Alþýðublaðið - 07.06.1942, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 07.06.1942, Blaðsíða 3
íð&imttða&uF '1L AL^DLiCLADiP Ginn af dverg* kafbátum Japana. flótta er a Dvergkafbátar Japana hafa tekið ,þátt í tveim árásum í þessu stríði, á Pearl Harbor og Sidn- ey. Hið siðara misheppnaðist rdgerlega og þrem kafbátum var sökkt. Auk bess hafa Banda- menn sökkt fjölda annarra kafbáta í Kyrrahafi nýlega. Hér sézt mynd af dvergkafbát. Hersveltir Rltehles gera stér- kostleg gagnáhlaup i Libp. Fréttaritarar spá mikilli gagnsókn af hálfu Breta. Loftárás á Neapel. London í gærkveldi. BRETAR HAFA GERT stórkostleg gagnáhlaup í Libyu, sem fréttarritarar spá, að kimni að verða að öflugri gagnsókn innan skamms. Áhlaupin hófust á fimmtudags- kvöld og í dögun á föstudag höfðu brezku og indversku hersveitirnar náð fyrsta takmarki sínu, sem enn hefir ekki verið skýrt frá, hvert var, en að líkindum haía verið víggirt- ar framvarðastöðvar Þjóðverja, Aðaláhlaupin hafa verið gerð skammt frá hliðunum á sprengjubeltum Breta, en það erú mikilvægar stöðvar fyrir Þjóðverja. Stórorrustur geisa nú í eyðimörkinni og segja sumir tíðindamenn, að bær séu Jhinar mestu, síðan sókn Rommels hófst. Ein þýzk sveit hefir gert áhlaup til norðurs og komist um 30 km. norður fyrir aðalstöðvar Þjóðverja. Þessi sveit var þó ekki stór, aðeins 20 skriðdrekar og brynvarðir bílar, svo að áhlaupið er ekki talið vera mikilvægt. Brezki flugherinn heldur uppi stöðugum árásum á her- sveitir Þjóðverja á og fyrir aftan vígvöllinn. Ennfremur hefir hann gert margar árásir á flugvelli að baki víglínum Þjóðverja og unnið þeim þar hið mesta tjón. Loks hefir flugher Breta í Miðjarðarhafslöndunum gert miklar árásir á Ítalíu sjálfa. Bretar tilkynna aðeins árás á Syrakusa á Sikiley en ítalir hafa sagt frá því að niikil árás hafi verið gerð á Neapel, og hafi tekið þátt í henni fjölda margar sprengjuflugvélar. að þeir gætu bjargað sér sjálf- ir og þar við sat. Það er líklegast, að tilgang- ur Þjóðverja með hinum miklu árásum á Bier Hakeim hafi verið að neyða Breta til þess að flytja lið suður á ■ bóginn Prökkum til hjálpar og þannig að fá betra svigrúm fyrir sín- ar eigin hersveitir norðar í landinu. Það hefir, eins og ber- sýnilegt er, ekki tekizt ennþá. Japanir taafa goldiO taið mesta aftaroð, segir Nlmitx ; ..........♦ ■ Ameríkumenn reka flóttann Pearl Harbor, Hawaii, í gærkvöldi. IC* LOTADEELD JAPANA, sem gerði árásina á Midway, ^ er á flótta frá eynni, og reka ameríksk herskip flóttann. Bersýnilegt er, að Japanir hafa hætt við frekari árás á eyna, þegar þeir sáu, hversu hörð mótstaða Atneríkunianna var. Gerðu þeir loftárás á Midway og síðan kom aðeins einn kafbátur upp að ströndinni og hóf skothríð á land. Það virð- íst hins vegar svo, að fréttir um, að flotadeild Japana sé all öflug og heldur stór til þess, að hejtni hafi aðeins verið ætl- að að gera þessar árásir. Yfirforingi Amerikska flotans á Kyrrahafssvæðinu Chester W: Nimitz, hefir gefið út eftirfarandi tilkynningu um orrustuna við Midway: „Svo virðist, sem óvinirnir hafi lagt á flótta, en við höldum orrustunni áfram. Því fleiri frettir, sem berast af orrustuni, því ljósara verður það, að Japanir hafa goldið hið mesta afhroð, og mörg skip þeirra af öllum gerðum hafa laskazt. Tjón þeirra er mörgum sinn- urh meira én tjón Bandaríkjamanna. Það er enn of snemmt að segja, að Japanir hafi beðið stórkostlegan ósigur, en eklrí er of sögum sagt, að segja, að Bandaríkjamenn hafi full yfir- ráð á svæðinu við Midway. „Því má bæta við, að Nimitz er talinn vera maður varkár og mundi hann aldrei gefa út til- kynningar, sem hann ekki getur staðið við. Þetta voru þær staðfestu fregnir, sem borizt hafa af or- ustunni við Midway. Á hinn bóginn hafa borizt margar ó- staðfestar fréttir, sem skýra BIER HAKEIM. Frakkar