þjóðarinnar heima.í Noregi. Hún hljóðar þannig á ís-
lenzku: „Stutt kveðja frá þeim, sem starfa fyrir málstað Noregs
utan landamæranna. Norska þjóðin getur hughraust horft inn í
l'ramtíðina. Sá dagur skal koma, að landið okkar verði aftur
frelsað frá neyð og kúgun. Johan Nygaardsvold.“
hernuminna, og The Norwegian
Shipping and Trade Mission
var stofnað í London; var vax-
andi skipastóll lagður fram til
hernaðarþarfa.
Vér viljum í þessu sam'bandi
leggja áherzlu á það, að ekkert
einasta skip, engin einasta áhöfn
lét undir höfuð leggjast að hlýða
strax skipun stjórnarinnar um
að leita næstu hafnar banda-
manna, og þegar vér og stjórn-
in komum til Engiands í júní
1940, höfðum vér um þúsund af
beztu skipum í heimi, samtals
um 4 milljónir smálesta burð-
armagni og 30 000 til 35 000
sjómenn og hvalveiðara, til þess
að halda baráttunni áfram og
hjálpa Bandamönnum til að
vinna stríðið.
Bretar hafa látið uppi að um
40 prósent af allri olíu og um
20 prósent af öllurn matvælum
og öðrum nauðsynjavörum, sem
til Englands eru fluttar, séu
fluttar með norskum skipum.
Norski kaupskipaflotinn sigl-
ir enn þá um öll höf heimsins,
og er því öflugur aðili í stríðinu.
Brezkir sérfræðingar hafa líka
lýst því yfir nýlega, að það væru
engar ýkjur, þótt þáttur Noregs
í stríðinu hafi verið og sé svp
mikill að Bandamenn gætu ekki
verið án hans.
Um þessar mundjr eru norsk
skip, samtals 3,5 milljónir smá-
lesta að burðarmagni annað-
hvort í þjónustu War Transport
eða norskrá skipafélaga, önnum
kafin við flutninga fyrir Banda-
menn.
Og frá því Þjóðverjar réð-
ust inn í Noreg til ársloka 1941
höfum vér misst um 200 skip
samtals 1,3 milljónir að burðar-
magjni, og á sama tíma um
1300 menn.
Það var hlutverk stjórnarinn-
ar um leið og vér komum til
Englands, að koma á víðtæku
embættismannakerfi, sem ekki
einungis sér um málefni frjálsra
Norðmanna, heldur tekur virk-
an þátt í styrjöldinni gegn hin-
um sameiginlega óvini.
Herskyldu hefir verið komið
a meðal norskra borgara erland-
is, og strax meðan orrusturnar
geisuðu í Noregi var farið að
vinna að því, að stofna nýjan
norskan her í Stóra-Bretlandi.
Framh. á 6. síðu.
I