verja Bier Hakeim enn af sama vaskleik og áður. Bærinn er nú eínangraður og hafa Þjóðverjar gert ítrekaðar tQraunir til þess að ná honum á sitt vald. Stöðugar árásir hafa verið gerðar á harrn og hafa tekið þátt í þeim skriðdrekar, lótgöngulfð og steypiflugyéku*'. Svo leit út, sem Frakkar mundu innan skamms verða vista og skotfæralausir, en Bret um tókst að koma flutninga- lest til þeirra að næturlagi og ílytja þeim mikið af vistum og skotfærúm. Ritchy, herforingi Breta bauð foringja Frakkanna að senda honúm Uðsauka, en Frákkinn vildi það ekki, sagði. Quisliog rekur allao lífvörð sittB. Eæi'ðir fyrir hnupl, svallog drykkjuskap* Washington, 6. júná. NORSKA SENDIRÁBIÐ hefr ir sagt frá því, að fyrir nokkru sé upp komið mikið hneykslismál í lifverði Quisl- ings. Tveir nienn í lífverðimun voru kærðir til Gestapo fyrir hnupl, svall og drykkjuskap. Eru þeir fyrrverandi lögreglu- þjónar í Osló, og höfðu ailað sér fjár á þann hátt, að þeir seldu sykur og hveiti af birgð- Quislings, en hann mun ekki skorta slíka vöru, þótt hún sé ófáanleg öllum almenningi. IHafin var rannsóim í málinu og kom í Ijós, að fleiri af fylgi- fiskum Quislings voru flæktir f málið. Varð endirinn sá, að Quisling varð að reka alla lff- varðarsveit sína. Var hinum reknu þó ekki algerlega kastað burt, heldur fengu þeir ýmsar stöður í lögregluliðum ýmissa smábæja. Þessu naest auglýati Quisling nánar frá tjóni Japana. Brezka fréttastófan Reúter, segir, að það sé, sem hér segir: Tvö or- ustuskip, eitt flugvélamóður- skip, 11 beitiskip, einn stór túndurspillir, 20 aðrir tundur- sþillar, 12 kafbátar og mörg önnur skip af ýmsum minni gerðum. Sagt er í frétt Reut- ers, að annað orustuskipið sé af Harunagerðinni, 29,330 smá- lestir, byggt árið 1913. Ameríkskar útvarpsfréttir í gærkveldi hermdu, að tjón Ja- pana væri að líkindum eitthvað á þessa leið: Tvö orustuskip, tvö flugvélamóðurskip, tvö * beiti- skip_og mörg önnur skip, þar á meðal flutningaskip. Alls munu skipin vera 12—18. Loks sagði brezka útvarpið í gærkveldi, að skipin væru að minnsta kosti átta. Það er vafa- laust, að sumar þessara frétta um hið stórkostlega tjón Ja- pana eru ýktar, en hitt er ber- sýnilegt, að þeir hafa orðið fyr- ir alvarlegum skellí. Áreiðanlegt er, að mörg ja- pönsk skip hafa laskazt og þá sennilega misst hraða. Þetta gefur ameríksku herskipunum og flugvélunum, sem reka flóttann, aukna möguleika tíl þess að ná þeim og sökkva þeim í sæ niður. eftir ungum mönnum í nýjan lífvorð og áttu mennimir að vera af hreinu germönsku kyni. Tilkynning sendiráðsins endaði á þessum orðum: ,Þáð verður án efa erfitt fyrir Quisling að ná sér í aðra lífvarðarsveit, þar eð mennimir verða að véra meðhmir úr flokki Quisiings, én um lelð andlega beilbrigðlrtM Aðmíráll frá ís- landi til Nexíko- fíóa. New York, 6. júní. P YRIR NOKKRU var yfir- * foringi ameríkska flotans á íslandi, Kaufmann, aðmír- áll, kallaður heim til Banda- ríkjanna, og honum fengin í hendur önnur staða. Var hann gerður að yfirflotaforingja á. Maxicoflóa og átti að sjá svo um, að flutningaskip Ameriku- manna fengju þar næga her- skipafylgd, þar eð mikið bar á kafbátum Öxulríkjanna þar og höfðxi þeir sökkt sldpum allt að ósum Missisippifljótsins. Kaufmann, aðmíráll, er sér- fræðingur í baráttu við kafbáta og að kanna allt, sem að því lýtur, og skipum þeim, sem notuð eru til þess að gera út af við kafbátana. Um hið nýja starf sitt sagði Kaufmann: „Við verðum að skoða Mexicoflóann sem or- ustusvæði, þar til hver emasti kafbátur, sem inn á hann kém- ur verður eyðilagður." Það var mikill heiður fyrir Kaufmann, að honum var falið þetta starf, þar eð það er talið mjög mikilvægt. Kafbátar Ök- ulríkjanna haía verið í flóaa- um um alUangt skeið og gért þinn mesta usla. Sökktu þeir

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.